Þjóðólfur - 19.05.1899, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 19.05.1899, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR. 51. árg. Reykjavík, föstudaginn 19. maí 1899. Nr. 24. WF“ T H U L E -1« er útbreiddasta lífsábyrgðarfélag á Norðurlöndum Lág iðgjöld, hár bonus, enginn aukakostnaður, þýðingarmikil hUinnindi fyrir sjúklinga. THULE er stjórnað undir yfirumsjón sænsku ríkisstjórnar- innar. Upplýsingar um THULE fást ókeypis hjá umboðsmönnum félagsins og aðalumboðs- manriinum. BERNHARÐ LAXDAL, Patreksfirði. Um Valtýskuna hefur Þjóðólfi borizt hitt og þetta úr sveitinni núna með síðustu ferðunum, og er svo að sjá sem vegur bennar og virðing hafi ekki aukizt í aug- nm almennings við Eimreiðargreinina góðu, og að fólki sé nú farið að skiljast, hvert þetta háska- lega heimskuflan stefnir, þrátt fyrir allar háværu prédikanirnar í »Þjóðviljanuro« og allan skollaleik- inn í »ísafold«. En laumupésinn eða »katekism- usinn« nýi hefur eigi komizt út um landið svo snemma, að menn hafi verið búnir fyllilega að átta sig á hontim. En trauðla munu margir gína yfir þeirri tálbeitu, sem þar er dorgað með framan f landsmönnum, enda þótt flugan sé vandlega fægð, til þess að hún gangi betur í augun. En hvernig stendur á því, að þessir skugga-Valdar, sem alltaf eru að »pólera« Valtý og pólitikina hans, minnast ekki einu orði á einn aðalþáttinn í »stjórnartilboðinu«: af- nám 6x. gr. stjórnarskrárinnar. Hvers vegna skýra þeir það ekki fyrir þjóðinni, af hverju stjórninni er svo umhugað um, að losna við aukaþingin og nýjar kosningar, þá er stjórnar- skrárbreyting er samþykkt af þinginu? Það ætti þó að vera nokkurnveginn ljóst. Stjórnin vill endilega ná frá oss þessu eina vopni, er vér höfum f höndum til að sýna henni, að til séein- beiítur vilji í landinu, er éitthvað vill í sölurn- ar leggja tyrir sinn málstað. Af því að stjórn- inni þykir hálfóþægileg þessi s k y 1 d a hennar að leysa upp þingið og fá að nokkru leyti nýja menn optar en á 6 ára tímabili, þá vill hún losna alveg við hana, svo að hún geti í makind- um skellt skolleyrunum við öllum samþykkt- um þingsins, án þess að hreyfa legg né lið. »Spriklið þið nú, getur hún þá sagt, eg heyri hvorki né sé það sem fram fer á þing- ínu. Nú þarf eg ekki að vera ónáða fólkið með nýjum kosningum út af þessum stjórnarskrárhé- góma. Kosningarnar kveikja þó vanalega ein- hvern lífsneista hjá þjóðinni í bili, og eg vil ekk- ert hafa með þess konar hringl. Eg vil láta fólkið hafa frið, ró og nógan svefn, því að þá get eg sofið líka, og kemst hjá því, að þessir piltar séu ávallt að hrista mig þvernauðuga og gera mér ónæði með þessu sííelda stappi sínu, sem eg hef nú leitt til heppilegra lykta með því að ná burtu þessu ólukkans glappaskoti í 61. gr., sem slæddist þar inn í ógáti, og lengi hefir verið mér til ama. Og þessi heppilegu úr- slit 1 hrossakaupunum á eg að þakka dr. Valtý og þeim sem hann náði í fylgi með sér. Og það gekk betur en eg vonaðist eptir. Þeir eru vlst hálfgerðir þorskar, þessir íslendingar, þeir hafa líka þorskinn í merkinu sínu, aumingja mennirnir, og það var fremur fyrirhafnarlítið að mýla þá og tjóðra. Þeir skulu ekki losna úr því bandi í bráðina«. Ur Dýrafirði skrifar merkur maður 3. þ. m. »Illa gezt mönnum að ritgerð dr. Valtýs 1 Eimreiðinni síðustu, og þykir mönnum, sem hann þar syngi útfararsálm yfir dóttur sinni. Reyndar vill Isaf. fræða fólkiðáþví, að ritgerð sú komi ekki stjórnartilboðinu við, en tregir eru menn að trua því, heldur virðist mönnum, sem þar sé ljósi brugðið yfir skoðun stjórnarinnar og sýnt, hvernig stjórnarbótinni (?) valtýsku yrði beitt, ef til framkvæmdanna kæmi. Og það er mér óhætt að segja, að hér í vestursýslunni hafa býsna margir illt auga á valtýskunni og telja hana mikla apturför frá þvl sem er og hættulega villigötu, hvað sem ofan á verður á þingmála- fundi þeim, sem heyrzt hefir að nokkrir menn hér í firðinum hafi boðað til um miðjan þ. m.« Heimskuleg bíræfni. Það er ekki fyllilega rétt, að ritstjórar ísa- [ foldar kunni aldrei að skammast sín, eins og margir hafa haldið. Þeir kunna það þó stund- um, þótt það beri ekki opt við. Það sást t. d. í næstsíðustu Isafold, að þeir blygðuðust sín fyrir allt pukrið með ráðgjafakatekismusinn, því að nú skal það heita svo, að það hafi aldrei verið í neina launkofa með hann farið. Og sönnunin tyrir því er svo frámunalega heimskuleg, að það er eins og óvitabörn hefðu sett hana fram. Tak- ið þið nú bara eptir, og dæmið svo um gildi þessarar sönnunar. Hún er sú, að bæjarfógetinn hafi fengið 1 eintak bæklingsins undir eins og hann var prentaður. Þetta getur litið dável út fyrir fáfróðan almúga, sem ef til vill ímyndar sér, að bæjarfógetinn sé sendill ritstjóranna og hafi átt að ganga með þetta eintak sitt á meðal bæjarmanna. En nú er því svo varið, eins og nm ára gamall laganemi og prentsmiðjueigandi ætti að vita, að það er bein lagaskylda að af- henda lögreglustjóra (sem hér er bæjarfógetinn) eitt eintak af sérhverju riti, sem ekki er stærra en 6 arkir, og það á að gerast undir eins og ritið er látið af hendi úr prentsmiðjunni, að viðlögðum 20—500 kr. sektum, ef út af er brugð- ið. (sbr. 4. gr. tilsk. um prentfrelsi 9. maí 1855). Hversu leynt sem ritið á að fara verður það því að sendast tafarlaust lögreglustjóra, ef út- gefandi vill ekki baka sér stórsektir. Annað eins og þetta hlýtur laganeminn að vita, en hví dirfist hann þá að láta blaðið sitt flytja aðra eins tjarstæðu til að fóðra pukrið gagnvart ó- fróðum almuga? Það er hreint og beint óskiljan- leg bfræfni, fremur en eintómur naglaskapur. Það er svo að sjá, sém þessir herrar séu reiðu- búnir til að leggja sinn sáluhjálpareið út á, að bæjarmönnum hafi verið fullkunnugt um »kat- ekismusinn« frá upphafi, og að hann hafi ávallt fengizt ókeypis á skrifstofu Isafoldar eða löngu áður en hans var fyrst getið í Þjóðólfi. En þetta eru helber ósannindi, sem reka má of- an í ritstjórana með margföldum sönnunum. Þá er Þjóðólfur gat bæklingsins fyrst voru menn hér svo ófróðir um tilveru hans, að menn efuðust 1 um að þetta gæti verið satt. Það hafði enginn heyrt hans getið og þó var hann þá prentaður fyrir 2 —3 vikum og sendur austur og vestur um land. Til að ganga úr skugga um tilveru þessa leynirits var sent á skrifstofu bæjarfógeta, því að þar vissu menn, að það hlyti að vera, ef það væri til, og það reyndist rétt. Ritstj. Isafoldar varð nauðailla við, að Þjóðólfur komst að þessu svona fljótt, og neyddust þ á til að láta stöku menn fá »katekismusinn«, en mörgum var samt neitað um hann, þótt Þjóðólfur væri búinn að fletta ofan af pukrinu, og það væri því tilgangs- laust lengur. Þeir fóru samt svona smátt og smátt að skammast sín fyrir pukrið, eptir því sem lengra leið frá, og afihenda pésann fleirum. Svona er nú þessi saga rétt sögð, eins og bæj- arbúum mun fullkunnugt. Og þeim er eins full- kunnugt um, að ritlingi Ben. Sveinssonar »Um Valtýskuna« var alls ekki haldið leyndum. Hann var þegar, er hann var kominn út sendur ýms- um mönnum hérí bænum, bæði Val- týssinnum og öðrum, að undirlagi höf. sjálts, meira að segja ritstjórum Isafoldar að vér hyggjum, enda voru þeir mjög fljótir á sér að geta hans og minntust þá ekki einu orði á puk- ur. En þegar búið er að fletta ofan af þeim sjálfum, þá afsaka þeir sig meðal annars með því að bregðá andstæðing sínum um sama (!!) og segja, að ritlingurinn hafi verið heptur á nætur- þeli o. s. fr. og getur vel verið, að svo hafi ver- ið, því að höf. varð svo naumt fyrir með samning og prentun á ritlingnum, að það var mesta furða, að hann gat komið honum með því skipi, er hann sjálfur fór með til útlanda. Það er sannarlega leitun á jafnöfugri rök- semdafærslu, jafn naglalegum afsökunum og jafn vesalli frammistöðu yfirleitt í öllum ritdeilum, eins og hjá skáldinu og lögspekingnum í Isafold. Al- menningur hefur líka séð það fyrir löngu. Varúðarverður kaupskapur virðist það vera, sem farið er að brydda á, milli formanna í veiðistöðvum hér: Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri og botnverpinganna ensku. Það hefur sýnt sig síðan í apríl í vetur, að útlendingar þessir hafa haldið sig á svæðinu framundan veiðistöðvum þeirra og nú upp á síð- kastið fjölgar þeim óðum. Síðan hætti að fisk- ast á opin skip hér framundan, en það erfrá 18. apríl, hefur formönnum sollið móður í brjósti, að horfa svo að segja daglega á, að aflanum sé mokað upp í fiskileitum þeirra og verða einskis aðnjótandi. — Svo langt er nú komið, að nokkr- ir af áræðnustu bátaformönnum á stöðvum þeim, sem fyr greinir, og sumir af þeim, sem einna bezt hafa fiskað í vetur, hafa nú riðið á vaðið, og verzla nú daglega við botnverpinga, láta þá fá »\vhisky«, »brennivín« og »tóbak« og annað þess háttar hnossgæti. I staðinn fá þeir ýsu, þorsk, steinbít o. fl. Þessa verzlun reka þeir að dæmi Alptnesinga og annara sunnanmanna, sem gerðu sér þetta að bjargræðisveg, meðan beztu og á- reiðanlegustu fiskimið þeirra voru eyðilögð. — Þegar þess er gætt, að umræddar veiðistöðvar, sem botnverpingarnir halda sig helzt á, liggja í mjórri spildu vestur með landinu, verður fljótt séð, hver afleiðingin verður, og er vel sennilegt, að fiskimið Arnesinga verði gereydd innan fárra ára. —

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.