Þjóðólfur


Þjóðólfur - 26.05.1899, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 26.05.1899, Qupperneq 1
ÞJÓÐÓLFUR. 51. árg. Reykjavík, föstudaginn 26. maí 1899. Nr. 25. !P*~FYRIR 2 KRÓNUR-^Wi geta nýir kaupendur fengið síðari hluta þessa yfirstandandi árgangs Þjöðólfs frá 1. júlí (30 tölubjöð). Kaupbætir; myndablað Þjöðólfs 1898 með 6 myndum og afmælis- blað hans með fylgiblöðum, ef óskað er. Menn sæti þessu boöi sem fyrst. Tíðinda- vænlegt á þingi í sumar. Breyting á verzluninni. Sfðan vér rituðum grein um þetta efni í f’jóöólfi í vetur hafa tvær verzlanir hér á landi byrjað á þeirri verzlunaraðferð að láta hönd selja hendi: kaupa og selja vörurnar fyrir peninga, og það hefur reynzt ágætlega. Önnur verzlunin er verzlun O. Wathnes erfingja á Austfjörðum. Hún byrjaði á þvl snemma í f. m., að kaupa inn- lenda vöru, þar á meðal saltfisk fyrir peninga, ef menn óskuðu eigi vöruskipta, og er látið mjög vel yfir þessari nýbreytni 1 austanblöðunum, eins og eðlilegt er, því að þetta er einmitt hið eina rétta spor til að breyta verzlun vorri og semja hana að háttum annara siðaðra þjóða verzlun, ráð til að rýma burtu vöruskipta- eða reikningsvið- skiptaverzluninni og þar af leiðandi hinni óhæfi- legu lánsverzlun, eins og nánara var útlistað í Þjóðólfi. Hin verzlunin, sem tekið hefur upp þessa nýju verzlunaraðferð er verzlun Copland &. Berris á Stokkseyri, er Ásgeir kaupm. Sigurðsson í Rvfk veitir forstöðu. Þar var fiskurinn keyptur . fyrir peninga út í hönd, og svo keyptu auðvit- að seljendur aptur vörur í búðinni fyrir peninga, eptir því sem þeim sýndist, og fengu þær þá auðvitað með lægra verði en ella. Á þennan hátt urðu viðskiptin svo liðleg og fjörug, þá er mennirnir höfðu peninga handa .á milli, að þeir kunnu sér ekki læti, og voru í sjöunda himni yfir þessari gleðilegu breytingu. Skyldi það líka ekki vera dálítill munur á því og þá er kaup- maðurinn pínir hvern einasta skilding út úr við- skiptamönnum síntim, og heldur hverjum eyrin- inum svo blýföstum, að ekki er nærri því kom- andi, að hann láti hann aptur af hendi, þótt ágætar vörur séu í boði. Hvor verzlunaraðferðin skyldi vera liðlegri eða affarasælli? Sem betur fer má vænta, að gamla verzlunarlagið fari smátt og smátt að hverfa, enda getur það ekki staðizt til lengdar, ef margir taka upp hir.a aðferðina. Og það væri auðvitað bezt. Þá þyrfti ekkert beint laga- boð í þessu efni. Það væri þá að eins jðlileg fram- þróun, er hefði þessa breytingu í för með sér. En það er ei að síður sjálfsagt, að löggjafarvald- ið taki þetta málefni til íhugunar, ef það gæti á einhvern hátt flýtt fyrir breytingunni og stutt hana. Og að þessu leyti skírskotum vér til þess, er vér áður höfum ritað um þetta efni, enda hafa margir mikilsmetnir menn tjáð sig því al- veg samdóma, og viðurkennt hina afarmiklu þýð- ingu þessa máls fyrir land og lýð. En hr. Ásgeir Sigurðsson á miklar þakkir skilið fyr- ir, að hann hefur orðið fyrstur sunnlenzkra kaup- rnanna til að brjóta bág við garnlan vana, enda hefur hann að öðru leyti mikinn áhuga á aðryðja verzlun vorri nýjar brautir og gera viðskiptin sem allra greiðust. Nú mun hann t. d. hafaíhyggju, að koma því til leiðar, að spánskir fiskkaupmenn komi hingað og kaupi fiskinn hér á staðnum, og væri það stórkostleg framför, þvl að þá losnaði selj- andi við þessa mörgu og kostnaðarsömu milli- liði, og margfaldan hrakning á fiskinum, blönd- un hans saman við annan lakari fisk t. d. Nor- egsfisk o. s. frv., auk þess sem kaupandi hefði einnig hag á þessum beinu viðskiptum. Er vonandi, að hr. Ásgeir takist að korna þessum viðskiptum á. Það gæti orðið mjög mikill pen- ingahagnaður fyrir land vort og allri verzlun vorri eflaust til stórmikilla framfaia yfirleitt. Annað kapp en forsjá. --O-- Það virðist annars einkennilegt, að nú er vér Islendingar höfum starfað að því frá 1833, að flytja yfirráð sérmála vorra inn í landið, og þá er liðin eru 12 ár, frá því samþykkt var endurskoðuð stjórnarskrá (1885), skuli stjórnin einmitt senda alþingi 1897 tilboð um stjórnarskrárbreytingu, sem sýnist í fljótu áliti hafastóraþýðingufyrirstjórnar- framkvæmd vora; og um þetta tilboð skuii svo þing- menn skiptast í 2 næstum jafna flokka. Við fljóta áhugun málsins virðist eiukennilegt, að nokkur þingmanna skuli vera á móti slíku, ef það er í samræmi við þær stjórnarbótaóskir þeirra fyrir- farandi ár, er þeir hafa setið með kófsveittir mestall- an þingtímann, og svo sklrt þetta afkvæmi sitt ýmsurn nöfnum, áður þeir hafa sent það hans há- tign konunginum. — En þegar svo málið er ná- kvæmar skoðað, sýnist ekki síður einkennilegt, að nokkur þingmanna skuli hafa fallizt á slíkt og því fremur jafnmargir og það gerðu, er sum- ir hafa áður verið taldir fremriflokksmenn á þingi. — Annaðhvort virðist þetta nýja mál vera sérlega þungskilið, eða að hinni dimmri hlið þess hafi verið fylgt af meira kappi, en venjulegt er um slík mál. Jú, það mun satt, að mikið hefur ver- ið og er gert fyrir þann málstað, sem búið er að gefa nafnið »Valtýska«. Mikið er um hana skráð af þeim, er hafa meðtekið anda hennar. Kemur þar hvlvetna fram skáldlegt ímyndunarafl, og háfleygar framfara (of)sjónir, sem eru öðrum mönnum ósýnilegar, og mótmæla þeir því tilveru þeirra. Það er fyrir þá sök, að ekki þykir illa viðeigandi, að nefna þá málsparta mótmælendur- Valtýskumælendurþykjast nú skákaað öllummegin í hróksvaldi. Andagipt þeirra kemur fram í öllum hugsanlegum gerfum; svo sem tímaritum, himna- bréfum, fyrirlestrum 0. fl. o. fl. að ógreindum blaða- greinunum. Helzt lítur nú t. d. út fyrir, að við út- gáfu ísaf. sé lagður sá grundvöllur, að framan á svuntuhennar skulistanda(l(klega samt ekki ákvarð- að nema til næsta þings), fáein hugstyrkingarorð til bræðranna, og alvarlegar áminningar til mótmæl- enda, er víst ættu sem fyrst að kveðast niður. Til þessa eru hafðar margvislegar aðferðir og ó- líkar, en fátt er þar af bundnu máli, þótt eigi skorti skáldskap. En súrna mun lesendum henn- ar sjáldur í augum, er þeir lesa síðustu blöðin fyrir þing, og margir eru nú þegar orðnir hrædd- ir um, að þrátt nefnd »þungamiðja« málsins, sé farin að færast allt of ofarlega, og óska nú þess eins, að hún hlaupi ekki í höfuðið. — Að öðru leyti munu mótmælendur vera með rólegum huga, hvað stjórnmál þetta, afkvæmið frá siðasta þingi, snertir, vonandi málið verði frömuðum sínum til verðugs heiðurs, og fullvissir um, að sá partur þjóðarinnar verði stærri, og fulltrúar hans fieiri, sem heldur vilja standa í stað, en þokast til baka í stjórnmálum sínum, hvort það er með því, að hafna tilboðum sem nefnd eru stjórnbætur, eða öðru. Það er eitt m. fl. gott og sérstakt við Val- týskuna, að hún er orðin almenningi svo kunn, að þó hún sé framborin í ótal pörtum, géta þeir allir í hugmyndum manna skriðið saman, og myndað hina stórfenglegu skepnu með höfði og hala, llkt og þá jötunuxar skríða saman úr mörgum stykkjum í sögunum. Það er þe’ssi eiginlegleiki Valtýskunnar, sem hér kemur að góðu haldi, þar tekið skalaðeins fram í örfáum orðum hið helzta, semstjórnarbótinni er talið til gildis. 1. Ábyrgð ráðgjafans á stjórnarathúfninni. Hinir svæsnustu brjóstberar Valtýskunnar (t. d. presturinn í Andvara f. á.) geta þó ekki geng- ið fram hjá því, að telja vafasamt, hvernig á- byrgð þessari verði framkomið á hendur ráðgjaf- anum. Jú; það hefði líklega verið betra, að hafa ábyrgðarlög með ákvæðinu, ætti það að hafa þýðingu!! Hve stórt mundi brot ráðgjafans þurfa að vera, til þess hann yrði með lögum krafinn reikningsskapar ráðmennsku sinnar, þar eð hann líka er búsettur í Kaupmannahöfn og varnarþing hans þar? Þess utan leiðir það af sjálfu sér, að þau atriði, er ábyrgðin helzt kæmist að, væru samkvæm vilja stjórnarinnar. -— Undir öllum kringumstæðum er fyrirsjáanlegt, að ábyrgðin gæti alls eigi komið að liði. 2. Ráðgjafinn sjálfur á þingi. Hér sjá þeir efalaust stóran geisla framfara- mennirnir, sem alltaf reyna að snúa þessari hlið málsins að ljósinu. En mætti. nú ekki einnig skoða þetta »frá almennu sjónarmiði« og eins og beinast liggur við, með árangur þessa á kvæðis? »Ráðgjafanum skal heimilt embættisstöðu sinnar vegna, að sitja á alþingi, og getur einnig í forföllurn sínum sett annan mann til að semja við þingið«. Eitthvað þessu líkt stendur f sskript- inni«,oger nú á tímum talið ótvírætt atriði! En setjum samt svo, að ráðgjafinn vanalega mætti sjálfur á þingi, yrði samt engin ástæða til að halda, að hann verði leiddur af því. Þvert á móti yrði það aðalatriðið fyrir ráðgjafann, að geta ætíð látið vilja meiri hluta þingsins vera samkvæman þeirri skoðun, er hann hyggur stjórn- in hafi á ýmsum málum, sem nokkru skipta. Með því eina móti gæti hann haldið embætti sfnu og virðingu. Án þess, að bera vantraust til, að þetta yrði ráðgjafanum vanalega innan handar, mætti þó nefna það sem mögulegleika, að eitt sinn yrði meiri hluti þingsins með ein- hverju máli, er ráðgjafiun vissi stjórnina mót- fallna. Hvort mun þá undir þeim kringumstæð- um meiri líkur til, að hann framfylgi vilja þings- ins, sem hann heimsækir annaðhvort sumar, eða stjórnarinnar heima í Kaupmannahöfn, sem hef- 1 ir sett hann í embætti, launar honum úr ríkis-

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.