Þjóðólfur


Þjóðólfur - 26.05.1899, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 26.05.1899, Qupperneq 3
99 aldrei svo misviturt, að sinna að nokkru áskor- un Eyfirðinga eða þeirra annara, sem vilja gera hvalveiðamennina útlæga héðan af landi. Ritað i. sumardag 1899. Þórdur Olafsson. Frá útlöndum hafa borizt hingað blöð til 6. þ. m. Tíðindi engin markverð. Ófriður- urinn á Filippseyjunum við sama og uppreisn- in á Samoaeyjunum einnig. — Voðalegur felli- bylur sópaði burtu 400 húsum, eða nálega öllu þorpinu Kirksville í Missouríríkinu í Ameríku, en um 100 manns ætla menn að hafi látið líf sitt, og þeyttust líkin langar leiðar. Er fellibylur þessi talinn einhver hinn harðasti, er komið hef- ur um þær slóðir og sögur fara af. Vestur i Iowaríkinu gerði hann ogmikinn usla, og mann- tjón varð þar mikið. — Rússneska stjórnin hefur nú loks skipað nefnd manna til að lagfæra tíma- tal sitt samkvæmt nýja stíl, svo að Rússar geti fylgzt með öðrum menntaþjóðum, er hætt hafa að reikna eptir xgarnla stíl« fyrir löngu. En Rússar hafa hingað til verið ófáanlegir til að bregða út af gamalli venju, og eru því eins og menn vita 12 dögum á eptir öðrum í daga- talinu. Sigllng allmikil er nú komin til höfuð- staðarins, bæði kolaskip, timburskip og vöruskip. I fyrradag kom seglskipið »Reidar« (250 tons) með allskonar nauðsynjavörur til verzlunarinnar »Edinborgar« (Asg. Sigurðssonar) og kolaskip »Sverdrup« er einnig komið til sömu verzlunar. „Tvisvar verður gamall maður- inn barn:“ I>etta máltæki sannast íyllilega á Isafoldar Birni, því að eptir andsvörum hans gegn Þjóðólfi í sfðustu Isafold að dæma er auð- sætt, að maðurinn er farinn að ganga í barn- dómi. Svo amlóðaleg og barnaleg er vörnin. Reyndarhefir þar aldrei verið skæðum manniað rnæta, þegar hann hefir átt hendur sínaraðverja á ritvellinum, karlinn, en heldur hefur honum þó hrakað á síðari árum. Það er bókstaflega ekkert vit í þessurn sið- ustu greinum hans gegn Þjóðólfi. »Um vest- heimska« skáldið segir hann t. d., að honum hafi verið gefnar heiðursgjafir, er hann var send- ur heim til Islands. Hann skírir nfl. samskotin til hans þvi nafni og setur þetta svo í samband við minningarsamkvæmi,erritstjóraþessablaðs hafi verið haldið á 50 ára afmæli blaðsins. Til þess að nokkur snefill af viti gæti verið í þessum samanburði, þá hefði samskotum átt að vera safn- að handa Þjóðólfiviðþetta tækifæri, ennúvarþað ekki gert. Hver skilur svo bullið? Varnir fyrir bæjarfógetann færir hann alls engar og þá er hann ætlar að verja pukrið með katekismusinn viðurkennir hann blátt áfram,að hann hafi verið prentaður löngu áður en Þjóðólfur vissi neitt um hann. En er það ekki einmitt ágæt sönnun fyr- ir pukrinu? Annað eins vandræðaþvogl, sem þetta er alls ekki svaravert, og það er óskiljan- legt, að maður sem þykist vera með réttu ráði, skuli ekki blygðast sín fyrir að bera þetta á borð fyrir lesendur blaðs síns. Þáð sýnir ein- mitt, að maðurinn er ekki með sjálfum sér, kann hvorki að hugsa né orða neina hugsun rétt, heldur ruglar öllu sarnan í einn graut. Það er jafnvel enn lakara, en pólitiski grasagrauturinn, sem skáldið »vestheimska« er ávallt að hella ofan í og yfir ísafold, og er hann þó sannarlega ekki á rnarga fiska. En sá »vestheimski«, sem alltaf er einhvernveginn svo barnalega skoplegur, hef- ur hermt það eptir húsbónda sínurn að gerasig óheyrilega »vigtugan« af litlu, þykjast vera ein- hver voðaleg vísdómsáma, sífull af öllum gnægt- um þekkingarmnar, á Jóns Ólafssonar vísu, er þeir munti hafa tekið sér til fyrirmyndar, von- andi í sinni einfeldni, að þeir geti blekkt fáfróð- an almúga nieð nógu miklum hávaðagorgeir og hégómlegum mannalátum, til að leyna tómahljóð- inu i tunnunni, svo að almenningur heyri ekki, fyrir ærslunum, hversu nauðalítið gutlar á henni í raun og veru. En þetta stafar beinlínis af vits- munabresti, menntunarskorti ogskorti áréttri sjálfs- þekkingu. Og þaðereinmittþessiskortur,semjafn- an lýsir sér svo áþreifanlega hjá ritstjórum Isa- foldar. Þeir þekkja ekki sjálfa sig, roanngarm- arnir, og verða því hlægilegir, því að almenning- ur er farinn að þekkja þ á og sjá, hvað þeir eru og hversu mikið er í þá spunnið. Tómahljóðið heyrist gegnum hávaðann. Ný rit send Þjóðólfi. 1. Fyrsta bók Móse (Genesisj í nýrri pýd- ingu eþtirfrumtextanum. Gefin út af hinu ísl. biblíufélagi Rvík 1899 88 bls. 8V°. Þetta er sýnishorn af hinni nýju biblíuþýðingu, er biblíu- félagið fól Haraldi Nfelssyni cand. theol. að gera í hitt eð fyrra, og er hún eigi lengia kom- in. Til aðstoðar honum við þýðinguna hafaver- ið: biskupinn, forstöðumaður prestaskólans og yfirkennnari latínuskólans. Gerir biskup 1 for- málanum ítarlega grein fyrir aðferðinni við þessa endurskoðun, og afsakar, að verkið hefur eigi gengið betur en þetta, enda er það ekkert á- hlaupaverk, ef vel á að vanda, og hlýtur að kosta of fjár um það er lýkur, og að því leyti senr biblíufélagið hrekkur ekki við til að standast þann kostnað, ætti hið stórauðuga almenna brezka biblíufélag að gera það. Af landssjóði íslands væri lítil meining í að veita fé til þessa, enda ólílclegt, að þess verði farið á flot. Um kosti eða galla þessa þýðingarsýnishorns er þýðingar- laust að fjölyrða 1 almennri blaðagrein. Það yrði hvorki fugl né fiskur. 2. Heima og eriendis. Nokkur Ijódmœli eþtir Gudmund Magnússon (prentara). Höf. er áður nokkuð kunnur af einstökum kvæðum, er birzt hafa í blöðunum, og þótt hafa vel ort og smekk- lega. Það er hlýlegur, þýður blær yfir þessu litla kvæðasafni, engin stór tilþrif eða háfleyg andagipt, en flest lipurt og laglega hugsað. Það hefur margt lakara komið á ísl. markaðinn í þessari grein. Ör eptimæium 19. aldar Hver var munurinn á Jóni Sigurðssyni og Valtý Guðmundssyni? Jón sneri Dönum, en Danir sneru Yaltý- (Aðsent). Með síðustu ferð „Thyru" norður um land frá Reykjavík næstl. haust var sent olíufat án olíu, en með ýmsum munum í og var það merkt f. G. E. Lœkjarkotipr. Borð- eyri. Fat þetta hefur ekki komið til skila enn, og með því að ólíklegt er, að það sé algerlega glatað óskast það sent hið allra fyrsta með „Skálholt“ eða einhverju öðru skipi til Borðeyrar. Lækjarkoti í Víðidal io. maí 1899. Jósep G. Elíesersson Hér með látum við í Ijósi vort hjartans þakk- læti fyrir ástundun, nákvæmá aðhjúkrun og góða viðkynningu, er okkur var auðsýnd af Þóru Þor- kelsdóttur, er hér var að læra hjúkrunarkonustörr síðastliðinn vetur. Þetta biðjum við Guð á hæðurn að launa, þegar henni mest á liggur. *3/5-'99 Sjúklingarnir á Laugarnesspítalanum. VERZLUN Friðriks Jónssonar, 4 VALLARSTRÆTI 4 hefur mikið úrval af Sjölum — Kjólatau- um, — Svuntutauum, — Sirzum — Tvist- tauum — Flanelettum — Léreptum — Gar- dínutauum—Silkitauum,—Millumpilsatauum— Fatatauum— Vaxdúkum —Línolíudúkum —- Nærfatnaði fyrir karlmenn og kvennmenn — Handklæðum — Borðdúkadreglum, — „Möbel betræk“ — Rúmábreiðum — Lífstykkjum — Silkiböndum — Svömpum — Greiðum— Hnöppum — Waterproofkápum,—Skófatnaði fyrir karlmenn og kvennmenn og börn — Göngustöfum — Líntaui — Slaufum — Pen- ingabuddum — Sápum — Regnhlífum o. m. fl. ALLAR þessar v'órur eru seldar með óvanalega lágu verði einungis gegnpen- ingum út í hónd. Náttúrusafnið var opnað 2. hvítasunnudag frá kl. 2 3. og er opið framvegis á hverjum sunnudegi á sama tíma (kl. 2—3), eins og áður. Safnið er í gamla sjómanna- skólanum við ,Doktorshúsið‘. Menn eru beðnir að reykja ekki á safninu vegna fuglanna, pvl það þolirenginn nema fugl- inn Fönix, en hann varð eptir ( Giasgow. I7/s.—99- BEN. GRÖNDAL. Fæði geta menn fengið keypt í 4 TJARNARGÖTU 4. Kristján Þorgrímsson EI.DAVELAR og OFNA rfrá beztu verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups- verð, að viðbættrí fragt. Þeir, sem vilja panta þessar vörur, þurfa ekki að borga þær fyrirfram; aðeins lítinn hluta til tryggingar því, að þær verði keyptar, þegar þær koma. Eyrna- nef- og hálssjúkdómar, Tómas Helgason praktiserandi lækni er að hitta í húsi Guðm. skipstjóra Kristjánssonar í Vesturgötu nr. 28 hvern virkan dag frákl. 11. f. m. til kl. 3 e. m. Eyrnasjúkdómar, nefsjúk- dómar og kálssjúkdómar kl. 12 2 e. m. Hand-vagnar. fást ódýrastir hjá Th. Thorsteinsson (Liverpool).

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.