Þjóðólfur - 06.06.1899, Blaðsíða 1
Þ JOÐOLFU R.
5 1. árg.
Reykjavik, þriðjudaginn 6. júní 1899.
Nr. 27.
HHTFYRIR 2 KR0NUR-«2
geta nýir kaupendur fengið síðari hluta
þessa yfirstandandí árgangs Þjöðólfs frá 1.
júlí (30 tölubjöð). Kaupbætir; myndablað
Þjöðóifs 1898 með 6 myndum og afmælis-
biað hans með fyigiblöðum, ef óskað er.
Menn sæti þessu boði sem fyrst- Tíðinda-
væniegt á þingí í sumar.
Utlendar fréttir.
Kaupmannahöfn, 27. maí.
18. þ. m. hófst iríðartundurinn miklií Haag;
aðsetur fundarins, er höll sú, er kölluð ersHuisten
Bosch«(o: skóghúsið) ískógnum Het Bosch rétt fyrir
utan bæinn; blöðin segja að varla hefði verið
hægt að velja nokkurn stað, þar sem sé önnur
■eins ró og náttúrufegurð; það er þvl líkindi til,
að fundarmenn fái að stunda starf sitt í friði,
hverjar sem málalyktirnar verða! — Forseti fund-
arins er Staal, sendiherra Rússa í Lundúnum,
heiðursforseti Beaufort, utanríkisráðgjafi í Hol-
landi. Erindsrekar Dana eru þeir Bille, kam-
merherra og serdiherra í Lundúnum og Schnack
ofursti, sem nýlega var hermálaráðgjafi.
Málsóknin í Drey fusmálinu byrjarnú loks-
ins á mánudag 29. þm. Fyrst les framsögumað-
ur, Ballot-Beauprés hæstaréttardómari, upp
skýrslusína, þar sem hann vinsar úr vitnaskýring-
unum og bendir á það, er mælir með eða móti
endurskoðun málsins. Þar næst tekur Manau
málstærslumaður sá, er mætir fyrir hönd hins
opinbera, til máls, og er talið víst, að hann fari
fram á, að Dreyfusdómurinn frá 1894 verði ó-
nýttur. Þar á móti þykir það óvlst, hvort fram-
sögumaður muni koma fram með neina verulega
tillögu, ef til vill segir hann hvorki af eða á, en
lætur sér nægja með bendingar einar. Að síð-
ustu heldur talsmaður Dreyfus varnarræðu sína
og er búizt við, að hann verði langorður. Dóm-
ur hæstaréttar verður svo, að því er menn halda,
kveðinn upp föstudag 2. júní.
En svo er eptir að vita, hver úrslit málið
fær. Þess er almennt getið til, að dómurinn frá
1894 verði ónýttur, og að roálinu verði vísað til
meðferðar við nýjan herrétt. Dreyfus verður þá
fluttur heim ogkemurtilFrakklandsíöndverðumjúlí;
svo má búast við loka-dómnum einhvern tlma í
ágústmánuði.
Sú breyting hefur orðið á ráðaneyti Frakka,
að Freycinet hermálaráðgjafi er vikinn úr
völdum og í stað hans kominn K r a n t z, er
áður hafði aðra stöðu í ráðaneyti Dupuy's. Nýi
hermálaráðgjafinn er rúmlega fimmtugur að
aldri og hefur upphaflega fengizt við mannvirkja-
fræði, en verið þingmaður seinustu 9 eða 10
árin, annars lltt kunnur. Freycinet hafði vikið
kennara frá embætti um stundarsakir, af því að
hann hafði slett sér ofmikið fram i Dreyfusmálið,
og þegar þingmenn fóru að finna að þessu við
ráðgjafa, firtist hann og fór. Aðrir segja, að
hann hafi að eins notað þetta lítilræði sem á-
tyllu; hann hafi þegar áður verið orðinn saup-
sáttur við Dupuy og helzt viljað losna. Agrein-
ingsefnið meðal þessara garpa meðal annars tal-
ið það, að D. vill seinna meir, þegar Dreyfus-
málið er útkljáð, klekkja á herforingjum þeim,
er orðið hafa sér til minnkunar fyrir frammistöðu
sína í málinu, F. þar á móti gefa þeim upp all-
ar sakir.
A hvítasunnudag var í bænum Dijon af-
hjúpaður minnisvarði yfir Carnot ríkisforseta,
er myrtur var hér um árið.
I Italíu hafa einnig orðið ráðgjafaskipti; í
stað Canevars utanríkisráðgjafa er kominn
Visconti Venosta, nafnkunnur stjórnmála-
maður. C. hafði þótt miður slunginn í viðskipt-
um Itala og Kínverja í Samnum-málinu.
Viktoría Englandsdsdrottning varð 80 ára
24. þ. m., hefir nú setið að ríkjum 1 62 ár. Það
var mikið um dýrðir i Englandi út af þessum
merkisviðburði, enda er drottning vinsæl og vel
látin, hefur og að mörgu leyti verið kosta kvenn-
maður, en er nú hrum og stirðfætt fyrir elli — og
fitu- sakir.
Það gengur altaf í meira lagi skrykkjótt á
Filippseyjum; í lok f. m. stóð orusta mikil
við Calumpit og fóru eyjarskeggjarþarímeira lagi
halloka; svo sögðu Bandamenn að minnsta kosti.
Um hvítasunnuleytið var svo farið að tala um frið
Ameríkumenn vildu gera eyjarnar að jarlsdæmi
með nánari ákvæðum, en umræðunum sleit svo,
að eyjabúar höfnuðu tilboðinu og hurfu á brott
við svo búið. Bandamenn eru því enn þá ekki
búnir að bíta úr nálinni; reyndar sendir O t i s
yfirherforingi hverja sigurfregnina á ,fætur ann-
ari heim, segir eyjaskeggja að þrotum komna,
en þeir skríða jafnharðan saman aptur og sýna
engan bilbug. Stjórnin í Washington er því orð-
in tortryggin og lætur digurmæli Otis, eins og
vind um eyrun þjóta. Ofan á þessa áhyggju
bætist, að Kúbubúar eru hvergi nærri ánægðir
með yfirráð Bandamanna. Heldur ekki mundi
það bæta úr skák, ef þeir eins og kvisað hefur
verið um — verða að greiða þegnum stórveld-
anna hér í norðurálfu þeim, sem eru búsettir á
Kúbu, skaðabætur fyrir eignamissi í styrjöldinni
við Spánverja.
Dómsmálastjórnin danska hefur skipað saka-
málsiannsókn gegn dr. Edvard Brandes fyr-
ir seinustu bók hans »Ungt Blod«, sem þykir of
klúr.
Professor Nathorst frá Svíþjóð er nú
lagður af stað til Grænlands í Andrée-leit, eins
og til stóð; skip hans heitir »Antarctic«
Sömuleiðis er lagður í norðurheimskautaferð
ítalskur hertogi frá Abruzzum; ætlar hann að
stinga Nansen út, ef hann króknar ekki!
Ferðafélagið danska stofnar til nýrrar
íslandsferðar í sumar (frá 20. júní til 23. júlí),
Ákaflegt slys varð hér í bænum 23. þ. m.
á hermannaverkstofu (Laboratorium), þar
sem verið var að fylla sprengikúlur með púðri;
húsið sprakk 1 lopt upp, 8 menn biðu bana og
2 særðust. Enginn veit með vissu, hvernig slys-
ið hefur orsakazt. Svipaðir voðaviðburðir hafa
annars 1 seinni tíð frétzt frá öðrum löndum svo
að segja annanhvorn dag.
Það er óróasamt meðalhandiðnamanna
hér i Danmörku um þessar mundir; meistararnir
þykjast slegnir af laginu og finnst »sveinarnir«
gerast uppivöðslusamir og harðir i launakröfum.
Ágreiningurinn hefur að þessu sinni aukizt svo,
að meistarar hafa komið sér saman um að
neita sveinum vinnu hjá sér (lock out), þangað
til þeir lækki kröfur sinar; afleiðingarnar af þess-
ari ráðstöfun, sem sumir lofa og aðrir lasta, eru
þær, að um 30,000 sveinar labba iðjulausir og
spýta mórauðu! Verði verktjónið langvinnt, nem-
ur það vitanlega hundruðum þúsunda í krónu-
tali.
Verkfallið meðal námumanna í Belgiu,
sem áður er áminnst, eudaði svo, að þeir fengu
5% launaviðbót; þeir heimtuðu upphaflega
20%,
Eins og áður er sagt, hafa Frakkar og Eng-
lendingar skipt með sér löndum í Afríku, og út-
kljáð allar fyrri landamerkjadeilur; en nú kemur
það upp úr kafinu, að Tyrkjasoldán þykir
vera gengið of nærri sér í þessum samningum,
einkum að því er snertir Egyptaland, sem að
nafninu lýtur tyrkneskum yfirráðum. Það er Þó
talið víst, að Fr. og E. skelli skollej'runum við
kveinstöfum soldáns.
Það lítur út fyrir, að dagar ráðaneytisins £
Austurriki séu þegar taldir. Thun forseti
og Koloman Szell, forseti ungversku stjómarinn-
ar hafa ekki getað komið sér saman um endur-
nýung á samningunum viðvíkjandi hinum sam-
eiginlegu málum (fjár- og tollmálum o. s. frv.)
Austurríkis og Ungverjalands. K. S., sem hefur
. fylgi þingsins, hefur þótt harður í kröfum.
En hver leikslokin verða, sýnir sig seinna.
Eyjan Sardinía hefur lengi verið ræn-
ingjabæli; ítalska stjórnin hefur opt reynt að
taka í taumana, en sjaldan fengið neinu áorkað.
Nú lítur þó út lyrir, að hún ætli að fara gera
alvöru úr gamni. En 1 stað þess að elta ræn-
ingana, eins og áður hefur verið gert, er nú
veitzt að þeim meðal eyjarskeggja, sem í laumi
standa í sambandi við stigamenn og styðja þá.
Yfir 500 manns hafa þegar verið teknir fastir
og meðal þeirra prestar og aðrir embættismenn,
efnaðir óðalsbændur og því um líkt.
Andaður er Emilio Castelar, nafnkunnur
spánverskur stjórnmálamaður, tæplega sjötugur.
Póstskipifl „Laura“ kom hingað ínótt
beina leið frá Leith og með henni fjöldi farþega,
þar á meðal Benedikt Sveinsson alþm., kaup-
mennirnir I.eonh. Tang frá Isafirði og O. Olav-
sen frá Keflavík með frú sinni, ungfrúmar Ebba
Schierbeck, Soffía Smith, Sigr. Blöndal og Kristín
(Þorláksdóttir) Johnson (nýtrúlofuð Wilh. Bernhöft
tannlækni) stúdentarnir Árni Pálsson,ÁsgeirTorfa-
son,EiríkurKjerulf,GísliSkúlason ogJónÞorláksson,
ennfremur Brynj. Þorláksson landshöfðingjaskrif-
ari, Oddur Sigurðsson vélafræðingur með konu
sinni og margir enskir ferðamenn. Dr. Valtýr
Guðmundsson varð eptir af skipinu í Vestmann-
eyjum til að halda þar þingmálafund með kjós-
endum sínum. __________
StrandferflabátuFÍnn »Skálholt» kom
hingað norðan og vesfan um land í gær og með
honum allmargir farþegar, þar á meðal séra Helgi
Árnason í Olafsvík, á bindindisstórstúkuþing, og
Bjartii Þórðarson óðalsbóndi frá Reykhólum,
alfluttur hingað til bæjarins.
Strandferðabáturinn „Hólar" kom
hingað austan um land í morgun. Meðalfarþega
Íar séra Lárus Halldórsson á Kollaleiru með
úslóð sína, alkominn hingað til bæjarins.