Þjóðólfur - 25.08.1899, Blaðsíða 3
IÓ7
hafi eigi færri sjúkrarúm en 24. Til byggingar
spítalans má verja úr landssjóði 40,000 kr. og til
lagi frá Reykjavíkurkaupstað 10,000 kr. Til
útbúnaðar spítalans má verja úr landsjóði allt að
10,000 kr. Hin núverandi spítalaeign í Reykja-
vík, hús, lóð og áhöld leggst einnig til landsspítal-
ans og skal henni ráðstafað á þann hátt, sem
landsjtórnin nánar ákveður.
2. gr I stjórn spítalanseru amtmaður ogland-
læknir og Iæknir sá í Reykjavík, er landshöfðingi
skipar. Spítalastjórnin semur reglugerð fyrir
spítalann og erindisbréf fyrir starfsmenn hans,
er landshöfðingi staðfestir; hún hefur alla um-
sjón með spítalanum og spítalahaldinu, ræður
starfsmenn og segir þeirn upp, og ákveður borg-
un þá, er sjúklingar skulu greiða fyrir spítalavist-
ina.
3. gr. Starfsinenn spítalans skulu vera þessir,
auk nauðsynlegs vinnufólks og hjúkrunarfólks :
2 yfirlæknar og 1 aðstoðarlæknir; ráðsmaður og
ráðskona, yfirhjúkrunarkona og gjaldkeri.
Ráðsmaðurinn fær 600 kr. þóknun á ári fyr-
ir starfa sinn; ráðskonan og yfirhjúkrunarkonan
fá auk fæðis og húsnæðis 400 kr. hvor á ári í
kaup; gjaldkeri 200 kr. á ári og aðstoðalæknirinn
'600 kr. á ári, auk húsnæðis og fæðis.
4. gr. Þangaðtilöðruvísi verður ákveðið, skulu
kennararnir í útvortislækningum (kirurgi og op-
eration) og innvortis lækningum (therapi) við
læknaskólann 1 Reykjavík takast á hendur yfir-
læknastörfin við spífalann, og má greiða allt að
1200 kr. fyrir læknisstörfin, eptir því sem spítala-
stjórnin nánar ákveður og landshöfðingi sam-
þykkir.
5- gr. Kaup starfsmanna, svo og allur kostnað-
«r árlegur við spítala þennan, að því er gjöldin
fara fram úr tekjunum, skal greiðast Ur landsjóði.
BankafrumvarpiO stóra hefur verið
samþykkt af neðri deild, en sett í nefnd í efri
deild (Hallgr. Sveinsson, Kristján Jónsson, Jón
Jakobsson, Þorleifur Jónsson, Sig. Jensson). Hélt
biskup þar afarlanga ræðu að vanda um fjár-
málahagvorn síðan í byrjun þessarar aldar til þessa
tíma, en Kristján Jónsson hreyfði ýmsum mót-
mælum gegn frumvarpinu, einkum þótti honum
athugavert að afhenda privatfélagi seðlaútgáfu-
réttinn, er væri svo mikilsvirði, enda mundi það
hvergi venja í heiminum m. fl., er hann taldi.
En hann vildi samt láta athuga frumvarpið vand-
lega. I neðri deild talaði Guðjón Guðlaugsson
harðlega gegn málinu, og þótti sú ræða allkjarn-
yrt.
Arnaphólsmálið eða » Arnarhólshneyksl-
ið«, er sumir kalla það, hefir orðið eitthvert hið
frægasta eða réttara sagt hið illræmdasta mál á
þingi f þetta sinn, og þykir flestum það hafa
hnekkt stórkostiega virðingu þingsins. Það er salan
á hinu svonefnda »batteríi« til konsúlsfrú Helgu
Vídalín, er áhugi manna hefur snúizt um þessa
síðustu daga, og yrði oflangtað rekja gang þessa
máls hér, enda sézt það að nokkru leyti á sínum
tíma í þingtíðirtdunum og bæjarmönnum er það
fullkunnugt. Þingfundirnir um þettta mál í
neðri deild 21. og 23. þ. m. verða leiðinlegir
blettir í þingsögu 19. aldarinnar. Það getur hvergi
mælzt vel fyrir, að þingmenn skyldu neita bæj-
arstjórn Reykjavíkur um jafnan rétt til þessara
kaupa gagnvart frú Vídalín m. fl. En auðvitað
hefur bæjarstjórnin gengið slælega fram og van-
rækt skyldu sína í þessu máli, og það ættu bæj-
arbuar að muna henni. Einn bæjarfulltrúinn
(Tr. Gunnarsson) var t. d. alveg á bandi andstæðinga
bæjarins við atkvæðagreiðsluna í fyrra dag og
mælti með því við 2. umr. að selja »batteríið«
frú V. skilyrðislaust og annar bæjarfulltrúi (dr. J.
Jónassen) var flytjandi málsins í efri deild.
Þess vegna geta nú þingmenn .afsakað
sig með þvf og hafa líka gert það, að bæj-
arstjóminni sjálfri hafi ekkert verið hugleikið
að fá umráð yfir þessum bletti. Þess vegna á
bæði þingið og bæjarstjórnin óþökk skilið fyrir
frammistöðuna í þessu máli, og þingið að því
leyti frekar, að það hefur meiri ábyrgð. Salan á
batteríinu var samþykkt með 17 atkv. gegn 5
með nafnakalli. Var öll atkvæðagreiðslan hið
mesta hneyksli og mundi auðvelt að rita dálitl-
ar skýringar við hana, en því verður að sleppa
sakir rúmleysis, enda eigi ósennilegt, að það
verði gert af öðrum.
Fj árlögin verða samþykkttil fullnaðar í efri
deild í dag, og koma því ekki í sameinað þing,
því að efri deild gengur óskorað að frumv. n.
d. Þessar styrkveitingar eru nú til fulls og
alls fallnar burtu: til Boga Melsteðs, Jóns Jóns-
sonar sagnfræðings, Helga Jónssonar cand. mag.,
Ólafs Rósenkrans, til biblíuþýðingarinnar og til
Björns kaupm. Kristjánssonar til að koma á fót
tígulsteinsverksmíðju. Orðalaginu um »verkfræð-
inginn« breytt, eins og landshöfðingi viidi hafa
það, enséraMatth. Jochumsson hefur gengiðsigri
hrósandi út úr öllum hreinsunareldinum með
2000 kr. fjárveitingu hvort árið, sem er bundin
því skilyrði, að hann fái lausn frá embætti eptir
ósk og megi veita honum þá lausn, enda þótt
hin almennu skilyrði fyrir því séu eigi fyrir
hendi. Hússtjórnarskólinn í Rvík. fær 800 kr.
fyrra árið og Leikfélagið 300 kr., ef bæjarsjóður
leggur jafnmikið til. 8000 kr. fjárveiting úr
landsjóði til kirkjugarðsstæðis handa Reykjavíkur-
sókn felld burtu i neðri deild, enda þótt' senni-
legt sé, að landsjóður sem eigandi dómkirkjunn-
ar verði dæmdur til að útvega hæfilegan graf-
reit. En Reykjavík hefur aldrei verið óskabarn
þingsins. Það veit af því, að, það getur sýnt
henni i tvo heimana með því að traðka rétti
hennar sem höfuðstaðar landsins (sbr. fréttaþráð-
armálið, »Arnarhólshneykslið» o. m. fl.). En
Reykjavík getur líka orðið þinginu örðug, þótt
eigi verði það með fljótfærnislegum borgarfund-
um, 'eins og fundinum 22. þ. m, út af Arnarhóls-
lóðinni, því að sá fundur fór öfugt að í því að
senda áskorun til þingsins í staðinn fyrir tilbæj-
arstjómarinnar, er var höfuðmálsaðili í því
máli.
—A fjárlögin og fjárveitingarnar til almennra
þarfa verður sfðar minnst nánar.
» Botnia «kom hingað norðan og vestan um
land í fyrra kveld, og með henninokkrir farþegar.
„Laura" kom frá útlöndum f gærniorgun.
Emtoasttisveiting. Strandasýsla erveitt
cand. jur. Marínó Havsteen. Auk hans sóttu
lögfræðingarnir Halldór Bjarnason og Björgvin
Vigfússon.
Læknaskipun. Sigurður Magnússon
aukalæknir á Dýrafirði hefur fengið konungsveit-
ingu fyrir Barðastrandarlæknishéraði hinu vestra
(bústaður á Patreksfirði) en Magnús Asgeirsson
aukalæknir í Arnessýslu ofanverðri hefur fengið
aukalæknishéraðið í Dýrafirði; en upphreppa Ár-
essýslu hefur fengið Skúli Árnason aukalæknir f
Ólafsvlk, og Halldór Steinsson læknaskólakand.
aukalæknishéraðið í Ólafsvík, en Georg Georgs-
son læknaskólakand. aukalæknishéraðið á Mýr-
unum vestanverðum í stað Friðjóns Jenssonar,
sem fluttur er austur á Eskifjörð, og liefur nú
fengið það læknishérað í skiptum við Bjama
héraðslækni Jensson í Vestur-Skaptafellssýslu, er
fengið hafði veitingu fyrir Eskifirði, en óskaði
að sitja kyr 1 sínu gamla umdæmi, er Friðjón
hafði áður fengið veitingu fyrir.
Alþingi verður slitið á morgun kl. 4.
Um Gullbringusýslu sækir Páll Ein-
arsson sýslumaður Barðstrendinga, en aðrir ekki
svo kunnugt sé enn.
Heiðursmerki. Jóhann Pétursson hrepp-
stjóri á Brúnastöðum f Tungusveit f Skagafirði hef-
ur verið sæmdur heiðursmerki dannebrogsmanna.
Bruni. Hinn 18. þ. m. um miðjan dag brann
til kaldra kola nýtt íbúðarhús við Þjórsárbrú vest-
anverða, er Einar bóksali Brynjólfsson (frá Sól-
eyjarbakka) átti og bjó í. Það var óvátryggt og
tjónið því mikið. Innanhúsmunum varð biargað
að mestu. Ætiað er, að kviknað hafi í frá elda-
vélarpípu.
Maður drekkti sér í Lagarfljóti seint
í f. m., Jón Áinason að nafni, vinnumaður séra
Magnúsar Bl. Jónssonar í Vallanesi. Hann var
geðveikur.
Gaszlustjóri landstoankans endur-
kosinn af neðri deild séra Eirfkur Briem.
Y fírskoðunarmenn landsroí kn—
inganna kosnir: af neðri deild: Jón Jenssonyf-
irdómari og af efri deild: Sigurður prófastur Jens-
son. Virðist nokkuð undarlegt að kjósa tvo bræð-
ur til þessa starfs.
Óþurkatíð afarmikil hér á Suðurlandi: sífelld-
ar stórrigningar og rosaveðurátta, sem á haustdegi;
stytti dálítið upp f næstl. viku og gerði þurk 3—
4 daga, er kom víða að góðum notum, en hvergi
nærri til hlítar, því að vatnið var orðið svo mik-
ið á útengjura. Á Norður- og Austurlandi hefur
veðurátta verið miklu hagstæðari, og eins á Vest-
urlandi mun betri en hér. Horfir til stórmik-
illa vandræða, ef ótíð þessi helzt lengi úr þessu.
-j- Hinn 13. þ. m. andaðist frú GuðbjörgSvein-
bjarnardóttir kona Kjartans prófasts Einarssonar f
Holti undir Eyjafjöllum, eptir langvarandi heilsuleysi,
þrautir og þjáningar. Hún var fædd 29. ágúst 1855
í Eystri-Kirkjubæ á Rangárvöllum. Foieldrar henn
ar voru séra Sveinbjörn Guðmundsson, síðast prest-
ur í Holti, og frú Elín Árnadóttir.
Frú Guðbjörg var afbragðs kona að atgei-fi
bæði til sálar og líkama, skarpgáfuð með fljúgandi
næmi, hreintrúuð og hugrökk í mótlætinu, framúr-
skarandi hjartagóð við bágstadda, ráðdeildarsöm og
rösk bæði úti og inni á meðan heilsan leyfði, hátt“
prúð og fríð sýnum.
Hún giptist 16. júlí 1881, eignaðist 3 börn, sem
öll lifa, Sveinbjörn, Sigríður og Elfn, mestu efnis-
börn; auk þess átti hún góðan þátt í töku og uppeldi
á 4 fósturbörnum, sem 3 lifa, en eitt dáið á bezta
skeiði.
Hjónabandið var innilegt og ástríkt, svo hinn
h. v. ekkill hefur nú, að lokinni mikilsverðri hlut-
tekningu í sjúkdómsbaráttu hennar, margs að minn-
ast og margt að þakka, þegar hann rennir
huga sínum til baka yfir liðinn tíma. Heilsu-
brestur hennar byrjaði upp úr mislingunum
1882, þá ól hún sitt fyrsta barn og komst í opinn
dauðann, en fékk þó aptur nokkurn bata, svo hún
fór með veikum mátt að ganga að innanbæjarstörf-
um, en þegar fram í sótti lagðist hún hverja leguna
af annari með miklum þrautum, þar til hún neydd-
ist til að halda við rúmið að öllu Ieyti næstl. 3—4
ár. Hún bar sinn mikla sjúkdómskross með þolin-
mæði og aðdáanlegri hngprýði allt til síðustu stundar.
Lifi hennar minning! (S. A.)
Næsta blað l»jóðólfs kemur lit
á þriðjudaginn 29. þ. m.
í óskilum er jörp hryssa óafrökuð og ó-
járnuð, mark: biti aptan hægra, stig framan vjnstra.
Réttur eigandi getur vitjað hennar til mín að
Hvammi í Kjós.
Pórður Guðtnundsson.
Ágæt skósmiðs-saumavél. lítiðbrúk-
uð fæst til kaups fyrir mjög lágt verð mót borg-
un út í hönd. Semjist við J. Jacobsen skó-
smið, Hafnarstræti 8 nú þegar.
TÝNST hefur böggull með laugaþvotti í
á veginum frá Rauðará og vestur að Félagsbaka-
rfi. Skila má í Sjómannaskólann gamla, gegn
góðum fundarlaunum.
Waterproofkápur fást ódýrastar
verzlun
Friðriks Jónssonar.