Þjóðólfur - 08.12.1899, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 08.12.1899, Blaðsíða 3
231 guðfræðingum) Greinilega var þar talað, og blöð- in skrifuðu ýtarlega urn það. Þetta var byrjunin! Hve mikið satt er nú í því, að eg hefði átt að „smeygja" mér inn með því að draga dul á það, sem vér trúum? — „Vegurinn til Krists", er kom út nokkrum mánuð- um seinna, er líka blátt áfram vor kenning, svo eiirfald- lega sögð, sem unnt er. Hryggir það yður, séra F. B., að vér eigum svo mikið sameiginlegt ? Mig gleður það. Gerið þér, séra F. B., eptir að hafa lesið þetta ekkert til þess að gefa mér opinberlega rétt í þessu, þá verður hinn myrki skuggi þessa sleggjudóms að falla á yður sjálfan. Ef eitthvert íslenzkt blað í Vesturheimi vildi ljá þessum línum rúm, væri eg því þakklátur. Rvík. 5. des. 1899. Davíð Ostlund. VitnisburOur hr E. H. um sjálfan sig í síðustu Isafold er markleysa ein, fyrst og fremst sakir þess, að hann er ekki bær um að bera vitni í sinni eigin sök, og svo sakir þess, að hann hefur öll gögn á móti sér. Það þarf ekki ann- að en líta í »ísafold« síðan hann varð rið- inn við hana. Áður var hún andstæð vest- urflutningum, og flutti ýmsar greinar þar að lút- andi, en síðan vorið 1895, að Einar Hjörleifsson var hafinn upp í annað veldi við blaðið, hefur komið annað hljóð < strokkinn: stöðugt daður og flaður við allt vesturheimskt og það -opt á mjög hlægilegan hátt, svo að það er •engin furða, þótt almenningur sé farinn að sjá, að »ísafold« er í rauninni hið rammasta út- flutningsmálgagn. Og þau hamskiptihenn- ar eru réttilega eignuð hr. E. H., tn ekki þeim gamla, er sakir elli og lasleika er farinn að bila við róðurinn. Frekar þarf ekki vitnanna við. Það getur vel verið, að þessar amerísku lofgerðar- messur hr. E. H. í »ísafold« séu sungnar af sann- færingu og brennandi þakklæti fyrir það, að höf. hafi »endurfæðst« þar vestra, en það þakklæti má ekki ganga svo langt, að hann sem íslenzk- ur blaðamaðnr gleymi skyldum þeim, sem hann hefur gagnvart þeirri þjóð, sem hann lifir hjá og á að starfa fyrir. Áhrif þau, sem hann hefur orð- ið fyrir þar vestra hafa verið svo sterk, að hann sér flest hér heima í ötugu ljósi, eða spéspegli, en állt vestra í skínandi birtu gegnum stækkun- argler. Og þess vegna skoðar hann sig ávallt hér sem sgest og framandi«, en hið rétta heim- kynni sitt vestan hafs. Honum er líka alveg ó- hætt að fara að hypja sig burtu héðan úr þessu, því að hann er fyrir löngu búinn að »spila út« •öllu, sem hann hefur á hendinni, og getur enga von gert sét* um, að honum verði neitt ágengt í verki sinnar köllunar eptirleiðis, því að Islend- ingar vita nú, hvaðan vindurinn blæs í »Isafold«, og sjá, að honum fylgir engin hollusta. Tilgáta E. H. um höfund bréfsins í Þjóð- ölfi er dálítið undarleg. Heldur hann, að eng- inn nema séra Hafsteinn Pétursson hafi einurð til að sýna fram á, hverskonar blað »Lögberg« ■er, hverjir standi á bak við það og á hverjuþað Og þeir félagar allir lifar Drukknun. Af Eyrarbakka er „Þjóðólfi" skrifað 5. þ. m. „í gær (4. þ. m.) drukknuðu á Stokkseyri 2 menn af báti, er kom úr fiskiróðri, en sjö mönnum varð bjargað; þeir sem drukknuðu voru: formaðurinn Þorkcll Magnússon á Stokkseyri og Ögmundur Jónsson frá Austvaðsholti áLandi. Slys- ið vildi til á utanverðu Stokkseyrarsundi, á boða þeim er „Skjótur" er nefndur. Voru fleiri bátar þá að koma að og lítilli stundu eptir að slysið vildi til bar Jón Grímsson hafnsögum. þar að og tókst honum að bjarga 6 mönnum, en Pálmari Pálssyni á Stokks- eyri 1, sem strax hafði losnað við -bátinn og var á floti á árum rétt við „Austurboðann". Tvo eða þrjá báta bar að sundinu á meðan verið var að bjarga og tóku þeir fjóra af þeim, sem Jón Gríms- son hafði bjargað og komust með þá í land, en hina tvo varð Jón að flytja til Þorlákshafnar og sömul. Pálmar þann, sem hann bjargaði, því þeir treystust ekki til að halda þeim óskemmdum með því að bíða með þá fyrir utan sundið þangað til sjór- inn batnaði eða félli að, enda var kalt veður og mennirnir (sumir) allmjög þjakaðir. — Þorkell sál. var rúml. þrítugur að aldri, einhver heppnasti for- maðurinn á Stokkseyri, sjósóknari og dugnaðar- maður hinn mesti. Hann var stilltur ílund og allri framgöngu, skemtil. í viðmóti og góðgjarn, en frem- ur þunglyndur og tilfinninganæmur. Hann var gipt- ur fyrir ári síðan Jónínu Helgadóttur smiðs, Snorra- sonar, og eignuðnst þau eitt barn, sem dó eptir fáar vikur. Ögm. sál. mun hafa verið nál. þrítugur, ókvænt- ur 'og í vinnumennsku um langan tíma hjá Olafi hreppstj. Jónssyni á Austvaðsholti. Hann var mjög stilltur og hæglátur í allri framgöngu og viðkynn- ingannaður hinn bezti. Að báðum þessum mönn- um er því söknuður mikill, því þeir voru á bezta skeiði og atgervismenn í sinni stöðu.“ Fóstslcipið ,Laura‘ fór héðan áleiðis til Hafnar í fyrra dag. Með henni fóru N. B. Nielsen verzlunarm., Þórður Jónsson bóndi í Ráða- gerði, Möller skipstjóri af »Hvítá« gufubát Hvlt- árvallabarónsins, skipstj. af »Málfríði», er strand- aði við Vatnsleysuströnd og skipshöfnin af gufu- skipinu »Rapid«, er strandaði í Grindavík. Maður hrapaði til bana aðfaranóttina 27. f. m. niður af fjallinu fyrir ofan bæinn Fell í Biskupstungum, og fannst þar örendur fyr- ir neðan klettana morguninn eptir. Hafði kom- ið utan frá Stórafljóti seint um kveldið og villzt upp á fjallið, en dimmt var. Hann hét Sæ- mundurGuðmundsson, og átti heima í Ása- koti, en áður lengi í Rauðárhól í Stokkseyrar- hrepp, og var hniginn á efra aldur. Eptirmæli. Hinn 17. apríl þ. á. andaðist að Háafelli í Hvít- ársíðu húsfreyja Þuríður Jónsdóttir, hátt á áttræðis aldri. Hún var dóttir Jóns bónda í Deildartungu Jónssonar dannebrogsm., Þorvaldssonar bróður Há- konar prests á Eyri við Skutilsfjörð föður Magnúsar prests á Stað í Steingrímsfirði, en móðir hennar var Guðríður Jónsdóttir frá Stóra-Ási Þórólfssonar, bróð- urdóttir Einars í Kalmannstungu. Þuríður sál. ólst upp í Deildartungu, þar til hún giptist árið 1845 merkisbóndanum Sigurði Guðmunds- syni á Háafelli Hjálmssonar frá Norðtungu og bjuggu þau hjón síðan saman á Háafelli í ástríku hjónabandi, þar til hann andaðist voríð 1866. Þau áttu saman 12 börn: 10 sonu og 2 dætur, er báðar eru á lífi Guðrún og Helga, er ein var systkina sinna eptir hjá móður sinni og sá með henni um búið á síðustu æfiárum hennar. 5. synir þeirra hjóna eruá lífi, en 5 eru dánir, 2 þeirra komust af barnsaldri: Jón dó 17 ára vorið 1863 mesti efnispiltur og gjörfu- legastur sinna bræðra, hinn var Sigurður bóndi í Hlöðutúni, er drukknaði á Lambhúsasundi við Skipa- skaga. Þeir sem lifa eru: Guðmundur bóndi á Kols- stöðum, Helgi bóndi á Rauðsgili, Magnús fyr bóndi á Geirastöðum við Húnavatn, Vilhjálmur á Dýra- firði og Jón búsettur vestur á Kyrrahafsströnd í Ameriku. Þuríður sál. var á yngri árum talm meðal fremstu kvenna í Borgarfirði sakir fríðleiks og gjöi-fuleika; hún var ástrík eiginkona og móðir, umhyggjusöm og og stjórnsöm á heimili, hreinskilin og hjartagóð og það var á orði haft, hversu hún var gestrisin, hjálp- söm og örlát við bágstadda og snauða. m. Hinn 12. apríl síðastl., andaðist að heimili sínu Efri-Brunná í Saurbæ prestsekkja Margiét Magn- úsdóttir á 82. aldursári. Var liún fædd 2. janúar 1818. Fo.reldrar hennar voru: Magnús prestur'í Steinnesi, Árnason biskups á Hólum, Þórarinssonar, og Anna Þorsteinsdóttir prests í Stærraárskógi Hallgrímssonar prófasts Eldjárnssonar. Séra Þor- steinn átti 4 sonu, og þótti það merkilegt, að þeir urðu allir prestar í Eyafirði á brauðum umhverfis föður sinn; var einn þeirra séra Hallgrímur, faðir Jónasar skálds. Margrét sál. ólst upp hjá foreldrum sínurn í Steinnesi, til fullorðinsára. Síðan var hún nokkur ár þjónustustúlka á Möðruvöllum hjá Bjarna amt- manni Thorarensen, og þegar hann andaðist flutt- ist hún með ekkju hans, frú Hildi Bogadóttur, að Staðarfelli vestur, og giptist þaðan 21. október 1847 Jóni Halldórssyni presti til Saurbæjarþinga. Bjuggu þau á eignarjörð sinni Stóra Holti, einhverju hinu mesta rausnarbúi í Dalasýslu; varð þeim 6 barna auðið, og náðu aðeins 3 þeirra fullorðinsaldri: 1. Theodor gullsmiður, áttijMargréti Eggertsdóttur frá Kleifum. Bjuggu þau á eignarjörð sinni Efri-Brunná. Þau eru bæði önduð, þau eignuðust 2 sonu Jón og Eggert, nú á tvítugs aldri. 2. Sigrlður, átti hrepp- stjóra og sýslunefndarmann Stefán Olafsson prófasts Pálssonar, eiga þau 6 börn I æsku, öll mannvæn- leg. Jón prestur Halldórsson andaðist^o. júní 1866 og bjó Margrét eptir lát hans í Stóra-Holti nokkur ár, og flutti þaðan til Theodors sonar síns, en hann andaðist 1883; eptir það hélt hún til dánardægurs optast við búskap á Efri-Brunná með Steinunní dóttur sinni, sem henni var hin ástríkasta dóttir í öllu, og lagði allt í sölurnar til þess að gera móður sinni ellinnar þunga sem léttbærastan. Margrét sál. var hin mesta ráðdeildar- og bú- sýslukona, jafnlynd og skemmtileg í viðræðum og umgengni við alla, göfug í lund, og hjálpsöm öll- um þurfandi, og ávann sér hvers manns hylli. Henn- ar er því saknað af vandamönnum og vinum og öðrum, erhana þekktu. (X). Verzlun J. P. T. Bryde. Nýkomið með »Laura« Fatatau og káputau alls konar Sjöl smá og stór Lífstykki margar teg. Styttubönd Silkitvinni Brodergarn Heklugarn Vatt hvítt og svart Dömuhanskar svartir og mislitir Hálstau alls konar Slifsi Primus brennarar Primus-hringar Primus-nálar Steinolíumaskínur Stifti alls konar Maskínunálar Maskínuhringir Oxetunge Anjovis Sardiner Lax Hummer Ananas Aprikoser Pærer Sukat Cervelat-Pölse Skinke P’lesk reykt Jólatré stór og smá og m. fl. Á Jólabazarnum verður mikið af góðum, fallegum og nyt- sömum munum. Jörðin Laugarás í Biskupstungum fæst til ábúðar í næstu fardög- um. Semja má við undirskrifaðan. Laugarási s/ 12 1899. Guðmundur Vigfússon. Peysusnlð týndust 6. þ. m. á leiðinni frá Bernhöftsbakaríi til Skólavörðustígs 6. Finnandi skili og fái fundarlaun Skólavörðustíg 6.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.