Þjóðólfur - 09.02.1900, Page 2
?6
þrátt fyrir þekkinguna á takmörkunum vorum, er-
um vér oss meðvitandi um, að oss sé svo mikið
frjálsræði gefið, að oss sé unnt að velja og hafna;
fyrir framan oss sjáum vér sífellt tvær gagnstæð-
ar götur: aðra lægri en aðra hærri. Vér höfum
frjálsræði, að minnsta kosti að nokkru leyti (t.
d. ef hvatir koma til) til þess að upphefja oss
eða niðurlægja. Eigi er af oss heimtandi, að
vér hefjum oss af eigin ramleik að fyrirsettu alls-
herjarmarki, heldur hitt, að vér eigi lendum neð-
ar en mælisnúra vorra möguleika segir til. Þessa
er krafizt jafnt af manni með báum siðgæðis-
hvötum, sem af manni með lakara innræti. Sér-
hver á við sjálfan sig, hvort hann heldur kýs að
hækka eða hníga; því að svo mikið er undir
sérhverjum komið, að hann efli, en eigi aflagi
hvað sem helzt hefur í hans hlut að erfðum
fallið.
Af öllum lögum náttúrunnar, virðist þetta
erfðalögmál, á yfirborðinu skoðað,miskunnarlausast
í þess grimmleik og ranglæti! Hvílíka beiskju
hefur það af sér leitt, hvílíkar ofraunir á menn-
ina lagt, með hve miklu hugvitseminnar hlut-
drægni er úthlutað gáfum mannvitsins, fríðleik-
ans, heilsunnar, menningarinnar og manngildis-
ins? Þessi álög hljótum vér kynslóð eptir kyn-
slóð að þola orðalaust og þiggja eins og lög-
mál þyngdarinnar. Góður sonur er álitinn
eins og eðlilegt og maklegt hnoss, sem msnn-
prýði föður hans hefur tilstofnað; misind-
is-afkvæmið er skoðað eins og réttmætur dóm-
ur, kveðinn upp yfir óráðvendni og stjórnlausri
hegðun foreldrisins. En hvað má þá segja um
ólukkú barnsins, sem erfir hinar illu tilhneiging-
ar ? Hrers vegna skal barnið falla sem blótfórn,
sakir föður þess synda? Réttiæti dóms þess, sem
kemur yfir föðurinn, er svo beisýnilegt, að horf-
tirnar frá barnsins sjónarmiði gleymast venjulega,
svo eigi er eptir tekið.
Hér er sál borin í heiminn, bundin mann-
legum líkama, þar sem hinir verri frumpartar
vors eðlis liggja 1 fyrirrúmi. Þegar á bernsku-
aldri koma þær hvatir í ljós, og þá fullyrðum
vér óðara, að barnið muni verða auðnu-
leysingi. Slík tilfelli eru alls eigi ótíð, enda drög-
um vér ályktan vora af vissu vorri um, að við-
komandi eigi til óvandaðra og óráðsmanna að telja.
Þetta segjum vér reyndar eigi til þess, að niðra
barninu sakir bresta þess, heldur blátt áfram til
þess að rökleiða þá, og til þess að taka tram
hina sjálfsögðu og óumflýjanlegu afleiðing synd-
anna. En nu ber oss að sýna barninu sama
réttlæti og foreldri þess. Hversvegna skal barn-
ið, sem eigi hefur viljandi drýgt nokkurn hlut,
dæmast til að lifa dómfeldu lífi og í auðnuleysi
frá fæðingu sinni? Til eru tveir flokkar manna,
sem báðir þykjast kunna óskaráð við slíkum vand-
ræðum. Annar þeirra er hinn venjulegi siða-
meistari, sem frá barnsbeini hefur haldið öll boð-
orðin — að undanskildu einu: hinu nýja og
bezta þeirra. Hreinn og flekklaus situr hann og
dæmir sína breyzkari bræður; tekur ekkert tillit til
arfgenginna ástríða, og í breyskleik holdsins eyg-
ir hann ekkert nema þrjósku og gjörræði. I
hans augum eru hinar hræðilegu ráðgátur lastanna,
deginum ljósari. Hans læknisaðferð er, að herða
á aganum, byggja fleiri og strangari fangelsi, láta
lögin herða betur hlekkina á sakamanninum og
reka hann nauðugan inn á rættlætisins veg með
Ognum og pínslum.
Hinn flókkinn fyllir hinn guðrækni ákafa-
maður, sem fullyrðir, að hann hafi fundið í trúar-
fræðum sinnar kirkjn, lækning við öllum brot-
nm og bréyskleika. En þessi er engu síður boð-
inn og búinn til að vérðá æfur ofsóknari. Seg
vio hann, að til séu tilfelli, þar sem hans ráð
nái hvergi' til, og óðara muntu sjá, að hann krepp-
ir knefann, þótt hægur sýnist í fyrstu. sSlíkur
og því líkur! — mun hann segja— lofið honum
að fara sína leið; hann er skynlaust dýr, og
verðskuldar ekki áð heita maður«. En slík rök-
semd leysir eigi gátuna, að kalla menn villidýr
eða illa ára, gerir engan betri. Hér þarf ein-
hverja aðra aðferð við að haía, en refsidóma,
einhver öflugri áhrif að bjóða en einhverja á-
kveðna trúarfræði, ef hefja á spillta og fallna til
hærri og betri lífsbreytni.
Sá komst vel að orði, sem sagði, að hvað
sem óumflýjanlegt er, það væri að einhverju nyt-
samlegt. Það er með öðrum orðum, að allar
afleiðingar, í hversu óttalegri mynd, sem sýnast
kunna, eru samt sem áður háðarmöguleikum blessun-
ar og bóta. Sannleikurinn er ávallt beztur, hvern-
ig sem oss fellur hann í fyrstu. Guðs vegir eru
eigi vorir, en eru þó ávallt fullkomnir. »Allt,
sem til er, það er rétt« — jafnvel hinar hræði-
legustu forynjur sjúkdóma, lasta og glæpa, geta
aldrei að lokum orðið til glötunar, hversu sem
eðli tilverunnar hefur gert þá óumflýjanlega. Og
ef vér höldum þessum sannleika föstum, vofir
yfir oss tvennskonar villa:
i. Oss verður ærið hætt við að tileinka hverri
einstakri veru ofmikla ábyrgð. Að ætla að
maðurinn beri ábyrgð fyrir meðfæddar hvatir, er
jafn óskynsamlegt, eins og að kenna honum
um, að hann sé vanskapaður. En nú er
dómfelling og refsing sú aðferð. sem beitt er við
hvern afbrotamann; honum er eins harðlega refs-
að, eins og væri hánn sjálfur upphaf hins með-
fædda illa, sem hann býr yfir. Ef vér vildum
grafa til rótar sakanna, yrðum vér að rekja þær
til forfeðra viðkomenda, enda myndum vér þá
eigi geta lagt sökina á þennan eða hinn þeirra,
heldur myndum vér sjá, að hið illa hefur haft
náttúrlegan vöxt, og að hin fyrstu rök liggja fal-
in í hinu sama myrkri, sem dylja fyrir oss öll
frumrök og fyrstu orsakir.
Það er ekkert guðlast, heldur vottur um hið
mesta trúaráræði að segja, að hjá skaparanum hvíli
frumábýrgð allra hluta. Það er engin smán til,
semmaðurinngetursokkiðf, að hún hafi eigi verið
fyrir séð, og — að svo miklu leyti, sem honum
var gert unnt í hana að sökkva — fyrirsett,
úr því heimurinn er frá anda guðs útrunninn.
2. Hin villan, sem vofir yfiross, er örvinglun og
svartsýni (Pessimisme). Þessi hætta situr helzt um
viðkvæmar sálir, þeim sem annara þjáningar og
sekt fellur eins þungt og sjálfar þær ættu í hlut.
Það er ekki torvelt, að rekja hönd gæzkuríkrar
forsjónar, þar sem liáir og göfugir hæfilegleikar
ganga mann frá manni, en þar sem um illar hvat-
ir er að ræða, þá kemur stjórnin eigi fram, að
oss virðist, framar sem gæzka, heldur sem end-
urgjalds-lögmál, eða hefnd. Viðkvæmri sál þyk-
ir eigi nóg, þótt lögmálið birtist til góðs fyrir fáa
útvalda; 1 sannleika finnst henni heill hins hálfa
mannkyns dýrkeypt fyrir niðurlæging hins helm-
ings þess. Engin unnin dygð er svo stór, að hún
gæti fullu goldið eyðilegging einnar einustu sál-
ar. Og meðan vér nú sjáum eigi, að erfðalög-
málið verki með sömu óhlutdrægni og gæzku á
alla, sem því eru háðir, ætlum vér þá eigi að
hika við að lofa brestum vorum að ganga að
erfðum til eptirkomendanna? Hversu optlega ber
það eigi við, að það, sem í fari föðursins þykir
heiðarlegur breyskleiki, kemur fram í harðari og
verri mynd hjá syni hans? Hver er svo hreinn
óg heilagur, að hann geti verið ugglaus um, að
hann eptirláti ekkert það niðjum sfnum, sem þá
geti leitt tilglötunar? Finnst eigi í hvers vor fari
einhver brestur eða veikleiki? Sljóleiki, óhóf-
semi, ofmetnaður, öfundsýki, vægðarleysi, hégóma-
skapur — eru það ekki plönttir, sem þegar svo
kann á að standa og hagir og horfur síðar breyt-
ast, geta orðið að heilum löstum? Væri eigi
betra, að öll kynslóðin liði undir lok, heldur en
að eiga þvílíkt erfðastríð á hættu: Vissulega:
nema því að eins að oss verði auðið að sjá silf-
urþráð æðri tilgangs, rakinn gegnum reynslustríð
sorgar og syndar sérhverrar sálar, þá er þessi
veröld voðalegt sjónarmið:
»Þar sern öll hugsun hjartað fyllir sorg
Og ógn og ofraun blindar augu bæði«.
En f þeirri trú, að birti af betri von, vil eg bæta
hér við nýrri hugvekju .(Frh.).
Matth. Joch.
Morgun.
I austri lypti ljósa brúnin
litardökku klæði
— I léttum skjálfta hauður hófst
og hné að öðrum þræði.—
Og dagur reis — og dagur reis
af djupum austur víði;
en litverp nóttin leit um öxl
— hún leit um öxl og flýði.
Og þerna sólar blundi brá
í blíðum sunnanvindi.
Hún þrýsti kossi og rétti rós
að rjóðum fjallatindi.
Og vonin reis — og vonin reis
og vakti söng og gleði.
Og sjál — í fjarska sólin sté
— og sólin sté af beði.
Þá var það gott:—um leiti og laut
að líta og skoða heiminn.
Eg lagði í mína fyrstu för
á fagur bláa geiminn.
—Því langt í burtu—langt í burt
í loga fjall eg eygi;
þar vil eg Ijúka ljóma björtum
— ljóma björtum degi.
Þú mátt ekki tefja. —
Þú mátt ekki tefja mig — nú er allt nýtt
og nú er allt gott á réttum stað;
eg finn það, að lífið er ljóst og hlýtt
og léttur er fótur minn. -- Hvað'i —
Húrra ! Eg flýg eptir grænni grund
á guð’ míns fund
og hugsa’ ekki hót um fað.
Og blærinn leikur um logandi kinn
— hann leikur og allt á þessum stað.
Og stefnan er sjálfsögð — í fjarska eg finn
að fram liggur vegurinn. — Hvaði —
Húrra! Eg flýg eptir grænni grund
á guðs míns fund
og hugsa ekki hót um fað.
Þú mátt ekki tefja — um ljósara líf
og léttara eg veit en á þessum stað.
Hún bíður þarna — hið bjarta víf
með brosið fegursta. — Hvað ? —
Húrra! Eg flýg eptir grænni grund
á guðs míns fund
og hugsa ekki hót um fað.
S. F.
Um varðhald séra Bjarna Þórarinssonar,
Leiðrótting. í danska blaðinu „National-
tidende" 2. nóv. f. á. eru þau orð lögð í
munn sækjanda sakamálsins á móti fyrverandi
presti Bjarna Þórarinssyni fyrir hæstarétti, hæsta-
réttar málafærslumanni Octavius Hansen, að það
sé merkilegt, að varðhaldsúrskurður sá, sem á sln-
um tíma var kveðinn upp yfir presti, hafi aldrei
verið úr gildi felldur, þótt hann sé heima hjá sér,
og yfirvöldin á Islandi auðsjáanlega eigi skoði
hann lengursem varðhaldsfanga. Geti svo verið,
að hann fari í Útskálakirkju á hverjum sunnudegi
og prédiki þar, og að slíkt muni aðains geta átt
sér stað á íslandi.
í „Þjóðviljanum unga“ 30. desbr. f. á. segir
fyrverandi sýslumaður Skúli Thoroddsen, að ís-
lenzka löggæzlan hafi látið Bjarna Þórarinsson
ganga frían og frjálsan, þótt varðhaldsúrskurður-
inn væri óupphafinn. Þessum fróðleik fylgir svo
olbogaskot til mln.
Sannleikurinn er sá, að varðhaldúrskurðurinn
var upphafinn fyrir lögreglurétti Gullbringtt- og
Kjósarsýslu 19. febr. 1898, og Bjarna Þórarins-
syni gefið heimfararleyfi; var honum bannað að
fara burt af heimili sínu, nema með leyfi lögreglu-
stjóra, að viðlögðu fangelsi, og var hreppstjóran-