Þjóðólfur


Þjóðólfur - 11.12.1900, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 11.12.1900, Qupperneq 3
221 mundi verða 162,400,000 ton, en hún mun í reyndinni verða 60 miljón ton meiri. Kola- útflutninginn áætlaði hún sama ár í hæsta lagi 13 miljónir ton, en 1899 var hann þegar orðinn 45 miljónir ton. Nú er stungið upp á þv(, að setja nýja konunglega nefnd til að rannsaka þetta málefni, og einkum til að hugleiða, hvað löggjöf- in geti gert til að koma í veg fyrir óhóflega kola- eyðslu. — Með tilliti til þess, hversu lengi kola- forði Englands muni endast, þá kemur þar ýmis- legt til athugunar, sem nefndin 1866 gat ekki tekið til greina. I fyrsta lagi er notkun raf- magnsins á Englandi enn ( bernsku. Víðtækari notkun þessa afls til lýsingar og vélaiðnaðar mundi spara mikið af kolum, sem nú er eytt til að framleiða gufu og gas. I Cumberland, Wales og Skotlandi er gnægð af vatnsafli til rafmagns- framleiðslu. Auk þess mundi notkun rafmagns- véla verða til mikils hagnaðar við sjálfa kola- framleiðsluna, er mundi verða ódýrari, menn gætu komizt lengra niður í jörðina, og unnið kolaæðar, sem nú borgar sig ekki að fást við. Svo má einnig takmarka mjög kolaeyðsluna með meira sparnaði og skynsamlegri hagnýtingu. Allur þorri manna verður hissa og firrtist jafnvel, ef sagt er, að þeir sói óhæfilega þessum dýrmætu afurðum landsins. Hér um bil !/10 hluti þeirra kola, sem England framleiðir gengur til heimilis- notkunar, og mönnum telst svo til, að þar korni ekki að notum nema 1% þeirra kola, sem brennt er. Hitt allt fer til spillis í hita, sem ekki kem- ur að notum, reyk og ösku. I verksmiðjum koma kolin að meiri notum, nfl. 10% af hinum eiginlega krapti kolanna, sem brennt er, og þó er það að eins lítið brot. Það hlýtur að verða verkefni vísindanna og heilbrigðrar skynsemi að koma í veg fyrir jafn óhæfilega. og heimskulega eyðslu á þeirri vöru, sem aldri verður aptur feng- in. I þriðja lagi má gera ráð fyrir töluverðum kolasparnaði, við aukna notkun annars eldsneytis, einkum steinolíu. Ýms stór gufuskipafélög eru nú þegar tekin að nota steinoKu í stað kola á skipum sínum, af því að hún er ódýrari í sjálfu sér, og af því að kolin eru fyrirferðarmeiri og þrengja að farmrýminu. Ef enskar járnbrautir og gufuskip notuðu steinolíu, í stað kola, sem ekki væri nein frágangssök, mundu við það sparast 25 miljónir ton af brezkum kolum árlega. íslenzkir sagnaþættir. Frá Hafnarbræðrum. Hj'órldfur Arnason var fæddur 1761 og dó 18. ■okt. 1831. Hann ólst upp í Höfn og flutti þaðan að Nesi hinum megin fjarðarins (Snotrunesi) og bjó þar til elli; hann átti Björgu (f 4. júní 1829) dóttur Jóns bónda á Torfastöðum afDals-og Hlíð- arætt; hún var systir Þóreyjar konu Jóns vefara og þeirra systkina. Björg var eins og Þórey syst- ir hennar með hærri kvennmönnum, réttvaxin og sæmilega gild og sómdi sér vel. Hjörleifi og henni kom í meðallagi vel saman eða að kalla mátti nógu vel. Börn þeirra voru : Árni, Magnús, Stefán, Guðmundur og Guðlaug. HjÖrleifur Árna- son var með hærri mönnum, tæpar 3 álnir (meir •en 2x/j), með hrokkið hár, er varð dökkt með aldr- inum, augun voru fremur fljótandi, lífleg ogímeð- Mlagi stór, hann var rauðleitur í andliti, þegar honum var heitt, svipaður móður sinni; hann var karlmannlegur á fæti, gildur og herðamikill og karlmenni, ef á þurfti að halda, enginn eljumaður til verka, nema að smíða húsgögn og amboð úr tré, báta og hús og sækja til fiskjar; varð þeim bræðrum og föður þeirra sjávarúthaldið heilladrjúg- ast, því að þeir Hjörleifur og Jón keyptu bæði mat og föt fyrir sjávarafla. Þegar þeir bræður Hjörleifur og Jón voru hjá föður sínum og móð- ur heima ógiptir í Höfn var það eitthvert sinn skömmu fyrir aldamótin i8co, að maður einn ó- skrafinn Stefán að nafni, fór að Höfn sem hlutar- maður, því að þar þótti fengvænast; þeir bræður reru einir á sjó, eins og vant var, en höfðu Ste- fán til þess að taka á móti aflanum og verka hann; þeir höfðu feræring einn sterkan og ramm- gervan, en fremur ófríðan; Jiöfðu þeir smíðað hann sjálfir. Tíðin var góð og sátu þeir bræður eigi marga daga í landi; misjafnt var, hve snemma þeir fóru á sæ, fóru þeir opt í apturelding; það var og misjafnt, hve snemma þeir komu aptur ti) lands. Ekki þurfti Stefán að setja bátinn upp né ofan; þó gerði hann það tvisvar,er hann var staddur niður við sjó þá er þeir komu að landi og sýndist honum sín hjálp gera lítið til. Eigi varð Stefán var við, að þeir smökkuðu mikið á sjómat, sízt á lýsi (og kem- ur það saman við það, sem Guðmundur Hjörleifs- son segir). Guðlaug móðir þeirra skammtáði þeim sem öðrum heimilismönnum, en jafnan fengu þeir svo mikið, sem þeir vildu, svo sem mjólk o. fl. Árni karl sat optast í baðstofuhorni og hélt opt á ungbarni, er Gtiðlaug hafði tekið kona hans (hann kallaði hana „Laugu sína") og hét það Stíg- ur. Árna karli þótti Stígur skrepa á sig og kvað hann þá vísu. Það var einhvern dag um þann tíma (meðan Stefán var í Höfn) að þeim bræðrum gaf ekki á sjó og sátu þeir heima og uppi í skemmulopti, er þeir sváfu í. Stefán kom inn í skemmuna, svo að þeir verða hans eigi varir og heyrir hann, að þeir eru að tala um sveitabændur og um styrkleika þeirra og annara manna hér og þar og voru þeir eitthvað aðjeta jafnframt. Steíán heyrir, að ann- ar þeirra segir: „Vertu eigi að taka til þess arna, hann er eins oglippur". Svona dændu þeir fleiri; þó hélt Hjörleifur að nafni sinn Hjörleifur prest- ur, er þá var á Bakka mundi hafa dálitla burði og þó fremur Gísli Halldórsson, Gíslasonar. frændi þeirra í Njarðvík; hann var vel þrekinn maður, en vart meðalmaður að hæð, en séra Hjörleifur var stór og þrekinn og vanur glímum og fleirum átökum. Liltu seinna, þá er bræður voru á sjó, j kom Stefán upp í skemmuloptsstipann og sér hann þá mikið af beipum úr hangnu (reyktu) kjöti, svo sem hryggi, leggi og rif að mestu leyti kjötlaust. Slíkt höfðu þeir bræður undir eigin höndum; þeim var fært slíkt að úr öllum áttum og borguðu þeir það vel með sjávarafla. Guðmundur sonur Hjör- leifs hefur rétt að segja svarið við kunningja sinn, að þeir faðir sinn og Jón bróðir hans hafi aldrei haft lýsi til matar, þó aðrir hefðu það saman við tólg til viðskeru, því þeir hefðu verið matvandari en svo, þar sem þeir hefðu aldrei viljað nema það bezta úr matnum. Þeir voru engir matmenn, en vildu að maturinn væri góður, unnu lítið eða ekkert annað en að fara á sjó og smíða keröld og amboð; Hjörleifur var bezti trésmiður, en Jón lítið eitt laghentur. Hjörleifur fékk og marga spýtu rekna, sem von var, því Nes liggur yzt norð- an megin fjarðarins, einnig sóttu og hans menn, ef spík rakst inn fjörðinn undan landi hans og fluttu til sín og skal taka eitt dæmi. Þegar séra Þórður Gunnlaugsson var prestur á Desjarmýri sótti hann sjó með öðrum, þegar færi gafst og eitt sinn, er prestur hafði fiskað fremur litið, því að hálfillt var í sjó og voru eigi aðrir bátar úti, þá hitti hann á heimleiðinni spýtu eina sívala utar- lega í firðinum; prestur og menn hans festu spýt- una við bátinn og gekk mjög tregt, reru þeir síðan inn eptir. Þá kom Hjörleifur að þeim og leysti frá þeim spýtuna og flutti til síns lands og mælti ekki um við prest. Hjörleifur var enginn vinur presta eða annara embættismanna og urðu þeir optast að láta und- an honum. Optast greiddi hann þó gjöld sín eigi síður en aðrir, þó að stundum liðu 2 eða 3 ár á milli, en s(ður galt hann þeim, er honum var lít- ið um og kallaði þá harðdræga og ágjarna. Þeg- ar séra Einar var á Desjarmýri lét hann byggja kirkjuna og mæltist til þess við Hjörleif að að- stoða sig við kirkjusmíðið, því að þá voru fáir aðrir í Borgarfirði, er kynnu vel að húsasmíði. Hjörleifur lofaði engu, en fáum dögum síðar kem- ur Hjörleifur með tvo sonu sína, Árna og annan til, og býður presti að telgja eina fjöl í kirkjuna; prestur þiggur það. Hjörleifur skoðar stðan kirkj- una og þykir efnalítil, tekur þó til verka og var forsmiður kirkjunnar; var hann þar fáa daga, en sótti smíðið fast og lét opt sækja fjalvið úr reka- trjám heim að Nesi, því að hann kvað það mundi vera skyldu sína að leggja eitthvað til í kirkjuna. Hann sagði við kirkjusmiðina, að þeir yrðu að vinna vel og lögulega að slíku húsi, þeir vissu að þetta ætti ekki að heita hesthús. Sagt var, að það hefði verið bezt og traustast gert í kirkjunni, er Hjörleifur gerði. Hann vildi ekkert taka fyrir vinnu þessa og sagt var, að hann hefði sent mat að Desjarmýri seinna rúmlega eins mikinn og hann og hans menn höfðu eytt, meðan þeir voru þar. Þeim Hjörleifi og Einari presti kom jafnan freinur vel saman í orði og verki, en við nafna smn séra Hjörleif var hann eigi alls kostar góður, bæði ertinn og óbilgjarn, en eigi tókst hann á við hann, nema einu sinni; kom það af því, að prestur vildi eigi láta sig í ræðu við nafna sinn; kom þá í ryskingar með þeim, þó í flæmingi væri. Séra Hjörleifur var haldinn tveggja manna maki og vanur við áflog, eins og skólapiltar þekkja; nafni hans var frernur fótmjúkur, en þó fór svo einu sinni, að hann féll á hné fyrir presti, að þv(, er prestur sagði sjálfur, en er prestur var spurður, hví hann hefði eigi kastað honum útaf, þá svar- aði hann; '„Eg gat það ekki, því að hann var sterkari en eg". Eigi er þess getið, að Hjörleifi hafi misfallið þetta við prest, en hélt fram erting- um við hann og er sagt, að prestur hafi orðið hálf- feginn, er hann komst úr nábýlinu við nafna sinn frá Desjarmýri að Hjaltastað. Till de Döve. En rig Dame, som er blev- et helbredet for Dövhed og Öresusen ved Hjælp af Dr. Nicholsons kunstige Trommehinder, har skánk- et hans Institut 20,000 kr. for at fattige Döve, som ikke kunde kjöbe disse Trommehinder, kunne faa dem uden Betaling. Skriv til: Institut „Long- cott“, Gunnersbury, London W. Eng- land. Yín, vindlar og reyktóbak frá Kjær & Sommerfeldt fæst hjá Steingrími Johnsen. Ætíð nægar birgðír. BLÓM, JÓLAKORT, KRANSAR. Allt ljómandi fallegt. fæst á Skólavörðustíg n. Jörð til ábúðar: Ós í Skilmannahreppi, bezta jörðin í hreppnum, fæst til ábúðar frá fardögum 1901. Semja rná annaðhvort við málaflutningsmann Odd Gíslason (í Reykjavík) eða Snæbjöm Þorvaldsson á Akranesi. Samningar um fasteignir. Sala kaup leiga — veðsetningar, Undirskrifaður yfirréttarmála- færslumaður sel, kaupi og leigi fast- eignir (jarðir og húseignir) með umboði. — Nokkur tilboð frá lyst- hafendum og seljendum liggja fyr- ir. — Þeir, sem vilja selja eða kaupa hús í Reykjavik snúi sér til mín persónulega; jarðeigendur eða lysthafendur að jörðum ú t i u m land skrifi mér sem rækilegastar upplýsingar. ^ Lán útvegast einnig i veð— deild landsbankans. Reykjavík 21. nóv. 1900. Einar Benediktsson. Undirritaður yfirréttarmálaflutningsmaður tekur að sér öll málaflutningsstörf þ. á. m. að út- vega lán í landsbankanum og veðdeildinni fyrir væga borgun. Oddur Gíslason.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.