Þjóðólfur - 26.07.1901, Síða 3

Þjóðólfur - 26.07.1901, Síða 3
i5i er farið fram á annað en það, sem er sæmilegt og réttlátt. Á þessari skoðun minni byggi eg það — að fái þetta frumvarp ekki fylgi stjórnarinnar, þá víki stjórnin. þetta er constitutionalvenja. Og þeg- ar þess er gætt, að hér er við okkar eigin stjórn að eiga, þá hygg eg, að hún verði að beygja sig fyr- ir þinginu. Hér er því ekki lagt út í vonlausa bar- áttu; stjórnin mun sannfærast. Hér er ekki um neina endurskoðun að ræða; við viljum hér að eins koma fram með þærumbæt- ur, er við treystum okkur að fá. Valtýr Gudtnundsson : Eg hef nú litlu við að bæta. Landsh. gat ýmsra agnúa á frv. og kvaðst hafa heimild til að lýsa yfir, að stjórnin samþykkti það ekki. Eneg vil líta á konungsbréfið. í því er meira, en landsh. tók fram. í ráðgi.bréfi 26. maí 99 er markað miklu rýmra svið en áður. Landsh. hafði þá aðra skoðun, þegar frv. kom í sömu mynd frá efri deild, sem það hefur nú (les upp úr ræðu landsh. '99). Þá skildi hann ráðgjafabr. eins og eg. (Landsh.: „Þetta fiv. er ekki eins og hitt“). Stjórnin heimtaði að 61. gr. yrði breytt. En það er eðlilegt, að stjórnin reyni svo lengi sem unnt er að knýja þingið til að ganga inn á sína skoðun, en annað mál er, hvað verður þegar þingið lætur ekki undan. Mér þykir skrítið að landsh. skyldi ekki hafa tekið þetta fram við nefndina fyrri en uú. — Stjórn- in hefði átt að koma frarn með breytingartill., eins og siður er til, ef henni er nokkuð annt urn málið. Landsh. sagði, að stjórnin vildi að talsverður meiri hluti samþ. frv. — Mér þykir það ótrúlegt, þar sem hún lætur sér nægja eins atkv. meiri hl. í landsþinginu, og örlítinn minni hl. í hinu. — Eins til tveggja atkv. meiri hl. er stórkostlegur, þegar borið er saman við útlönd. — Hér er því ekki teflt út í neina tvísýnu. — Eg held, að meiri hluti þjóð- arinnar geti alls ekki orðið með br.till. minni hl. ;— enda eru það beinl. skaðleg ákvæði, meira að segja spurning um, hvort þau eru betri en það sem nú er. („Ástæður"!) Hann yrði landsh. með ráðgjafa- nafnbót, undirráðgjafi þess, sem situr í Höfn. Það er ekkert vit að taka ábyrgðarákv. upp úr norskum lögum. Þau ákvæði koma í bága við grvl. Dana. Það getur ekki verið nein hætta að samþ. frv. meiri hl. (L. Bj.: „Búið að kannast við, að það sé ekki viðunanlegt“). Sumir segja það, aðrir hitt. Við þurf- um að fá reynslu fyrir því. Eg hef aflað mér mikillar þekkingar í þessu máli og er orðinn því vel kunnugur — og horfun- urn í Danmörku og vil lýsa yfir því, að það bregzt varla, að frv. nái staðf. konungs. — Ef þingið held- ur fram sínu máli til streitu, innan löglegra takmarka, þáerstjórnin skyld að láta undan. („Ný valtýskaV'). Landshöfðingi'. Ræðum. talaði um þann skiin- ing, sem eg hefði haft á ráðgj.br. 1899 og þann, sem eg hefði nú. Eg get vel hafa fengið réttari skilning á því nú, enda er það eðlil. þar sem eg hef fengið að vita skoðun núverandi ráðgjafa á því — og undir honum er meira komið. Ræðum. vitnaði, eins og þrásækilega áður í eina ræðu mína '99, en í e. d. lét eg þá getið um ýmil. til breytinga og kom með eina br.till. En þá vissi eg ekki með vissu, hvað stj. gæti gengið að. Var þó hræddur um, að hún gæti ekki gengið að sumum ákv. Nú veit eg um það með vissu, og þingið þarf að vita, hvað stjórnin álítur, en ekki hvað eg álít. Eg veit ekki til að stjórnin sé vön að koma með breytingartill., nema hún vilji styðja málið. Ráðgj. ’99 hafði áhuga á því, og kom því með br.- till., en núv. ráðgj. er enginn áhugi á því, þótt hann standi við það, sem hinir hafa gert,' en slíkt nær ekki til þessa frv., sem stj. er ekki áhugamál. Hannes Hafstein: Mér hefur aldrei verið ljós- ara en nú, það sem felst í orðunum: „Hverjum þykir sinn fugl fagur þótt hann sé bæði ljótur og rnagur". Áður var eðlilegt, að svona frv. var haldið fram. En það sætir furðu, að slíkt skuli gert nú lengur, þeg- ar hvorki þing né stjórn er með. — Ef barátta er háð, þá verður hún að vera um eitthvað veru- legt, en ekki um það, sem að eins er neyðarúrræði. Þetta frv. stafar af þreytu hjá þjóðinni og gengur því miklu lengra niður á við, en þjóðin getur fellt sig við, eða verið ánægð með. Það nær engri átt að skýra grv.lög í nefndarál. allt öðru vísi en orðin hljóða, eins og meiri hl. hefur Sert. Valtýr sagði að fyrirkomulag það, er minni hl. ®skir, væri skaðlegt og óhugsandi. Þetta er alveg órökstutt og mótmæli eg því kröptuglega. Hann vill sjálfur ekki með nokkru móti innlenda stjórn, -- hann vill girða fyrir alla innlenda stjórn. („Heyr! Heyr!“) Einn ráðgjafi getur ekki bæði verið á alþingi og hjá konungi í einu. Það þarf þá milllibilsráðgj. og hann hefur alveg óbundnar hendur. Frv. minni hl. gerir ráð fyrir tveimur og verksvið beggja er af- markað, Valtýr sagði, að hér væri ekki um að tala nema nýja „landshöfðingja-nafnbót". Þetta er bara út í loptið. Landsh. getur ekki undirskrifað lög með konungi, — en milli ráðgj. og konungs þarf engan millilið og hann ber sjálfur ábyrgð fyrir þinginu, fyrir innlendum dómstóli. Allir vita að fjöldi mála er þannig, að ráðgj. þarf ekki að bera þau undir konung. Það getur komið fyrir að ráðgj. sá, er sitja skal í Höfn, þurfi að undirskr. bráðabirgðarlög, t. d. eins °& »lög um að banna fl. á skotvopnum til Kína"; en ef hann færi að brjóta stj.skr., þá yrði hann að bera fullkomna ábyrgð á því. — Valtýr lýsti skoð- un sinni um grv.lög Dana. Hann talar þar sem danskur hægrimaður. Vinstrimenn segja þvert á móti, að þau gildi ekki fyrir ísl. né ráðgj. í sér- málum þess. Valtýr sagði, að meiri hl. þjóðarinnar hefði lýst því yfir, að hún væri fús á að ganga að minna, en farið sé fram á í frv. meiri hl.; hvað eru þeir þá að bæta inn í fram yfir það, sem meiri hl. þj. óskar eptir? Spuming sú, er nú liggur fyiir þinginu er þessi. Vilja menn hafa útlenda, en ekki innlenda stjórn? Hannes Þorsteinsson'. Frs.m. meiri hl. óskaði að þetta mál væri ekki rætl með hita. Eg æski þess ekki heldur, en þegar um jafn mikilsvert mál er að ræða sem þetta, fyrir þjóðina í heild sinni, þá verð ur að ræða það með alv'óru. Á frumvarpi meiri hlutans og br.till. minni hl. er stór „princip“-munur. Annað miðar að því að efla sjálfstjórn landsins, en hitt að draga yfirráðin sem mest til K.hafnar; annað miðar að því að leysa ráðgj. úr rlkisr., hitt að hinda hann þar. Flutningsm. frv. á þingskj. 28. hafa aldrei getað neitað því, að frv. þeirra flytji valdið út úr landinu. — Samkvæmt breyt.-ákvæðum heimastj.manna verður þungamiðja valdsins hér en ekki í Höfn; þau hafa í för með sér flutning valdsins inn í landið. Um setu ráðgj. í ríkisráðinu er ekkert ákveðið með sérstökum orðum í frv. minni hl. og var það gert til samkomulags. En ráðgjafi, sem er búsett- ur hér, getur ekki setið í ríkisráðinu, og það hafa sjálfir postular Hafnarstj.stefnunnar séð og kannast við. Þeir hafa því enga ástæðu til þess að drótta að mér „princip“-breyting í þessu atr. — Það er al- gerL rangt, því eg get lýst því hér yfir, að fyrir mér og fleirum flokksmönnum mínumvakti, að reyna að leysa ríkisráðshnútinn á þennan hátt: að fá ráð- gjafann búsettan hér. Þingm. V.-Skaptf. hefur sjálfur haldið því fram áður, bæði á þingi og í blaðagreinum, að valdið flyttist út úr landinu, samkv. frv. dr. Valtýs. Hann var þá og á þeirri skoðun, að fyrsta og sjálfsagð- asta skilyrðið til umbóta á stj.farinu væri það, að stjórnin væri innlend, (Guðl. Guðm.: „Og er enn á þeirri skoðun"). — Það er ágætt, eg vona að hann fallist þá á breytingartill. minni hl. Hann hefur einnig áður lagt mikla áherzlu einmitt á búsetu ráðgjafans hér á landi, og talið hana bráðnauðsyn- lega til verklegra umbóta. Dr Valtýr sagði, að búseta ráðgj. væri skaðleg og óhugsandi og vísaði til bréfs landsh. '95 út at þingsályktunartill. Þá var allt öðru vísi varið en nú, þá var gert ráð fyrir einum ráðgj. en nú fyrir tveim- ur, svo að slík ummæli eiga ekki við nú. Þá strand- aði allt á því, að ráðgj. yrði að vera við hlið kon- ungs. Nú er bætt úr því. Landsh. tók það fram, að mjögmikið væri und- ir því komið, að sem flestir væru sammála — og eg einnig mikla áherzlu á það, en mér og mínum flokksm. er ekki sama um hvad er sameinast. Vér viljum ekki kaupa friðinn, nema vér fáum hann með viðunanlegum kjörum.— Dr Valtýr hefur vikið frá öllum eða flestum sínum gr.vallar-principum. Hann hélt því fram '95, að ráðgj. ætti alls ekki að sitja í ríkisráðinu, en nú, að hann sé þar réttilega kominn og hvergi annarstaðar. — Á sama hátt hefur honum snúizt hugur í öðrum höfuðatriðum máls- ins og er því ekki vert af honurn að bregða öðrum um „princip-breytingar". f sjálfstj.máli landsins hefur komið upp mjög óheppileg sundrung og úlfúð, sem lagfærast þyrfti. — Sum blöð hafa alið á sundrungunni á allar lundir og aldrei látið ónotað tækifæri til þess að spilli friði og sátt og eyðileggja allar sannar og og verulegar umbætur. Eg þarf ekki að nefna nöfn. Menn þurfa ekki lengi að leita og þeir munu þekkja sneið, sem eiga— Vér verðurn að minnast þess, að nú eru mjög merkileg tímamót. Þetta er fyrsta ár hinnar nýbyrjuðu aldar. Urh þetta leyti eru 100 ár síðan sá ísl. fæddist, er fyrstur hóf máls til þess að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni sín og endurreisa vildi alþingi; það var Baldvin Einarsson.— Nú eru einnig rétt 50 ár, síðan þjóðfundurinn frægi var haldinn, þegar ísl. hófu fyrst stjórnarbaráttuna. Þá vildi stjórnin, að fsl. samþ. hin dönsku grundvall- arlög, en Jón Sigurðsson og aðrir fundarmenn mót- mæltu allir. Væri nú vel starfað, ef sátt og samn- ingar kæmust á milli fulltrúa þjóðarinnar um þau atr. og á þeirn grundvelli, sem beztu forvígis- menn þjóðarinnar hafa haldið fram til þessa. Þá væri vel haldið uppi minningu Þjóðfundarins og vorra beztu ;manna., en ef þetta frv. meiri hlutans nær fram að ganga, þá getum vér ekki haldið þessi afmæli í sumar, nema með blygðun og kinnroða. Guðl. Guðni. talaði þá nokkur orð, sagði að valdið færi ekki út úr landinu, mikið af því væri óbreytt, enginn gerði ráð fyrir að emb. landshöfð- inga breyttist. Ldrus Bjarnasoiv. Umræður formælenda meiri *hl. hafa farið fyrir ofan garða og neðan. Hér ligg- ur fyrir ótvírætt svar stjórnarinnar um það, að frv. þeirra fái ekki staðfestingu. Það er því óþarft að þvæla um það lengur, að þeir taki það sem fáist og vilji bæta úr sárustu neyð. Hér er ekkert í boði. Nú vil eg bera saman frumvörpin. Hvort er betra? — í frv. meiri hl. eru þessi atriði. 1. sérstakur ráð- gjafi — til þess þarf enga stj.skr.breyting. 2. skilja og tala íslenzku — ekki heldur stj.skr.breyting. 3. bera ábyrgð fyrir alþingi. Þetta höfuðákvæði er hvergi nema eingöngu á pappírnum; hér vantar bæði ábyrgðarlög og dómstól til að dæma, því að það er alveg víst, að hæstiréttur mundi aldrei dæma ráðgj. fyrir pólitiskt brot. Frams.m. meiri hl. sagði í ísafold 1896 og '97, að breytingar þær er dr. Valtýr fer fram á, væri spor ( öfuga átt og það stórt spor, af því að ráðgj. væri ekki búsettur í landinu. Svo mikla áherzlu lagði hann þá á þetta eitt, að láta málið heldur liggja ( dái, nema búsetan fengist. Þá er frv. minni hlutans. I. Búsettur ráðgj. í landinu. Það hafa allir játað að væri einkar mikilvægt og sjálfsagt. 2. Launaður af landsfé. Eg legg mjög mikla áherzlu á það atr. — Stjórnin hefur valdboðið því upp á oss, að ráðgj. skuli laun- aður af dönsku fé. Fyrir stjórninni er þetta ekkert smáræði. — Við getum hugsað okkur ráðsmann fyr- ir búi, hvort væri heillavænlegra, að eigandi búsins launaði honum, eða einhver annar, sem hlutast vildi til um hag búsins, og koma þar ýmsu fram sér í hag, þótt hann ætti ekkert í því ? Flokksm. meiri hl. telja stjórn og þjóð mjög andvíga. 3. Landsdóm- ur. Ábyrgðin er tvennskonar, siðferðisleg og lagaleg, en sú lagalega er útilokuð, eptir ákvæði í þskj. 28 — Innlendur dómstóll er einkaskilyrði fyrir laga- legri áhyrgð. Hvorttv. frv. er nu jafnófáanlegt. Um frv. minni hl. erenginn ágreiningur að það sé til mikilla bóta; — umhitt sagði G. G. sjálfur '97, að hefði engar um- bœtur í sér fólgnar. — Eg held því fram, að ekki sé fenginn neinn viðunanl. endi, þótt frv. meiri hl. verði samþ. — En við stöndum betur að vígi en hinir; um okkar frv. er enginn neitun fyrirliggjandi, eins og um þeirra. — Um okkar skilning á réttar- gr.vellinum liggja fyrir gamlar og nýjar yfirlýsingar frá Dönum oss í hag. — Vinstri menn s\:anda nú betur að vígi en nokkru sinni áður, — en það er varasamt að senda mjog lélegt frv. út nú, því að þeim getúr aldrei verið kappsmál að veita ösS meira, en vér biðjum um. — Ef hægrimannastj. situr enn eitthv. að völdum, þá samþykkir hún ekki frv. meiri hl. — Með þessu er hans eina ástæða fallin og ræð eg honum því fastlega til að taka frv. aptur. Sakir rúmleysis verður að sleppa hér ræðu Pét- urs Jónssonar þm. Suður-Þingeyinga. Ræðu-ágrip þau, sem hér eru birt, eru að eins tekin eptir laus- legri uppteiknun meðan á fundi stóð, og þessvegna auðvitað ýmsu sleppt, en aðalatriðin eiga þó nokk- urnveginn að sjást. Benda má á það sérstaklega, að úr flokki Hafnarstjórnarmanna talaði auk fram- sögumanns, að eins dr. Valtýr einn; enginn annar

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.