Þjóðólfur - 01.11.1901, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.11.1901, Blaðsíða 3
207 Eptir því sem menn kunna fleiri handverk, eptir því gengur búnaðurinn betur, og eptir því verða húsakynni betri og þrifnaður meiri, því óhætt er að segja, að ekki færi eins margt aflaga eins og fer á heimilinu, ef heimilismenn sjálfir gætu gert flest, sern heimilinu kemur við. Þess er óskandi, að einhver láti til sín heyra um þetta mál í blöðunum, þvt ef það bóklega þarf að taka gagngerðri breytingu til batnaðar, þá þarf það verklega þess ekki síður. Niagara-fífiin. (Eptir Bibliothek der Untcrhaltung und des Wissens). Fyr á dögum var auðveldara að verða fræg- ur fyrir íþróttir heldur en nú. Nú á tímum eru óbreyttir skósmíðanemar farnir að rlða hjólhest- um og hver skóladrengur er farinn að leika fót- boltaleik. En hvernig eiga fþróttamenn þá að fara að afla sér frægðar nú á tímum? Með því að fremja þær íþróttir, sem ekki eru allra með- færi. Fyrir því hafa Englendingar tekið að leika knattleik á hestbaki og þess vegna var aptur byrj- að í Frakklandi á loptförunum; því að það er á fæstra færi að ala knattleikshest eða eiga lopt- far. Nú leika allir auðugir Englendingar þenn- an knattleik og frakknesku greifarnir keppast hver við annan að sigla í loptinu frá París til Svíþjóð- ar, Rússlands, Spánar eða Norður-Afríku. I Ameríku veitir fífldirfskan sumum mönnum annaðhvort gnægð fjár, orðstír og umtal eða þá beinbrot og örkuml og jafnvel bráðan bana. Einn veðjar 10,000 dollurum um það, að hann skuli hlaupa út af Brooklyn-brúnni miklu beint á kaf niður í vatnið; og maðurinn gerir það og vinn- ur annaðhvort 10,000 dollara eða rífur í sund- ur á sér magann. Annar veðjar um, að hann skuli hanga 40 mínútur á höndunum eða hlaupa þvert yfir járnbraut rétt fyrir framan lestina, er hún fer með fullum hraða, eða hann skuli hlaupa út úr loptfari á nýju fallhlífinni eða fara í tunnu yfir hringiðuna í Niagara, því að þá kall- ast hann meistari Ameríku og verður stórfrægur maður. Og íþróttamaðurinn ameríski leggur ó- hræddur út í hættuna og næsta dag segir svo frá því í öllum blöðum, hve meistaralega hann vann veðmál sitt eða hve Ameríka finni til sárrar sorgar yfir því, að mr. N. N. var masaður 1 sundur af járnbrautarlestinni, handleggsbrotnaði og hryggbrotnaði, hálsbrotnaði og hryggbrotnaði eða katnaði í tunnunni sinni í hringiðunni í Nia- gara. Einkanlega leikur mönnum sífellt mikill hugur á Niagara. Þegar 1856 gat franski línudansarinn Blondin sér frægð og frama með því að ganga yfir foss- inn á streng. Arið 1860 ítrekaði hann þessa þraut fyrir hundrað þúsundum áhorfenda. Fyrst gekk hann slyppur yfir strenginn, sem var 1200 fet á lengd. Þvínæst fór hann aptur út á miðjan streng- inn og bar þá ýms eldhúsgögn og dálítinn stól. Síðan settist hann niður, kveykti á eldavélinni, bakaði sér eggjaköku. borðaði hana, tók dót sitt saman aptur og hélt svo áfram ferð sinni. I þriðja skiptið, sem hann fór yfir um, bar hann mann á bakinu. Maðurinn var bláfátækur aumingi, og hugði hann því, að ekki væri verra að drukkna í Niagara heldur en deyja úr hungri í New-York, og þarna var þó ekki örvænt um, að hann gæti unnið sér inn 500 dollara og orðið kunnurmað- ur þar á ofan. Hann hét Mouton og fullyrti, að hann væri afkomandi Triboulets, hins alkunna hirðfffls Frans I. og Maríu Stúart. Hann lifir enn og er vindlasali í Lundúnum, en hann má ekki minnast á förina yfir Niagara, því hann segir, að sér sortni fyrir augum, er hann hugsar til þess. Blondin er nú dauður fyrir mörgum árum. Þessi fífldjarfa þraut Blondins hefur einungis einu sinni verið leikin eptir. Það gerði ítalska línudansmærin María Spelterina, árið 1876. En eptir línudansmærina komu aðrir íþróttamenn. Árið 1879 veðjaði Ameríkumaður einn, ec Peer hét, um það, að hann skyldi hlaupa út af brúnni, sem liggur yfir iðuna fyrir neðan Niagara- fossinn. Menn héldu, að hann væri brjálaður, en Peer vissi, hvernig hann skyldi fara að. Hann batt blýlóð við fæturna á sér, en í hendinni hélt hann á snúru, sem hann einungis þurfti að kippa í til þess að blýlóðin losnuðu. Svo hljóp hann út af brúnni og var alveg þráðbeeinn í loptinu. Það heyrðist hvellur, eins og þegar skotið er af byssu, þegar hann kom við yfirborð vatnsins. Hann sökk 50 metra undir yfirborðið, en skaut svo upp aptur og hafði hann þá einungis lítilvæg sár á fótunum. Þar sem vatnið úr báðum fossunum rennur saman hér um bil 3000 fet frá brúnni, myndast geysimikil hringiða, sem vellur og sýður í, eins og í sjálfu Víti. Matthew Webb, frægur enskursund- maður reyndi að synda í gegnum hana og hafði að eins korkbelti utan um sig. Hann drukknaði og llkið fannst ekki fyr en löngu síðar stórskadd- að. Sumum, sem síðar hafa fetað 1 fótspor hans, hefur heppnazt það betur. Árið 1887 smíðaði Davíð Graham, beykir í Fíladelfíu tunnu og innan í hana festi hann gúmmí- svæfla og haglegt jafnvægistól; hún hélzt sífellt upp á endann 1 vatninu. Efst á tunnunni vargat, sem hann gat stungið höfðinu út um. Hann fór nú í tunnuna og lét hana svo reka niður eptir fljótinu. Fjórum sinnum tókst honum með heilu og höldnu að framkvæma þetta áhættuverk. Árið eptir léku þau mr. Hatzleff og miss Allen sömu listina. Fóru þau bæði í tunnu, sem lá langsum í vatninu. Þau voru einnig heil á hófi, en ekki vildu þau fyrir neinn mun endurtaka þessa þraut. Þau voru búin að fá meir en nóg af henni. Sundmanninum John Lincoln Soules tókst litlu betur en Mathew Webb, er hann reyndi að synda yfir hringiðuna árið 1892. Þrátt fyrir afl sitt og sundkunnáttu kastaðist hann upp að klett- unum; hann komst að vísu lífs af, en lifði við örkuml alla æfi. Sama árið byggði Robert Flack frá Kanada bát, er hann ætlaði að róa á í gegnum iðuna. I júlímánuði reri hann út á fljótið og og lét bát- inn reka með straumnum niður eptir. En óðara en hann kom inn í iðuna, hreif hún bátinn og keyrði bæði hann og eigandann í kaf og þarna drukknaði hann fyrir augum margra þúsunda manna og þar á meðal konu sinnar og barna. En þó að honum heppnaðist þetta eigi tókst manni, er Nielsen heitir það í fyrra sumar. Hann er Ameríkumaður, en af dönskum ættum. í fimm ár vann hann að bátsmíðinni og var loks full- búinn í fyrra vor ; í júlí reri hann gegn um hring- iðuna og ávann sér þannig ameríska frægð. Niagara hefur nú um langa hríð dregið að sér athygli íþróttamannanna framar öðruoggerir það sjálfsagt um langan aldur enn þá, því að ávallt verða nógir til, sem leggja vilja lífið í söl- urnar til þess að afla sér fjár og frama. Ameríkumenn kalla þetta íþróttir og þá, sem þær vinna Niagarahetjurnar. En sumum kynni ef til vill að virðast, að réttara væri að kalla það heimskuleg glæfraverk og menn þessa »Niagara- flflin«. (Aðsent.) Mikið óttalegt óskapa-voðabull er hún, greinin hans „bróður" Indriða í síðasta blaði „ísafoldar" þessa eina hagfræðings, sem þeir Valtýingar eiga á papp- (rnum. — Skyldi aumingja maðurinn aldrei fá sið- ferðislegt sálarþrek til þess að láta af þessari leið- indadellu, sem jafnframt sómir sér illa í sorpdálkum „Isafoldar"? — Þessi siðprúði „bróðir" hefur gert sig sekan um meira en litla ósamkvæmni, er rétt þykir að benda honurn á, ef vera mætti, að hann gæti skilið það. í fyrra „sló hann sér til riddara" á veðdeild- arbréfunum. Fylltist gæðingurinn spámannlegum anda og spáði því, að þau myndu ekki seljast meira én fyrir 85%. Samdi hann svo langa og hjartnæma hugvekju um hið hryggilega ástand bankans — og hafði þennan spádóm sinn að texta. En bíðum við nú við! Svo gerðust þau tíðindi nú ( haust, að banka- stjórinn brá sér utan og seldi veðdeildarbréfin fyr- ir 99%. Svona reynast þeir traustir og áreiðanlegir, spá- dómar sumra falsspámannanna á stundum! En sá „vfsi" Indriði þurfti meira að segja um bankamálið. Hann gat ekki Iært að þegja af þess- um hrakförum sínum. Hann skrifar í „ísafold" síðast, þessa haldgóðu ruslaskrínu þeirra Hafnarstjórnarmanna. Þar segir hann, að veðdeildarbréfin hefði átt að selja fyrir 125%, þótt hann í fyrra teldi ekki hugsanlegt að selja þau við meira verði en 85%! Ó; sú dásamlega samkvæmni hjá þessum mesta riddara allra valtýskra fjármálariddara vorra! O, hve sælir eru þeir Hafnarstjórnarmenn að eiga slíkt leiðarljós ( fjármálunum! Viðarr. Veitt prestakall. Hjarðarholt í Dölurn er veitt séra Ólafi Ólafs- syni á Lundi, með þv( að kosning varð ólögmæt. Manntal. I dag fer fram hér í Reykjavík og anrtarstað- ar um land allt hið fyrsta allsherjar manntal á nýju öldinni, eptir nýju og (tarlegu formi, en lítt handhægu. Hafa eyðublöð til manntals þessa verið prentuð í Kaupm.höfn, mjög fyrirferðarmik- il og þung í vöfunum, svo að rnargar hestklyfjar hefur orðið að senda í sum fjölmennustu prófasts- dærni landsins. Hefðu eyðublöð þessi getað verið rniklu hagfelldar gerð og þó kontið að sömu notum. Hér í Reykjavík eru um 50 manns skipaðir til að taka manntalið og skipta þeir bænum á milli sín. Dálitlum ruglingi getur það valdið, að báð- ir strandferðabátarnir »Hólar« og »Skálholt« eru ókomnir með fjölda fólks, sem hér er heimilis- fast. Auðvitað á að taka manntal á þeim á þeirri höfn, sem þeir eru staddir í dag, eða þar sem þeir koma fyrst við eptir 1. nóv. Verður því bæjarfógeti hér að gæta þess er skipin kóma, að engum verði hleypt í land, fyr en búið er að yfir- heyra og skrásetja alla skipshöfnina, ef þess gerist þörf, og getur staðið alllengi á þeirri uppskript, ef farþegar skipta hundruðum. EPTIRMÆLI. Priðjudagskveldið 29. okt. andaðist hér í bæn- um, að heimili sonar síns, merkismaðurinn 7'orfi Tímóteusson, eptir þunga og all-langa sjúkdómslegu. Torfi var fæddur að Skarðshömrum í Norðurár- dal, 21. maí 1828. Faðir hans var Tímóteus bóndi þar, og á Glytstöðum (f. 3. ág. 1797), Torfason bónda á Hreðavatni, Jónssonar bónda samastaðar, hrepp- stjóra Norðdæla (-j- 15. júh' 1785), Jónssonar. Móðir Torfa á Hreðavatni kona Jóns hreppstjóra, var Guð- ríður (eldri), Torfadóttir bónda á Hreðavatni (-j- 1730), Arnbjarnarsonar, Jónssonar, og bjuggu þeir Iangfeðg- ar hver eptir annan á Hreðavatni. Móðir Tímóte- usar, kona Torfa Jónssonar, var Halldóra Jónsdóttir úr Kiðey, Ketilssonar prests í Húsavík (J- 1778), Jónssonar. Var Magnús sýslumaður Ketilsson föður- bróðir Halldóru. Móðir Torfa Tímóteussonar, kona Tímóteusar, vat Guðrún (f. 5. marz 1795) Þorgilsdóttir bónda á Dýrastöðum (f. 1755, -j- 26. maí 1819), Markússonar bónda á Hvítskjaldarhóli í Sökkólfsdal, Símonarson- ar. Þorgils kvæntist á Hvassafelli í Norðurárdal 23. júlí 1792, og var kona hans, og móðir Guðrúnar, Þóra (f. 1761, -j- 31. des. 1846), Ólafsdóttir bónda á Hreðavatni, er drukknaði þar í vatninu (um 1770), Gíslasonar bónda á Fróðastöðum (•}• 1746), Ásmund- arsonar á Bjarnastöðum (1708), Ólafssonar, Helga- sonar (Jökla-Helga), Ólafssonar, Sveinssonar. Kallast ætt sú, er komin er frá Gísia Fróðastaðaœtt, og ein af betri bóndaættum um Borgarfjörð. Móðir Ólafs Helgasonar var Sigríður Vigfúsdóttir bónda ( Kal- mannstungu, Jónssonar, þess er veginn var í Síðu- múla 1571, Grímssonar. Eru ættir þær allar merk- ar, og mætti telja þær miklu framar en hér er gert. Torfi Tímóteusson ólst upp á Skarðshömrum, hjá foreldrum sínum, og kvæntist 3. okt. 1850, Guð-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.