Þjóðólfur - 29.11.1901, Page 1

Þjóðólfur - 29.11.1901, Page 1
4 ÞJÓÐÓLFUR. 53. árg. Reykjavík, föstudaginn 29. nóvember 1901. Nr. 56. Biðjið ætíð um OTTO MÖNSTED’S danska smj örlíki sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu í samanburði við gæðin. Fæst lijá k a u p m ö n n u n u m . Ban kamálið Og Björn Kristj ánsson. Þeir prímenningarnir, Indriði Einarsson, Björn Kristjánsson og ritst. Isafoldar fylgjast trúlega að ætlunarverki sínu. I. E. gefur út villandi og ósanna reikninga um landsbankann, B. Kr. gefur villandi og ósannar skýringar um veðdeildina og seðla landsbankans, og svo labbar Isafold út um allt land með þessa hollu fæðu til lesenda sinna, án þess ritstjórinn með einu orði geri nokkra leið- rétting við það, sem búið er að sýna og sanna, að rangt sé, og sem hann sjálfur hlýtur að viður- kenna að sé ósatt. — B. Kr. segir í ísafold 72. tölubl. „Það er aug- ljóst, að landssjóður hefur vegna bankaseðlanna misst það lánstraust hjá Dönum, sem landssjóður annars ætti skilið". Og svo segir hann, að þetta vantraust sé því valdandi, að bankavaxtabréfin séu í svo lágu verði, og hafi svo lítið traust erlendis. Allt er þetta ósatt og heilaspuni. — Þeir af Dönum, sem nokkuð þekkja til ís- lands og hugsa um hag þess, hafa gott álit á efna-. hag landssjóðs og bankans. Það sýnir sala banka- vaxtabréfanna í haust, og ummæli þjóðbankans danska. I skjali hans til stjórnarinnar, sem þingið hafði til álita næstl. sumar standa þessi orð: „ H i ð núverandi gróða fjárhagsástand landsbánk- ans og landssjóðs". Traust það, er menn hafa á bankaseðlunum byggist að nokkru leyti á ábyrgð landssjóðs, en að mestu leyti á reynslu þeirri, er menn hafa fengið á peningaviðskiptaþörfinni í landinu. I áminnstu skjáli þjóðbankans, álítur hann að hættulaust sé, að gefa út 1,000,000 kr. í seðlum upp á ábyrgð landssjóðs; og hver innlendur maður, sem er nokkurn veginn viti borinn og þekkir dálítið peningaþörf landsmanna, verður að játa, að lands- sjóður á eigi krónuvirði í hættu, meðan hann ábyrgist ekki meira en 750,000 kr. í seðlum, og sízt ættu þeir menn að tala um hættu landssjóðs, vegna ábyrgðar hans á 3/4 milj. kr í seðlum, sem eru að útmála fyrir alþýðu, hve ómetanlegt tjón landið bíði við það, að eigi er til 1 landinu banki með 3—4 milj. kr. í seðlum. En það er fastur vani B. Kr., að búa til svo ínikið víravirki utan um mótsagnirnar, að lesendunum sést yfir þær, við fljótan yfirlestur. Ef landssjóði liggur á lánstrausti, þá snýr hann sér til þeirra manna, sem hafa peningaráð og þekkingu á peningaveltu, og er eg sannfærður um, að enginn þeirra nuindi þá lýsa vantrausti á landssjóði vegna bankaseðlanna, eins takmörk- uð og útgáfa þeirra er, en þar á móti gæti harð- æri og þar afleiðandi minnkandi tekjur landsjóðs, ef til vill, veikt traustið á landssjóði, ef um nokk- urt vantraust væri að ræða. Reyndar er allt skraf B. Kr. um vantandí lánstraust landssjóðs rugl og vitleysa; hann hefur ekki leitað láns, en sú litla reynsla, sem eg hef 1 því efni, fer í gagnstæða átt. Því þegar eg næstl. haust talaði um 1 mi]j. kr. lán til landsbankans, þá lá það samstundis laust fyrir, ef hann gæti sett veð, eða ef lands- sjóður ábyrgðist, Þar sem B. Kr. er að vitna til reynslu annara landa, að óinnleysanlegir bankaseðlar hafi orðið þeim til falls, þá eiga slík dæmi ekkert við það mál, sem hér er verið að ræða um, því óinnleys- anlegir seðlar hafa því að eins orðið til tjóns, að ofmikið hefur- verið gefið út af þeim, en eg hef eigi farið fram á, að fjölgað væri seðlum þeim, sem landssjóður tryggir, heldur að eins að gefnir séu út nýir innleysanlegir seðlar, gegn fullrfægj- andi trygging í gulli. B. Kr. segir enn fremur, „að bankavaxtabréfin séu í lágu verði vegna vantrausts manna á lands- sjóði, sem bankaseðlarnir eru orsök í“. Fyrst og fremst eru það bein ósannindi, að bréfin séu í lágu verði; af þeim er selt yfir •/2 milj. kr., þar af er mestur hluti með fullu ákvæðisverði og hitt 1% lægra, og 1 öðru lagi væri vantraust á lands- sjóði engin orsök í því, þótt bankavaxtabréfin seldust með miklu lægra vcrði. Nú er þegar búið að lána út í veðdeildinni 900,000 kr. og verður innan skamms tfma búið að lána þær 1,200,000 kr. sem veðdeildinni er með lögum frekast leyft að lána. Þegar svo er kornið, má óhætt fullyrða, að veðið fyrir 1 milj. og 200, 000 kr. verði eptir virðingarverði 3 milj. kr. Við hliðina á þessu veði leggur landssjóður fram, til enn frekari tryggingar 200,000 kr. í verðbréfum. Af þessu sést, að trygging landssjóðs er að eins J/i6 hluti af þeirri tjg-ggingu, sem bankavaxtabréfs- eigendur hafa fyrir bréfunum, svo nærri má geta hvort kaupendur binda verð bréfanna eingöngu við það, hvort landssjóður ábyrgist 3/4 milj. kr. í bankaseðlum, sem í raun 'réttri hafa næga trygg- ing í peningaþörf landsmanna. Þetta ætti B. Kr. að vita, svo það lítur þannig út, sem hann móti betri vitund sé að kasta því ryki í augii alþýðu, að landssjóður taki á sig þeim mun meiri ábyrgð, sem meira er selt af bankavaxtabréfunum út úr bankanum, annars væri það minnkun fyrir hann, sem þingmann, að þekkja ekki betur lögin og málefni það, sem hann er að rita um. Það eru fasteignaveðin og skuldabréf lántak- enda veðdeildarinnar, sem er aðaltryggingin fyrir eigendur bankavaxtabréfanna. Eg get búizt við því, að ekki líði á löngu áður en I. E. og B. Kr. sýna í verkinu, að þeir eru á sömu skoðun. Því þegar þeir gera nýtt áhlaup til að reyna að fella verð á verðbrétum veðdeildarinnar (bankav.br.), þá nntni þeir eigi byrja á ástandi landssjóðs, held- ur á fasteignaveðunum, t. d. reyna að telja mönn- um trú um það, að skuldabréf lántakenda veð- deildarinnar séu ólögleg eða vitlaus, ofmikið lán- að út á veðin, ísalög og harðæri mikið í landinu og fólksflutningar miklir til Ameríku, svo þar af leiðandi standi hús auð og jarðir í eyði; þess vegna sé trygging bankavaxtabréfanna ófullnægj- andi, og menn verði að gæta sín, að gefa elcki mikið fyrir bréfin. Þeir vita, að þetta skilja út- lendir menn og hræðast það. En þótt þeir tali um ábyrgð landssjóðs á nokkrum bankaseðlum þá skilja aðrir það ekki, og draga að þeim dár og spott fyrir slíkan framburð. B. Kr. flytur þá kenningu þvert ofaníreynslu allra landa, að seðlaútgáfurétturinn lé lftils virði, svo skaðinn sé enginn þó landið sleppi honum. Að sönnu lítur svo út, sem margir af meðmæl- endum „stóra bankans" hefðu sömu skoðun á al- þingi í sumar, þar sem þeir vildu gefa stofnend- um hlutabankans seðlaútgáfu réttinn til 30 ára, sem getur orðið yfir 1. miljón kr. virði, og gerðu sig ánægða með, fyrir landsjóðs hönd sýnilega minna árgjald frá hlutabanknnum, en landið hefur tekið undanfarin ár, af sinni eigin peningastofn- un. Svona langt kemst Valtýskan og ísafoldar ofstækjan, þegar þær spenna bogann hátt. — B. Kr. ráðgerir að árstekjur landsbankans af 750 þús. kr. íseðlumvetði 27,000 kr., banka kostn- aðinn gerir hann um árið 25,688 kr. Þar af læt- ur hann sparisjóð og veðdeild bera 6,000 kr., og bankann 19,688, tæpar 7,500 kr. verða þá eptir, sem bankinn þarf lögum samkvæmt að greiða landssjóði. Af þessum reikningi sézt, að ágóðinn af seðlaútgáfunni ber því nær öll útgjöld bankans svo það er þá eptir reikningi B. Kr. sjálfs, ágóð- anum af seðlaútgáfuréttinum að þakka, allt það gagn, sem landsbankinn hefur gert í 16 ár síðan hann var stofnaður. Þó segir B. Kr., að seðlaút- gáfuréttur sé lítils virði og rnegi fara, Fáir eru þó svo illviljaðir landsbankanum, að þeir eigi játi, að hefði bankinn eigi verið stofnaður enn þá, þá væru færri húsin 1 Reykjavík, þilskipin færri á höfninni og framfarirnar minni útumlandið. Það er eigi sennilegt, að öllum þeim peningum, sem hafa farið úr bankanum út um landið, hafi verið illa varið, svo að þeir ekkert. gagn hafi gert. — Auk þess gagns, sem bankinn hefur gert öðruni

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.