Þjóðólfur - 18.03.1902, Page 1
ÞJÓÐÓLFUR. Viðaukablað M 6
Viðaukablað við Þjóðölf
18. marz 1902.
Utlendar fréttir.
Kanpmannahöfn, 3. marz.
Merkasti pólitiski viðburðurinn á þessu
ári þykir samningur sá, er Bretar og
Japansbúar hafa gert sía á milli um
mál þeirra í Austurálfu. Tilgangur
samnings þessa, sem er dagsettur 30.
jan. þ. á., er að stuðla að því, að Kína
og Kórea haldist jóskert, þ. e. halda
uppi „status quo“ og halda ásælni ein-
stakra þjóða í skefjum. Það eru vit-
anlega Rússar, sem sambandsmönnum
stendur mestur stuggur af, enda er
þess og getið, að Kínverjar fagni samn-
ingnum mjög. Lendi önnurþessara sam-
bandsþjóða í ófriði, á hin því að eins
að skerast í leik, ef aðrar þjóðir veita
mótstöðumönnunum lið. Bandamenn í
Norður-Ameríku hafa að sögn verið
með í ráðum, en þó ekki viljað binda
s'g °g gerast sambandsmenn.
Ráðaneytisforseti Hollendinga, dr.
Kuyper skrifaði fyrir nokkru ensku
stjórninni og bauðst til að vera milli-
göngumaður milli Breta og Búa, ef þeir
vildn semja frið. Chamberlain kannað-
ist við, að tilgangur Kuypers væri hinn
bezti, en kvaðst ekki hirða um miðlun
annara þjóða; að öðru leyti kannast
hann ekki við, að Krúger og hans
menn hér í Norðurálfu hafi nokkurn
myndugleik tilþessað semja frið; völdin
í því efni séu í höndum þeirra Steijns
og Schalk Burgers.
Brodrick hermálaráðgjafi Breta hef-
ur skýrt svo þá, að Afríkustríðið hafi
á fjárhagstímabilinu 1900—01 kostað
63 miljónir £., 1901—02 61 milj. í£.
Hann gat þess, að af her Búa væri
eptir að eins 3 stærri herdeildir (um
2000 manns hverjundir forustu þeirra
Louis Botha’s, de Wet’s og Delarey’s,
og væri það ætlun Kitchener að kvía
sveitir þessar inni á einum stað og
veita þeim þar aðsókn. Skömmu síð-
ar tókst Bretum að umkringja de Wet,
en hann skipti liði sínu í smáflokka
og smaug í gegnum hringinn. — 24. f.
m. fóru Bretar ófarir fyrir Búum við
Klerksdorp : 120 féllu og 467 (þar á
meðal 16 herforingjar) voru herteknir.
■—27. f. m. náðu Bretar aptur á móti
600 Búum á vald sitt við Vaalfljót.
Af meiri háttar Búum, sem Engl. hafa
handsamað 1' seinni tíð má nefna Viljoen
hershöfðingja, Johs. Botha herforingja,
og son de Wet’s.
Einn af herforingjum Búa, Scheepers
að nafni, vaskleikamaður mikill, særð-
ist í orustu og fell í greipar fjandmanna
sinna. Bretar báru á hann þungar sak-
ir og dæmdu hann til dauða. Kitchener,
sem ekki kvað vera sérlcga viðkvæm-
ur, leizt vel á S. og lagði til, að hann
yrði náðaður; en Chamberlain sagði
úei og lét skjóta S., undir eins og sár
hans voru grædd.
Meðferðin á mönnum í stríði þessu
er opt slæm, en enn þá hryllilegrí virð-
ist þó meðferðin á skepnunum; þann-
ig er þess opt getið, að Búar hafi
sprengt gaddavírsgirðingar þær, er Bret-
ar hafa reist meðfram járnbrautunum,
með nautgripum og hestum, trylltum
af svipuhöggum.
Þrátt fyrir allt hatrið milli Breta og
Þjóðverja heimsótti prinsinn af Wales
Wilhelm keisara á afmælisdegi hans í
janúarm. og var vitanlega tekið tveim
höndum.
Samlyndið í frjálslynda flokknum í
Englandi hefur ekki farið batnandi.
Rosebery og Campbell-Bannermann
eru að vísu svo nokkurn veginn sam-
mála að því er aðalatriðið nú sem
stendur, Afríkustríðið, snertir; báðir
unna Búum bærilegra friðarkosta. Þar
á móti vill C. B. ekki slá hendinni af
írum, sem R. hvorki vill heyra né sjá.
Stjórnarflokkurinn verður náttúrl. enn
þá voldugri fyrir þennan ágreining í
liði mótstöðumanna.
Mikið hefur verið um dýrðir í Ame-
ríku út af heimsókn Heinrichs prinz
hins þýzka ; hver veizlan rekið aðra
með vanalegumskjallræðum. Frk.Roose-
welt mölvaði kampavínsflösku á hinu
nýja skipi Wilhelms keisara, sem prinz
H. er að sækja, og nefndi það „Meteor",
og fékk hún fyrir það m. a. glæsilegt
gullarmband með mynd keisara. —
Miljónkongarnir* * þar vestra hafa hald-
ið prinzinum veizlu, er kostaði fleiri
hundruð þúsund krónur — allt til þess
að tengja Þjóðverja og Bandamenn
saman með órjúfandi vináttuböndum!
Prinzinn var gerður að heiðursborgara
í New-York.
Waldeck-Rousseau var svo óhepp-
inn hér um daginn, að vagn hans varð
fyrir sporvagni, er drap hestinn og
meiddi ráðaneytisforseta. Honum kvað
þó .engin hætta búin.
Kennslumálaráðgjafinn í Búlgaríu
Kuncheff fékk nýlega heimsókn, er
hann sat á embættisskrifstofu sinni, af
manni, sem hann hafði neitað um kenn-
arastöðu. Komumaður dró skambyssu
upp úr vasa sínum og hleypti mörgum
kúlum á ráðgjafa, er hné örendur nið-
ur. Þvínæst settist hann í sófann og
skaut sjálfan sig.
Ýmislegt. Páfinn, Leo XIII, f. 2/3-
1810, hélt 20. f. m. 24 ára páfaafmæli.
Keisaramóðirin gamla í Kína hafði
nýlega boðið sendiherrafrúnum í Pek-
ing heim til sín og gat þess þám. a.,
að hún ætlaði að fara að laga sig eptir
Evrópu-siðum og verða mannblendnari
en áður. — Trúi því hver sem vill!
í Paterson (New-Yersey) voðalegir
húsbrunar (26 húsaþyrpingar); í New
York brunnið „Park Avenue Hotel“ —
margir farist, en þó fleiri meiðst.
í kjördæmi Sofusar Högsbro’s, er—
eins og áður mun ávikið — andaðist 15.
jan. þ. á. — hefur hlotið þingmanns-
kosning Deuntzer ráðaneytisforseti. All-
ir ráðgjafarnir •— að undanskildum her-
mála- og flotaráðgjöfunum — hafa þann-
ig sæti í ríkisdeginum.
• Kaupsamningurinn um dönsku eyj-
arnar í Vesturheimi er nú samþykkt-
ur af Bandamönnum og verður bráð-
um lagður fyrir ríkisdaginn hér.
íslendingafélag hefur sent formanni
ferðafélagsins danska þakkarávarp fyr-
ir stuðning félags þessa að eflingu góðs
samkomulags milli íslendinga og Dana
— m. a. með því að gangast fyrir ís-
lenzka samsöngnnm í Oddfellowhúsinu
í fyrra.
Viðauki.
Nýjustu útlend blöð frá 4.—8.þ. m.
hermaengin veruleg tfðindi,nemaef telja
skyldi fullyrðingu hraðskeytis frá New-
York um, að Andrée loptfarinn sænski
og báðir félagar hans hafi verið myrt-
ir (skotnir til bana) af Skrælingjum við
Hudsonsflóann í Norður-Ameríku, jafn-
skjótt sem þeir Andrée stigu niður úr
loptfarinu. Getur brugðizt til beggja
vona, hvort nokkuð er á þessari staðhæf-
ingu að byggja. En þetta er alls ekki
spánný frétt, því að í fyrra sumar gaus
sá kvittur upp, að þeir Andrée hefðu bor-
ið beinin í Hudsonsflóalöndunum. Og
þessi frétt kom í mörgum blöðum (sbr.
„Þjóðólf" 20. sept. f. á.). í hraðskeyti
því, er sent var frá New-York um þetta
efni snemma í þ. m., og birt er í ensk-
um blöðum, er þess ekki getið, að þeir
Andrée hafi verið myrtir sumarið 1898,
eins og blöð hér hafa hermt frá, enda
er ekki sennilegt, að Andrée hafi kom-
ið siglandi í loptfarinu til Eskimóanna
árið eptir að hann lagði af stað, með
því að hann mun ekki hafa haft nein-
ar til.teringar til að fylla loptbelginn
aptur gasi, er hann var einu sinni
tæmdur. Það hefur því verið sumarið
1897, nokkru eptir að hann lagði af
stað frá Spitzbergen, að Skrælingjarn-
ir við Hudsonsflóann hafa myrt hann og
félaga hans, ef það annars er satt.
í „Weekly Scotsman" 8. þ. m. er
skýrtfrá frekari tilraunum Marconi’s um
vírlausar hraðskeytingasendingar þvert
yfir Atlantshaf. Á 1S 50 (enskra) mílna
færi fékk hann greinileg hraðskeyti
frá stöðinni í Poldhu í Cornwallis, og
bókstaflnn „s“ fékk hann sendan á 2096
mílna færi. Var hann þá staddur á skip-
inu „Phíladelfíu" allskammtfrá ströndum
Ameríku, að því er virðist. Ekki voru
gerðar neinar tilraunir til að senda skeyti
aptur til Poldhu. Marconi kveðst innan
3 mánaða geta komið á vírlausu hrað-
skeytasambandi milli Evrópu og Ame-
ríku, svo að gagn verði að, og hann
fullyrðir, einsog áður hefur verið get-
ið um, að kúlumyndun jarðarinnar sé
ekkert til fyrirstöðu. Vegna þess seg-
ist hann geta með 2 stöðvum andspæn-
is hvor annari sitt á hvorum jarðar-
helmingi sent skeyti umhverfis jörðina,
en það mundi ekki hafa neina prakt-
iska þýðingu.
Kýlapest mjög skæð er í Sidney í
Ástralíu, og kólera hefur komið upp
meðal Mekkapílagríma; 1 ioþeirradauð-
ir úr henni í Medína.
Hátíðahald mikið á P'rakklandi um
næstl. mánaðarmót í minningu 100
ára afmælis skáldsins og ritsnillingsins
Victor’s Hugós.
Svo er sagt, að aldrei hafi frjálslynda
flokknum á Englandi verið jafnhætt
við að rofna, eins og nú, síðan írska
heimastjórnarfrumvarpið var á ferðinni.
Það eru þeir Rosebery lávarður og
Campbell-Bannermann, sem ætla að
slíta flokkinn sundur á milli sín.
Dr. Þorvaldur Thoroddsen
hefur fengið prófessors-nafnbót.
Heiðursmerki.
Júlíus Havsteen amtmaður og Hall-
grímur Sveinsson biskup hafa verið
sæmdir kommandörkrossi dannebrogs-
orðunnar 2. stigi.
Einar Jónsson
myndasmiður (frá Galtafelli) hefur
hlotið þann sóma, að höggva mynd
af fyrv. kennslumálaráðherra Bjerre, er
sett verður á legstað hans.
Til mœllnga
á suðurströnd íslands verða í ár
veittar 15,000 kr. á dönsku fjárlögun-
um, en alls ætla Danir að verja 30,000
kr. til þessa fyrirtækis.
Embættispróf 1 lögum
við háskólann hafa tekið Guðmund-
ur Eggerz með 1. einkunn og Guðmund-
ur Björnsson (frá Svarfhóli í Stafholts-
tungum) með 2. einkunn. Hinn síðar-
nefndi fór heim með „Vestu" til norð-
urlandsins og ætlar að reisa bú í
Klömbur í Vesturhópi í vor.
Dáin
er í Kaupm.höfn 30. jan.frú Þorbj'órg
Stefánsdóttir (sýslumanns í Árnessýslu
Bjarnarsonar)kona Klemens sýslumanns
Jónssonar; hafði verið þar til lækninga
síðan í haust, er hún sigldi með manni
sínum. Hún var góð kona, greind og
stillt.
Nýjan spítala
ætlar Frakkastjórn að láta reisa hér
í bænum nálægt „frönsku húsunum",
sem nú eru flutt inn í Skuggahverfi.
Múrmeistari Baldt hefur tekið að sér
að reisa spítalann. Kostnaður áætl-
aður um 40,000 krónur. Eiga þar að
vera sjúkrarúm að minnsta kosti fyr-
ir 20 sjúklinga, og spítalinn að öðru leyti
hinn fullkomnasti að útbúnaði öllum.
Póstskipið „Laura"
kom hingað 16. þ. m. Með því komu