Þjóðólfur - 25.04.1902, Síða 1

Þjóðólfur - 25.04.1902, Síða 1
54. árg. í Slútnesi. (Vorniiniiiiig). Hljóðnar í runnum og reykir dvína. Rjóður og heiður er svipur dags — á síðustu eikt til sólarlags. — Suðrænan andar um Mývatnsstrandir. Nú hvílir svo vær þessi væna byggð um vatnamiðin sín, fáguð og skyggð. Og skútabrúnirnar hýrna og hlýna við himinsins bros — sem fer að dvína. En Slútnes, það ljómar sem ljós yfir sveit; öll landsins blóm, sem jeg fegurst veit, um þennan lága, laufgróna reit sem lifandi gimsteinar skina. — I austri rís sveigur af eldskreyttum hæðum sem ennisspöng yfir Vatnsins brá. — En hólminn mig töfrar. Þar horfi jeg á alls himinsins liti í blómanna gliti. Jeg kveð þau, jeg nefni þau eitt fyrir eitt 1 æskunnar prýði og geislum skreytt. — Sóldýrð er yfir engjum og fiæðum og eldslæður blika á fjarlægum hæðum. En jeg finn öll moldarbarnsins bönd binda mig við þessa lágu strönd, sem vakti lífgjafans voldugu hönd af vatnsins og duptsins æðum. JJm grein og stofn renna straumar hljóðir; jeg streyma þá finn um minn eigin barro, og veit að þeir kvika um víðisins arm. Svo vítt þeir renna, sem sólirnar brenna. Þeir bera minn hug yfir hnattanna sund og hepta minn fót við þessa grund. — Þeir ólu þá jörð, sem er vor móðir, ósýnilegir, sterkir og hljóðir. Jeg veit að allt er af einu fætt að alheimsins líf er ein voldug ætt dauðleg, eillf og ótal-þætt um afgrunns og himins slóðir. Andvarans bylgjur lundinn lauga. Lauf varla bærist við hvolfsins grunn svo létt og hljótt fellur loptsins unn. En lífsþráin iðar í grösum og viði. Þau dreymir ttm sumarsins mildi ogmátt og minnast við bjarntann af kveldsins átt.— Ilmblóm, með kerfi æða og tauga, sem andvarans rnjúku bylgjur lauga! Blaðvarir hvísla svo hljótt þitt mál. Jeg hallast að bikarsins lifandi skál. Mér finnst eins og speglist fjötruð sál í frjóhnappsins daggarauga. Þó blöðin visni kemst andinn yfir, sá andi, sem hvelfir jökulsins brún nteð blikandi tind yfir byggð og tún, sem bindur það háa í skuggsjá þesslága. Þú lítur á svipinn þinn, litfríða jurt, í lognvatnsins gljá. En hann hjaðnar burt. Þó háloptsins vegi á vængjum þú svifir samt visnaði mynd þín, hún kemst ekki yfir. — Að hálfu þú seilist ( himinsins ljós, en hálf ertu jarðsett við ládauðan ós, skammlífa, unga engjarós með eðlið sent deyr — og lifir. Sóldögg I Upprunans glóð við geymum, hún glatast aldrei — þó brenni hún lágt. Framtíð vor býr í hæðunum hátt, hlut vorn því stærri, sem nú er hann smærri. Þú rænir og deyðir dýrin smá, en dýrkar þá sól, sem til flugs þeim brá. — Að segulsins skauti svo saman við streymum hver sál og hver jurt, sem neistann geymum. Því ljósvakans máttuga móðurlind og moldarnáttúran dauð og blind tengjast í okkar ytri mynd, en eru af tveimur heimum. — 1 — — ... —-----------------—» ----------— Reykjavík, föstudaginn 25. apríl 1902. M 17. Biðjið ætíð um OTTO M0NSTED’S DANSKA SMJÖRLÍKI sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Yerksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina lieztu vöru og ódyrnstu í samanbnrói við gæðin. Fæst hjá kaupmönnum. ^ Týsfjóla I Krjúp þú með krónuna fríða og kysstu þá mold, sem þú blómgast á; þó heimti hún blöðin þín himinblá, af hisminu aptur skal r(sa þinn kraptur. Þú hrörnar, en upphafs þíns öfl eru sterk þau yngja með gaddinum sólskinsins verk. Hefðu upp, blákolla, hjálminn þinn fríða; því hann skal þitt eigið leiði prýða. Og vorperla, leyfðu ljósinu inn í litla viðkvæma barminn þinn því senn dökknar aptansins sólroðna kinn og sumrið er byrjað — að liða. Vængjaðar hjarðir hljóðlega synda til hvíldar að bökkum við ey og strönd, en hér og þar lyptist ein harðfleyg önd og hálsinn teygir svo langt sem hún eygist, — í gegnum sólroðans tindrandi tjöld, ef til vill að byggð, sem er skuggsýn í kvöld, með náttgustsins hjúp yfir holt og rinda, og hrjóstruga farvegi kaldra linda. — En hér er svo bjart við hinn blikandi sjó og blómin þau veita svo holla ró. Þau hefja manns anda hátt — og þó hugann við jörðina binda. Hve frítt væri að sjá frá heiðum til hafna stráð hólmans blómum um allt þetta land; breiðast hans skraut um hvern blásinn sand og brekkurnar klæða til efstu hæða. Þá hækkaði og fríkkaði fjallsins mynd ef frjósemi dalsins snerti þess tind. Hve gott væri reitsins gróðri að jafna um grýtta landið, frá fjöllum til hafna; sjá jurtirnar vefa sinn vermandi feld — og vernda og fela lífsins eld undir klakanum kalin og felld með kjarna, sem aptur skal dafna. Nú dýpkar og blánar hvolfsins hylur og húmblæjur kvika um geislanna brunn, sem enn dreypir ljósi á lyngblómsins inunn og lægsta runninn vermir við grunninn. Lífstraumar iða hver öðrum mót, frá efsta kvisti að dýpstu rót — en yfir öllu er hvölfsins hylur. Svo hljótt við jurtirnar suðrænan þylur. Þær breiða ylinn sem eldstjarnan gaf yfir þá jörð, sem þau spretta af. — Með nýrri sjón yfir hauður og haf sá horfir, sem blómin skilur. Einar Benediktsson. Reikningar B. Kr. Eptir Halldór Jónsson. Mér hefur ekki tekizt að skrifa svo ljóst og greinilega í 15. tölubl. Þjóðólfs um formið á reikningsdæmi »Bóndasonar«, að B. Kr. hafi getað skilið mig. Hann heldur enn fast við það ( 21. tölubl. »ísaf.« að dæmið hafi rangt form, og að »tekju- upphæðinni 44,643 kr. sé allri ofaukið í því«. Eg var hér á árunum kennari í reikn- ingi 1 barnaskólanum og var þá var við það, að misjafnlega létt gengur að gera tölur og reikning skiljanlegan. Það er opt þolinmæðisverk, og enn er dálítið eptir í mér af gamalli þolinmæði. Eg ætla því að gera eina tilraun enn við B, Kr. í því trausti, að það sé ekki orð- ið of seint. Eg benti á það í fyrri grein minni, að hið sama reikningsform, sem »Bóndason« viðhefur, er notað af embættismönnum þessa lands og öðrum þeim, sem gera þá reikninga, er auglýstir eru í Stj.tíð. (nema reikn. landsbankans). Þessu hefur B. Kr. ekki þorað að neita, sem ekki var held- ur við að búast, en hann kallar þetta form »jafnaðarreikning«, sem engin heimild eða venja er fyrir (réttast væri að kalla það aðalreikning) og setur svo upphrópunar- merki við nöfn þeirra manna, er við hafa reikningsformið, Halldór Daníelsson, Páll Briem o. fl. (»Jóns Sigurðssonar« hjá B. Kr. er villa; á að vera: reikningur Jóns Sigurðssonar legats«). B. Kr. er víst að reyna að hæðast að þessum mönnum fyrir það, að þeir skuli viðhafa þetta reikningsform. Eg skal svo snúa mér að dæmi »Bónda- sonar«; það er svo í stuttu máli: Tekjur: 1. Vextir.........................112,500 2. Provision.......................14,000 3. Vextir af varasjóði .... 6,000 4. Árleg afborgun..................44,643 177,143 Gjöld: 5. Vextir og afborgun af gullláni 75,oqo 6. Kostnaður......................22,000 7. Do. við útibú . . . 18,000 8. Afgangur......................62,143 I77A43 B’ Kr. mótmælir hér 4. lið, vill fella hann burtu og færa 8. lið niður um sömu upphæð. Orsökin til þess er sú, að hann vill að eins hafa kassareikning, er þá liti svo út: Tekjur: 1. Vextir......................112,500 2. Provision...................14,000 3. Vextir af varasjóði .... 6,000 132,000 Gjöld: 4. Vextir og afborgun . . . 75,000 5. Kostnaður.....................22,000 6. Do. við útibú . . . 18,000 7. Tekjuafgangur................17.500 132,500 Á þennan hátt vill B. Kr. gera reiknings- dæmi »Bóndasonar« upp. En það e r e k k i fyllilega rétt, því að með því er gefið 1 skyn, að ársgróðinn se að eins 17,500 kr. sem er vitlaust. Reikningsglöggir menn geta að vísu fundið út úr þessu, hver árs- gróðinn muni vera, en almenningur getur slíkt ekki, og er því dæmið, uppsett á þennan hátt, villandi tyrir hann. Fyrir því er það, að bankar auglýsa ekki í blöðum slíkan kassareikning sinn, heldur jafnaðarreikninginn einan, svo að almenningur geti séð fjárhagsástandið (status). Eptir dæmi »Bóndasonar« yrði jafnað- aðarreikningurinn þannig: Eignir: 1. Gullforði...................1,250,000 2. Fé í útlánum 3. Fé í sjóði 3>767,5°° Skuldir: 4. Eptir af gullskuld .... 1,205,357 5. Seðlar í umferð .... 2,500,000 6. Eign í gullforða .... 44,643 7. Varasjóður ...... 17,500 3,767,500 Hin 6. og 7. fjárhæð sýnir ágóðann allan 62,143 kr. eins og »Bóndason« fær hann út réttilega eptir þeim tölum, sem hann notar, undir 8. tölul. B. Kr. vill strika út upphæðina 44,643 alla og setja e k k e r t í staðinn, en slíkt nær ekki nokk- urri átt, af þeirri einföldu ástæðu, að bankinn eignast, verður sannur eigandi að jafnstórri upphæð gullforðans, sem hann borgar ( afborgun á ári. Aptur á móti má deila um það, hvort rétt sé að teljaþessa upphæð ’/aS part af 1,250 þús. kr. (öllu gullláninu) = 44,643 kr. eins og »Bónda- son« gerir, eða að eins 25 þús. kr. þetta fyrsta ár. eins og afborgunin er í raun og veru. Eg, fyrir mitt leyti álít hið síðara réttara, og þannig hefði eg gert dæmið upp, ef eg hefði verið þessi »Bóndason«. Eg mundi í dæmi »Bóndasonar« hafa haft 4. tölulið 25 þús. kr., og 8. tölulið 25 þús.-j-17,500 = 42,500. Enþettasam- svarar ( jafnaðarreikningnum, að 4. tölul. yrði 1,225,000 kr., og 6. tölul. 25 þús. kr. En þessi mismunur breytir ekk- ert formi reikningsins, en um það snúast deilur okkar B. Kr. B. Kr. villist sem sé á því, að hann telur allan 5. lið í dæmi »Bóndasonar« »sönn ársgjöld«, en það er ekki rétt. Upphæð sú, 75 þús. kr. samanstendur af 2 liðum, sem sé vextir 50 þús. og af- borgun 25 þús. Vextirnir 50 þús. eru sönn útgjöld, en afborgun 25 þús. eru e k k i s ö n n útgjöld, því að bankinn kaupir gull fyrir þau, sem er jafnmikils virði og þessar 25 þús. kr. eru. Ef B. Kr. kaupir vörur fyrir 100 kr. og borgar eigandanum 100 kr. fyrir þær,- þá á hann vörumar. Ef vörurnar eru sannarlega 100 kr. virði, þá er B. Kr. hvorki ríkari né fátækari eptir þau kaup. Hann hefur að eins breytt 100 kr. af eig- um sínum í vörur. Hvenær sem hann vill selja getur hann aptur breytt vörun- um ( 100 kr. Þetta eru því engin »sönn útgjöld« enda þótt hann færi í kassabók sinni: »útborgað 100 kr. fyrir vörur«, eins eru það heldur ekki sannar tekj- ur, þótt hann selji vörurnar aptur, fái fyrir þær 100 kr. og færi í kassabók sinni: »innborgaðar 100 kr. fyrir seldar vörur«. Þetta dærni mundi B. Kr. vilja setja upp þannig: 2»5* 1 2 3 4 5 6 7 87»5°°

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.