Þjóðólfur - 24.10.1902, Side 1

Þjóðólfur - 24.10.1902, Side 1
54. árg. Reykjavík, föstudaginn 24. október 19 02. 43. Biðjið ætíð um OTTO MONSTED’S DANSKA SMJÖRLÍKI, sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Yerksmiðjan er hín elzta o§r stærsta í Danmörkn, og býr til óefað hina beztn vöru og ódýrnstn í samanburði við gœðin. ^ Fæst hjá kaupmönnum. ^ Ritd óm u r. Guðmundur Friðjónsson: ,Úr heimahögrum‘. „Einn með hnýttum höndum skóf hann himingrautarpottinn sinn“. Alp.rímur. „ . . . áætlað tilgert og stælt". S/. G. Steþhansson. I. Þessi orð duttu mér undir eins í hug þegar eg fór að lesa »Ur heimahögum« eptir G. F. —- Þegar eg hafði lesið bók- ina var eg sannfærður um, að þau áttu fyllilega heima um hana. Það kemur skýrt fram í bók þessari, að þessi »þrítugi faðir« hennar hefur of- litla »krítík« á sínum eigin gerðum og er honum eigi síður ábótavant þar, en þeg- ar hann dæmir um aðra, eins og honum hefur stundum rækilega verið sýnt fram á. En það má auðvitað finna honum ýmis- legt til málsbóta, t. d. að hann hafi ekki haft færi á, að afla sér þekkingar og sé því, eins ög menn sjá glöggt, lítið mennt- aður maður. — En þó að vér getum vor- kennt honum að þessu leyti, þá teljum vér alls eigi rétt, að láta það hindra oss algerlega frá, að láta uppi rökstutt álit og dóm um bók hans. Vér viljum því síður ganga þegjandi fram hjá þessum bæklingi hans, sem höf. hefur ekki átt að venjast áður rökstuddum dómum um »skrif« sín. Ritdómararnir hafa látið nægja, að kalla hann »ómenntaðan stálkjapt« (Sk. Th.) og rit hans »samsetning« (E. H.), en slíkir sleggjudómar hafa ekkert gildi. Enn þá síður viljum vér þó leggja stund á, að »teygja eyru« höf. á sama hátt, semsum- ir kunningjar hans hafa gert langa-lengi. Eg skal þegar taka það fram, að nauða- lítið er 1 bðkina varið. Einstöku kvæði og kvæðabrot eru ekki illa gerð, en þau hafa ekkert það við sig, er geti gefið þeim rétt til þess, að menn veiti þeim eptirtekt sem skáldskap. Þau eru að eins góð viðbót við þetta daglega stefjahnoð, sem menn »Iáta inn um annað eyrað og út um hitt«, en í minni lesendanna verður ekki annað eptir, en orðskrípin og sérvizku- prjálið, sem þessi bók hefur í miklu rík- ari mæli, en flestar eða allar »sópdyngjur« eldri hagyrðinga. Flest eru kvæðin nauðalík að anda og búningi. Sömu einkennin koma í ljós spjaldanna á milli, hvar sem leitað er, rímið stirðlegt, hortittar margir, orðaval- ið ósmekklegt og mjög óviðeigandi, til- gerðin fram úr hófi, endurtekningar marg- faldar, samlíkingarnar hinar sömu kvæði eptir kvæði, opt ófagrar — minna á »graut- arpottinn« — og sumar enda ófyrirgefan- lega afkáralegar, hugmyndasamband efnis- laust og víða ramvitlaust. Kvæðunum er skipt í fjóra flokka, er höf. kallar »Móðurminning«, »Munablóm« »Dánardægur« og »Uti og inni«. — Á undan þessum kvæðum eru inngangsljóð frá »skáldinu«, furðanlega tilkomulítil og bragðdauf, bæði að efni og formi, enda þótt höf. hafi þar reynt að líkja eptir eldri ljóðasmiðum. Vér viljum sem fæst tala um þessa »Móðurminning«, sem skáldið setur fremst ljóðaflokkanna. Surnt er þar heldur ó- vanalegt og virðist ekki með feldu, enda er ekki kyn þótt minningin sé dauf og rugluð, þar sem hann hefur einungis verið tveggja ára samkvæmt hans tímatali, þeg- ar hann missti móður sína. Aptur verð- ur að dvelja nokkuð við »Munablómin«. Þar koma einkenni höfundarins berlegast fram og í þessum kvæðabálki virðist hann ætla, að sér hafi tekizt bezt, enda hafa vfst fá skáld ort meira en hann af ásta- kvæðum í hlutfalli við önnur ljóð. Það er því rétt að líta á nokkur þessara kvæða, með þeirra kostum og kynjum. Fyrsta kvæðið heitir »Vegamót«. Þar finnur hann »vinu sína« sfrjálsa en þó bundna á gatnamótum«. Hann lýsir því, hve ákaflega hugfanginn hann hafi orðið, og segir svo: „Þótt eg hefði átján'W) augu átt í vituvi brúna minna mænt eg hefði’ í einu öllum inn í veröld harma þinna'* 1. — Þetta hefur G. þótt agætt, þvf að hann segir seinna í sama kvæði: „Þótt eg hefði átján augu öllum skyldi eg til þín mæna“. En sú dyggð, ef hann hefði horft á hana með átján augum, »öllum« í einu, en ekki t. d. með 17 og einu »út íbláinn«, — eða jafnvel sínu í hverja áttina eins og kameleon. Svona á • nú ástin að vera! — Til er vísa eptir Egil Totu, sem var vestur undir Jökli og er engu líkara, en Guðmundur hafi haft hana fyrir sér, þegar hann setti þetta saman. Vísa Egils er svona: „Lítil átjdn augnatól alltaf þangað störðu. Glitraði ylmild ennisól J yfir muna-jörðu“. Það er líka fleira f þessari vísu, sem G. virðist snortinn af, sem sjá má við sam- anburð á kvæðum hans. — Tvisvar í þessu kvæði biður hann vinu sína að koma »austur á bóginn endalausa«. Svo kemur í einni vfsu: „Alfa vona og óska minna er á vegum dagrenninga". Hvað »alfa« á að vera, er óvíst, nema höf. sé að byrja á gríska stafrófinu, — í annari: „Draumskygn sjón mín deildi í henni dagrenningar skyndiboða". í þriðju: „Dagrenningar veizluboði". Svona er allt kvæðið tómt merglaust orða- gjálfur, eintótnar endurtekningar á þessum sérvizkuorðtim, en engin skáldleg hugmynd. Annað er »Brúnahverfi«. Það er orkt undir fornyrðalagi og á víst að jafnast við kvæðin í Sæmundareddu, en er sama orða- gjálfrið og 1 fyrra kvæðinu, sundurlaust fimbulfamb, sem reynt er að setja þráð í með nokkrum nöfnum úr goðafræðinni. Hann talar um » U t g a r ð ástar sinnar«(l!) svo kenist hann í »Miðgarð elsku sinn- ar«(l!) og vitum vér engan nerna Hannes stutta hafa haft slíkar samlfkingar í ásta- ljóðum. Hannes kvað svona: „Undir kærleiks Útgarð þinn eigra eg von að hugga. Ástar-Miðgarðsorminn minn el eg í næturskugga". En sá er munurinn, að Hannes er kjarn- yrtari og kemur því í eina vísu, sem G. hefur í heilu kvæði, — en G. fer lfka um sgervallt Helluland hyggjtt sinnar«(!I) og átti ekkinema »eitt skref« eptir »aust- ur í Álfheim«. Þar sat vina hans »fvaf- urloga, dáfríð, dulspök og dökk á brún«, og er hann þvi vfðförlari en Hannes. »Gullið mitt« — byrjar á því, að »góð- viðrið þaggar tómleik« hans. Eptir því ætti »tómleikinn« að geta haft hátt. Svo situr hanu sunnau undir »hald- kvæmum steini« (sbr. »Lektor situr sál- arlaus, sunnan undir steini*) og segir: »Þú anda míns hádegi sb j a rm i«(!!). En svo er það ekki nóg og kemur hann þá með í næsta erindi: »Þú anda míns há- degissunna«. Smekklaus endurtekning.^- En þó kastar fyrst tólfunum, þegar þessari líking er hnýtt í enda kvæðisins: „Hver þráður í trefjavef muna míns á móndul í hugskoti þínu“.!l Skrítnir eru »tnunavefir« Guðmundar, pilt- ar! »Tvær sólir« eru tvö erindi. Hann »horfir« og »starir« og »mænir« á og »mælir« meyna, en verður svo litið á sjálf- an sig og hann er þá »lágur«, »lítill« »létt- ur á voginni« og »mjór«. Þá loks »að endingu« töfrar hún hann. »Vegalengd« heitir eitt. — Þar eru til- þrifin. Fyrsta vísan byrjar svo : „Eg veit það ekktf vina mín, en veit það reyndar þó“ —. Eptir þessi kjatnyrði kemur ýmislegt til greina, sem bætir úr »Vegalengdinni«, t. d. þetta, seinast í fyrstu vísunni: „Því alltaf dvelur rnuni minn við munarroðann þinn". Og í öðru versi : „i seli (I) hefir muni minn við meyjarblómann þinn". Svo er »muni« skáldsins úr sögunni, en þá tekur »andinn» við, sbr. 3. vers: „En andi rninn er ferðafrjáls hann fellur þinni önd um háls" — og loks í fjórða: „Jd (!!) andi minn er ferðafrjáls. Hann fellur um pinnar andarháls".(!!) Ekki er að furða þótt »blóðmissan«, sem hann kvartar undan í formálanum, hafi gengið nærri honum, þegar hann ól ann- að eins afkvæmi og þetta. »Áfangastöð« heitir eitt kvæðið. Það er líka sannkölluð áfangastöð endileysu og fimbulfambs. »Sólskríkjan blístrar« en skáldi er »hábundinn« af »gangþung- anum«, — en »guð faðir« gaf honum »flugþolna vængi«, — sem seinna verða að »hjúp« eða »flughjúp« og hefur þá andvarinn »varla til hálfs« »yfirferð« á við anda hans. Svo fer andi hans »fljúg- andi« »á fljúgandi, þiáðbeinni rás«, að kanna hið »saumlausa traf«, — en það merkilegasta er, að þrátt fyrir allar þess- ar »rásir« og »flug« þá »áir«(I!) hann » a 11 a 11 ð «(!!) (nfl. er alltafkyr) hjá vinu sinni — og »þar er honum markaður bás«. — Gera önnur leir- skáld betur? — »Já«. Eitt kannske bet- ur í næsta kvæði, sem heitir: sAndinn og hafrænan«. Þar er skáldi meðal annars að tala um, hvað »attg- sýnhans hugar« hafi verið »einhæf og sljó í æsku«, þegar trúin flúði hann, og þá trúði hann í einfeldni sinni, »að andinn og hafrænan yrði’ ekki sén«. En nú er þetta orðið öðruvísi og þvf til sönn- unar kemur hann með þetta erindi: En nú hef eg bæði þau sannlega séð, já, séð þau og haft af þeimkynni; pví sýnileg ímynd hins sannhelga guðs er sdlin i elskunni minni". Hver getur nú fundið hugsunarsamband í þessu erindi, eða nokkurn botn í þess- ari skýringu hans ? Þarna segist hann hafa »séð þau bæði sannlega og haft af þeimkynni«af því, að »s á 1 i n í elsk- unni hans sé ímynd hins sannhelga ■guðs. Hver skilur? — Svona er vit- leysunum hrúgað saman í endalausa flækju. Svo er nú skáldi á »Næturferð«, þegar »blikudrög himninum loka« og »við hafs- brún er þúsundföld þoka«. »Já«, segir skáldi. »Já, blika’ er í lopti og bakki til hafs«. Ágætt að fá upplýsingar um það aptur. Svo rfður hann »löturhægt« á »ljónhvata fáknum«, »ragur« »með beinþröngan, skorpnaðan skóinn«, xhorfir utn öxl«; »j á (!!) harm- þrunginn augunum rennir« o. s. frv. — Þá er þó betra um »Nótt á sólmánuði*, enda bjargast skáldi þar við annars efni t. d.: .Ljómar Ægis ljósgrænt tún. lágar öldur fiissa: aptansroði árdagsbrún er að faðma’ og kyssa— vikið við úr vísu Þ. E.: Ár um njólu aldinn Mar út hjá póli gaman : Árdagssól og aptan þar eiga stóla saman". »Vornótt« er langt kvæði og þreytandi. Sífeld endurtekning um »rauðleita refla«, sem »tindra við grænan rekkjustokk«, »ár- sal, sem er uppi til þerris«, breiddur á blágræna teina« o. s. frv. — alltaf sama samlíkingin margtuggin, krydduð með vanalegum smekkleysum, og aukið við stælingum eptir Steingrím og Bjarna Th. — »Uti á vegum storms og hrlða«, er skáldi að tala um, að »leggja árar nið- u r í s k u t i n n » . Það er víst eitthvað einkennileg sú fleyta, þar sem árarnar eru lagðar »niður í skutinn«. Manni dettur 1 hug leirburðurinn eptir samal »Bjarka« um daginn: Allt þitt líf er aptur í skut, eignaðir þér í Stefni hlut“.(!!!) Eptir lýsingunni er fleytan líka »rifinn«, »fúinn« og »lekur nökkvi«, sem rekur á reiðanum. — Ef her er um nokkurn bát að ræða, sem til er, þá á þetta bezt heima um »dvergaferju« skálda sjálft. »Ástin er sterkari en helja«. I þessu »tnunablómi« segir skáldi f fyrstu fjórum vísunum frá ástarangri sínu. Httgurinn fer á fund til ástmeyjar hans á nóttunni »yfir hjarnið og gljána«. Svo fer hann að segja frá atburði: Skaldi »vafraði að sauðum«, einsoghann segir, og »hristi í vetlingnum hnipraða mund og hrökkl- a ð i f ó t u m a ð snænum«, og »beitti höm- inni að hríðinni«. I næstu vfsu segirhann:

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.