Þjóðólfur - 19.12.1902, Qupperneq 3
203
sem „gainli rauður“ glotti bara og virði
að vettugi slíkar aðíarir raannanna. Eld-
tryggur járnskápur er stóð í skrifstofunni
og geymdi bækur og peninga verzlunar-
innar, náðist snemma úr eldinu, eptir að
húsið var fallið, en eigi reyndist ha nn bet
ur en svo, að peningarnir eyðilögðust og
bækumar urðu nær því alveg ónýtar. Ein-
stakir menn biðu mikið eignatjón bæði
verzlunarstjórinn, verzlunarmaður Bjarni
Benediktsson, er missti aleigu sína og
ennfremur ýrnsir einstakir menn, er áttu
vörur og ýms áhöld geymd í húsunum.
Matvörum þeim er björguðust, er komið
fyrir í húsum kaupfélags Þingeyinga, en
Jauslegum skúr slegið utan um saltið, sem
óskemmt er. Verzlunarstjóri Stefán Guð-
johnsen ráðgerir að sigla nreð næstu ferð
„Egils" snemma ( næsta mánuði, og má
að lokum geta þess verzluninni og hinum
unga verzlunarstjóra til lofs, að matvöru-
birgðir þær, er björguðust, munu eigi
miklum mun rninni, en verzlunin hefur haft
að undanförnu, og mætti gizka á, að slík-
ar væru eigi margar verzlanirnar á Norð-
urlandi, er birgðu sig svo vel á haustnótt-
um, sem verzlun Örum & Wulffs. Að því
er ahnenning snertir, er þá útlitið eigi
heldur svo næsta ískyggilegt.
BarOastrandarsýslu (Patreksf.)
27. nóv.
[Veðurátta — Skemmdir af ofviðri — Fiskafli — Botn-
verptar — Onóg strandgæzla — Kirkjubygging á Vatn-
eyri — Söngmannaskortur — Pólitík — Þingmannsefui).
Veðurátta hefur verið hér mjög stirð,
síðan veturinn byrjaði, sífelldir stormar og
kaföld. Þó yfirgnæfði suðvestan veðrið
nóttina milli 14. og 15. þ. m. Þá var líka
geysistórt flóð, svo sjór féll uppundirhús;
sumstaðar fuku bátar. Á Bíldudal er sagt,
að fokið hafi 14 bátar og 2 í Tálknafirði.
Hér urðu engar skemmdir, sem teljandi
sé, helzt lítilsháttar á bátum og bryggjum.
Nú síðustu undanfarna daga, hefur verið
þíðviðri og blfða, svo nú er að mestu leyti
leystur allur sá snjór, sem kom í hretinu,
þegar „Skálholt" var á ferðinni.
Fiskafli var hér dágóður um tíma í haust,
og hefði líklega verið til þessa tíma, ef
ensku botnverpingarnir hefðu ekki eyði-
lagt 'nann. Þeir hafa verið hér í flóanum
1 allt haust; svo þegar þeir voru búnir að
eyðileggja allt utan til í firðinum, þá færðu
þeir sig upp á skaptið, „trolluðu" hér inn
eptir öllum firðs, og það næstum inn und-
ir botn. Aldrei finnur maður sárara til
þess, hve lítilmagna vér erum sem þjóð-
félag, heldur en þegar vér sjáum þessa
ensku yfirgangsseggi brjóta hér landslög,
og taka björgina frá oss rétt undir bæjar-
veggnum, fyrir augunum á yfirvöldunum,
án þess að hægt sé, að hafa hendur í hári
þeirra.
Það er alltaf að verða deginum Ijósara,
hve ónógt þetta eina „varðskip" er, því
þessir ensku ræningjar liggja inni í fjarð-
armynnunum, óáreittir haust eptir haust,
rífa hér upp ógrynni fiskjar, en vér fáum
varla málsverð, þótt vér höfum beztu beitu.
Það er líka fullljóst, að meðan þetta eina
„varðskip" hagar ferðum sínum, eins og
það hefur gert hingað til, þá höfum vér
Vestfirðingar lítil not af því, því þá sjald-
an það sézt hér á ferð, þá er það helzt
framan af sumrinu, en um þann tíma
er hér sjaldan mikið af botnverpingum,
því fiskur er þá vanalega ekki genginn inn
á firðina, en úti fyrir fjörðunum geta botn-
verpingar ekki veitt sökum botnlagsins.
Aptur á móti seinni part sumars og á
haustin, eru flestir firðir fullir af fiski, og
þá er líka fullt hér af botnverpingum.
Þá geta þeir líka verið óhultir, því þá
kemur „varðskipið" hingað aldrei, því þá
er það farið til Austfjarða, og þeir vita, að
þaðan fer það ekki að koma til að ónáða
þá.
Það mundi víst borga sig vel, þótt „varð-
skipið" skytist hingað vestur fyrir landið,
svo sem tvisvar eða þrisvar á tímabilinu,
frá miðjum septerober til miðs nóvember-
mánaðar. I það minnsta væri jafngott,
þótt því væri bent á það.
í fyrra haust var hér allmikið talað um,
að koma upp nýrri kirkju hér á Eyrum,
sem ekki sýndist heldur óþarft, því að sækja
kirkju til Sauðlauksdals er lítt gerandi.
Þá var safnað frjálsum samskotum, og
gekkst sóknarpresturinn rnest fyrir því, og
heyrði eg sagt, að hann hefði látið vel yfir
undirtektum fólks í því efni, og að menn
hér á Eyrum muni hafa skrifað sig fyrir
rúmum ioookrónum, og má það gott heita
af ekki fólksfleira plássi, líklega nálægt
300 manns. Síðan í fyrra sumarhefur ekki
heyrzt minnst á þessa fyrirhuguðu kirkju,
nema í sumar á safnaðarfundi í Sauðlauks-
dal. Þá var talað um sóknarskipting; svo
voru kosnir 3 menn, sem þeir kölluðu
„byggingarnefndhinnarfyrirhuguðukirkju",
Það er víst óhætt að segja, að það hef-
ur verið ráð í tíma tekið að kjósa bygg-
ingarnefndina, þvf ekki hefur heyrzt að
nokkuð væri farið að viða að kirkjunni enn
þá. Svo heyrði eg sagt í sumar, að verið
væri að leita samskota handa kirkjunni,
meðal ýmsra skipamanna, en um árangur
af því hef eg ekkert heyrt enn. Ekki hef-
ur áhuginn verið svo mikill hjá þeim, sem
mest hafa talað um þessa kirkjubyggingu,
að þeim hafi dottið í hug, að stofna til
tombólu fyrir hana, sem þó mun víðast
gert, þegar um eitthvert fjárspursmál er
að ræða. Það mun líka óhætt að fullyrða
það, að það mundi margur bæði utanhér-
aðs og innan, gefa með glöðu geði ýmsa
muni til tombólu handa hinni tilvonandi
Eyrarkirkju. Það eru líka mikil Kkindi til
þess, að menn gætu búizt við góðum ár-
angri af tombólu, væri hún haldin um
það leyti, sem fiskiskipin hætta veiðum,
því þá er opt margt um manninn hér, en
margur svo lyndur, að hann sér ekki ept-
ir nokkrum aurum, þegar það væri til
jafn nauðsynlegs fyrirtækis.
Það er vonandi, að það verði hugsað um
það næsta sumar að halda tombólu handa
kirkjunni, því varla mun ofmikið komið
af peningum.
Þegar maður hugsar um hina tilvonandi
kirkju, þá hlýtur manni ósjálfrátt að detta
í hug, hverjir skuli nú syngja í henni,
þegar hún kemst upp. Þvl eins og nú er
ástatt hér, þá heitir varla, að hér sé nokk-
ur, sem byrjað geti sálmalag, hvað þá
heldur kennt söng. Það væri því öldung-
is nauðsynlegt, að skólanefndin hlutaðist
til um, að hingað væri fenginn maður, sem
gæti kennt söng, hann ætti jafnframt að
vera. barnakennari, því þótt barnauppfræð-
ing sé hér í góðu lagi, og þeir kennarar,
sem hafa verið, hafi marga góða kennara-
hæfilegleika, vantar samt mikið, þar eð
hvorugur hefur getað veitt unglingum
nokkra tilsögn í söng.
Á pólitík er hér nú ekki minnst fremur
en hún væri ekki til, og er það einna
líkast því, sem öllum standi á sama um
hana, en það getur þó varla verið. Ekki
heyrist annað, en allir séu ánægðir með
gerðir aukaþingsins í sumar; mun því lík-
lega ekki mikið hugsað um, að skipta um
þingmann, enda þótt mörgum þyki gamli
þingmaðurinn okkar atkvæðalítill. Þó
mun framkoma hans á þingi allajafna
hafa verið óaðfinnanleg. En eg álít nú,
að það sé lítil ástæða fyrir oss, að vera
að halda í séra Sigurð einungis af göml-
um vana, því annað get eg ekki álitið það
vera, þar eð vér eigurn ýmsa í leikmanna-
röð, sem vel væru fallnir til þingmanns;
einn þeirra er Ingóliur kennari Kristjáns-
son á Vatneyri. Hann er vel skynsamur
maður, og rétt vel máli fafinn,1 og mun
vera nokkuð meiningarfastur, ef því er að
skipta, einnig er hann frjálslyndur og ann
heimastjórn. Ekki veit eg, hvort hann býð-
ur sig fram til þingmennsku næsta ár, en
trúlegt þykir, að hann gefi kost á sér, ef
á hann er skorað og það ættum vér að
gera, þvl nógmunverða af embættismönn-
um á þinginu, þótt einn gangi úr skaptinu.
Það* sýnist nú líka tími til kominn fyrir
þetta kjördæmi, að fylgjast með hinum í
því, að velja þingmenn sína af bændastétt-
inni og hætta við prófastana.
Bxm.
Svar til Þ. E.
Þorsteinn minn skáldi hefur orðið vond-
ur og það til muna, út af því sem eg sagði
um kvæðið hans í Þjóðólfi. Svona geng-
ur það. Sannleikanum verða menn sár-
reiðastir.
Svo fer Helgi Pétursson að hugga hann
í Isafold, og toga upp á honurri eyrun, sem
voru farin að lafa til muna. En að sá
maður skuli nokkurn tírna minnast á skáld-
skap, svo nokkur heyri I
Þorsteinn lætur sina aflvana reiði koma
niður á einhverri „vinnukonu", líklega
fremur af þvl að hann hættir sér síður í
karlmannahendur, en hinu, að honum sé
orðið tamara að fást við kvennfólk. Ham-
ingjan hjálpi honum ef það væri vinnukona
sem hann ætti við, því varla mun sú nokk-
ur vinnukona hér í bænum, sem eg get
hugsað að hann stæði snúning. Þá er sóm-
inn meiri að fara halloka fyrir Hreggviði
gamla. Annars væri vert að minna skáld-
ið á, að tala virðulega um vinnukonurnar,
því þær eru yfirleittallteins virðingarverð-
ar og hann.
Það er annars von þó Þorsteini sé sárt
um kvæðið. Það er eitt af því fáa, sem
frá honum hefur sézt f öll þessi ár, sem
hann hefur því nær verið „tilproppaður".
Það gefur manni í skyn hvað undir tapp-
anum býr, Nú er farið að „ólga upp með";
hver má vita hver undur birtast, þegar
tappinn fer alveg úr honum, sem nú má
fara að búast við. Þar verður líklega eitt-
hvað fyrir jarðfrœditiginn til að rannsaka.
Allt af sér þó á, að Þorsteínn er lærður
maður I Hann getur brugðið fyrir sig „logik"
þegar svoberuudir! At því „svunturnar"
sem eru sýnilegar, geta verið „ljómandi",
þá hljóta „filjómarnir", sem eru ósýnilegir,
að geta „glampað“\ — „Herra viðtini", seg-
ir hann síðan. Smekklegt og líklega rétt!
Honum hlýtur að vera það allra manna
kunnugast, hvoru kyninu sá vanskapnaður
likist fremurl
Seinast kastar hann að mér skolli mikl-
um leirhnaus, — en hittir ekki.
Þó hann segi eitthvað hér á eptir, má
búast við, að það verði harla „þunnt". Eg
verð kannske ekki dauður þegar „tappinn"
fer úr honum.
Að eins stutta kveðju:
„Syngdunú,Þorsteinn, þinn Björnsonarbrag
og brýndu nú gogginn og róminn,
því kannske hér syðra einn sólbjartan dag
vér sjáum þá „glampa“ á „hljóminn".
Þú lafir þó einn með þeim öptustu’ í för,
sem „aflið“ sér finna „í höndum"
og láta’ ekki stöðvast „hinn leiptrandi hjör
unz Loki er hjjggvinn úr böndumV‘
Og þá heitir félagið líklega einhverntíma
„Þorsteinn & Loki“, „passar"------!
Þetta er seinasta orðið til Þorsteins fyrst
um sinn frá hans einlægum
Hreggviði.
Húsbruni.
Hinn 13. f. m. brann til kaldra kola í-
búðarhús Einars smikkara Bjarnasonar á
Isafirði og varð nær engu bjargað úr því,
en fólkið,'(sem bjó í húsinu, kornst með
naumindum úr eldinum, sumt fáklætt, þvf
að það var flest háttað, er eldsins varð
vart, en hann gaus fyrst upp í norðurenda
hússins, þar sem útgefandi „Vestra" Kr.
H. Jónsson hafði skrifstofu sína, og missti
hann þar bækur, húsgögn, fatnað o. fl., er
var óvátryggt. Aðrir leigjendur í húsinu
misstu og aleigu sína að kalla mátti, og
var þegar byrjað á samskotum á Isafirði
handa þeim. Hefðu slökkvitól ekki verið
við hendina er fullyrt, að stórbruni hefði
orðið úr þessu. Um upptök eldsins vita
menn ekkert. Húsið var vátryggt fyrir 7000
kr. og innanhúsmunir hússeiganda fyrir
3000 kr. — Um hinn mikla bruna á Húsa-
vfk vfsast til ítarlegrar skýrslu hér á öðr-
um stað í blaðinu.
Brúin
á Héraðsvötnum fauk í ofsaveðrinu 14.
—15. f. m., og liggur hún þar á ísnum eða
í vötnunum, en ekki hefur frétzt um, hve
mikið hún hefur skemmzt. — I sama veðri
fauk brú á Sæmundará á Vatnsskarði.
Drukknun.
Hinn 30. okt. drukknaði á Eyjafirði fram
undan Höfðahverfi Jón Pdlsson frá Hóli,
en 3 mönnum öðrum, er með honum voru
á bátnum varð bjargað, meðfram vegna
þess, að þeir gátu haldið sér um stund
uppi á sundi, en Jón einn var ósyndur.
Sýnir þetta dæmi meðal annars, hversu
sundkunnátta getur komið að góðu liði,
þá er lífsháska á sjó ber að höndum og
hjálp er nærri.
Hvalveiðabann.
Allmikil hreyfing er vöknuð á Norður-
og Austurlandi til að banna algerlega eða
að minnsta kosti takmarka hvalveiðar hér
við land. Eptir fundarboði frá Skapta ritstj.
Jósepssyni, er kom með „Mjölnir" til Ak-
ureyrar, var haldinn þar almennur fundur
um rnálið 18. f. m. Varþarkosin 3 manna
nefnd til að koma fram með ákveðnar til-
lögur í því. Lagði sú nefnd þær tillögur fram
á almennum fundi viku síðar, og voru þær
svo látandi:
„Fundurinn skorar á alþingi að sam-
þykkja lög, er algerlega banna hvalveiða-
mönnum að flytja hvali hingað til lands
eða í landhelgi.
7il vara skorar fundurinn á alþingi að
leggja 500 kr. gjald á hvern hval, er hval-
veiðamenn flytja til lands.
Aðaltillagan samþykkt með svo að segja
öllum atkvæðum og varatillagan sömuleiðis.
Mannalát.
Hin 13. f. m. andaðist á Akureyri Stef
anía Stefdnsdóttir (prests að Hálsi í Fnjóska-
dal Ámasonar) systir Stefáns alþm. í Fagra-
skógi, en ekkja Magnúsar Baldvinssonar
timburmanns á Kamphóli í Arnarneshrepp,
56 ára gömul, merk kona og velmetin. Einka-
dóttir þeirra hjóna er Guðrún kona Bjarna
skipasmiðsEinarssonar á Akureyri.
Hinn 23. f. m. andaðist Ol'óf Sigtryggs-
dóttir kona séra Sigtryggs Guðlaugssonar
á Þóroddstað í Kinn, vel raenntuð kona
og vel látin.
Hinn 24. f. m. andaðist Jóhann Berg-
vinsson í Garðsvík á Svalbarðsströnd,
greindur maður og fróður um margt. Hann
hafði lengi búið myndarbúi á Gautsstöðum.
„Gjallarhorn"
heitir nýtt hálfsmánaðarblað, er byrjað er
að koma út á Akureyri. Á helzt að ræða
málefni Akureyrarbæjar o. fl. Utgefendur
Bernhard Laxdal og Jóns Stefánsson verzl-
unarmaður.
Bindindis-málfundur
mjög fjölmennur var haldinn 1 Iðnaðar-
mannahúsinu 15. þ. m. Fundarstjórí Hall-
dór Jónsson bankagjaldkeri. Málshefjandi
Haraldur Nfelssop cand. theol. Varhann
mest hlynntur vínsölubanni, og í sama
strenginn tók Guðm. Björnsson héraðs-
læknir, en stórtemplarinn (I. E.) vildi hafa
algert aðflutningsbann. Tveir af vínsölu-
kaupmönnum bæjarins (B. H. Bjarnason
og D. Thomsen) andæfðu aðflutnings- oe
vfnsölubanni. Loks var samþykkt með
öllum þorra atkvæða svolátandi ályktun:
„Fundurinn tjáir sig því meðmæltan, að
aðflutningsbann sé leitt í lög jafnskjótt
sem fyrir því er fengið fylgi mikils meiri
hluta þjóðarinnar".
^RÚKUÐ FRÍMERKI
frá Islandi eru keypt háu verði. Verð-
listi ókeypis.
N. S. NED ERGAARD.
Skive — Danmark.