Þjóðólfur - 23.01.1903, Blaðsíða 4
i6
boð í þær, en hafa það heldur svona, því
að Þjóðólfur hefur lengi verið og verður
líklega lengi sár þyrnir í augum þeirrar
blaðaklíku. — Ranghermt mun það vera
hjá þeim óviðjafnanlega, að „Nationaltid-
ende“ hafi nokkru sinni tekið upp þá venju
að birta ágrip af opinberum auglýsingum
úr Berlingi. Það hefur þá ekki verið öðru-
vísi en svo, að „Nattid.“ hafa vakið eptir
tekt manna á einhverri sérstakri, eða sér-
stökum auglýsingum, venju fremur áríð-
andi fyrir almenning, og er auðvitað ekk-
ert að því að finna. — Sá óviðjafnanlegi,
prentar með ákaflega feitu letri þá setningu
úr Þjóðólfi, að vér hefðum „stundum ver-
ið að hugsa um“ að birta ágrip af opin-
berum auglýsingum úr Isafold. Skárri var
það nú hvalrekinn þetta fyrir manninn,
þá er hann skellir burtuallan seinni hluta
setningarinnar, nfl. að vér hefðum „hætt við
það, af því að oss hafi fundizt einhver
ólykt af því". Sá óviðjafnanlegi fer hér
sjálfur svo greinilega á höfuðið eins og
svo opt endrarnær. Þá er hann hefur alls
ekkert til að hengja sig í, þá tekur piltur-
inn til sinna ráða, beitir úrfellingum og af-
bökunum eptir því sem honum sýnist, og
ritar stundum marga dálka um eina staf-
villu. Enginn annar en hann leggur sig
niður við shkt. Þótt það úi og grúi af
prentvillum og lokleysum í blaði hans, þá
dettur engum í hug að eltast við slíkt, eða
taka neitt til þess. Menn eru orðnir því
svo vanir, að það kemur engum á óvart,
enda undarlegt og harla fátæklegt að fylla
blöð með slíku þvogli. Þjóðólfur gæti bent
á fjölda margar hlægilegar villur (t. d.
dæjarfulltrúa, bókdindari o. s. frv.) og lok-
leysur hjá þeim óviðjafnaniega fsbr. þá
er hann auglýsti hátíðlega, að blaðið kæmi
út með lesmáli(H) og auglýsingum(l)) en
honum dettur ekki í hug að skipta sér af
slíku. Sú lúsaleit hæfir ekki öðrum en þeim
óviðjafnanlega.
Að lokum viljum vér leggja húsbændum
hans það heilræði, að þeir hafi eitthvert
band á þessum óviðjafnanlega nýja þjóni
þeirra, svo að hann hlaupi ekki sér og þeim
til ógreiða, því að hingað til hefur reynzt
hollast, að húsbændur hans hefðu eitthvert
eptirlit með honum.
Mótmæli gegn ósannindum.
Með því að eg kann síður við, að hermd
séu eptir mér orð, sem eg hef aldrei sagt,
neyðist eg til að iýsa það Iirein og
beln ósannindi, er Einar Benedikts-
son hefur eptir mér og prentar með ákaf-
lega svörtu letri t tækifærisblaði sínu eða
flogriti 20. þ. m. þar sem hann segir, að
eg hafi sakað hann um makk við Valtýs-
liða á Reykjavíkurfundinum n, ág., „af því
að mér haji þótt það hentast, og líklegt, að
menn mundu festa trúnað d það“. Þetta
segir hann, að eg hafi sagt sér munnlega.
En honum hefur þótt vissara að fara samt
ekki lengra, en að eg hafi talað „á þessa
leið“. En yfir þann varnagla ætlar hann
lesendunum auðsjáanlega að hlaupa, en
prentar slnar eigin ályktanir af orðum mfn-
urn með feita, letrinu. Eg man það vel,
hvernig orðin féllu: eg sagði honum hreint
og beint, að það hefði beinlínis litið svo
út á fundinum, að Valtýingar hugsuðu sér
til hreyfings með þessu og benti lionum
á framkomu Valtýs og Jóns Jenssonar og
þess vegna hefði eg haft fulla ástæðu til
að víkja lítið eitt að því í Þjóðólfi, að þess-
ir herrar að minnstakosti væruí einhverju
sambandi við E. B.,enda varþað að minnsta
kosti alkunnugt hér í bænum um annan
þeirra (J. J.). Þetta ætla eg að standa við.
Sfðari framkoma E. B. hefur og staðfest
þetta. En hann hefur ekkert leyfi til að
birta á prenti orð eptir mig, sem eg hef
aldrei sagt, en sem hann sjdlfur óskar, að
eg hefði sagt. Hins vegar má hann gjarn-
an tína upp setningar á víð og dreif eptir
mig úr blaðagreinum í gömlum Þjóðólfi,
og eg kippi mér meira að segja ekkert upp
við, þótt hann slíti þær stundmn út úr
réttu samhengi, til þess að þær falli betur
í „kramið". H. Þ.
Dáinn
er 16. þ. m. Pdll Jakob Blöndal læknir
í Stafholtsey í Borgarfirði, 63 ára gamall,
fæddur í Hvammi f Vatnsdal 27. des. 1840,
yngstur sona Björns Blöndals sýslumanns.
Hann var útskrifaður úr skóla 1861, og af
læknaskólanum 1868 og s. á. settur læknir
í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, en fékk
veitingu fyrir því héraðslæknisembætti
1876, fékk lausn 1. marz iqoi, en hafði þá
haft Jón son sinn sem aðstoðarlækni um
tfma. Páll læknir var kvæntur Elínu dótt-
ur Jóns Thoroddsens sýslumanns, og lifir
hún mann sinn. P. Blöndal var prúð-
menni í framgöngu, sköruglegur sýnum og
margt vel gefið. Heimili þeirra hjóna var
jafnan hið mesta rausnar- og gestrisnis-
heimili.
' Eptirmæli.
Hinn 13. nóv. sfðastl. andaðist að heimili
sínu Blöndudalshólum í Húnavatnssýslu,
merkismaðurinn Jóhannes Eyjólfsson. Hann
var fæddur á Gili í Svartárdal í sömu sýslu
17. okt. 1823. Olst hann upp með móður
sinni Guðrúnu Helgadóttur og stjúpa sínum
Jóhanni Jónssyni, fyrst á Eyjólfsstöðum í
Vatnsdal. Síðan fluttist hann með þeim að
Brekku f Þingi, og dvaldi hann þar mest-
an hluta æfi sinnar. Vorið 1852 byrjaði
hann búskap í Brekku, og gíptist það sama
ár Sigurlaugu Eiríksdóttur frá Stóru-Giljá í
þingi, sem lifir mann sinn. Bjuggu þau
hjón 36 ár f Brekku sæmdarbúi, þótt efna-
hag þeirra færi hnignandi hin síðustu ár,
vegna ýmsra óhappa, er að hendi báru.
Þeim hjónum varð 14 barna auðið, og
komust 8 til fullorðins ára, en nú lifa að
eins 5, einn sonur og 4 dætur. Ein af þeim
er frú Jóhanna í Blöndudalshólum, ekkja
séra Guðmundar Helgasonar frá Svínavatni.
Jóhannes sál. var greindur og skáldmæltur vel,
og hafði mikla löngun til menntunar, en
naut hennar eigi á uppvaxtarárum sínum,
nema það, sem hann sjálfur aflaði sér. Lærði
hann skript og reikning í hjáverkum, var enda
vel lesinn og fylgdist með tímanum. Kjark-
mikill var hann og hinn mesti starfsmaður,
lagði og flest á gjörfa hönd. Bætti hann
ábýlisjörð sína mjög mikið, bæði tún og
engjar, og mun hún enn lengi bera menjar
hans. Hann var fastlyndur og tryggur vin-
um sfnum, lét og engan hjálparþurfandi
synjandi frá sér fara. Lifi minning hans í
heiðri.
Einn af vinum hins látna.
Hinn 7. þ. m. andaðist að heimili sínu
Hvammi í Ölfusi merkiskonan Kristinjóns-
dóttir. Hún var 57 ára að aldri, og lifði 17
ár f farsælu hjónabandi með manni sínum
Steindóri Steindórssyni, og var efnahagur
þeirra góður. Ekki varð þeim barna auðið,
en þau tóku 3 fósturbörn af fátæku fólki.
Hún var kona, sem barst ekki mikið áfyrir
heiminum, og kærði sig ekki um, að sýnast.
I einu orði var hún sæmdarkona, góð og
guðelskandi. Er hennar því að maklegleik-
um sárt saknað af eiginmanni hennar og
þeim, er þekktu hana. R.
Fyrirspurn.
Heiðruðu landar! Gerið svo vel að gefa
mér upplýsingar hver eptir eigin reynslu og
þekkingu á því, hvort nýveidd síld til
beitu á Ióð, muni æsa fiskinn til brottferðar
úr almennum fiskileitum opinna róðrarbáta,
og hvort sama gildi um gaddaða síld,
svo og hver önnur beita en síld, að yður
hefur reynzt bezt, og hvort yður virðist hag-
kvæmt, að brúka innvolsið úr fiskinum til
niðurburðar á fyrgreint svæði.
Eg gef yður í sjálfsvald, hvort yður þókn-
ast að senda mér umbeðnar upplýsingar,
gegnum Þjóðólf, Fjallkonuna, ísafold eða
beint til mín.
Virðingarfyllst.
Eyrarbakka 12. jan. 1903 .
Guðm. ísleifsson.
Afmælisfundur
kvennfélagsins verður haldinn á mánu-
daginn þann 26. janúar í Iðnaðarmanna-
húsinu kl. 8. Mikilsvert málefni verð-
ur rætt á fundinum og er áríðandi, að
allar féiagskonur mæti. Kafii fæst
keypt og fleira.
Stjórnin.
M»... E
PTIR
að gerast kaupendur
I
ÞJÓÐÓLFS
nú frá nýárinu, ef þér hafið ekki
haldið hann áður.
SKALDRIT
Gests Pálssonar
(386 bls. í 8°) eru nú fullprentuð og
komin til sölu í bókaverzlun
*
Sigfúsar Eymundssonar.
Flestir,
sem farnir eru að kaupa hann, þykj-
ast ekki geta án hans verið.
Allir
vilja lesa hann, þykjast ekki geta
án þess verið.
Tvenn ágæt sögusöfn ó-
keypis handa nýjum kaupendum, send
kostnaðarlaust um leið og árgangur-
inn er borgaður,
Þau kosta kr. 2,50 í kápu. Seinna
fást þau í snotru bandi á kr. 3,00.
Skip til sölu.
Stórt og mjög vandað þilskip er til sölu
með góðu veröi. Semja má við mála-
flutningsmann Odd Gislason.
l»eir sem vilja eignast hús í Rvík., tali
við Guðm. Þórðarson frá Hálsi, áður en
þeir festa kaup annarsstaðar. Það mun
borga sig.
Munið eptir að kaupa
ÞJÓÐÓLF og borga hann skilvís-
lega.
Vinnukona
getur fengið vist í góðu húsi
um frá 14. maí næstk. Ritstj
upplýsingar.
hér í bæn-
gefur nánari
Sjómannaráðningaskrifstofan.
Austurstræti 1 (Gagnvart Hótel ísland).
Meir en hundrað duglegir fiskimenn geta fengið atvinnu á næsta útgerð-
artíma í ntjög góðum skiprúmum.
Undirritaður leiðbeinir mönnum og gefur allar nauðsynlegar upplýsingar.
Heiðruðu sjómenn ! Komið til mín, áður en þið ráðið ykkur annarstaðar.
Reykjavík 15. janúar 1903.
Matth. Þórðarson.
SSK
Typewriter
HAMMOND’S heimsfrægu ritvélar
og
Trypograph
langbeztu endurritsvélar, taka mörg
þúsund „kopíur",
fást í bókverzlun
Sigf. Eymundssonar.
,PeHcan‘
LINDARPENNAR eru þeir lang-
beztu vegna þess, að þeir leka
ekki og slitna ekki, því
penninn er úr gulli með „irridium" í
oddinum.
Fást i bökaverzlun Sigf. Eymunds-
sonar.
Þessar báðar vélar eru hverjum
manni ómissandi, sem mikið þarf að
Til neytenda hins ekta
KÍNA-EÍFS-ELIXÍRS.
skrifa.
Dökkgrár hestur með mark: tvístýft
framan h., illa gerður biti aptan, er í óskil-
um. Hann var aljárnaður með flatskeifum.
Réttur eigandi vitji hans til undirskrifaðs,
og borgi honum um leið alla hirðingu og
auglýsingu þessa.
Læk í Flóa 31. des. 1902.
Guðm. Snorrason.
Stúlka,
sem kann að búa til góðan mat, er hraust
og hefur að öðru leyti meðmæli góðra hús-
bænda, getur fengið góða vist í kaupstað
frá 14. maí 1903. — Ritstj. Þjóðólfs vísar á.
Húsið Ráðagerði á Akranesi ÍY tri-
Akraneshrepp, er til sölu nú þegar ásamt
góðri ióð, er því fylgir.
Söluskilmálar góðir; semja má við undir-
skrifaðan.
Akranesi 3. jan. 1903.
A rni Sigurðsson.
Til 1. febrúar
sauma eg Ódýrara en nokkru sinni
Með því að eg hefi komizt að raun
um, að margir efast um, að Kína-lífs-
elixírinn sé eins góður og áður, skal
hér með leitt athygli að því, að elix-
írinn er algerlega eins og hann hefur
verið, og selst sama verði og fyr, sem
sé 1 kr. 50 aur. hver flaska, og fæst
hjá kaupmönnum alstaðar á íslandi.
Ástæðan til þess, að hægt er að selja
hann svona ódýrt, er sú, að allmiklar
birgðir voru fiuttar af honum til ís-
lands, áður en tollurinn var lögtekinn.
Neytendurnir áminnast rækilega um,
að gefa því gæfur sjálfs síns vegna,
að þeir fái hinn ekta Kína lífs-elixír
með merkjunum á miðanum: Kínverja
með glas í hendi og firmanafninu Valde-
mar Petersen, Friderikshavn, og—'
í grænu lakki ofan á stútnum. Fáist
elixírinn ekki hjá þeim kaupmanni,
sem þér verzlið við, eða verði krafizt
hærra verðs fyrir hann en 1 króna
50 aurar, eruð þér beðnir að skrifa mér
uu: það a skrifstofu mína á Nyvej 16,
Köbenhavn.
Waldemar Petersen
áður.
Notið tækifærið!
Guðm. Sigurðsson.
skraddari
F rederikshavn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.