Þjóðólfur - 20.02.1903, Page 2
máli til stuðnings. En það virðist vera
með öllu óþarft, að tefla á tvær hættur
með kreolinið, þar sem vér samkvæmt rit-
gerð O. Myklestads í Búnaðarritinu höf-
um kláðameðal, sem er áreiðanlega hættu-
minna og engu dýrara þ. e. tóbaksseyðið.
Þá ætla eg að minnast lítilsháttar á
lagaheimildina fyrir þessum fjárböðunum
hér í Austuramtinu. i. gr. laga nr. 40
frá 8. nóv. 1901 hljóðar þannig: »Amt-
manni er heimilt að valdbjóða almenna
skoðun og böðun sauðfjár, einangrun fjár
og sótthreinsun fjárhúsa í amti sínu, þótt
eigi sé fullsannað, að kláða hafi orðið
vart þar, sem ráðstöfunin er valdboðin,
en hafa verður amtmaður til
þess ráð dýralæknis eða annars
kláðafróðs manns«.
Hvað er nú »kláðafróður maður«, og
hverjar kröfur getum vér gert til þess
manns, sem svo er nefndur ?
Vafalaust hinar sömu og til allra þeirra
manna, sem hafðir eru til ráðaneytis fyrir
landstjórn og yfirvöld í opinberum málum,
annaðhvort að þeir hafi leyst af hendi
opinbert próf 1 þeirri grein, er starf þeirra
ræðir um, eða að þeir séu viðurkendir og
löggiltir til starfsins af landstjórninni. Nú
er ekki nema einn maður hér á landi,
sem sannað verði, að fullnægi þessum
skilyrðum, og það er dýralæknirinn í
Reykjavík, en hans ráða hefur ekki verið
leitað, áður en ráðstafanir þær, sem hér
ræðir um, voru gerðar, heldur segist amt-
maður hafa gert þær »í samráði við kláða-
fróða menn í amtsráði Austuramtsins og
með ráði fleiri kláðafróðra manna«.
I amtsráði Austurarntsins sitja nú sem
stendur : 1 sýslumaður, 1 læknir, 1 prest-
ur og 1 bóndi, attk forseta, oghefureng-
inn mér vitanlega heyrt þess getið fyr, að
þeir menn væru neitt kláðafróðari en fólk
flest, hvað þá að þeir hefðu nokkura laga-
kröfu til að bera það nafn, enda ímynda
eg mér, að mönnunum sjálfum detti það
naumast í hug, að þeir séu nokkurir sér-
fræðingar í þessari grein. Hverjir þessir
»fleiri« kláðafróðu menn eru, fær maður
ekki að vita, en fyrst dýralæknirinn, Magn-
ús Einarsson, ekki er einn í þeirra tölu,
þá má víst óhætt telja þá jafnfróða amt-
ráðsmönnunum í þessari grein. Og þótt
hér væri um útlenda dýralækna að ræða,
þá hefur landstjórnin ekki gefið neinum
útlendingi leyfi til, að »praktisera« sem
dýralæknir hér á landi, og hvorki hún né
dómstólarnir geta því tekið tillit til ráðlegg-
inga slíkra manna frekaren annara, enda
eru útlendingar alveg ókunnir hér öllum
staðháttum.
En hvað sem nú þessu líður, að ráða-
nautar amtmannsins séu kláðafróðir menn
eða eigi, þá virðist síðasta setning 1. gr.
í ofangreindum lögum frá 1901 eindreg-
ið benda til þess, að hún sé þar sett til
þess, að takmarka vald amtmanns í þessu
efni. En hvað verður úrþessari takmörk-
un, ef amtmaður kveður sjálfur á um
hverjir menn séu kláðafróðir og velur
sjálfur sína ráðanauta ? Alls ekkert. Ept-
ir því gæti amtmaðurinn í Suður- ogVest-
uramtinu gengið fram hjá ráðum dýra-
læknisins, ef þau féllu eigi saman við
skoðanir og vilja hans sjálfs, og tekið sér
til ráðaneytis einhverja aðra, sem hann
kallaði kláðafróða menn t. a. m. einhvern
amtsráðsmanninn, sem honum væri sam-
hentari. Slíkt getur þó að llkindumtæp-
lega verið meining laganna.
Herra amtmaðurinn hefur haldið því
fram í »Austra«, að það hafi verið em-
bættisskylda sfn, að fyrirskipa þessar
baðanir. Það fæ eg með engu móti séð.
Lögin veita honum að eins h e i m i 1 d ,
en leggja honum enga skyldu á herðar í
þessu efni, og þótt amtsráðið kynni að
hafa gert einhverja fundarályktun í þessu
máli, þá fæ eg ekki séð, að amtmaðurinn
hafi verið neitt við hana bundinn, þar eð
ráðstafanir til útrýmingar fjárkláða liggja
algerlega fyrir utan verksvið amtsráðanna.
í allri vorri fjárkláðalöggjöf eru amtsráð-
in ekki nefnd á nafn, og þeim ekkert
vald gefið til að fjaila um það mál. Það
verður því fremur að álltast sem kurteis-
isskylda en lagaskylda amtmanna, að bera
ráðstafanir sínar gegn útbreiðslu fjárkláða
undir atkvæði amtsráðanna, þar eð þær
eru amtsráðunum sem slíkum óviðkom-
andi. Herra amtmaðurinn hefur því, að
mfnum dómi, einn veginn og vandann
af þessari fyrirskipun.
Loks skal eg geta þess, að þótt eg hafi
gerst til þess, að setja mig á móti þess-
um fyrirskipunum herra amtmannsins í
þetta sinn, af ofangreindum ástæðum, þá
ber eg alla virðingu fyrir hinum mikla
áhuga hans á, að útrýma kláðanum, sem
að lokum hlýtur að leiða til sigurs og
snúast honum til heiðurs. En hvað bíð-
ur sinnar stundar. Innan skamms eigum
vér von á, að fá æfða kláðalækna, sem
vit hafa á starfi sínu, og tekst þeim von-
andi með viturlegri stjórn, að vinna bug
á þessum forna fjanda. Gæti eg nokkuð
að því stuðlað, að gera þeim starf þeirra
eins létt ogauðið er, þá skal enginn verða
fúsari til þess en eg það sem mín aðstoð
nær.
Sum blöð hafa borið það á borð fyrir
lesendur sína, að þetta austfirzka baðana-
mál sé »æsingamál«. Að því er eg til
þekki, þá eru þetta tilhæfulaus ósannindi,
og sé þessum »æsingum« serstaklega beint
að mér, af því að eg hef einn orðið til
þess, að rita um þetta mál, þá vísa eg
þeim getsökum frá mér sem algerðum
uppspuna, enda vil eg ekki vinna mér
hægara verk en að sanna hið gagnstæða.
Búlandsnesi 21. jan. 1903.
Ólafnr Thorlacius.
íslenzkar sagnir.
Um Hjaltastaðafjandann.
(Niðurl.). í verkunum framkvæmdí hann
þetta eptirfylgjandi.að hann fleygði skarni
framan í menn og sagði undir eins við
þann sama, sem það á kom: »Þín skál N.
N.!« »Gott ár N.N. !« Blessi þig guð N.N.U
Hann kastaði og til manna tré og stein-
um, en þó það hitti þá ei gjarnan, fyrir
utan prestinn séra Grím á hvers hrygg
hann fleygði steini, sem að vísu vóg 3
pund, svo honum var lengi dátt eptir f
bakinu. Vefjargrjótið flutti hann hingað
og þangað um bæinn svo og út í fjós og
brunnhús og fleygði því til mannanna, þeg-
ar þá minnst varði, en sá kvennmaður,
sem þóttist sjá hann, sagði hann hefði
ekki reitt til, þegar hann kastaði, heldur
varpað fram undan sér. Á sýslumann Wí-
um fleygði hann rekkjuvoð úr skálanum,
þá hann var staddur í bæjardyrunum þar
á móti. I einn karlmann þar á bænum
fleygði hann nokkrum sinnum tréspítum,
af hverju hann (sérdeilis einu sinni) kenndi
mjög til í öxlinni. Til séra Grfms kast-
aði hann fram í bæjardyrnar silfurspæni
mörkuðum með þessum bókstöfum : E. B.
S. og sagði hann skyldi eiga hann, hver
spónn átti að vera inni í húsi áðurnefnds
Sigurðar smiðs; presturinn spurði hann
að, hvort hann ætlaði að gefa sér þenn-
an spón, svaraði [hann] »Já« ; framar að-
spurður hvers fangamark væri á spænin-
um, sagði Einars Bjarnasonar bróður henn-
ar Guðrúnar hérna, hvað og satt var, en
þar um hafði enginn getið á bænum svo
menn vissu. Inn í áðurnefnt hús Sigurð-
ar lézt þessi andi lengi fram eptir ekki
mega koma vegna eins hlutar, sem þar
inni væri, hverju hann vildi þó aldrei nafn-
greina, hvar fyrir nokkrir af heimamönn-
um Iágu þar á kistum um næturnar, hvað
hann lét svo sem sér stórlega mislíkaði.
Elztu dóttur prestsins, sem þávarisvetra
að aldri, var hann mjög svo fylgjandi,
hvar sem hún var stödd, bæði dag og
nótt, nema þá hún var í þessu húsi, hvar
fyrir sýslumaðurinn Wfum bað að allir
menn, sem á staðnum væru, kæmu fram
í bæjardyr, hvar, þegar þeim öllum var
niðurraðað, lét hann þessa stúlku ganga
út og innan hjá mannröðinni, hvað þá
hún gerði, spurði hann þennan anda að,
hvar hann væri nú, og svaraði hann all-
tíð úr því plátzi, sem stúlkan þá stað-
næmdist. »Eg er hérna;* þetta var til-
reynt í heilar þrjárreisur. Úr stofuglugg-
anum þar á staðnum braut hann 3 rúður
þann 12. Martii og sá presturinn sjálfúr
til, þá kljásteini var kastað í 2 af þeim
inn á stofugólfið og var enginn maður
úti fyrir nálægur. En þann 17. ejusdem
um kveldið, þá sýslumaðuripn og séra
Grímur voru nýkomnir, kallaði hann uppi
í baðstofugöngunum: »Nú er eg búinn
að gera gott að glugganum þínum séra
Jón« (svo kallaði hann þann gluggann,
sem var á móts við rúmið f stofunni) og
var þá búið að brjóta úr honum eina rúðu;
það sama hótaði hann að gera við kirkju-
gluggann, hvað hann þó aldrei framkvæmdi.
Snjókekkjum kastaði hann og á fólk og
þá presturinn einu sinni með öðrum manni
fór að rannsaka, hvar snjórinn hefði ver-
ið upptekinn, sá hann tvö kringlótt för,
að hverjum engin spor lágu, viðllka hvort
um sig sem eptir hrafnsklær 16 að tölu.
Rúmfötin dró hann ei sjaldan ofan af
fólki þá það svaf, svo það lá eptir nak-
ið; hann gerði og vart við sig tvisvar
sinnum inn undir fötunum í rúmunum og
var þá að finna eins og loðinn uppblás-
inn kálfsbelgur, í hvern þegar slegið var
ýlfraði hann og bað að láta sig kyrran
og með því honum var ekki gegnt í því,
veik hann í burtu. Skæni afgluggum reif
hann optlega og einu sinni þá fjalir voru
skorðaðar með hamri fyrir innan einn
glugga í húsi áðurnefnds Sigurðar um
kveldið, tók hann þær í burtu um nótt-
ina, svo þeir til heyrðu, sem þar inni voru.
Á meðal annars bar það til hans þar-
veiutíma, að einn maður Sigurður að nafni
var næturgestur á Hjaltastað, og lá á pall-
inum í baðstofunni, þá var þessi andi að
brígsla honum um eitt ' og annað, sem
hann gert hafði, þar til Sigurður tók kopp,
sem hland var í, og fleygði úr honum í
þá átt, sem hann heyrði raustina; þá heyrð-
ust þessi orð: »Það hefði verið sæmilegra
Siggi, að eg hefði skolað þér um kollinn,
en þú mér«. Engu spillti hann þar af
mat né eyddi á nokkurn máta; ekkert
mein gerði hann heldur gripunum, nema
hann sleit einu sinni upp kú í fjósinu,
hver bundin var með kaðalbandi, sem
virtist eins og það væri sundur skorið með
hnífi, hvað hann sagðist gert hafa með
gloppunum (c: höndunum) á sér. Eptir
það sýslumaðurinn Wíum og sera Grímur
fóru í burtu, var þessi andi miklu espari
og grimmari við mennina, því nóttina ept-
ir 20. Martii, þá fleygði hann tóbaksjárni
í höfuðið á kerlingunni, sem hann iðug-
lega kallaði konu sína, svo á henni sá í
andlitinu, bæði fyrir ofan og neðan aug-
að, og með því að presturinn var ekki
óhultur um það, að áður umgetin dóttir
hans, hverri hann var jafnan fylgjandi,
mundi og einnig fá skaða af honum, þá
resolveraði hann að láta hana fara burt
af bænum um nokkurn tíma, hvað þegar
hann varð var við um morguninn þann
23. ejusdem, sagði hann: »Nú er mér
bezt að fara í burt«, og til kerlingarinn-
ar sagði hann: »Kona mín, fáðu mér
vetlingatetrin mín og skáiri húfuna mfna
etc. Eg ætla nú að taka beizlið, tötrið
mitt, og sækja hestinn minn« (hvað þó
reyndar var ekkert), og eptir það stúlkan
var af stað farin þann sama dag, þá varð
ekki framar vart við þennan óvin, hvorki
nærri henni né á staðnum; hann hét þó
sinni apturkomu eptir páskana, hvað þó
ekki skeði.
* *
*
Þessi Relation er með eigin hendi séra
Jóns Oddssonar, er þá hélt Hjaltastað og af
honum svoleiðis samsett.
Ketilsstöðum þann 10. jan. 1784.
P. Thorsieinsson.1)
Skagafirði 27. janúar. Pað sem af
er þessum vetri, ér með beztu vetrura, sem
rnenn muna, að undanteknu snjókasti,
sem gerði fyrri part nóvembers. Allopt
frostlaust daga og nætur, og starfað var
að túnasléttu fram á jólaföstu, en mjög
vindasamt, og orðið vfða nokkrir skaðar
af því. Mjög litið var farið að gefa sauð-
*) þ. e. Pétur Þorsteinsson sýslumaður í
Múlaþingi (f 1795). Séra Jón Oddsson dó
1768.
fé á jólum, og hross ganga úti almennt
enn.
Talsverður áhugi virðist vera vaknaður
hjá ýmsum bændum með að bæta jarðir
sínar, og sagt hefur verið, að einn bóndi
hafi pantað járn til girðinga á næsta vori,
sem eigi að ná yfir hálfa mflu danska.
Að þessum tíma hetur búskapur í sýsl-
unni verið allþolanlegur, þvf sveitin er
mjög góð sveit eptir íslenzkum mælikvarða.
Það munu vera fullt 20 bændur hér í sýslu,
sem eiga eignir á 16 þúsund krónur og
þar yfir, en flestir eru það eldri menn.
Síðan að skólafýsnin kom hér mest, hefur
margt af unga fólkinu úr sveitinni, sem
hæfileika hafði, farið á menntastofnanim-
ar og svo eitthvað út í heiminn, og við
það hefur sveitin tapað bezta fólkinu að
líkindum. Haldi nú þessari stefnu áfram
til lengdar, þá missir sveitin alla þá krapta,
sem að líklegastir eru til framkvæmda,
því að þeir, sem að þessurn tíma hafa starf-
að að framkvæmdum, eru komnir á efri
ár og smáfalla úr sögunni. En yngri
kynslóðin, sem nokkur dugur er í, fer af
skólunum og eitthvað annað en til átthaga
sinna, en enginn innflutningur í sveitina
af fólki á sér stað. Og með tímanum get-
ur maður ímyndað sér hversu mikillar
framkvæmdar má vænta hér í sveit, þegar
þeir eru annaðhvort dauðir eða burt flutt-
ir, sem að hæfileika höfðu til nokkurra
framkvæmda, og eptir er að eins það fólk,
sem minnst hefur skilyrðin til þess að
sigra í lffsbaráttunni.
Nú eru verklegu námsgreinarnar afnumd-
ar sem skyldunámsgreinar við Hólaskóla,
og af því er sagt, að aðsókn að skólanum
muni aukast að mun. Það er víst mein-
ingin, að allt verklegt við búnaðinn sé
óþarft að læra með höndum, og t. d.
að stjórna plóg, og aðrar verklegar fram-
farir í búnaði sé nóg að læra á bók, bótt
nemandinn hafi aldrei séð þær unnar.
Hér er eyfirzka lognið í pólitfk vorri,
enginn maður talarum þingmannaefni önn-
ur en þá, sem við höfum áður haft og eru
þó margir ekki sem ánægðastir með þá.
Enginn maður minnist heldur á hvað hin
tilvonandi nýja stjórn ætti að taka sér fyr-
ir hendur til viðreisnar atvinnuvegunum og
mun tvennt olla því, annað það, að við
það muni óhreinkast hið pólitíska lopt og
íognið minnka og þeir fyrir þá sök kall-
aðir „pólitfskir stigamenn"; hin orsökin er
að flokkurmanna hér hefur enn þá von,
að frumvarpið frá síðasta þingi komist ekki
á, sem stjórnarlög, með öðrum orðum verði
ekki samþykkt af næsta þingi óbreytt eins
og það nú er og stj 'irnin þvf ekki verði
innlend. Allt útlit er fyrir, að ekki þurfi
margir að mæta úr kjósendaflokknum a
kjörfundi þeim, er haldast á fyrir næsta
þing, þegar ekki er neina að velja, að eins
tveir frambjóðendur og við sjálfsagðir að
senda tvo menn á þing, að eins að kjör-
stjórnin geri skyldu sína og mæti sjálf og
einhverjir af hendi trambjóðenda og þessir
menn noti kosningarrétt sinn, þá eru þeir
löglega kosnir.
Jón Jónsson bóndi fyrrum á Hjalta-
stöðum, sem kom frá Anieríku í haust, er
seztur hér að á Sauðárkrók. Hann vill
ekki kannast við, að hann sé agent, en
ferðir hans eru mjög líkar því, aðhannsé
stjórnaragent. Hann víst finnur með sjálf-
um sér, að ekki væri ósanngjarnt, eða
mundi kannske vera, að lagaákvæði væri
til um það, ef að búsettir menn hértældu
fólk úr landinu til annara ríkja, eins og
þeir útveguðu menn héðan f herþjónustu
annara ríkja. Allt lofar karlinn þaðan nú.
En fáir skynberandi menn trúa orðum hans,
þar sem hann ekki getur fært aðrar sann-
anir en sínar eigin sagnir. Sem betur fer
á ekki Island marga búsetta menn hér, sem
vinna það fyrir nokkurra króna hagnað,
að lokka menn héðan af landi með röng-
um frásögnum þjóðinni f heild sinni til
stórtjóns.
Leikfélag Reykjavikur.
,8kipið sekkur*,
sjónleikur í 4 pdttum eftir '
Indriða Einnrsson,
verður leikið annað kveld (laugard. kl. 8)
og á sunnudagskveldið.
Alþýðufræðsla stúdentafélagsins.
Fyrirlestur í Iðnaðarmannahúsinu sunnu-
daginn 22. þ. m. kl. 5 e. h.
Jón Jónsson íslenzkt þjóðerni IV.
Aðgöngumlðar hjá Fischer og B.
S. Þórarinssyni.
Prentsm. Þjóðólfs.