Þjóðólfur - 03.04.1903, Page 1

Þjóðólfur - 03.04.1903, Page 1
55. árg., Reykjavík, föstudaginn 3. apríl 19 03. M 14. Stjórnmálafundur var haldinn hér í Iðnaðarmannahúsinu í fyrra kveld, samkvæmt fundarboði frá for- manni Framfarafélagsins Tryggva Gunn- arssyni og eptir áskorun frá því félagi. Var húsið troðfullt af kjósendum, en aðr- ir áttu.ekki að fá inngöngu. Þó var mörg- um óatkvæðisbærum mönnum, þar á með- al mörgum stúdentum hleypt inn. Á fund- inum voru og ýmsir gestir, er boðiðhafði vetið t. d. Lárus Bjarnason sýslumaður, séra Sig. Gunnarsson, séra Sig. Jensson, dr. Valtýr o. fl., en enginn þeirra tók þátt íumræðum nema Lárus. Var stjórn- arskrármálið fyrst á dagskrá, en um það spunnust svo rniklar umræður, að ekki vannst tími til að taka önnur mál fyrir. Var fundi þó ekki slitið fyr enkl. rúml. hálf i í fyrri nótt, og höfðu þá um- ræður staðið yfir rúma 4*/2 klst. — Fundarstjóri var Jón Jakobsson forn- gripavörður og skrifari Halldór Jónsson bankagjaldkeri, og honum til aðstoðar Bjarni Jónsson kennari. Umræðurnar snerust að mestu um það, hvort kippa ætti orðunum »í ríkisráðinu« út úr stjórnarskrárfrv. síðasta alþingis eða ekki. Þeir sem töluðu með því að sam- þykkja ætti frumvarpið óbreytt á næsta þingi voru : Hannes Þorsteinsson, Jón Ólafsson, Lárus Bjarnason, Sighvatur Árna- son, Halldór Jónsson ög Þórhallur Bjarnar- son, en úr flokki hinna svonefndu »Land- varnarmanna« töluðu Jón Jensson, Bjarni Jónsson, Jón Jónsson sagnfræðingur, Magn- ús Einarsson dýralæknir, Jón Sigurðsson bæjarfógetaskrifari og Benedikt Sveins- son stúdent, og vildu þeir allir láta um- steypa frumvarpinu. Urðu orðskipti milli sumra ræðumanna allhörð stundum, en ys og ókyrrð opt mikil f salnum með. stappi og upphrópunnm, ogjafnvel pípna- blæstri af hálfu unglinga nokkurra, erLand- varnarflokkinn fylla, og nokkurra roskinna Valtýinga, er trúlega fylgdust með þeim í þessum ópsektum, og virðast slík drengja- læti lítt sæmandi ráðnum mönnum og rosknum. Væri í sjálfu sér rétt, að stimpla opinberlega jafn ósiðlegt háttterni á fund- um með því að nafngreina þessa herra, er ekki geta setið á strák sínum undir stillilegum umræðum, því það er bæjarfé- laginu til vansa. En auðvitað hefur þetta átt að fylla upp f eyðurröksemdanna þeim megin. Af hinna hálfu var fullkomins velsæmis gætt, þá er »Landvarnarmenn« töhiðu, og fengu þeir óhindrað að láta skoðanir sfnar í ljósi. Hér er ekki rúm til að skýra neittnán- ar að sinni frá umræðum þessum. En sérstaklega viljum vér leyfa oss að benda á, að frá lögfræðilegu sjónarmiði tætti Lárus sýslumaður algerlega sundur allar röksemdaleiðslur og lögflækjtivef Jóns Jens- sonar í hinum nafnkunna »uppgjafa«-rit- lingi hans, er getið hefur verið um hér í blaðinu, og mikið veður hefur verið gert út af hér í bænutn. Sýndi Lárus fram á það með rökum, að staðhæfingaryfirdóm- arans í ritlingi þessum væruýmist byggð- ar á þekkingarleysi, misskilningi eða rang- færslum, einmitt frá stranglagalegu sjón- armiði, og leitaðist Jón ekki einu sinni við að andæfa því að neinu. Var Lárus stundum allóhlífinn í garð Jóns og þó ekki um skör fram. Væriekki vanþörf á og enda nauðsynlegt, að þessi »lexía«, sem yfirdómarinn fékk hjá Lárusi fyrir alla frammistöðuna birtist á prenti. Ymsir ræðumenn úr heimastjórnar- flokknum tóku fram, hversu grunsamt allt þetta makk milli »Landvarnarmanna« og margra Valtýinga væri, og það gæti ekki orðið skilið öðruvísi en banaráð við frv. síðasta þings af hálfu Valtýinga, að mið- stjórn þess flokks hér í bænum héldi fram til kosninga manni, sem gengi þvert of- an í yfirlýsta meginreglu flokksinsí stefnu- skrá hans og vildi frv. síðasta þings feigt. Þetta væri óskiljanlegur og öldungis óvið- urkvæmilegur viðrinisháttur af þessari svo nefndu miðstjórn, er kjósendur bæjarins hlytu að hafa fyrirlitningu á. Einn miðstjórnarmaðurinn, ritstjóri Isafoldar, treystist heldur ekki til að koma á fund- inn, var búinn ao negla sig svo á mót- sögnum og markleysuhjali, í meðmælum með Jóni Jenssyni og mótmælum þó gegn Landvm., að hann hefði ekkert getað sagt, og ekki getað greitt atkvæði með neinu án þess að verða sér til enn meiri minnkunar, svo að honum var hollast að halda sig heima, átti ekki annars úr kosti eptir frammistöðu sína. Að lokum var svo látandi tillaga (frá Hannesi Þorsteinssyni) borin upp og sam- þykkt með 86 atkv. gegn 58. „Fundurinn skorar á alla kjós- endur til alþingis í landinu að I kjösa nú þá eina til þings, er lofa því statt og stöðugtað samþykkja stjórnarskrárfrumvarp siðasta þings öbreytt“. Að svo margir greiddu þó atkvæði gegn þessari tillögu, var eingöngu fólgið í því, að mjög margir Valtýingar hlupu þar undir bagga með »Landvarnarmönnum«, sem eru afarfamennir af kosningarbærum mönnum, og sýnir það ljósast, hvað undir býr af Valtýinga hálfu, og hversu gjarn- an þeir vilja stytta frv. síðasta þings ald- ur, ef þeir mættu ráða. En auðvitað á allur sá flokkur ekki hér óskilið mál, því að margir eða að minnsta kosti nokkr- ir hinna hyggnari og gætnari manna í þeim flokki, greiddu annaðhvort atkvæði með tillögunni, eða greiddu alls ekki atkvæði, hvorki með né móti, og er þess skylt að geta til að sýna, að til eru ýms- ir í þeim flokki, er ekki vilja vera leng- ur með 1 þessum grímuleik eða skolla- leik valtýsku miðstjórnarinnar og Isafold- ar, er hrundið hefur frá sér fylgi margra hinna beztu manna sinna, með þessum ó- afsakanlega tvíveðrungí og óheilindum. Onnur tillaga, erjón Jensson bar fram var svo almenns efnis og óákveðin, að hún var ekki borin upp til atkvæða. Hún gekk í þá átt, að samþykkja ekki neitt á næsta þingi, er skerði landsréttindin(l). Eins og nokkrum komi það til hugar! Hefði tillagan verið svo orðuð, að kippa skyldi burtu orðunum »í ríkisráðinu«, þá var öðru máli að gegna. Það var ákveð- ið. En svo lagaða tillögu treystust þeir ekki til að flytja, vissu að hún mundi falla með miklum atkvæðamun, eins og samþykkta tillagan færði þeim heim sann- inn um. Þess 'má geta, að meðan fundurinn stóð yfir voru ærsl mikil og gauragangur úti fyrir fundarhúsinu, og ollu því unglingar þeir og skólapiltar, er ekki fengu inngöngu á fundinn. Lenti þar að sögn í barsmíð- um, og það voru jatnvel lagðar hendttr á lögregluþjónana, er þeirvildu skakka leik- inn,-— Er enginnefi á, aðeföllutn hefði verið leyfð innganga, þá hefði verið reynt að hleypa upp fundinum, en nú strönd- tiðu þær tilraunir á stillingu og alvöru heimastjórnarflokksins. Nokkur orð um stjörnarskipunarmálið og bankamálið, í sambandi viO nœstu kosningar. Nú fer óðum að liða að næstu þing- kosningum — ef til vill hinum þýðingar- mestu þingkosningum, sem farið hafa fram hjá oss nú um langan tíma. Eg ætla mér nú eigi að skrifa langa ritgerð um það, hvernig menn yfirleitt óska, að al- þingismennirnir næstu eigi að verða. Eg hef séð nokkuð af þessháttar greinum í blöðunum í vetur, og mér hefur fundizt, að þær sumar hverjar hafi gert nokkuð strangar kröfur. Það er auðvitað, að þing- mennirnir eiga að vera vandaðir menn og samvizkusamir, og einnig vitrir og vel að sér, eptir því sem kostur er á, enda munu kjósendur hingað til optast nær hafa haft þetta hugfast, þótt það hafi ef til vill misheppnazt stundum. Eg er frá því, að ætla, að vér getum nú fremur en áður, sent engla í mannsmynd á þing, eins og mér virðist ^sumir gera ráð fyrir, og er enda eigi alveg viss um, hve heppilegt það yrði, þótt það væri reynt. Það sem eg ætla mér með þessum lín- um, er að minnast á tvö mál i sambandi við þingkosningarnar — mál, sem við síðustu kosningar voru aðalmálin, sem menn skiptust um, og sem eg álít, að eigi séu úr sögunni enn; eg á við stjórn- arskipunarmálið og bankamálið. Það er eigi hægt að neita því, að ef dæma á eptir flestu því, sem rætt er og ritað nú um stundir, þá er eins og allur þorri manna sé á þeirri skoðun, að frá þessum tveim- ur málum sé nú búið svo að ganga, að við þau sé ekkert athugavert framar, og því sé, með tilliti til þeirra, alveg sama, hverjir kosnir verði á þing fyrir þetta 6 ára tímabil, sem í hönd fer. Að minni hyggju er þetta hinn mesti og hættuleg- asti misskilningur, og vil eg reyna hér í stuttu máli að færa nokkrar ástæður fyrir því áliti mínu. Svo eg minnist fyrst á stjórnarskipunarmálið, þá mun nú varla þurfa að óttast, að frumvarp það, er sam- þykkt var á síðasta þingi, verði eigi sam- þykkt af nýju. Hafi nokkrir þeir menn verið á síðasta þingi, sem ekki hafa af fúsum vilja gefið því atkvæði, þá eru þeir nú búnir að binda sig svo, að þeir geta ekki vanvirðulaust snúið við blaðinu, þótt þeir verði endurkosnir; og slandvarnar- flokkur« Einars Benediktssonar fær víst ekki neitt tylgi neinstaðar á landinu, svo hann þarf ekki að óttast. En þó að þetta megi telja nokkurn veginn víst, þá er það að mínu áliti hættulegur misskilningur hjá kjósendum, ef þeir ímynda sér, að á sama standi í þessu efni, hverjir kosnir verði fyrir næsta kjörttmabil. Það er vafalaust að vfsu, að með búsetu hinnar æðstu framkvæmdarstjórnar í landinu sjálfu, höf- um vér fengið fullnægt fyrsta og helzta skilyrðinu fyrir því, að hér geti myndazt þingbundið stjórnarfyrirkomulag í orðsins réttu merkingu, eða með öðrum orðum: þingræði. En það er og jafn-vafalaust, að til þessa er Þúsetan eigi einhlít. Það er engum vafa bundið, að þótt innlend stjórn sé mjög mikið líklegri til þess, en útlend stjórn, að verða í fullu samræmi og góðri samvinnu við löggjafarþingið, þá getur einnig svo farið, að þetta bregðist. En ef slíkt kemur fyrir, þá er þingræðinu hætta búin, nema því að eins, að svo sé um hnútana búið, að þingið hafi ætíð yfirtökin, ef missætti verður. En þetta verður að eins með því móti, að stjórnin beri fulla ábyrgð allra gerða sinna fyrir þinginu, og það ekki einungis í orði, held- ur einnig á borði. Það stendur nú að vísu í stjórnarskránni, að ráðherrann beri þessa ábyrgð, en það ákvæði ér alveg þýðingarlaust á meðan ekki eru til lög, sem nákvæmlega taki fram hvemig ábyrgð- inni hagar, eða með öðrum, hverjar gerðir ráðherrans eða aðgerðaleysi baki honum ábyrgð, og á hvern hátt, og á meðan ekki er til í landinu sjálfu pólitiskur dómstóll, sem þingið geti kært ráðherrann fyrir og fengið dóm yfir honum, ef hann hefur til þess unnið. Stjórnarskráin hefur einnig að geyma heimild til að setja lög um þetta efni og skipa dómstólinn; þessa heimild þarf að nota, og láta lög um þessi tvö atriði verða samferða stjórnarskránni til samþykkis konungs. En vinnist ekki tími til þess á því þingi, sem í hönd fer, þá verður að gera það á næsta þingi. Það má með engu móti dragast úr hömlu þangað til — hver veit hve fljótt? — að missættið er komið, því þá er mjög hæp- ið, að það sé hægt lengur. Þannig fór fyrir Dönum, að þeir hirtu eigi um, að setja ábyrgðarlög á meðan stjórnin og þingið kom sér vel saman, og svo þegar sá tími kom, að á lögunum hefði þurft að halda, þá voru þau engin til, og þá voru auðvitað engin ráð til að koma þeim á. Og þetta var helzta orsökin til, að Danir lentu í þeim pólitisku ógöngum, sem nærri höfðu riðið landinu að fullu, og sem þeir loks komust úr við stjórnar- skiptin iqoi. Það yrði of langt mál, að færa hér þær ástæður, sem hægt er að færa fyrir því, að oss muni eigi síður en Dönurm, vera þörf á að vanrækja þetta ekki, á meðan tími er til; en eg vil 1 því efni vísa mönnum á ritgerð um ábyrgð- arlög eptir Jón Ólafsson í 7. árg. And. vara, sem er mjög ljóst og vel rituð, og vona eg, að menn af henni geti sannfærzt um, að eg hef rétt að mæla, því þótt nú séu að sumu leyti nokkuð aðrar kringum- stæður en þá yoru, þá munu hin sömu rök enn hafa fullt gildi. Og þótt þetta hér talda sé það, sem mest rfður á, þá er þess utan margt annað, sem hin næstu þing geta unnið í sjálfsforræðisáttina, og yfirleitt verður það þeirra hlutverk, að leggja undirstöðuna undir sjálfsforræði þjóðarinnar og koma á þeirri stjórnarvenju, sem lengi mun elda eptir af, hvort held- ur til góðs eða ills. En halda nú kjósendur, að á sama standi, hvort þeir til þessa starfa kjósi þá menn, sem á undanförnum tíma hafa staðið fastir í baráttunni fyrir sjálfsforræði þjóðarinn- ar, og ekki viljað láta sér nægja neitt minna en það, sem vér nú höfum fengið, eða hina, sem með framkomu sinni hafa ljóslega sýnt, að þeir hafa viljað láta hina útlendu apturhaldsstjórn og útsendara hennar skammta oss sem mest úr hnefa réttindi vor, og sem jafnvel hafa viljað sætta sig við þá kosti, sem verri voru en þeir, er vér áður höfðum ? Eg vonast til, að íslenzkir kjósendur séu almennt svo glöggskyggnir, að þeir sjái, að þetta stend- ur alls eigi á sama, og að hér er ekki um lítilsvert atriði að ræða. Og hinu treysti eg einnig, að þeir viti vel, hverj- um óhætt er að treysta og hverjum ekki; því mennina er ætíð óhultast að dæma

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.