Þjóðólfur - 12.06.1903, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 12.06.1903, Blaðsíða 3
95 Kaupið engin önnur orgel en frá Aktiebolaget J. P. Nyström, Karlstad, Svíþjóð, sem sökum sinna ágætu kosta hafa fengið alheimsorð á sig. Hljóðfæri til sýnis hjá umboðsmanni verksmiðjunnar hr. Markúsi Þorsteinssyni, Reykjavík, sem gefur nánari upplýsingar. pó dómarar vanir að verða ekki út und- an, þegar krossaglingrinu er úthlutað. Er svo að sjá, sem stjórnin kunni lítt að meta embættisröggsemi þessara manna, eða hina pólitisku starfsemi þeirra, og er það leitt fyrir þá, að fá hvergi þakkir eða viður- kenningar úr neinni átt. „Vesta“ fór héðan norður um land áleiðis til útlanda 5. þ. m. Með henni fór Sigfús Eymundsson snögga ferð til Englands, en til Ameríku frk. Þórdfs Guðlaugsdóttir frá Kirkjubæjarklaustri, Guðrún Sigurðardött- ir kona Helga kaupm. Helgasonar, Stefán Einarsson Gudjohnsen o. fl. Til ísafjarð- ar fór Haraldur Blöndal myndasmiður. Amtsráðsfundur Vesturamtsins, er átti að vera um 6. þ. in. fórst fyrir í þetta sinn, af þvl að nógu margir amts- ráðsmenn sóttu hann ekki, svo að hinir, sem komnir voru, urðu að hverfa heim aptur við svo búið, og á svo að halda fund- inn seint í júlí. Verður það tvöfaldnr kostnaður og hann lítt þarfur. Undarlegt, að svo margir skuli vilja halda fast í þessa stofnun, jafn óþörf sem hún virðist vera, og ætti þingið í sumar að taka af skarið og leggja amtsráðin niður, eða breyta þeim eitthvað um leið og nýja stjórnarbreyting- in verður gerð. Ferðamenn rnjög margir hafa verið hér í bænum undanfarna daga, víðsvegar af landinu, sumir sem fulltrúar á Stórstúkuþing Good- templara, sumir á amtsráðsfund o. s. frv. Af andlegrar stéttarmönnum voru hér með- al annars prestarnir JóhannL. Sveinbjarn- arson á Hólmum, Sigurður Sivertsen á Hofi í Vopnafirði, Páll Ólafsson í Vatns- flrði, Þorvaldur Jakobsson í Sauðlauksdal, Magnús Þorsteinsson í Selárdal, Páll Step- hensen á Melgraseyri, Helgi Arnason í Ólafsvík, Stefán Jónsson á Staðarhrauni, Skúli Skúlason í Odda. Af öðrum kunn- um mönnum voru t. d. Sigurjón Jónsson læknir á Staðarhrauni, Einar Markússon kaupm. í Ólafsvík, Snæbjörn Kristjánsson hreppstj. í Hergilsey, Guttormur Jónsson fyr í Hjarðarholti, Benedikt Sveinsson frá Borgareyri í Mjóafirði, Guðmundur Þor- bjarnarson á Hvoli í Mýrdal, o. m. fl. Strandferðabátarnir báðir „Hólar" og „Skálholt" fóru héðan í fyrra dag með fjölda farþega. Sektir fyrir meiðyrOi hefur ritstjóri „Norðurlands" Einar Hjör- leifsson fengið í héraði fyrir árás þá, er hann gerði á Lárus sýslumann Bjarnason i „Isafold" sumarið 1901. í grein með fyrirsögninni: „Lárus skiptir búi" hafði E. H. vikið meiðandi aðdróttunum og sakar- giptum að sýslumanni, og eru þau um- mæli dæmd dauð og ómerk og sekt á- kveðin 50 kr. Ber Einar sig illa í „Norð- urlandinu" út af þessu. Botnverplll handsamaður. Varðskipið „Hekla" náði 8. þ. m. ensk- um botnverpli við ólöglegar veiðar, og var hann hlaðinn af afla, enda hlautvarð- skipið að elta hann alllengi og skjóta að honum, áður en það höndlaði hann. Var hann fluttur til Vestmanneyja og fékk hina hæstu sekt, sem enn hefur verið dæmd fyrir slík brot: 150 pd. sterl. = 2700 kr. Afli og veiðarfæri auk þess gert upptækt. Botnverpill þessi var frá Hull. Próf i forspjallsvísindum tóku 9. þ. m. stúdentarnir Lárus Thor- arensen og Halldór G. Stefánsson með eink. dável -P, en Eiríkur Stefánsson og Sigvaldi Stefánsson með einkuninni vel-f. Dáin er nýlega á Akureyri merkiskonan S i g - urborgÓlafsdóttir, ekkja Eyjólfs kaup- manns Jóhannssonar frá Flatey og móð- ir Ólafs kaupm. á Akureyri á 56. aldurs- ári. Hún var dóttir Ólafs Guðmundsson- ar í Flatey og Guðrúnar Oddsdóttur Hjalta- líns læknis, en móðir Guðrúnar var dönsk, Dorothea Bornemann af nafnkunnri ætt í Danmörku. Jafnvel þótt Þjóðólfur taki ekki mark á draumum, þá mun ýmsum lesendum hans þykja alleinkennilegt að heyra 2 óvenju- lega skýra drauma í sambandi við fráfall þessarar konu. Það var fyrir mörgum ár- um, að Jón kaupmann Guðmundsson í Flatey, er margir munu hafa heyrt nefnd- an, dreymdi, að hann þóttist ganga upp stiga í húsi nokkru þar á eynni, og er hann var kominn upp taldi hann höptin og voru þau 44. Þennan draum sagði hann kunningj- um sínum, og réð hann svo, að hann mundi verða 44 ára gamall. Jón kaupmaður and- aðist nokkrum árum síðar (1888), er hann var einmitt 44 ára. Að 3—4 árum liðnum dreymdi Sigurborgu heit., er þá var einmitt um 44 ára að aldri, að hún mætti Jóni heitn- um á götu í Flatey, og heilsaði hún hon- um, því að þau höfðu verið vel kunnug. Vissi hún í svefninum, að hann var látinn, og þóttist segja við hann, að opt hugsaði hún um draum hans, hvernig hann hefði rætzt, og kvað hann já við því, hann hefði staðið heima, en svo bætti hann við: „en þú ert ekki búin með 56. árið enn". Og svo skildu þau; þennan draum sagði Sig- urborg heit. ýmsum, og réð hann svo, að hún mundi ekki verða fullra 56 ára, en vinir hennar réðu hann á annan hátt. Nú síðast í vetur, er hún var komin á 56. ár- ið, ritaði hún kunningja slnum vestra og minntist á drauminn, hafði hún þá alllengi verið veik, og lét í ljósi, að hún mundi eiga skammt eptir, og það varð, því að hún andaðist fyrir skömmu á Akureyri, og var þá ekki fullra 56 ára. — Nú munu ýmsir segja, að draumar þessir hafi rætzt af því, að dreymendur trúðu því svo fast- lega, það séu sálarleg (psykisk) áhrif, sem þar komi mest til greina. Um það skal ekki þráttað hér. Frá þessum einkennilegu draumum hef- ur Snæbjörn hreppstj. í Hergilsey skýrt oss, en hann er nákunnugur fólki því, er hér á hlut að máli. Halldór Daníelsson, bæjarfógeti í Reykjavík, Geri kunnugt: að Árni Jónsson söðla- smiður í Gunnarsholti hér í bænum hefur tjáð mér, að hann að fengnu konunglegu leyfisbréfi, dags. í gær, sé tilneyddur að beiðast ógildingardóms á veðskuldabréfi, dags. 7. ágúst 1885, þingl. 13. s. m. að upphæð 300 kr. frá Guðmundi Jónssyni til Gunnars Gunnarssonar með veði í húseign- inni Gunnarsholti við Garðbæjarstíg í Reykjavík, með því að skuldabréf þetta sé innleyst, en hafi síðar glatazt án þessað vera afmáð úr veðmálabókunum. Fyrir því stefnist hér með sá eða þeir, sem kynni að hafa fyrtéð veð- skuldabréf í höndum til að mæta á bæjarþingi Reykjavíkur á venjulegum stað (bæjarþingstofunni) og stundu (kl. 10 árd.) fyrsta fimmtudag í októ- bermánuði 1904 og þar og þá koma fram með veðskuldabréfið og sanna löglegan eignarrétt sinn að því, með því að stefnandinn að öðrum kosti mun krefjast þess, að veðskuldabréfið verði ógilt með dómi. Til staðfestu nafn mitt og embættisinnsigli. Bæjarfógetinn í Reykjavík 23. maí 1903. Halldör Danlelsson. Gjald 50 — fimmtíu — aurar. H. D. Halldór Danielsson, bæjarfógeti í Reykjavík, Geri kunnugt: að Árni Jónsson söðla-. smiður í Gunnarsholti hér í bænum hefur tjáð mér, að hann að fengnu konunglegu leyfisbréfi, dags. í gær, sé tilneyddur að beiðast ógildingárdóms á veðskuldabréfi. dags. 24. október 1887, þinglesnu 10. nóvember s. á. að upphæð kr. 148.17, frá Guðmundi Jónssyni til kaupmanns J. O. V. Jóns- sonar með veði í húseigninni Gunn- arsholti við Garðbæjarstíg f Reykjavfk, með því að skuldabréf þetta sé inn- leyst, en hafi síðar glatazt án þess að vera afmáð úr veðmálabókinni. Fyrir því stefnist hér með sá eða þeir, sem kynni að hafa fyrtéð veð- skuldabréf í höndum til að mæta á bæjarþingi Reykjavíkur á venjulegum stað (bæjarþingstofunni) og stundu (kl. 10 árd.) fyrsta fimmtudag í október- mánuði 1904 og þar og þá koma fram með veðskuldabréfið og sanna lögleg- an eignarrétt sinn að því, með því að stefnandinn að öðrum kosti mun krefjast þess, að veðskuldabréfið verði ógilt með dómi. Til staðfestu nafn mitt og embættisinnsigli. Bæjarfógetinn í Reykjavík 23. maí 1903. Halldór Danielsson. Gjald 50 — fimmtíu — aurar. H. D. Halldör Danielsson, bæjarfógeti í Reykjavík, Geri kunnugt: að Árni Jónsson söðla- smiður í Gunnarsholti hér í bænum hefur tjáð mér, að hann að fengnu konunglegu leyfisbréfi, dags. í gær, sé tilneyddur að beiðast ógildingardóms á veðskuldabréfi ds. i8.janúar i887,þingl. 3. marz s. á., að upphæð 80 kr., frá Guðmundi Jónssyni til Steingríms kaup- manns Johnsen með veði í húseign- inni Gunnarsholti við Garðbæjarstíg í Reykjavík, með þvf að skuldabréf þetta sé innleyst, en hafi síðar glatazt án þess að vera afmáð úr veðmálabókinni. Fyrir því stefnist hér með sá eða þeir, sem kynni að hafa fyrtéð veð- skuldabréf í höndum til að mæta á bæjarþingi Reykjavíkur á venjulegum stað (bæjarþingstofunni) og stundu (kl. IO árd.) fyrsta fimmtudag í október- mánuði 1904 og þar og þá koma fram með veðskuldabréfið og sanna lögleg- an eignarrétt sinn að því, með því að stefnandinn að öðrum kosti mun krefj- ast þess, að veðskuldabréfið verði ó- gilt með dómi. Til staðfestu nafn milt og embættisinnsigli. Bæjarfógetinn í Reykjavík 23. maí 1903. Halldór Daníelsson. Gjald 50 — fimmtíu — aurar. H. D. Þakkarávarp. Nú hefi eg frétt af kjör- þinginu á Stórólfshvoli, eg var svo- vesæll, að eg ekki komst á kjörþingið, til að kjósa þingmennina, ásamt ykkur, heiðruðu sýslu- búar mínir, en hafið þið þökk og heiður fyrir það, hverja þið kusuð til þingmennsk- unnar, því af því hafið þið sóma og ánægju. Það var snilldarlegt af ykkur, að lofa hin- um frambjóðendunum, einkum M. og T. að fara heim til sín aptur, þrátt fyrir hið mikla álit, er þeir hafa á hæfileikum sínum, sem ekki eru eins miklir, hvorki í mínum aug- um né margra annara, er heima sátu kjör- fundardaginn. — Rvík 9/6’ 03. :• Rangœingur. Tilbúin Drengjaföt allar stærðir. Verð frá 6,00—18 kr. FLIBBA frá 0,5 aurum stykkið. BRJÓST — 0,6 — —» — MANCHETTUR frá 0,15 au. stk. ALLAR STÆRÐIR. NYJASTA LAG- Auk þess sel eg: Hnappagatasilki — Maskínusilki — Sauin- silki mislitt og svart — Klæðakrít — Nálar. Allskonar Hnappa og Tölur. Allt til FATA og FATAEFNI o. ft. wr Stórt úrval af SLAUFUM og HUMBUGUM. Komið og skoðið. Því allt selst með óvanalega lágu verði. KLÆÐAVERZLUNIN 12 BANKASTRÆTI 12. Guðm. Sigurðsson klæðskeri. 2-3 herbergi í miðbænum með góð- um húsbúnaði eru til leigu handa alþingis- mönnum. Ritstj. vísar á. Óskilakindur seldar í Dalasýslu haustið 1902. I Hörðudalshreppi: 1. Ær, hvítkollótt. m.: blaðstýft fr. biti apt. h., hatnrað v. 2. Ær, hvtthyrnd, sneitt apt. h., sneitt fr. hangfjöður apt. v. 3. Lambhrútur, hvítur, m.: miðhl. í stúf biti apt. h., geirstýft v. I Middalahteppí: 1. Sauður, veturgam., m.: stúfrif. gagnb. h., geirsýlrifað v. 2. Ær, hyrnd, m.: sýlt stig apt. h., 2 bit. apt. v., hornm.: stúfrif. gagnb. h. 3. Lambhrútur, m.: stýft fjöð. apt. h., stúfrif. biti apt. v., með ídrátt í eyr- um. I Haukadalshreppi: 1. Lambhrútur, hvítur, m.: fjöð. fr. h., sneitt apt. v. 2. Gimburlamb, hvitt, m.: biti fr. h., hamrað v. 3. Gimbur, veturg., m.: heilrif. biti apt. h., hálft af apt. v. 4. Lamb, hvítt, m.: miðhl. hangandi fjöð. apt. h., sneitt fr. hangandi fjöð. apt. v. 5. Lamb, hv., m.: sneiðr. fr. h., sneitt apt. fjöð. undir v. I Laxdrdalshreppi: 1. Hrútur, hvítkollóttur, veturg., m.: 2 bitar apt. h-, biti apt. v. 2. Gimburlamb, hvítt, tvístýft fr. fjöð. apt. h., sneitt fr. stig apt. v. 3. Lambhrútur, hvítur, m.: geirstýft h„ stúfhamrað v. 4. Geldingslamb. svart, m.: sneitt fr. h. 5. Geldingsl., flekkótt með sama marki. I Skardstrandarhreppi: 1. Gimburl. hvíthöttótt, m.: tvístýft apt. h. 2. Ær, hvft, m.: sýlt h., sneitt apt. v. 3. Lambhr., hvítur, m., tvístýft fr. biti apt. h., sneitt fr. v. Hver sá, sem sannar, að hann hafi ver- ið eigandi að kindum þessum, getur feng- ið andvirði þeirra að frádregnum kostnaði greitt hjá viðkomandi hreppstjóra fyrir 1. okt. þ. á. Skrifstofu Dalasýslu 1. apríl 1903. Björn Bjarnarson.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.