Þjóðólfur - 24.06.1904, Blaðsíða 3
107
er ástaræfintýri erfðahertoga nokkurs og
Þjhnustustúlku á veitingahúsi 1 Heidel-
berg, en þau bönd rofna, þá er erfðaher-
toginn verður sjálfur að takast landstjórn
á hendur, og samkvæmt tízkunni verður
a9 trúlofazt prinsessu, sakir stöðu sinnar
°g ætternis.
Leikurinn vjir yfirleitt mjög vel leikinn,
°g samspilið gott meðal svo margra
roanna. Bezt leika frk. Guðrún Indriða-
dóttir og JensWaage, en þau léku höfuð-
hlutverk leiksins, þjónustustúlkuna og
erfðahertogann. Var leikur þeirra sum-
staðar ágætur. Margir aðrir léku og vel,
L <L Halldór Jónsson bankagjaldkeri,
Lnðfinnur Guðjónsson, Guðm. Tómasson,
Indriði Einarsson o. fl., eða réttara sagt
flestir, er höfðu hlutverk þau, er nokkuð
bar á.
Á frummálinu (þýzku) heitir leikur þessi
»Alt Heidelberg« (Gamla Heidelberg) en
höf. hans er V. Meyer-Förster.
Geta má þess, að leiktjöld voru prýði-
lega máluð (eptir danskan málara Carl
Lund), tvímælalaust hin fegurstu leiktjöld,
er bér hafa sést. Það er unun að horfa
á tunglskinið á Neckarfljótinu, og hinar
sLógivöxnu hæðir upp frá fljótinu, og
búsin þar á vfð og dreif. Það minnti
mann syo átakanlega á skemmtilega dvöl,
Þbft stutt væri, þar f Heidelberg (fyrir
8 árum), og gönguna upp fjallshlíðina,
UPP að hallarrústunum. En það var um
hádag f steikjandi sólarhita, og þótti
°kkur félögum hlfðin brött.
Jafnvel þótt ágóðinn af leik þess
bafi orðið töluverður, mun samt enn va
bmikið á, að nægu fé sé safnað til sæ
egs nbnnisvarða yfir Jónas, og með
nú fer að lfða að ioo ára afm
ns (1907) værj æskilegt, að víðar
landið v»^„ •, ...
ru gerðar einhverjar öflu
svo ta^n'r *■'' fjársöfnunar í þessa
um munaði, og minnisvarð
* re'stUr 1907 eða sem næst
t j f>ess þarf enn meiri sner
ef duga skal.
’.Kiong Trygg v©i(
bom héðan frá útlöndum 20. þ. n
°g með honum allmargir farþegar, þar
meðal D. Thomsen konsúll, Sigfús Einai
*°n sdngfræðingur og unnusta hans fr
^alldóra Guðmundsdóttir, faðir henn
uom. Guðmundsson bóksali frá Eyrs
akka, Jpn ísleifsson stud. polyt o. fl.
Krosa
Ditlev Thomsen þýzkur konsúll hefur
hjá Þýzkalandskeisara krónuorð-
PrÚssnesku af 4. flokki, sama heiðurs-
i r ** °g Séra Gíslr Jðnsson á Mosfelli
msnesi fékk fyrir nokkrum árum.
her®fingaskip
farið f fe°m hér 1 fyrrada8- Harai
e yrSt 1,1 Fáskrúðsfjarðar og flutti því
skmVýjar fregn'r frá útlöndum. Sama
sk>P kom hér í fyrra.
fe U HlUta
íensku) hefur Arni
ek'ð við Kaupmannah
*• e>nkunn.
Heimspeklpróf
iðRojat’PmannahafnarháSkdla
»«a .gír f“on 08
Geor« Ólafs,oneinGísU,nn’ Ge
mundur Hannes’son ,
með fyrstu , °g Vigfús
Ólafsson með þri'gT0 °g °
Pr,ðJ» einkunr
Embœttispróf
við p,es,askó!ann heínt
EyjOlfsson med 3. eintnnn "
Prestkosning
fór fram í Stokkseyrarprestakalli 16.
þ. m. Fékk séra Stefán M. Jónsson á
Auðkúlu 131 atkv., Zophónías próf. Hall-
dórsson í Viðvík 36 og Jónas próf. á
Hrafnagili 7 atkv.
Þilskipaafli
mun verða harla misjafn hér á Reykja-
víkurútvegnum þessa vorvertíð, því að
sum skipin^- sem þegar eru komin, hafa
aflað mjög lítið. Lang hæstur er Björn
Ólafsson skipstj. á skipi sfnu samnefndu.
Hann kom inn í fyrradag með 32,000
sfðan um lok, og er það afbragðs afli.
Fénaðarsýningar
hafa verið haldnar í nokkrum sveitum
hér sunnanlands á þessu vori, sumar fyr-
ir einstaka hreppa, en aðrar fyrir heil
héruð. Er farinn að vakna meðal manna
töluverður áhugi á slíkum sýningum. ‘—
A sýningu þeirri, er haldin var á Varmá
í Mosfellssveit 19. þ. m. fékk EggertBriem
bóndi í Viðey 1. verðlaun (15 kr.) fyrir
3 missira gamlan bola, en Sturla kaupm.
Jónsson (Brautarholtsbúið) og Guðm. Kol-
beinsson á Esjubergi 1. verðlaun (12 kr.)
fyrir kýr, og Guðm. þar að auki 2. verðl.
(10 kr.) fyrir 4 vetra fola. Verðlaun voru
og veitt fyrir sauðfé. — í Lambey hjá
Breiðabólsstað héldu Rangæingar þjóðhá-
tfð og sýningu snemma í þ. m., Biskups-
tungnamenn sýningu við Holtakotsrétt og
aðrar uppsveitir Arnessýslu á Húsatóptum.
Mannalát.
Hinn 20. þ. m. andaðist hér í bænum
Sylvía1) Nielsine Thorgrimsen,
ekkja Guðm. Thorgrimsens, er lengi var
verzlunarstjóri á Eyrarbakka, en andaðist
hér í Reykjavík 1895. Hún var tæplega
hálfníræð að aldri, fædd á Siglufirði 20.
júlí 1819. Voru foreldrar hennar Níels
Jónsson kaupm. á Siglufirði og Guðrún
Jónsdóttir, ættuð úr Fljótum, en foreldrar
Níelsar voru Jón Níelsson verzlunarstjóri
á Akureyri, danskur að ætt og Solveig
Jónsdóttir, ættuð úr Skagafirði, systurdótt-
ir séra Eyjólfs Sigurðssonar á Brúarlandi
(Þ r794)- Síðari maður Solveigar var
Hans Baagöe faktor á Húsavík og þeirra
dóttir Jakobína kona Jóns Hjaltalíns land-
læknis. En systir frú Sylvíu var Henríetta
Lovísa móðir séra Páls heit. Þorlákssonar
prests í Amerfku, og séra Níels Stein-
gríms, sem þar er nú prestur. — Frú Sylvía
var mesta merkiskona, síkát og fjörug (
anda. Var heimili þeirra hjóna á Eyrar-
bakka víðfrægt fyrir risnu, skörungsskap
og híbýlaprýði. Börn þeirra hjóna á lífi
eru: Hans prestur í Ameríku, Jörgina
kona Lárusar Sveinbjörnsson háyfirdómara,
Ásta ekkja Tómasar Hallgrímssonar lækn-
is, Eugenía kona P. Nielsens verzlunarstj.
á Eyrarbakka, Sylvía gipt í Kaupm.höfn
og Solveig.
Hinn 16. þ. m. andaðist Tómas
Helgason læknir f Mýrdal, sonur Helga
heit. Hálfdánarsonar lektors, 41 árs að
aldri (f. 8. júní 1863), útskrifaður úrskóla
1884 og af læknaskólanum 1888. Hefur
móðir hans, ekkjufrú Þórhildur Tómas-
dóttir, orðið að sjá á bak 3 börnum sín-
um á tæpu ári: frú Þórdísi Sívertsen á
Hofi í Vopnafirði, séra Ólafi á Stóra-
Hrauni og nú Tómasi heitnum.
1) Er nefnd Solveig Nielsine í prests-
þjónustubók Hvanneyrar í Siglufirði, þar
sem getið er fæðingar hennar, (heitin f höf-
uðið á föðurmóður sinni). Hún ólst upp
hjá þessari ömmu sinni og Baagöe á Húsa-
vík, og sigldi með þeim hjónum til Kaupm.-
hafnar 1836.
Heimsins fullkomnustu fjaðraorgel 2
og ódýrustu eptir gæðum, x
fást hjá undirrituðum frá: Mason & Hamlin C°., Yocalion Organ C°., W. W. ^
Kimball O., Cable C°., Beethoven Organ O. og Cornish & O. — Orgelin kosta
frá 150 kr. til 6,500 kr. Vandað orgel 1 hnottré, með 5 áttundum, tvöföldu
hljóði (122 fjöðrum) o. s. frv., kostar með umbúðum á Transit í Kaupmanna-
höfn 1.59 kr. Mjög vandað og stórt orgel í hnottré, »Kapellu-orgel«, með 5
áttundum, fimmföldu hljóði, (318 fjöðrum) o. s. frv., hið hljóðfegursta orgel,
sem mér vitanlega fæst hér innan við 600—700 kr., kostar með umbúðum í
Kaupmannah. að eins 350 kr. — Mason & Hamlin orgelin eru fræg-
ust allra um allan heim, og hafa ávallt hlotið hæstu verðlaun á öllum alþjóða-
sýningum síðan 1867, Og hvarvetna annarsstaðar, þar sem þau hafa sýnd ver-
ið; þannig fékk félagið 1878 í Stokkhólmi hina stóru gullmedalíu: »Literis et
artibus«, og gerði Oscar konungur þá Mason & Hamlin að hirðsmiðum sínum.
Síðan hafa þeir ekki sýnt í Svíþjóð og í Danmörku aldrei. . Vocalion-
orgelin, sem eru með nýfundinni og mjög frábrugðinni gerð, fengu þetta
vottorð á Chicagosýningunni 1893: » ... In tonal qualities and excellence . . .
it closely resembles a pipe organ« .... »is much less expensive than the pipe
Organ of equal capacity . . . W. W. Kimball Co fékk á sömu sýningu
svolátandi dómsorð fyrir pípna- og fjaðraorgel og Pianoforte: »Superlative
merit« . .. »highest standard of excellence in all branches of their manufacture
...... Meðal dómendanna á Chicagosýningunni var: M. Schiedmayer fræg-
astur orgelsmiður í Evrópu, Hvorugt þessara síðasttöldu félaga hefur nokkru
sinni sýnt í Svíþjóð eða Danmörku.
Orgelin eru í minni ábyrgð til Kaupmannahafnar, og verða að borgast
fyrirfram. Flutning frá Kaupm.h. borgar kaupandi við móttöku. — Verðlista
með myndum og allar upplýsingar fær hver sem óskar.
Einkaumboðsmaður félaganna hér á landi
Þorsteinn Arnljótsson,
Sauðanes i.
•♦•♦♦♦•♦•♦•♦♦<
o
-0
ODÝR
VEFNAÐARVARA
............
Öll álnavara selzt í verzlun undirrit-
aðs kaupmanns með
10 til 40% afslœtti,
Sturla Jónsson.
Mesta og bezta úrval
í Reykjavík
af allskonar Flibbum — Brjóstum — Manchettum — Slaufum —
Humbugum — Bindingaslipsum.
Nýkomin ca, 3000 stk.,
allt nýmóðins, ekkert gamalt samansafn, en þó nær hálfu ódýrara en hjá öðru-m.
Fataefni — Hattar — Húfur — Göngustafir — Regn-
hlifar — Sportpeysur og skyrtur — Sokkar — Axlabönd —
Háls- og Vasakiútar etc. Allt þetta er
208-408 ódýrara
en venja er, ásamt öðru fleira, sem tilheyrir fatnaði. XiUjúin jföt með
niðursettu verði til i. júli í
Bankastræti 12.
Guðm. Sigurðsson.