Þjóðólfur - 06.01.1905, Síða 3
6
Brauns verzlun ,Hamburg‘,
Karlmannaföt 15,oo.
Drengjaföt 7,00.
Fataefni 2,25.
Um Auðkiiluprestalcall
sækir presturinn þar séra Stefán M.
Jónsson, erj veitingu hefur fengið fyrir
Stokkseyrarbrauðinu. Aðrir sækja ekki,
svo að hann fær Auðkúlu aptur.
Eptirmæli.
Hinn 25. okt. síðastl. andaðist að heim-
ili sínu Snæfoksstöðum I Grímsnesi ekkjan
Þórdís Gísladóttir systir Þorkels heit.
Gíslasonar snikkara í Rvík, sextug að aldri.
Hún var fædd á Kringlu í Grímsnesi, og
voru foreldrar hennar: Gísli Magnússon
bónda Hjörtssonar á Snæfokstöðum; hafa
þeir feðgar búið á Snæfoksstöðum langan
tíma og taldir sómamenn í sinni röð. En
móðir Þórdísar sál. var Ingunn Þorkels-
dóttir bónda í Ásgarði Guðmundssonar og
er það ættfólk fjölmennt mjög í Grímsnesi.
Þórdís sál. var gipt Hinrik Magnússyni,
sem hún misti fyrir 5 árum síðan. Þeim
hjónum varð ekki barna auðið. Þórdís heit.
var greind og fróð um marga hluti, trygg
vinum sfnum, hyggin og ráðdeildarsöm.
(/■ Þ.)
Hinn 7. desember sfðastl. andaðist á
heimili sínu Votmúla í Sandvíkurhreppi
merkisbóndinn G a m a 1 í e 1 G a m a 1 f e 1 s-
son úr hjartaslagi, 69 ára gamall, fæddur
þar og hafði verið þar alla sína tíð, bjó
þar 36 ár með konu sinni Þórnýju Gissur-
ardóttur frá Byggðarhorni. Eignaðist hann
6 börn, 2 dóu í æsku en 4 eru ógipt heima.
Gamalíel sál. var stoð sveitar sinnar sfkát-
ur og skemmtilegur í viðræðum, virtur og
velmetinn af öllum, er til hans þekktu.
Þ.
Veðtiráttufar í Rvfk í desemher 1904.
■Medalhiti á hádegi . -j- o.7 C. (í fyrra-j-1.1)
—- nóttu . -f- 2.8 „ — +0.7)
Mestur hiti - hádegi . -}- 7 » (20.)
Minnstur — - — . -f- 11 ,, (12.)
Mestur — - nóttu . -f- 7 ,, (20.)
Minnstur— - — . -f- 13 ,, (I2.>
Framan af mánuðinum \rar talsverður kuldi;
úr 16. fór að hlýna, og hefur sfðan verið
hlýtt veður og optast lygnt. Að morgni h. 27.,
laust fyrir kl. 5, varð hér vart við einn snögg-
an ja rðskjál ftakipp.
Rvík r/i—'05.
J. Jónassen.
Kartöflur
ágætar og ódýrar
í Edinborg
í haust var mér dregið hvftt gimbrar-
lamb, með mark gagnb, hægra, tvístýft apt.
vinstra. Lambið á eg ekki; eigandi vitji
verðsins til mín og semji um markið.
Miðdal 2i. desbr. 1904.
Einar Gudmundsson.
Glímuæfingar
byrja næsta sunnudag (8. jan.); þeir sem
taka vilja þátt í þeim, snúi sér sem fyrst til
Ásgeirs Gunnlaugrssonar
við verzl. Bj. Kristjánssonar.
Vel skotna
Fálka og Himbrima
kaupir
Júiíus Jörgensen,
Hálflenda Skálholts, sú er herra
héraðslæknir Skúli Árnason nú býr á>
verður laus til ábúðar í fardögutn 1905
að öllu eða mestu, þar sem héraðslæknir
inn mun verða þar, að áskildum nokkrum
jarðnytjum, Þeir er óska ábúðar ger
svo vel að snúa sér fyrst til héraoslæknis
ins til samkomulags; og þareptir til mín
sem eiganda jarðarinnar.
Reykjavík 31. des. 1904.
Á. Thorsteinsson.
fyrrum landfógeti.
Milliskyrtur 1,40.
Buxur 3,60.
Verkmannaföt.
í miðjum bænum. Húsið nr. 6 I Lækjar-
götu, með tilheyrandi lóð og útihúsum, er
til sölu. Menn snúi sér til
Guðm. Sveinbjörnsson
cand. juris.
Sjöl 5,00.
Alklæði 3,00.
Svuntur (hvítar og misl.) 1,00.
Svuntu- og kjólaefni allsk.
Handklæði 0,35.
Borðdúkar (hvítir) 1,60.
„Reknetafélagsins við Faxafióa" verð-
ur haldinn föstud. 20. þ. m. kl. 5 e. h.
Reikningar framlagðir, einn maður
kosinn í stjórn félagsins.
Tryggvi Gunnarsson.
Halldór Daníelsson
bæjarfógeti í Reykjavík
Gerir kunnugt: Mér hefur tjáð
Einar Einarsson í Háholti hér í bæn-
unt, að hann sé til neyddur, sam-
kvæmt konunglegu leyfisbréfi, er hann
til þess hefur fengið 3. þ. m., að fá
ónýtingardóm á skuldabréfi, sem hann
4. júní þ. á., gaf út til verzlunarinnar
„ Godthaab", hér í bænum, fyrir skuld,
að upphæð allt að 300 krónum með
fyrsta veðrétti í húsi því, er hann
hefur látið byggja á Bráðræðisholti
hér í bænuin, en glatazt hefur áður
en það yrði afhent kvittað til aflýs-
ingar.
Því stefnist hér með, með árs og
dags fresti, þeim, sem kynni að hafa
ofangreint skuldabréf í höndum, til
þess að mæta á bæjarþingi Reykja-
víkurkaupstaðar fyrsta réttardag í
marzmánuði 1906 á þeim stað og
tíma, sem bæjarþingið þá verður
haldið, til þess þar og þá að koma
fram með téð skuldabréf og sanna
heimild sína til þess, með því stefn-
andi mun, ef enginn innan þess tíma
kemur fram með það, krefjast þess,
að nefnt veðskuldabréf með dómi
verði ónýtt eða dæmt dautt og mark-
laust.
Til staðfestu nafn mitt og embættis-
innsigli.
Reykjavík 7. desember 1904.
Halldór Daníelsson.
Auglýsing,
A síðast liðnu sumri fannst hér á
Sauðárkrókshöfn stórt skipsakkeri með
hér um bil 10 faðma langri keðju við.
Lengd akkersins frá auga og fram á
bug er 3 ál. 16”; lengd undir spaða
2 ál. 16”, þykkt við spaðahaus
51/2”X7i/2, þykkt við auga 4V2X6”;
ásinn varrtar. Réttur eigandi getur
vitjað akkerisins eða andvirðis þess
hingað, ef hann gefur sig fram, áður
ár og sex vikur eru liðnar frá síðustu
birtingu þessarar auglýsingar, en sanna
verður hann eignarréttinn og borga
áfallinn kostnað.
Skrifstofu Skagafjarðarsýslu,
Sauðárkrók 1. desbr. 1904.
G. Björnsson
settur.
Jörð til sölu.
Eign undirskrifaðs í jörðinni Syðri-Flanka-
stöðum er nú til sölu. Jörðin gefur af sér
rúma 100 hesta af heyi, æðarvarp í góðu
lagi, er að aukast. Jörðin á 150 faðma af
löggiltri verzlunarlóð. Ágæt höfn fram und-
an vörinni. Breiða má í einu 20,000 af salt-
fiski á möl, sem jörðin á. Vilji einhver
kaupa eign þessa eða fá eitthvað af henni
leigt óskast skrifleg tilboð til mín fyrir 1.
apríl. Sá fær sem bezt býður.
Flankastöðum 16. des. 1904.
Magnús Jónsson.
Laus sýslan.
Sýslanin sem ráðskona við holds-
veikraspítalann í Laugarnesi er laus
frá 1. júlí næstkomandi. Árslaun er
300 kr., ókeypis fæði og húsnæði
með hita og ljósmeti.
Umsóknir um sýslan þessa eiga ad
vera stílaðar til yfirstjórnar holdsveikra-
spítalans í Laugarnesi, en sendast
meðundirrituðum amtmanni J. Havsteen
Ingólfsstræti; Nr. 9 í Reykjavík.
Umsókarfrestur er til 1. maí 1905.
Reykjavík, 3. janúar 1905.
J. Havsteen. J. Jönassen.
G. Björnsson.
Sængurdúkur 1,00.
Allskonar sköfatnaður.
Helzt vilja allir Brauns vindla.
Verzlunin Edinborg
í Reykjavík þakkar hinuui mörgu viðskiptamönnum sínum fyrir viðskipti þetta
liðna ár, og vonar að henni takist að njóta hylli þeirra framvegis. Verzlunin
mun sem að undanförnu leitast við að sýna það og sanna, að hún kann að
útvega almenningi góða vöru fyrir lágt verð. Hinn afarfljóti vöxtur hennar
þessi 10 ár, sem hún nú bráðum hefur staðið sýnir, að landsmönnum hafa
geðjast vörur hennar og verzlunaraðferð.
Verzlunin var stofnsett I 895, og seldi hún það ár vörur fyrir
kr. 42754,08, en keypti enga innlenda vöru. Síðan hefur verzlunin stöð-
ugt aukist og í ár mun hún hafa selt vörur fyrir yfir 360,000 krónur, og
keypt innlenda vöru, aðallega fisk, fyrir rújj^- r770 þúsundir króna í
Reykjavík eingöngu.
Óskandi öllum viðskiptavinum verzlunarinnar gleðilegs og farsæls
komandi árs.
Virðingarfyllst.
Ásgeir Sigurðsson.
Steinollumótorinn
,DAN‘
er bezti mótorinn, sem ennþá hefur komið til landsins.
Dan mötorinn fékk hærri verðlaun á síðustu sýningu en nokkur
annar mótor.
Dan mótorar, sem hingað hafa komið til landsins, hafa allir und-
antekningarlaust gefist ákaflega vel.
Undirskrifaður einkaútsölumaður Dan mótora á Suðurlandi gefur all-
ar nauðsynlegar upplýsingar viðv. verði o. s. frv., og útvegar einnig vandaða
báta smáa og stóra með mótor ísettum.
Reynslan hefur sýnt að bátur, sem eg hef útvegað, eikarbyggður með
6 hesta mótor, hefur hingað kominn verið að stórum mun ódýrari en hér
smíðaður bátur úr lakara efni. Bátur þessi er eikarbyggður með litlu hálf-
dekki að framan, ber ca. 80 til 100 tonna þunga og kostaði hingað upp kom-
inn ca. kr. 3300 — með mótor og öllu tilheyrandi; það hafa verið á honum
3 menn, og hefur hann verið brúkaður við síldveiði, uppskipun, til flutninga
og við fiskiveiðar, og hefur nú eptir ca. 4 mán. brúkun borgað liðlega helm-
inginn af verði sínu.
Allir, sem mótorafl þurfa að brúka, hvort heldur er í báta (smáa og
stóra), hafskip eður til landvinnu ættu að snúa sér til mín, áður en þeir festa
kaup annarsstaðar. Það mun áreiðanlega borga sig.
Stokkseyri 31. des. 1904.
Ólafur Árnason.
Hús til sölu
Aðalfundur