Þjóðólfur - 17.02.1905, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 17.02.1905, Blaðsíða 2
3° af því hann sé orðinn ofgamall fyrir hana, hann sé kirkjan hrörlega að hruni kom- in, en hún sé orgelið sterka og hljóm- mikla, sem kirkjan þoli ekki. En stúlkan sinnir því ekki, og morguninn, sem hún á að giptast unnustanum sfnum hleypur hún í kirkjuna til organleikarans og með ást- mey sína í fanginu spilar hann brúðkaups- sálminn og dregur nú ekki af, unz hvelf- ingin rofnar og kirkjan hrynur yfir þau. Láta þau þannig líf sitt. Það er enginn efi á, að saga þessi er „symbol" upp á skáldið sjálft. Hann er gamli organleik- arinn, afivana til að njóta ungrar ástar. Sálin (= orgelið) er að vísu allsterk, en hefur verið vel gerð í upphafi, og hefur eitthvað enn af að taka, ef hann þyrði, vegna hinnar veiku tjaldbúðar, líkamans = kirkjunnar, sem ekki lengur þolir hin- ar sterku, heitu tilfinningar. Eins og menn vita hefur Drachmann lengi verið óhraustur til heilsu, en andlegum þrótt sínum hefur hann nokkurn veginn haldið. Ut frá þessu sjónarmiði verður sagan ein- kennileg og markverð sjáifslýsingá Drach- mann, eins og hann skoðar sig nú, hálf- dauðan frá heiminum og lífsnautninni, en þó ekki útbrunninn með öllu andlega. Þessar 3 síðasttöldu bækur eru nr. 24— 26 í ritsafninu „Nordisk Bibliotek", er Gyldendalsforlagið gefur út. Börnenes Jnleroser 1904 4'^ Með mörg um myndttm, smásögum og skrítlum. Jnletid. 11. árg. 1904 4*°- Sérp^entun af hinu helzta f „Börnenes Juleroser“. Krigen mellem Japan og Ritsland. 23.— 25. hepti (329—376 bls.). Frásagan frá ófriðnum komin til septemberloka. Vanhugsað lagaboð, f „ísafold" 7. þ. m. stendur yfirlýs- ing frá Bóksalafélaginu, sem aðallega mun til orðin vegna bókaútgáfuauglýsinga minna, og leyfi eg mér því að fara um þetta nokkr- um orðum. Ofannefnt félag bannaröllum útsölumönn- um sínum að taka til útsölu bækur þær, sem prentaðar verða hér eptir íslenzkum útgáf- um frá Vesturheimi, og brot gegn þessu banni gildir hvorki meira né minno en miss- ir útsöluréttar, og auðvitað jafnhliða glötun hinnar dýru hylli félagsins; en eg get ekki við þv! gert, að mér finnst ofannefnd sam- þykkt fremur vanhyggnislega hugsuð, þar sem hún aðallega snertir óháða og sjálf- stæða menn, sem flestir, er hér eiga hlut að máli, munu vera, og svo vel þekki eg suma þeirra, að vel gæti eg trúað, að þeir, hvenær sem vera skyldi, vildu rýmka til hjá sér og afhenda bækur þær, sem liggja hjá þeim til útsölu, án þess að félagið þyrfti á sínu nýlögleidda „straffi" að halda, og þótt enginn leyfi sér að efast um ágæti þessa gamla og góða félags og viðleitni þess til að halda við eigin tilveru sinni, þá verður þó þess vel að gæta, að söluþægðin er alls ekki eingöngu útsölumanna meginn, heldur miklu fremur hjá félaginu, sem vitanlega hefur aðal ágóðann, og má það því vera hverjum þeim mjög þakklátt, sem vill vera útsölumaður þess, ef hann sýnir góða skil- semi. Og í sambandi við áminnsta mót- spyrnutilraun, þá mistekst hún algerlega hvað mig snertir, þar eg hafði ekki hugsað mér aðalútsölumenn bóka minna af þeirra flokki, — nema ef vera skyldi hér eptir, — og færi eg fram á það við hlutaðeigendur, þá efast eg ekki um hinn bezta árangur, þar eg tel víst, að félagið hafi svo hagfróða menn í sinni þjónustu, sem ekki kasta frá sér að ástæðulausu smærri eða stærri fjár- upphæðum, sem hér er um að ræða, þar eð bækur þær, sem eg nú er að gefa út munu njóta almennings hylli, og sömuleiðis þær, er eg síðar kann að gefa út, og þá spillir ekki til, að þær eru prentaðar í fullkomn- ustu prentsmiðju landsins. — En af hverju stafa svo afskipti félagsins í ofangreindu efni? Er það af réttlætistilfinningu fyrir einstaklingum þeim, er kynnu að hafa eign- arrétt á bókum þeim, er upp yrðu prentað- ar ? Varla; þar sem eg hygg, að benda megi á bækur, sem félagið, eða einstakir meðlimir þess, hafa gefið út án heimildar. Nei, en skyldi félagið ekki hugsa sér að einveldissól þess kynni að lækka á lopti, ef menn fyrir utan það fara að gefa sig við bókaútgáfum, og væri því þannig af öllum mætti að berjast gegn þv! í eigin hagsmuna skyni? Það bygg eg rétta tilgátu; en félag- ið hefur rniklu fremur greitt fyrir útsölu bóka minna en hið gagnstæða (líklega óaf- vitandi), án þess eg byggist við hjálp úr þeirri átt, og þurfti hennar enda ekki með, en góðum tækifærum skyldi maður aldrei sleppa. Það et þv! langt frá, að eg finni til hinnar minnstu gremju ! félagsins garð, enda vona eg, að þessar línur séu fremur ritaðar í bróðuranda en beiskju ! garð minna tilvonandi stéttarbræðra. Reykjavík 14. febrúar 1905. Jóh. Jóhannesson. Verkfræðingur landsins er Jón Þorláksson ingeniör skipaður frá l. þ. tn. í stað Sigurðar Thoroddsens, er veitt hefur verið kennaraembætti við lærða skólann. Laeknisliérað veitt Hötðahverfislæknisnérað er veitt Sigur- óni Jónsyni á Staðarhrauni, læ kni I Mýra- héraði. Læknirinn í Fijótsdal, Jónas Kristjáns- son, er settur til að þjóna Hróarstungu- héraði til aprílloka þ. á., þangað til Þor- valdur Pálsson tekur við. Drukknun. Hinn 23. f. m. drukknaði í Hólsá í Skaptafellssýslu Oddur Stígsson bóndi ( Skaptárdal, sá er svelti drenginn til bana fyrir skömmu, eins og kunnugt er. Var Oddur á ferð með sambýlismanni s(num út að Vík ( Mýrdal, reið á undan út í ána til að reyna hana, en hleypti á sund og fór af hestinum. Með “Lauru,, tóku sér far héðan ti! útlanda 10. þ. m. : Jón Jónsson alþm. frá Múla, Pétur Jónsson alþm frá Gautlöndum, Asgeir Sigurðsson kaupm. og frú hans og Jón Brynjólfsson kaupm., Jes Zimsen konsúll, Jón Þórðarson kaupm., L. Kaaber bókhald- ari, Sörensen verzlunarm., Gunnlaugur O. Bjarnason prentari, og ungfrú Unnur Thoroddsen frá Bessastöðum, ennfremur skipsbrotsmennirnir af hinum tveimur strönduðu botnvörpuskipum (við Breiða merkursand og Þjórsárós.) Settur sýslumaður ( Barðastrandarsýslu 15. þ. m. er cand. jur. Sigurður Eggerz. Póstafgreiðslumenn eru skipaðir; á Djúpavogi Gustav Iwer- sen verzlunarstjóri og á Fáskrúðsfirði Páll H. Gíslason verzlunarstjóri. Smáupsi aflaðist hér á höfninni með ádrætti 13. — 15. þ. m., þó til nokkurra muna. Tunnan seld á 2—4 kr. Veitt prestakall. Audkúla í Húna- vatnsprófastsdæmi veitt 11. þ. m. séra Stef áni M. Jónssyni á Auðkúlu, er veiting hafði fengið fyrir Stokkseyrarprestakalli. Laust prestakall. Stokkseyrar■ frestakall i Arnessprófastsdœmi (Stokkseyr- ar- og Eyrarbakkasóknir). Mat kr. 2478,75. Af brauðinu nýtur prestsekkja eptirlauna, sem nú eru kr. 181,58 árlega. Veitist frá næstu fardögum. Auglýst 13. febrúar. Um- sóknarfrestur til 28. marz 1905. Innilegar þakkir til allra þeirra, er syndu mér og börnnm inínum hluttekningii við fráfali og jarðarför konnnnar ininnar. Sönmleiðis beztu þakkir fyrir hönd forelðra og syst- kina hinnar framliðnu. Páll Einarssoti. Nýtt orgel er til sölu nú þegar. Borg- unarskilmálar ágætir. Ritstj. vísar á seljanda. Frá 14. maí 1905 Mótorbátur 8 ára gamali, en þó í ágætu standi og smíðaður úr sérstaklega góðu efni, er til sölu og kostar 3000 kr., hing- að kominn til Reykjavíkur. Báturinn er 30 feta langur og 7 feta breiður og tekur 20 menn. Velin hefur 4 hesta afl og hefur báturinn með henni 5/4 mílna hraða á klukku- stundu. fást leigðar 2 stórar íbúðir, hver 7 herb. auk 2 geymslu kl. Mikið gólfrými. Lofthæð 4V2 al. Ódýr 1 ei ga. Gisli forbjarnarson. Fasteignasala. 2. jarðir nálægt Reykjavík. Hús og bæir við Hverfisgötu, Bergstaðastræti; og vfðar. Gtsli Þorbjatnarson. Fjármark Odds Benediktssonar á Tumastöðum í Fljótshlíð er: tvírifað í sneitt apt. h. og tvístigað fr. v. Smá-úrklippur með viðurkenningu fyrir Iiina miklu yfir- burði, sem Kína- Kfs- elixír frá Walde- mar Petersen í Kaupmannahöfn Iiefur til að bera. Lysthafendur snúi sér til undirritaðs eðabeinttil verzlunarhússins J. Braun, Engelske Planke 12—16 í Hamborg. Reykjavík 29. janúar 1905. Ludvig Hansen agent fyrir J. Braun í Hamborg. ISendið kr, 10,50t ♦ , . ♦ ♦ í penmgum ♦ T ásamt máli í þurnl. af hæð yðar ♦ ♦ og breidd yfir herðarnar, svo \ ▼ sendir undirrituð verzl. yður hald- ♦ góða og failega Waterproof-kápu ý (dökka að lit) og yður mátulega ^ ♦ að stærð og að kostnaðarlausu á : ^ allar þær hafnir, er gufuskipin ^ koina á, nægar birgðir fyrirliggj- ♦ andi af öðrum kápum með öllu 1 verði fr; 5 kr. til 25 kr. Kaup-, menn ókeypis sýnishorn og verk- ♦ ^ smiðjuverð. Skrifið í dag til ^ ^ Verzl í Þingholtsstr 4 | R v (k. ^ ! í Lystarleysi í 20 ár og verkur fyr- ir brjósti í 4 ár. Við þessum kvillutn hafði eg og leitað margra lækna og þó árangurslaust; en eptir að eg hafði tekið inn úr 4 flöskum af Kína llfs-elixír, batnaði heilsan til muna. Rvík I4/3 '04. Guðrún Palsdóttir ekkja. Maga- og nýrnaveiki. Eptir á- eggan læknis mins brúkaði eg elixírinn við henni og batnaði alveg. Lyngby, sept. 1903. Kona óðalsbónda HansLarsens. I. æ k n i s v o t to r ð . Eg hefi notað elixírinn við sjúklinga niína. Það er fyr- irtaks gott rneltingarlyf og hef eg rekið mig á ýms heilsubótaráhrif þess. Christí- anfa. Dr. T. Rodian. Tæring. . . . leitað margra lækna. en fekk þó fyrst töluverðan bata, er eg reyndi elixírinn. Hundested ( júní 1604 Kona J, P. Amorsen kaupm. Meltingarslæmska. Elixtrinn hef- ur styrkt og lagað meltinguna fyrir mér og get eg vottað það, að hann er hinn bezti bitter, sem til er. Kaupmannahöfn. N. Rasmussen. O Biðjið berum orðtini um Waldemars Petersens ekta Kína-lífs-elix(r. Eæst al- staðar. Varið yður á eiitirstælingum. Hver selur bezt hús og ódýr- ust í Rvík? Gísli JÞorbjarnarson, Vatnsstíg 4. En hver hefur beztar jarðir til sölu ná- lægt Reykjavík ? (iísli Þorbjarnarson, Vatnsstíg 4. Hverjum gengur bezt að selja fasteignir? Gísla Þorbjarnarsyni, Vatnsstíg 4. . 1 ■ ■ ■ .... ....................... Úrgangsfénaðup seldur í Mosfellshreppi haustið 1904. Eigendur gefi sig frarn til næstu fardaga. 1. Fjaðrir 2 fr. — vaglrif fr., biti a.; hv^ gbrl. 2. gat — sýlt, fjöð. fr.; hvítt hrl. 3 hálftaf a., biti fr. — blaðstýft a.; hv. gbrl. 4. lögg a. -- sneitt a.; hv. gbrl. 5. (markleysa) — geirstýft, gat; hv. gbrl. 6. sneiðrif fr. — hvatt; svört ær 2 v., vönkuð. 7. sneitt fr, fj. a. — stúfrif., fj. fr.; rekin gbrl.-reita. 8. sneiðrif. fr., hgfj. a. — hgfj. a.; hv. gbri. 9. sneiðrif. a., biti fr. — sneitt fr,; hv. gldl. 10. sneitt a , fj. fr. •— fjöður a.; sv. botn. gldl. 11. stig fr. — heilhamrað; hv. gbrl. 12. stúfrifað — sneitt a., biti fr.; hv. gbrl. 13. stúfrif., biti fr. — hvatt,- sv.koll. gbrl 14. stýfthálftaf a. — stýfth.af a., oiti fr., hv. hrl. 15. stýff — sýlt, lögg fr.; hv. gldl. 16. sýlt, fjöður fr. — lögg fr., ínógrátt gbrl. fíjörn fíjarnarson. ►•♦•♦•♦•♦•♦-• :♦•♦•♦•♦•♦•♦»■ Regnkápur Stærsta og ódýrasta úrval á íslandi. ;YerzI.) Þingholtsstr. 4. Bezt kaup á Verzlun Matthíasar Matthíassonar Skófatnaði í er flutt i hina nýju búð i Aust- urstræti — vesturendann á Jensens bakaríi. Aðalstræti 10.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.