Þjóðólfur - 09.06.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík, föstudaginn 9. júní 1905.
JS 24 B.
Bókmenntafélagsfundur
var haldinn í Hafnardeild Bókmennta-
félagsins 6. maí. Forseti (dr. Valtýr Guð-
TOundsson) skýrði frá gerðum félagsins
síðastliðið ár. Frá deildinni kemur í
sumar sfðari hlutinn af Bókmennta-
sögu próf. Finns Jónssonar og fyrsta
hepti af al þý ð u r i t un u m. Er þar í
>Æxlun og kynbætur*, þýðing á
dönsku riti eptir Helga Jónsson grasafræð-
ing*). Nefnd sú, sem kosin hafði verið
til þess að láta uppi álit sitt um útgáfu
á Jarðskjálftasögu próf. Þorvaldar Thor-
oddsen lagði það til í einu hljóði, að hún
yrði gefin út. Rittilboð kom frá Boga
Th. Melsteð sagnfræðingi um framhald
á íslendingasögu hans’. Var því vísað til
nefndar þeirrar, er áður hefur fjallað um
sögu þessa, og í hana kosinn Árni Páls-
son sagnfræðingur í stað konferenzráðs
Ólafs Halldórssonar, er var genginn úr
nefndinni. Ennfremur kom fram tilboð
frá Helga Jónssyni um almenna grasafræði
við alþýðuhæfi. Var því vísað til nefnd-
ar og f hana kosnir próf. Þorvaldur Thor-
oddsen, Steingrímur Matthíasson læknir
Og Sigurður Jónsson stud. med. Þá voru
kosnir tveir menn í nefnd til að dæma um
skáldsögur þær og leikrit, er bókmennta-
félaginu verða send í því skyni, að hljóta
verðlaun þau, er félagið hefur heitið.
Kosningu hlutu: Einar Hjörleifsson rit-
stjóri og Jóhann Sigurjónsson. Þriðja
manninn í nefndinni tilnefnir stjórnin. I
stjórn féUigsins næsta ár voru kosnir:
Þ o r va 1 du r T horoddsen próf. forseti
með 27 atkv. (dr. Valtýr fékk ig), Gfsli
Brynjólfsson læknir (endurkosinn) fé-
hirðir, séra Hafsteinn Pétursson
skrifari ogMatthías Þórðarson stud.
mag. skjalavörður. Loks voru nokkrir
nýir meðlimir teknir inn í félagið.
5.
Þingmálafundur
var haldinn á Akranesi að kveldi 1. dag
júnímánaðar og voru þar við um 40 kjós-
endur. Þessar tillögur voru samþykktar:
Um ritsímamdliB. Fundurinn er því með-
rnæltur að ritsímamálinu sé haldið áfram,
en skorar á þingið og þingmann kjördæm-
isins að hafa vakandi auga á, að samþykkja
ekki neitt í þvf máli, er stofni landinu f
fjárhagslegan voða. (Samþ. með 30 atkv.).
Ennfremur var samþykkt svo hljóðandi
tillaga:
Verði hinn væntanlegi rltsími lagður yfir
Hvalfjörð, þá sé á landsjóðs kostnað jafn-
framt lagður talsími frá Skipaskaga inn að
símstöðinni við Hvalfjörð.
Samgöngumdl'.
a. Að tillag til millilandaferða og strand-
ferða færist niður að stórum mun.
a. Að Faxaflóabáturinn haldi uppi vetrar-
ferðum til Akraness og Borgarness.
c. Þegar næst verða gerðir samningar um
gufuskipaferðir milli landa ogumFaxa-
flóa, að þessar ferðir verði látnar standa
í beinu sambandi.
*) Á kápunni á Alþýðurituntim á að vera
askur Yggdrasils m. fl. teiknaður af Einari
Jónssyni myndasmið.
d. Að styrkur sé veittur til bryggjugerðar
í Steinsvör á Akranesi, aiténd helming-
ur móts við framlög úr héraði.
Skó/amdl: Fundurinn er því meðmælt-
ur, að stofnaður sé góður og myndarlegur
kennaraskóli í Reykjavík.
Atvinnumd/:
a. Fundurinn skorar á alþingi að veita
rífleg og hagstæð lán til samvinnu-
félagsskapar sjómanna til að reka at-
vinnu sína.
b. Fundurinn skorar á þingið, að breyta
4. gr. laga 6. nóv. 1902 um varnir gegn
þvf að næmar sóttir sóttir berist til ís-
lands í þá átt, að samgöngur fiski-
manna vfð útlend skip séu ekki heptar
með öllu, eins og nú, til stórskaða fyrir
einstaka menn og heilar sveitir.
c. Fundurinn skorar á þingið, að semja
námulög.
Fdtœkramdl: Fundurinn mælir móti því,
að sveitfestistímanum sé breytt úr 10 árum
niður í 2 ár.
Bindindism ál:
a. Fundurinn lýsir því yfir, að hann er
mótfallinn því, að vinsölubannslög séu
lögleidd her á landi, en telur æskilegt,
að aðflutningsbannslög séu sett svo
fljótt sem auðið er.
b. Fundurinn skorar á þingið að veita
ríflegri styrk en að undanförnu til efl-
ingar og útbreiðslu bindindis.
Búseta sýslvmanns Boi%firdinga. Fund-
urinn skorar á alþingi, að sýslumanni Borg.
firðinga verði, eigi síðar en við næstu sýslu-
mannaskipti, ákveðinn bústaður á Akranesi.
Heilbrigðismdl: Fundurinn mælir með
því, að sett verði á stofn geðveikrahæli á
hentugum stað.
Réttur útdráttur.
Þóth. Bjarnarson.
Til Högna Sigurðssonar.
Mér hefur að vísu virzt það álitamál, hvort
ritsmíð sú, sem hr. Högni Sigurðsson frá
Seljalandsseli hefur samið og sent út í 30.
tölubl. Þjóðólfs f. á ., væri svaraverð, svo
snauð sem hún á aðra hliðina er af sönn-
unum aðalefninu viðvfkjandi, en á hina skýr
vottur um þann rembing og reiging, sem
inni fyrir býr. En af því að þeir geta þó
nokkrir verið, sem láti hans reigingsfulla
gaspur blekkja sig, svo að þeir ásamt hon-
um álíti, að hann með því hafi veitt mér
það rothögg hvers bætur eg ekki bíði, þá
kann það að sýnast réttara, að eg svari
honum hér með nokkrum orðum lil þess ef
auðið er, að leiðrétta þar með þetta ranga
álit hans og þeirra. Hvað ágreiningsatriðið
okkar á milli snertir, sem sé það, hvort
hann hafi greitt mér hina umræddu skuld
eða ekki, þá hyggst hann að færa fullgildar
sannanir á sitt mál með því, að tilfæra vott-
orð 3 kunningja sinna f Vestmanneyjum um
það, að kvittunarskjal, er hann þykist hafa
í höndum með mínu nafni undir sé með
minni eigin rithönd og af mér sjálfum skrif-
að. En vottorð þetta er svo langt frá þvf
að vera fullgild sönnun, að það í raun og
veru sannar ekki neitt, ef að er gáð, því f
fyrsta lagi eru ekki vottorðsgefendur þessir,
þótt heiðvirðir kunni að vera, bærir um
það, að dæma fyrir vfst, hvað einn hafi
skrifað og hvað ekki, þar eins manns rit-
hönd getur verið svo nauðalík annars, að
það sé ekki nema fyrir sérfróða menn um
það að dæma, að eg ekki tali um ef rit-
höndin kynni að vera stæld (sbr. Dreyfus-
málið), og í öðru lagi verður ekki af vott-
orði þessara manna séð, að sú kvittun, er
þeir telja mig hafa ritað og gefið sé ein-
rnitt fyrir þeirri skuld, sem hér er ágrein-
ingsefni okkar H. S.
En þar sem hr. H. S. er í ritsmíð sinni
að bregða mér um rangar ljóstollskröfur
frá þeim árum, er eg var fjárhaldsmaður
Stóradalskirkju, þá þarf eg að vísu ekki að
kippa mér svo mjög upp við það, þar slík
ar illgirnisaðdróttanir lúalega hugsandi
manna í garð þeirra, sem opinber gjöld
eiga að innheimta eru því miður svo harla
algengar hér hjá oss. Og úr því hr. H. S.
telur sér sæma, að fylla þann flokk, þá er
það ekki mitt að meina honum það.
En þótt hann hafi óbundnar hendur til
þess að varpa slíkri illgirnisaðdróttun fram,
þá mun honum veitast hitt erfitt, að færa
sönnun fyrir henni, og fullviss er eg þess
að tregt rnundi honum ganga að afla sér
vottorðs Dalssóknarmanna eða annara, sem
eg hef um dagana haft viðskipti við fyrir
því, að eg hafi gert mig sekan í ólöglegri
ásælni eða óráðvendni, hvort heldur snertir
ljóstollskröfur mínar eður aðrar kröfur, enda
er samvizka mín hrein fyrir því, að eg hafi
ólöglega og óráðvandlega dregið annara efni
undir mig, en það mundi hún ekki vera, ef
kröfur mínar, hvort heldur ljóstollskröfur
eða aðrar hefðu ranglátar verið, og allra
sízt gæti hún verið það, ef eg, eins og
dæmi eru þó til og H. S. vafalaust líka
þekkir, hefði í byrjun búskapar míns tekið
til mín flugríka ekkju, en varpað henni því
næst, er efnin voru þrotin yfir á efnalitla
vandamenn, og þeim, sem i sltku gera sig
seka ferst það sízt, að bregða öðrum um
ásælni og óráðvendni.
Reykjavík f febr. 1905.
Jón Sigurdsson.
frá Syðstumörk.
*
* *
Um þetta málefni verður ekki meira rætt
hér í blaðinu, enda hafa nú báðir málsað-
ilar tekið tvisvar til máls.
Ritstj.
Smjðrflutningur.
»Hið sameinaða gufuskipafélag* hefur
lofað nð flytja út héðan smjör í frysti-
klefum á »Bothniu« í 3 ferðum, er skip
þetta fer hingað í sumar. Burtferðardag-
ar »Bothniu« frá Reykjavík verða 2. j ú 1 í,
22. júlf, og 8. ágúst. Smjörbúin ættu
að nota sér tilboð þetta.
Dáinn
er hér í bænum 7. þ. m. Helgijóns-
son bankaassistent á 53. aldursári (f. 31.
okt. 1852) sonarson Eyjólfs gamla Einars-
sonar í Svefneyjum, og kominn í beinan
karllegg frá Birni ríka. Hann var tví-
kvæntur, fyr Kristínu Eggertsdóttur Waage,
síðar Sigríði dóttur Eggerts Gunnlaugs-
sonar Briem sýslumanns, sem lifir mann
sinn. Helgi heit. var valinkunnur sæmd-
armaður, og mjög vel látinn af öllum,
enda drengur hinn bezti.
+
Kjartan Guðmundsson.
f 2». inaí 1905.
(Undir nafni móðurinnar).
Æ ljúfi son! mín lífsvon öll,
þú liggur kaldur nár,
og ein mfn fróin, er þú dóst,
það er, að fella tár.
Svo ungur, mannvænn, ástarkær
í einu horfinn mér,
mitt augna sætast yndisljós
f einu slökkt varð hér.
I anda verð eg æ hjá þér,
þú elsku sonur minn!
Að muna þig og haía í hug
er hinsta fróunin.
Eg deili’ ei grand við dómarann,
þð dreyri sorgar und,
en beygi mig 1 bljúgri von
um blfðan endurfund.
Eg faðma’ og kyssi fölvan þig,
en fleiri syrgja’ en eg,
sern þekktu þig og harma hljótt,
er hvarfstu á munarveg.
Þín sál var göfug, hjartað hreint
Og heimvon góð er þá,
því hreinhjartaðir hæstan guð
a himnum inunu sjá. %%
Kptipmœll.
Hinn 19. aprfl þ. á. andaðist að heimili
sínu f Krossgerði í Berunesshreppi eptir
stutta legu húsfrú Málmfríður Gfsla-
dóttir. Hún var fædd í Krossgerði 10.
d. febr. mán. 1846, dóttir Gísla bónda þar
Halldórssonar og konu hans Önnu Árna-
dóttur. Ólst hún þar upp hjá foreldrum
sfnum, ásamt mörgum systkinum, unz hún
28. d. ágústmán. 1874 giptist Sigurði Þor-
varðarsyni, er síðar varð hreppstjóri í Beru-
neshreppi. Bjuggu þau hjón í Krossgerði
upp þaðan, þangað til vorið 1902, að þau létir
af búskap, og fengu jörðina f hendur elzta
syni sfnum Gísla, og settust að hjá honum.
— Þeim hjónum varð 10 barna auðið. Dóu
4 þeirra í æsku, en 6 eru á lffi, uppkomin
og mannvænleg: Gísli, bóndi í Krossgerði,
Þorvarður, Jón bæjarfógetaskrifari f Reykja-
vík, Anna Kristfn, Ásdfs og Árni.
Málmfríður sál. varmanni sfnum mjög sam-
hent f öllu góðu, og lagði á það alla stund
ásamt honum, að veita börnum sfnum sem
nytsamasta og heillavænlegasta þekking til
munns og handa og hefur sú viðleitni þeirra
hjóna borið ánægjulega ávexti. Pótt efna-
hagur þeirra væri lengstum fremur þröngur
og þau hefðu við ýmsa erfiðleika að stríða,
má þó svo að orði kveða, að heimili þeirra
hjóna væri jafnan í fremstu röð í þessu
sveitarfélagi, og þótt húsbóndinn virtist,
bæði vegna stöðu sinnar sem hreppstjóri og
hæfileika, eiga einna mestan þátt í því, þá
má eg þó óhætt fullyrða, að húsmóðirin
átti einnig sinn góða hlut í þvf að gera
garð þeirra frægan. Málmfríður var góð
kona og guðhrædd, stilt, fáskiptin og hý-
býlaprúð, greiðvikin og góðgjörn, ástrík
eiginkona, umhyggjusöm og ástúðieg móðir
— prýði húsmæðranna í þessu sveitarfélagi.
Hennar minning mun þvf að verðleikum
í heiðri lifa, eigi einungis hjá syrgjandi
eiginmanni og börnum, heldur og tengda-
fólki, vinum og sveitarfélaginu yfirleitt.
(B. E.j.