Þjóðólfur - 01.09.1905, Page 2
ÞJÓÐÓLFUR.
160
35. Lög um heimild fyrir veddeild lands■
bankans til að gefa, út nýjan flokk (ser-
íu) bankavaxtabréfa. (Veðdeild lands-
bankans skal vera heimilt að gefa út
bankavaxtabréf allt að 3 milj. kr. til
viðbótar bankavaxtabréfaupphæð þeirri,
sem hún nú má gefa út samkv. 1. I2/i
IQOO).
36. Lög um ritsíma, talsíma o. fl.
1. gr. Landinu er áskilinn einkaréttur
til þess að stofna og starfrækja ritsíma-
sambönd og málþráða, svo og hverskyns
önnur rafmagnssambönd, til skeytasend-
inga á Islandi og í landhelgi við Island.
2. gr. Ráðherra Islands getur veitt ein-
stökum mönnum eða félögum leyfi til að
stofna og starfrækja sambönd þau, sem um
ræðir í 1. gr.-------— —
9. gr. Hver landeigandi er skyldur .að
leyfa, að ritsímar óg talsímar landsjóðs
séu lagðir um land hans, yfir það eður í
jörðu, og að efni það, er þarf til lagning-
ar þeirra og viðhalds, svo og grjót, möl
o. s. frv. sé tekið þar sem næst er; svo
er og hver eigandi húss eða annars mann-
virkis skyldir að leyfa, að símar þessir
séu lagðir yfir þau, á eður undir þeim.
Verði þvl við komið, skal þó taka tillit
til þess, hvar eigendur eða notendur mann-
virkja æskja eptir að símarnir séu lagðir,
þar sem þeir snerta eign þeirra, og það
þótt þetta hefði nokkurn kostnaðarauka
við símann í för með sér.
15. gr. Embættismenn og sýslunar-
menn við ritsíma, talsíma og önnur
hraðskeytafæri landsins, sem um ræðjr í
1. gr., eru skyldir, bæði meðan þeir eru í
embætti eða sýslan og eptir að þeir hafa
látið af þeim, að halda leyndu fyrir öllum
út í frá efni hraðskeyta þeirra, sem koma
eða fara, að þau hafi komið eða farið, svo
og hver hafi fengið þau eða sent. A sama
hátt eru þeir skyldir að þegja yfir talsíma-
samtölum og nöfnum þeirra, ertalazthafa
við gegnum símann.
37 Lög um fyrning skulda og annara
kröfuréttinda.
1. gr. Skuld eða önnur krafa, sem ekki
hefurjverið viðurkennd eða lögsókn heimt
innan þeirra tímatakmarka, er ákveðin eru
í lögum þessum, fellur úr gildi fyrir fyrn-
ing.----------------.
2. gr. Þessar kröfur fyrnast á 20 árum:
1. Krafa á hendur landsjóði, banka eða
sparisjóði um endurgjald á fé, er lagt hef-
ur verið í sjóðinn til ávöxtunar eða geymslu.
Banki telst hver sá, sem samkvæmt til-
kynningu til verzlunarskránna rekur banka-
atvinnu.
2. Krafa um lífeyri og aðrar slfkar kröf-
ur, sem eru fólgnar í rétti til þess með
vissu rnillibili að krefjast fjárframlags, er
ekki getur talizt afborgun af skuld.
3 gr. Þessar kröfur fyrnast á 4 árum :
1. Kröfur út af:
sölu eða afhendingu ávörum eða lausa-
fé, sem ekki er afhent sem fylgifé með
fasteign, þó svo, að haldi skuldunautur
áfram föstum viðskiptum við kaupmann,
verksmið eða þvílíkan atvinnureka, og
fái árlega viðskiptareikning, fyrnist ekki
sú skuld, er hann kann í að vera við
nýár hvert, hvort sem hún stafar frá
viðskiptum síðasta árs eða ekki, meðan
viðskiptum er haldið áfram óslitið,
leigu á fasteign eða lausafé,
veru, viðgerning eða aðhlynningu,
flutning á mönnum eða munum,
vinnu og hverskonar starfa, sem í té
er látinn; þó fyrnist eigi krafa hjús um
kaupgjald, meðan það er samfellt áfram
í sömu vist.
2. Kröfur um gjaldkræfa vexti, húsaleigu,
landskuld, leigur, gjaldkræf laun eða
eptirlaun, lífeyri, forlagseyri, meðgjöf
eða aðra greiðslu, er greiðast á með
vissu millibilj og ekki er afborgun af
skuld.
3. Kröfur, er lögtaksrétt hafa.
4. Kröfur samkvæmt ábyrgðarskuldbind-
ingum, að undanskilinni ábyrgð á fjár-
skilum opinberra gjaldheimtumanna eða
gjaldkera við opinberar stofnanir eða
stofnanir einstakra manna. Ennfremur
endurgjaldskrafa sú, er ábyrgðarmaður
eða samskuldari hefur á hendur aðal-
skuldunaut, meðábyrgðarmanni eða sam-
skuldara, út af greiðslu skuldar; endur-
gjaldskrafan er þó jafnan dómtæk eins
lengi og innleysta krafan mundi verið
hafa.
5. Krafa um endurgjald á því, er maður
hefur greitt í rangri ímyndun um skuld-
binding, eða í von um endurgjald, er
brugðíst hefur, þó svo að móttakandi
hafi ekki gert sig sekan í sviksamlegu
atferli.
4. gr. A 10 árum fyrnast:
1. Kröfur samkvæmt skuldabréfi, dómi
eða opinberri sátt, er ekki falla undir á-
kvæði 2. gr. Að því er snertir kröfur þær,
er um ræðir í 2.—4. tölulið 3. greinar,
gildir 10 ára fyming þó því að eins, að
skuldabréf sé útgefið, dómur genginn eða
sátt gerð, eptir að krafan féll í gjalddaga,
eða var orðin sjálfstæð skuldakrafa á ann-
an veg, eða rentumiði hafi verið útgefinn
fyrir vöxtum eða annari samskonar kröfu.
2. Allar aðrar kröfur, sem ekki er sett-
ur annar fyrningarfrestur fyrir í 2. og 3. gr.
38. Lög um styrk úr landsjóði til samvinnu-
smjörbúa. (Sjá 35. bl. Þjóðólfs).
39. Lög um breyting d 1. ij. okt. 1899 um
skipun /œknishéraða d íslandi o. fl.
Barðastrandarlæknishéraði skal skipt í
2 læknishéruð, sem sé:
1. Patreksfjarðarhérað, sem nær yfir
Rauðasandshrepp, Tálknafjarðarhrepp og
Barðastrandarhrepp fyrir vestan Vatns-
dalsá.
2. Bíldudalshérað, sem nær yfir Suður-
fjarðarhrepp og Dalahrepp 1 Barðastrand-
arsýslu.
Patreksfjarðarhérað telst til 2. flokks og
Bíldudalshérað til 5. flokks læknishéraða,
sbr. 1. gr. laga 13. okt. 1899 um skiþun
læknishéraða á Islandi o. fl.
40. Lög um breyting d peim tíma, er hið
reg/ulega alpingi kemur saman.
1. gr. Hið reglulega alþingi skal koma
saman 15. febr. annaðhvort ár, eða næsta
virkan dag eptir, hafi konungur eigi til-
tekið annan samkomudag sama ár.
2. gr. Alþingi kemur fyrst saman sam
kvæmt lögum þessum 15. febr. 1909.
41. Lög um stofnun Fiskiveiðasjóðs Is/ands.
1. gr. Stofnfé Fiskiveiðasjóðs íslands er
100,000 kr., er landsjóður leggur fram í
skuldabréfum fyrir lánum til þilskipakaupa
og í peningum.
Við stofnféð bætist fyrst um sinn V3
sektafjár, er 1 landsjóð rennur fyrir ólög-
legar veiðar í landhelgi, að meðtöldu V3
netto-andvirðis þess, er Iandsjóði greiðist
fyrir upptækan afla og veiðarfæri botn-
vörpunga eptir að lög þessi öðlast gildi.
2. gr. Til sjóðsins leggur landsjóður
6000 kr. tillag á ári hverju, er telst með
árstekjum hans.
3. gr. Tilgangur Fiskiveiðasjóðsins er
að efla fiskiveiðar og sjávarútveg lands-
manna.
Stofnféð má aldrei skerða. Skal því og
árstekjum sjóðsins varið til lánveitinga til
skipakaupa og veiðarfæra og hverskonar
atvinnubóta við fiskiveiðar. Tekjunum
má og verja til að styrkja efnilega unga
menn til að kynna sér veiðiaðferðir, fisk-
verkun og annað, er lýtur að sjávarútvegi,
meðal erlendra þjóða. Svo og til þess að
styrkja tímarit um fiskiveiðar og annað,
er að sjávarútvegi lýtur. Ennfremur má
verja nokkru af tekjunum til verðlauna fyr-
ir framúrskarandi atorku og eptirbreytnis- I
verðar nýjungar í fiskiveiðum og meðferð
fiskjar.
Yflrlit yflr þingmálin. Af stjórnar-
fr u m v ö r p u n u m 40 hafa 35 verið af-
greidd sem lög frá þinginu, 2 hafa verið
felld .(gjald til landsjóðs frá sýslufélögum
og kennaraskólinn), 1 hefur verið tekið
aptur (breýting á þingsköpunum), en 2
urðu ekki útrædd (breyt. á kosningalög-
unum og barnafræðslufrv.).
Af 59 þingmannafrumvörpum
voru 24 afgreidd sem lög, 11 voru felld,
2 voru tekin aptur og 22 urðu ekki út-
rædd.
Af 13 þingsályktunartillögum
MeO „Laura“
fór héðan fjöldi farþega í gærkveldi
auk allmargra þingmanna, þar á meðal
til Akureyrar Jón Stefánsson ritstj. sGjall-
arhorns«, og til Vesturlandsins Davíð Sch.
Thorsteinsson héraðslæknir á ísafirði og
kona hans, Guðm. Bergsson bóksali, Guð-
mundur Jónsson kand., Kristján H. Jóns-
son ritstj. »Vestra«, Matthías Ólafsson
kaupm. í Haukadal o, m. fl.
voru 10 afgreiddar frá þinginu, 1 var felld
(um náma í n. d.) og 2 var vfsað frá með
rökstuddri dagskrá (um undirskriptarmálið
samhljóða í neðri og efri deild).
2 fyrirspurnir voru gerðar til ráð-
herrans (um mútur í hraðskeytamálinu sam-
hljóða í báðum deildum). Önnur lauk
með rökstuddri dagskrá, en hin var tekin
aptur. Samþykkt hafa þá verið alls 59
lagafrumvörp (35 stjórnarfrv. og 24
þingm.frumv.) og er það hærri tala, en
nokkru sinni áður hefur verið samþ. á
þingi, og mörg þessara frv. mjög' þýðing-
armikil.
Látinn
er í Kaupm.höfn 14. f. m. HansAnd-
ersen klæðskeri hér í bænum, tæplega
fimmtugur, hafði farið til Hafnar í vor
að leita sér lækninga. Lík hans var flutt
hingað til greptrunar með »Kong Inge«.
Hann var kvæntur Helgu dóttur Jóns
prests Jakobssonar í Glæsibæ (Í*i873)og
áttu þau mörg börn.
f
Avarp til alþingis
1905.
Hingað norður hafa í þessari svipan borizt þau tíðindi, að nokkur hundruð
manna á Suðurlandi og 1 Reykjavík, hafi með flokkasafnaði, fundahöldum, ávörpum
og jafnvel ólátuni (demonstration) reynt að ógna fulltrúum þjóðar vorrar á alþingi
og stjórn vorri til þess, að slá á frest hinu mesta áhuga- og nauðsynjamáli voru:
ritsímasambandi lands vors við umheiminn og innanlands.
Þessi hörmulega fregn knýr oss undirritaða til þess, að ávarpa þing vort og
stjórn. Og um leið og vér lýsum megnri vanþóknun vorri og hryggð yfir þessu til-
tæki Sunnlendinga, skorum vér alvarlega á fulltrúa vora og stjórn að ráða þessu
menningarmálefni voru til lykta þegar á þessu þingi, með þeirri alvöru, ró og stað-
festu, er lögþingi þjóðar vorrar sa^roir, og á hinn tryggilegasta hátt, sem verða má,
eptir þeim tilboðum og upplýsingum, sem nú liggja fyrir þinginu. Treystum vér
því, að fulltrúar vorir á alþingi láti eigi pólitiskt flokkshatur og æsingar óhlutvandra
manna viila sér sjónir á þessu máli eða öðrum, en iíti fyrst og fremst á hag lands-
ins og nauðsyn þjóðarinnar. — Lýsum vér yfir því, að oss blöskrar alls eigi kostn-
aður sá, sem leiða mundi af tryggilegu sambandi við önnur lönd og innanlands,
eins og hann nú er áætlaður, og erum vér fúsir að taka á oss þann fulla
hluta af gjöldum þeim, er til þess eru nauðsynleg, því þeim teljum vér vel varið.
Árnum vér svo alþingi voru og stjórn blessunar og hamingju til þess, að ráða
þessu og öðrum nauðsynjamálum vorum til heppilegra lykta.
Húsavík í Þingeyjarsýslu 17. ágúst 1905.
Benedikt Jónsson frá Auðnum. Steingr. Jónsson sýslum. Bjarni Bjarnarson (sýslunefndarm.)
Sigurj. Þorgrímss. (veitingam.). Páll Sigurðss. (tómthúsm.). H. Jakobss. bóndi á Héðinsliöfða.
Eiríkur Þorbergsson (timbursmiður). V. Guðmundsson (tómthúsm.).
Egill Sigurjónsson (bóndi á Laxamýri). Jón Baldvinsson (timbursmiður).
Friðbjörn Bjarnarson (sölustjóri). Jónas Sigurðsson (hreppsnefndarm.).
Jóhannes Þorsteinss. (borgari), Friðjón Jónsson á Sandi. S. Hallgrímss. (tómthúsm.).
Páll Kristjánsson (borgari). Nói Jónsson á Laugum (hreppsnefndarm.).
Þorbergur Davíðsson, bóndi á Litlulaugum. Sigtryggur Helgason (sýslun.m.) á Hallbjarnarst.
Jón Sigurðsson á Hjalla (hreppsnefndarm.). Hólmgeir Þorsteinsson (hreppsn.m) Vallakoti.
Jakob Jónasson, bóndi á Narfastöðum. Kjartan Jónsson, bóndi á DaðastÖðum.
Aðalgeir Davíðsson, bóndi á Stórulaugum. Sigfús Jónsson, bóndi á Halldórsstöðum.
Jakob Sigurjónsson, bóndi á Hólum. Jón Kristjánsson, bóndi í Glaumbæ.
Stefán Jónsson, bóndi á Öndólfsstöðum. Gísli Kristjánsson, bóndi á Ingjaldsstöðum.
Kristján Guðnason, bóndi á Breiðumýri. Haraldur Sigurjónsson, bóndi á Einarsstöðum.
P. Helgi Hjálmarss. prestur á Helgastöðum. Sigurður Sigfúss. kaupfél.stj. Halldórsstöðum.
*,* ,* *
* * * *
Aths. ritstj. Það kvað vera von á fleirum áskorunum að norðan í sömti
stefnu og þessi sem hér er birt, eitthvað svipað skjal t. d. þegar komið úr Eyjafirði.
Norðlingar margir hverjir hafa ekki orðið hrifnari en þetta af reykvíkska fundinum
1. ágúst, og Þingeyingar eiga heiður skilið fyrir að hafa* andæft svona kröptuglegá
æsingafargani ogóvitaskapi Hjálpræðisklíkugeneralsins og Einars í Hjáleigunni og þeirrá
liða. Að vísu hafa Húnvetningar og állmárgir Skágfirðingar látið blekkjast í biliafþess-
um ólátum og sent hingað mótmælaskjöl, en þeir átta sig eflaust bráðlega aptur, er
þeir hafa athugað málið betur og kynnt sér meðferð þess á þingi. Annarstaðar að
hefur Ktið kveðið að þessum mótmælaskjölum, nema helzt úr Dalasýslu, dalítið hrafl
úr Borgarfirði og úr nokkrum hreppum Rangárvallasýslu, og úr örfáum hreppum í
Árnessýslu. Þar hefur þessi undirskriptasmölun gengið einna tregast, enda var fund-
urinn frægi lakast sóttur úr því héraði eptir kjósendafjölda, Nú kvað þeir vera
riðnir norður í land Einar í Hjáleigunni og Guðm. Finnb. og Haraldur (vestur?),
sendir á kostnað »HjálpræðisklíkunDar« til að umhverfa lýðnum, og boða fagnaðar-
boðskap »spiritista« sjálfsagt um leið. En vafasamt er, hvort þrenningu þessari verð-
ur alstaðar tekið tveim höndum, er menn vita f hverjum erindum piltarnir koma.