Þjóðólfur - 29.09.1905, Side 4
i78
ÞJÓÐÓLFUR.
Námufélagið ,Málmur‘.
Vér undirritaðir höfum samkvæmt þeirri heimild, er bæjarstjórn Reykjavíkur hefur veitt Sturlu kaupmanni
Jónssyni og félögum hans, ti! að reka námugröft i nokkrum hluta bæjarlandsins, og stjórnarráð Islands hefur staðfest,
íjiyndað hlutafélag, er nefnist „Málmur". Samkvæmt lögum félagsins er stofnféð 100,000 kr., og er upphæð hvers
hlutar 50 krónur. Stjórn félagsins hefur heimild til þess að heimta inn hlutaféð, þegar hún vill, en svo er til ætlazt,
að fyrst verði einungis innheimt 20°/o af hlutafénu.
Stjórnin hefur heimild til þess að auka stofnféð upp í allt að 250,000 krónur, en til aukningar þar fram yfir
þarf samþykki aðalfundar. Hlutabréfin hljóða upp á handhafa, en þó má skrásetja nafn eiganda í bækur félagsins.
Hver hluthafi hefur atkvæði fyrir hvern hlut. — Félagsfundir hafa hið æzta vald í öllutn málefnum félagsins. Engin
mál mega takast fyrir á fundinum önnur en þau, er á dagskrá standa, og skal hún liggja til sýnis hjá formanni viku
fyrir fund.
Stjórn félagsins er skipuð 5 hluthöfum og 2 varamönnum, er heima eiga í Reykjavík; þar er lögheimili fé-
lagsins, og þar skulu félagsfundir haldnir. Stofnendur félagsins kjósa stjórn í fyrsta skipti, og gildir sú kosning til
aðalfundar 1908. Á hverjum aðalfundi fara tveir úr stjórn eptir aldursröð eða hlutkesti.
Arðinum skal skipta þannig:
a. Fyrst skal greiða hluthöfum 5°/o af upphæð hlutafjárins, eða ef hann er eigi svo mikill, þá skal arðinum skipt
hlutfallslega jafnt rnilli hluthafa.
b. Ef arðurinn er frá 5%—25% af upphæð hlutafjárins, skal greiða Reykjavíkurkaupstað */s hluta af þessu fé. Ef
arðurinn er frá 25—50°/o, skal greiða kaupstaðnum J/3 hlutafjárins, og helming, ef arðurinn er yfir 50%. Hinn
hluti arðsins rennur til félagsins.
c Fé því. sem samkvæmt b. rennur til félagsins, skal varið þannig, að 10% rennur í varasjóð, 6% rennur til stjórn-
arinnar, og 4% til annara starfsmanna, en þeir 80%, sem þá eru eptir, skiptast hlutfallslega jafnt milli hluthafa.
Þegar varasjóður hefur náð V5 hluta af innborguðu hlutafé, skal eigi leggja meira fé í hann.
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavíkurkaupstaðar er Reykvíkingum áskilinn forgangsréttur í 3 mán-
uði til að skrifa sig fyrir hlutum, og er því hér með skorað á þá Reykjavíkurbúa, sem vilja gerast hluthafar í félagi
þessu, að gefa sig fram innan þriggja mánaða frá þessum degi, og skrifa sig fyrir hlutum hjá einhverjum af oss
undirrituðum stofnendum félagsins. Verði skrifað sig fyrir meiru en starfsfénu (100,000 kr.) mega þeir er skrifa sig
fyrir meiru en 2 hlutum, búast við því, að hlutafé þeirra hvers um sig, verði fært hlutfallslega niður.
Einhleypur reglusamur maður óskar
að fá laglega stofu leigða helzt með
forstofuinngangi. Ritstjóri vísar á. •
Þakkarávarj). Öllum þeim, sem styrktu
mig með peningagjöfum á síðastl. sumri í
heilsulasleik mínum og sérstaklega hr. Gúðm.
Sveinbjörnsson, er gekkst fyrir samskotun-
um, votta eg mitt innilegasta þakklæti.
Reykjavík 26/9—k>5.
Afiii Jóhannesson.
Stúlka óskast til aðstoðar húsfreyjunni
Ingólfsstr. 18.
Karl Einarsson
cand. jur.
Góð jólbœr kýr til sölu hjá Ólafi
lækni Guðmundssyni á Stórólfshvoli.
Hinn 13. þ. m. tapaðist hér úr bænum
grá h 1 y s s a stór og falleg, vel viljug og
vökur, mark: standfj. fr. h., nýjárnuð á
framfótum. Sá, sem finna kynni hryssu
þessa, er vinsamlega beðinn að gera aðvart
um það á Laugaveg 29.
Tapazt hefur fyrir hálfum mánuði úr
portinu hjá Gunnari kaupm. Gunnarssyni
b ö g g u 11 með karlmannsfatnaði í og dá-
litlu af riklingi m. fl. Finnandi skili böggl-
inum annaðhvort til Þórðar Halldórssonar
á Höfða í Biskupslungum eða að Nýjabæ
á Grímsstaðaholti við Reykjavík gegn sann-
gjörnum fundarlaunum.
Steingrímur Matthíasson
settur héraðslæknir
býr á Amtmannsstíg nr. 1 (hús Guðm.
Björnssonar læknis). Heima daglega
kl. 2—3.
Þóra Matthíasdóttir
(Lækjargötu nr. 12 A) tekur að sér
að kenna stúlkum kjólasaum og hvíta
bróderingu frá 10. október.
Reykjavík, 22. september 1905.
Sturla Jónsson. KI. Jönsson (eptir umboði). Björn Ólafsson. Asgeir Sigurðsson.
Sigurður Briem. Kristján Þorgrímsson. Friðrik Jónsson.
Hannes S. Hanson. Sigfús Eymundsson.
Nýkomið
til L.gG. LliðvÍ0SSOnar mikið úrval af
Skófatnaði.
T. d. karlm.stígvél handsaumuð, 3 teg. Karlm.skór úr Boxcalf, Hestal., Spalt,
mjög ódýr. Karlm.skór margar teg.
Yerkmannastígvélin góðkunnu.
Verkmannaskór afarsterkir. Kvennskór og stígvél af ótal teg. Galoscher.
Lei kfimisskór, 2 nýjar teg.
fyrir börn og fullorðna.
Hússkór mjög léttir. Barnaskófatnaður allsk. Sérstaklega skal bent á hin
vatnsheldu og sterku
„Skólastígvéi“.
Festið ekki kaup á skófatnaði, áður en þér hafið komið ti!
Lárusar G. Lúðvígssonar
Ingólfsstræti 3.
Karl Einarsson
cand. juris
Ingólfstr. 18. Reykjavik
gefur allar upplýsingar lögfræðislegs
efnis, gjörir samninga, selur og kaupir
jarðir hús og lóðir um alt land, inn-
heimtir skuldir, flytur mál nú þegar
fyrir undirréttum landsins og fyrir
landsyfirdómi frá því hin nýju lög um
málaflutningsmenn við landsyfirdóminn
bðlast gildi.
Heima kl. io—n f. m. 3—4 og 61/2
—7V2 e. h.
Iðnskólinn.
Þeir sem ætla að sækja skólann í vetur
snúi sér til Jóns Þorlákssonar, Lækjar-
götu 12. B. (heima kl. 7—8 síðdegis),
fyrir 1. október.
Skólanefndin.
Til fjárkaupmanna í Rvík.
Þriðjudaginn 3. október fæst fé
keypt í Fljótshlíðarréttum.
í umboði margra sveitunga minna.
Barkarstöðum 22. sept. 1905.
Tómas Sigurðsson.
2. ágæt þilskip
eru til sölu fyrir mjög gott verð, og
þægilega borgunarskilmála, hjá Þor-
steini Þorsteinssyni á Lindargötu 25.
Rvík.
Langbezta
Cementið
sem hægt er að fá, er nú aptur kom
ið til Þorsteins Þorsteinssonar Lindar-
götu 25. Rvík.
Nýja búðin
í Lindargötu 25
selur allskonar nauðsynjavörur með
mjög lágu verði eptir gæðum. Gerið
svo vel og líta inn og skoða, því eng-
inn fer tómhentur út.
Virðingarfyllst
Þorsteinn Þorsteinsson.
Aðalfundur í Sögufélaginu
verður haldinn í Bárubúð annað kvöld
(laugardaginn 30. sept.) kl. 8V2 e. h.
Lagðir fram reikningar félagsins. Kos-
inn einn maður í stjórn. Rætt um
framkvæmdir félagsins eptirleiði.s Á-
ríðandi að sem flestir félagsmenn sæki
fundinn.
Ókeypis lækning á gl. spít-
alanum í okt. og eptirleiðis kl. 11 —12
f. m. þriðjudag og föstudag
Likkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn 9. okt. næstkomandi á
hádegi verður skipið »Fram«,sem nú
stendur á dráttarbraut slipfélagsins
hér í bænum, eign Guðjóns Ktuitssonar
skipstjóra ofl., boðið upp og selt við
opinbért uppboð eptir beiðni nefnds
félags.
Uppboðsskilmálar verða birtir á
undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
28 sept. 1905.
Halldór Danielsson.
Yfirlít
yfir
hag íslandsbanka 31. ágúst 1905.
Acti va:
Kr. a.
Málmforði.....................421,500,00
4% fasteignaveðskuldabréf . 42,900,00
Handveðslán...................304,824,84
Lán gegn veði og sjálfskuldar-
ábyrgð...................1,276,956,38
Víxlar........................575,840,83
Verðbréf......................187,500,00
Erlend mynt o. fi................ 568,15
Inventarium....................51,156,27
Byggingarkonto.................39,744,70
Kostnaðarkonto.................51,677,96
Útbú bankans..................893,092,82
í sjóði........................ 7,886,49
Samtals 3,853,648,44
Passiva:
Kr. a
Hlutafé bankans.............2,000,000,00
Utgefnir seðlar í veltu . . 803,000,00
Innstæðufé á dálk og með
innlánskjörum .... 313,132,67
Vextir, disconto o. íi. . . 142,345,87
Erlendir bankar ogýmsiraðr-
ir kreditorar............595,169,90
Samtals 3,853,648,44
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þor stei nsson.
Prentsmiðja Þjóðólfs.