Þjóðólfur - 15.12.1905, Side 2
220
ÞJOÐÖLFUR.
Lakast er, að það getur dregizt svo
lerigi, að þetta höfðingjakyn, þessir frum-
herjar frelsisins verði alls ráðandi á sjó
og landi hér hjá oss. Það getur meira
að segja dregist til 1911, og engi; líkara
en að svo verði. Munu þeir þá hásir
orðnir er hæst hrópa nú, og ættu þeir
því að spara hljóðin. Annars er hætt við,
að þeir verði alveg búnir að rífa sig fyr-
ir þann tíma.
En mikið má land vort vera þakklátt
forsjóninni, að eiga slíka dýrðarmenn til
að taka við stjórnvölnum, þá er þessi
óhæfi ráðherra, sem nú er, hrapar ur
sæti. Það er lakast, að þá verður ekki
jafnframt hægt að sópa burtu öllu þessu
fávísa stjórnarráði, þessum fáráðum, sem
það skipa: landritaranum, skrifstofustjór-
unum og skrifurunum, að ekki verður
unt að hreinsa stjórnarstallinn gersam-
gera a honum »generalþvott« hátt
og lágt, svo að þar verði ekkert eptir
nema Indriði einn. En til þess að allt
verði þar sópað og prýtt á þann hátt,
sem nýja valdstjórnin mundi óska yrði
hún að taka landssjóði drjúgum blóð,
enda mundi hana ekki flökra við því.
Samt er hætt við, að hún heykist á þeirri
hreinsuninni, og verði að láta sér nægja
að setja nýja bót á gamalt fat, skinna
stjórnarráðið upp með nýjum ráðherra,
nýju fyrirtaks Mímishöfði, sem Valtýing-
ar þykjast hafa í fórum sínum, þótt eng-
ir aðrir viti, hvar þess er að leita meðal
þeirra.
Það kvað standa dálítið í þeim, að
svara þvf, er þeir eru spurðir, hver á-
gætismaður það sé, sem þeirætli að setja
í stað H. Hafsteins, því að það verður
að vera einhver, sem honum er fremri og
færari 1 öllu að almenningsdómi. Þjóðin
vill ekki fá einhvern og einhvern labba-
kút í stað H. H. Það mega Valtýingar
reiða sig á. En hvern hafa þeirþjóðinni
boðlegan?
Alls engan, þótt þeir leiti með logandi
Ijósi. Valtýr, Jón, Kristján, Skúli, o. s.
frv., alltsaman nöfn, sem ekki gilda
grænan tvískilding hjá þjóðinni.
Og þess vegna spyrja menn aptur og
aptur:
Hvar er maðurinn, þessi fyrirmyndar-
ráðherra og stjórnspekingur Valtýinga, sem
öllu á að kippa í lag, svo að hvergi sjá-
íst blettur né hrukka, maðurinn, sem á að
frelsa landið úr járnklóm Dana, og mynda
nýtt og glæsilegt tímabil í sögu hinnar
íslenzku þjóðar? Þá kvað verða ár og
friður í landinu segja Valtýingar, þessar
þjóðræknu þjóðræðishetjur, sem af ein-
tómri ósérplægni og föðurlandsást hafa
með aðdáanlegri hógværð og stillingu verið
að kenna heimastjórninni, hvernig hún
ætti að haga sér, þessar sömu hetjur,
sem hafa leitast við að efla vald og
virðingu fulltrúaþings þjóðarinnar, með
því að spana gegn því ómenntaðan bæj-
arskríl og óþroskaða unglinga, og ætlast
til þess, að hróp þeirra nægi til þeess,
að þingið verði rofið alveg að ástæðu-
lausu, í veikri von um, að hinn fáliðaði
og lélega skipaði valtýski þingflokkur
fengi einhverja ofurlitla viðbóf af sama
súrdeiginu.
En sem betur fer er þjóðin ekki svo
skyni skroppin, að hún sjái ekki, að svo
ábótavant, sem heimastjórninni kann að
vera, þá yrði valtýsk stjórn öldungts ó-
hæfileg, öldungis óþolandi.
Landinu hefur hingað tii viljað það til
hamingju, að aðrir eins kumpánar og
þjóðræðisgeneralinn og flokkur hans,
hvaða nafni sem hann hefur heitið, hafa
stöðugt legið undir í baráttunni, þegar tii
skarar heíur skriðið. Og svo mun enn
verða, ef þjóðin getur haldið dómgreind
sinni og skynsemi óbrjálaðri og óspilltri.
Heidrekur.
Auglýsing,
Hann Þorsteinn karlinn í Bakkabúð,
Bakkabúð, Bakkabúð
stendur sveittur við borð í búð
og byltir um jólavörum.
Því komið, sjaið og kaupið hér,
það kann ei finnast sem betra er,
þar allt er til sem að óskið þér —
með inndælustu —7 kjörum.
Sölubúðin á bakkanum,
bakkanum, bakkanum,
þar bjart er inni af ljósunum
og býsnin öll til að sýna.
Það eina sem að eg ekki’ hef enn,
ef eignast vildu það konur og menn,
það glingur nefnist, eg næ því senn
— svo nafni minn verður að hrfna.
Eg „konkúrrera" við nafna minn,
nafna minn, nafna minn,
í nýjum krapti með varninginn,
eg „nok" skal magasín gera.
Eg sel með prísum sem enginn hér,
að eptir leika þeir treysta sér,
og samt eg græði — og geymi mér —
já, gott er að „spekúlera".
Hið bætta seyði. Hér með vott-
ast, að sá Elixír, sem nú er farið að
búa til, er töluvert sterkari, og þó að
eg væri vel ánægður með hina fyrri
vöru yðar, vildi eg samt heldur borga
hina nýju tvöföldu verði, með því að
lækningakraptur hennar hefur langtum
fljótari áhrif og eg var eptir faa daga
eins og nýr maður.
Svenstrup, Skáni.
V. Eggertson.
Meltingarörðugleikar. Þó að
eg hafi ávalt verið sérstaklega ánægður
með yðar alkunna Elixfr, verð eg samt
að kunngjöra yður, að eg tek hið
bætta seyði fram yfir, með því að
það fiefur mikið fljótari áhrif við melt-
ingarörðugleika og virðist langtum
nytsamara. Eg hef reynt margs
konar bittera og lyf við magaveiki,
en þekkti ekkert meðal, sem hefur
jafn-mikil ahrif og þægileg og kann
því þeim, sem hefur fundið það upp,
mínar beztu þakkir.
Fodbyskóla, Virðingarfyllst
J. Jensen kennari.
KÍNA-LÍFS- ELIXÍR er því að eins
ekta, að á einkunnarmiðanum standi
vörumerkið: Kínverji með glas í hendi
og nafn verksmiðjueigandans: Valde-
mar Petersen, Fredreikshavn —
Köbenhavn, og sömul. innsiglið pP'
í grænu lakki á flöskustútnum. Hafið
ávalt eina flösku við hendina, bæði
innan og utan heimilis. Fæst hvar-
vetna fyrir 2 kr. flaskan.
Eg, Filippus Ámundason á Bjólu,
gjöri kunnugt, að umboð það, er faðir
minn Ámundi Filippusson bóndi á
Bjólu lét mér í té fyrir nokkrum árum,
er honum aftur í hendur fengið. Og
hefur hann því fullkomin yfirráð yfir
eigum sínum, bæði föstum og lausum,
eins og áður var.
Staddur í Reykjavík 12. nóv. 1905.
Filppus Ámundason
(frá Bjólu).
Vitundarvottar:
Gud/óti Einarsson.
Ste/án Þórðarson.
Uppboðsauglýsing.
Mánudagana 2 og 26. marz og 9.
apríl 1906 kl. 12 á hádegi verður við
opinber uppboð selt 4V4 hundr. f. m.
í Hvítanesi í Ögurhreppi og íbúðar-
hús þar, tilheyrandi þrotabúi Ásgeirs
Einarssonar frá Hvítanesi. Tvö fyrri
uppboðin verða haldin á skrifstofunni
en hið síðasta á Hvítanesi.
Uppboðsskilmálar verða til sýnis á
skrifstofunni degi fyrir hvert uppboð.
Skrifstofu ísafjarðarsýslu,
IO. nóvember 1905,
Magnús Torfason.
,Syltetau‘ Rosiner, Korender
Sveskjur, Ftkjur, Gonfect.
Consum Chocolade
íGalle & Jessen).
Cítronolla, gerpúlver.
%
Agætt hveiti í
„Li verpool‘‘.
Spil, Kertí stór og smá
ódýrust í ,Liverpool‘
Halldór Daníelsson
bæjarfógeti í Reykjavík
Gerir kunnugt: að mér hefur tjáð
Jón Jónsson skipstjóri hér í bænum,
að hann sé neyddur til, samkvæmt
konunglegu leyfisbréfi, er hann hefur
til þess fengið, dags í dag, að fá ónýt-
ingardóm á skuldabréfi, að upphæð
85 krónur, er Jóhar.nes Benediktsson
hefur gefið út 15. janúar 1894 til handa
Jóni kaupmanni Þórðarsyni í Reykja-
vík, með veði í húseigninni Miðhús-
um hér í bænum, þinglesnu 25. s. m.
en skuldabréf þetta hefur glatazt eptir
að það var innleyst, en án þess að
vera afmáð úr veðmalabókinni.
Fyrir því stefnist hér með, með
árs og dags fresti þeim, sem kynni
að hafa ofangreint skuldabréf í hönd-
um til þess að mæta á bæjarþingi
Reykjavíkur kaupstaðar fyrsta réttar-
dag (fimmtudag) í marzmánuði 1907
á venjulegum stað (bæjarþingstofunni)
og stundu (kl. 10 árd.) eða á þeim
stað og stundu, sem bæjarþingið verð-
ur þá haldið til að koma fram með
skuldabréfið og sanna heimild sína til
þess, með því að stefnandi mun, ef
enginn kemur fram með það innan
þess tíma, kréfjast þess, að téð skulda-
bréf verði ónýtt með dómi.
Til staðfestu nafn mitt og em-
bættisinnsigli.
Reykjavík II. desember 1905
Halldór Danielsson.
Valí og himbrima.
Vel skotna fugla einkum vali og
himbrima kaupa undirritaðirháu
verði.
Daníe.1 Bernhðft. Vilhelm Bernh'óft.
Jörðin Stafnes í Miðneshreppi get-
ur fengist til ábúðar frá næstu fardögum.
Hún er 12 hundr. að dýrleika eptir nýju
mati, gefur af sér í meðalári um 200
hesta af töðu, er mjög notasæl til ábúð-
ar, hefur mjög mikla þangtekju til eldi-
viðár, nægt beitutak af maðki og skel,
er mjög rekasæl af trjávið, útræði ágætt,
getur verið selveiði til muna og næg hag-
beit fyrlr fénað, eptir því sem gerist í því
plássi. Um ábúðina má semja við undir-
skrifaða, sem er eigandi jarðarinnar,
Stafnesi 20. nóvember 1905.
Helga G. Eyvindsdóttir.
Kartoflur
2 tegundir, ódýrastar í verzlun
Sturlu Jónssonar.
A 1 1 I y* sem Þekkja
jV 1111 til kaupa helzt í
verzlun
Björns Þórðarsonar
á Laugaveg 20. B.
Bezt kaup
á
Sköfatnaði
í
Aðalstræti 10.
síðasta gufuskipi fékk eg
miklar birgðir af hinu
viðurkennda
Mustads norska
smjörliki,
er fæst í lausasölu í I punds stykkj-
um og í litlum io punda kössum.
Jón Þórðarson.
SAMKOMUHÚSIÐ BETEL við
Ingólfsstræti og Spítalastfg.
Sanikomur verða haldnar framvegis eins
og hér segir:
Sunnudaga: Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
K1 6V2 e. h. Eyrir/estuf.
Miðvikudaga'. Kl. 8 e. h. Biblíusamtal.
Laugardaga: kl. n f. h. Bænasamkoma
og bibliulestur—Kirkjusálmasöngsbókin verð-
ur viðhöfð. Allir velkomnir á samkomurnar.
Vinsamlegast D. Östlund.
Likkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Kartöflur
góðar og ódýrar í
Liverpool.
M EÐ þvf að þessi viðskiptabók
við sparisjóðsdeild landsbankans í
Reykjavík er sögð glötuð
Nr. 10674 — (Æ. bls. 399)
stefnist hér með samkvæmt 10. gr.
laga um stofnun landsbanka í Reykjavík
18. sept. 1885, handhafa téðrar bókar
með sex mánaða fyrirvara til þess að
segja til sín.
Landsbankinn í Reykjavík,
23. nóvember 1905.
Eiríkur Briem.
Rammalistar
fást beztir og ódýrastir í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Leikfél, Rvíkur
Ieikur
Joliii Storm
sunnudaginn 17. des. 1905
kl. 8 síðd. í Iðnaðarmanna-
húsinu.
IP^ Að eíns í þetta
eina sinn a þessum
vetri.
Tekið á möti pöntunum
á aðgöngumiðum í af-
greiðslustofu ísafoidar.