Þjóðólfur - 09.03.1906, Blaðsíða 1
58, árg.
Reykjavík, föstudaginn 9. marz 19 06.
10.
Verziun sturlu Jónssonar
er flutt á Laugaveg.
verzi. EDINBORGíReykjavík
hefur með s/s „Hólar" fengið allmtklar^birgðir af nauðsynjavörum og ýmsu,
er til útgerðar heyrlr. Einnig ávexti í dÓSUm, mjög margar tegundir.
Allskonar brauð. Allskonar kryddvörur
Ennfremur ávexti svo sem epli, appðisinup, bananas, vín-
bur, SÍtl*Önur O. fl. — Svínslseri reykt eru komin aptur, þau eru
bezt og ódýrust í
Edinborg.
Sjömenn!
Lítid á s j ófötin í, Liverpool‘
Þar er stórt úrval af góðum og ódýrum sjófatnaði, bæði á full-
orðna og unglinga. Einnig ýmsar tegundir af
Sjóstígvélum
t. d. mjög hlý vetrarstígvél, fóðruð að innan með loðnu skinni.
Allskonar VÖrur, er sjómenn þurfa með út á sjóinn, fást ávallt í
,Liverpoor.
Þýðingar
H- Heine: Buch der Lieder.
Die Heimkehr.
Eins og brjótist bjartur máninn
bólstra undan dökkum hramm,
þannig rís úr rökkri tlmans
tósfríð mynd í huga fram.
Siglu hjá vjer sitjum frammi
á sigling glæstri ofan Rín,
til beggja handa bikkinn græni
í baði aptansólar skín.
Hugsi þar jeg hefi sæti
hýrrar konu fótum að,
á hið fríða, föla andlit
fellur sólar geislabað.
Hörpur gullu, sveinar sungu,
sólheið gleði ríkti þar,
himintjaldið hvelfdist blárra,
hærra og rýmra í sálu var.
Háls og skógi, höll og engi
hjá oss sem í skuggsjá brá,
og undrin þessi öll jeg speglast
í auga frfðrar konu sa.
L. H. B.
Erlend tíðindi.
[Eptir Marconi-skeytum 5. og 8. þ. m.].
s/3 Frétst hefur um óttalegt slys í Nor-
egi- Á föstudaginn (2. þ. m.) skall á á-
kaflega mikið ofsaveður, meðan fiskiflot-
inn lá úti fyrir ströndinni og við nálægar
eyjar (í Lófót). Tólf hundruð manns voru
á sjó og fólk er ákaflega hrætt um þá.
Hinir fáu, sem fram eru komnir, segjast
hafa séð marga báta á hvolfi.
Loptskeyti ígærkveldi minnist allsekkert
frekar á þetta, svo að sennilegt er, að
manntjónið hafi ekki orðið geysimikið.
5/3 Skýrt var frá því í öldungadeild
þingsins í Washington, að hermálaráða-
neytið væri reiðubúið að senda 25,000
hermanna til Rína, með eins dags fyrir-
vara, að meðtöldum þeim 5,000, sem þeg-
ar eru komnir til Filippseyja.
%h Hale þingmaður í öldungadeildinni
hefur harðlega vítt hermálaráðaneytið fyrir
liðs samdrátt á Filippseyjum og sagði, að
það væri sama sem að segja Kína stríð á
hendur.
8/3 Kínverska stjórnin hefur skýrt
japönsku stjórninni frá, að hún hafi tekið
fyrir kverkar uppreisninni í fæðingunni,
með því að taka höndum alla höfuðleið-
toga byltingarflokkanna.
5/3 Sagt er að Játvarður konungur ætli
innan skamms að finna Vilhjálm keisara
að máli, og er mælt, að þeir muni að lík-
indum hittast úti á skipi, og muni það
helzt verða í Miðjarðarhafinu.
8h Játvarður konungur kominn til
Biarritz.
5/3 I almennu samsæti í New-York vakti
það mikinn fögnuð, er japanski yfirkon-
súllinn stakk upp á því, að Ameríka ætti
að ganga í ensk-japanska sambandið og
mynda þannig þrívelda sambandið : Stóra-
Bretland, Bandaríkin og Japan.
5/3 Málsókn er hafin í Tokio gegn ýms-
um nafnkenndum stjórnmálamönnum fyrir
uppreisnar-tilraunir í sambandi við friðar-
skilmálana (við Rússland).
sh Pierpont Morgan (auðmannakong-
urinn ameríski) hefur keypt safn Rosebery
lávarðar af handritum Burn’s fyrir 50,000
dollara (um 185,000 kr.).
sh Stórkostleg rán og morð á almanna-
færi halda enn áfram víðsvegar á Rúss-
landi; lögreglan er lömuð af ótta.
Stjórnarbótarafmæli,
Af Akureyri er skrifað 15. f. m.
Hér var talsvert um að vera þ. 1. febr.
síðastl. — Heimastjórnarmenn efndu til
almennrar samkomu í leikhúsi bæjarins.
— Voru þar haldnar fjórar ræður og
söng »Hekla« á milli. Fyrst mælti Hjalta-
lfn skólastjóri fyrir minni konungs, þá
sýstum. fyrir minni íslands, þl M. Krist-
jánsson alþm. fyrir minni stjórnarinnar og
loks Frb. Steinsson dbrm. fyrir minni
Akureyrarkaupstaðar. -— »Norðri« hefur
flutt ágrip af þessum ræðum, og þarf þvi
ekki að gera það hér. — Um kvöldið
héldu heimastjórnarmenn fjölmennt sam-
sæti hjá Boga veitingam. Daníelssyni, átu,
drukku og voru glaðit, og fór samsætið
hið bezta fram. Undir borðum voru ræðu-
höld nokkur. Fyrst hélt kaupmaður M.
B. Blöndal ræðu fyrir minni ráðherrans,
kaupm. E. Laxdal fyrir minni eyfirzkra
kjósenda, Stefán bóndi Bergsson á Þverá
fyrir minni sýslum. f Eyjafjarðarsýs'u,
M. Kristjánsson alþm, fyrir minni bæjar-
fógetons á Akureyri, Guðl. sýshtm. Guð-
mundsson mælti fyrir minni landritara,
Björn Jónsson prentari fj'rir minni alþing-
is, Carl Schiöth verzlunurstj. fyrir minni
skólastjóra J. A. Hjaltalín og margar fleiri
ræður voru þar haldnar, svo ekki þurfti
þar að kvarta utn deyfð eða drunga, og
sátu menn þar að fagnaðinum langt fram
á nótt, Þenna dag munu heimastjórnar-
mennn hér hafa komið föstu formi á fé-
lagsskap þann, er þeir hafa myndað hér
með sér, til þess að veita viðnám þeim
árásum á þing og stjórn, sem þjóðræðis-
höfðingjarnir veita svo óspart með sögu
uppspuna, rógi og hvers kyns öðrum ó-
vöndum meðulum. En vonandi er að
uppskera þeirra höfðingja svari til sáning-
arinnar.
Þetta sama kvöld hélt þjóðræðisfélagið
»Skjaldborg« allmikla samkomu á »Hotel
Akureyri« upp á vatn og brauð, nei —
smjör og hrauð ætlaði eg að segja. —
Mikið hafði verið þar um ræðuhöld, en
fátt pólitískt, netna hvað læknarnir höfðu
eitthvað verið að minnast á »ultra«-land-
vörn, sem nú er orðið það eina, sem þeim
þvkirframbærilegt aföllum »prógrömmun-
tim«, sem þeir sameinuðu hafa haft á boðstól-
um handa fólkinu og er nú ósleitilega að því
unnið, að koma þeirri flugu inn í höfuð
fólksins, hver sem árangurinn kann nú
að verða.
OullfélagiO
»Málmur“ tekur til starfa f þ. m., því að
nú er bráðlega von á æfðum manni til
að bora eptir gulli á 3—4 stöðum hér f
Eskihlíðarmýrinni. Hlutaféð, sem félagið
byrjar með. að upphæð 100,000 kr., hefur
allt verið tekið af bæjarbútim. Það sem
á vantaði, er fresturinn var liðinn, tóku
stjórnendiirnir sjálfir og eiga því lang-
drýgsta skerfinn í fyrirtækinu. En fiöldi
manna hefur tekið aðeins 1—2 lilutabréf
(hvert á 50 kr.), svo að hluttakan hefur
verið allalmenn.
Enn um þjóðræðís-farganið.
Hugvekja úr Skagafirði.
1.
Vesall maðr, og illa skapi,
hlaer at hvívetna;
hitki hann veit, er hann vita þyrfti,
at hann era vamma vanr.
Hávamál.
I 14. tölubl. Norðurlands þ. á. er
greinarkorn eptir Skagfirðing. Þessi herra
ræðst þar á þá Skagfirðinga, sem lýstu 1
Þjóðólfi 22. sept. s. 1. undirskriptasmöl-
uninni í Skagafirði, sem valtýsku höfð-
ingjarnir gengust fyrir.
Grein þessi er í sjálfu sér ekki þess
verð, að svara henni, vegna ósanninda
og rangfærslu, sem hún flytur. Þrátt fyr-
ir það getur höfundurinn verið viðtals
verður, þó ekki vegna þess, að hann sé
merkur, fremur en aðrir, sem bera róg
og spillandi orð á tnilli þeirra manna,
sem saman hljóta að lifa.
Þessi greinarhöfttndur segir, að Skag-
firðingar þeir, sem skrifuðu um undir-
skriptasmölunina, »og aðrir stjórnarliðar«,
skoði íslenzku bændurna eins og naut
og sauði. Þetta er, eins og annað í um-
ræddri ritsmfð, — ósannindi. En þetta
hefir höfðingi þessi gert sjálfur, og hans
fylgifiskar. Það er öllum kunnugt, að
blaðið »Noiðurland« varstofnaðaf valtýska
flokkknum hér á Norðurlandi til þess að
vera málgagn hans. Enda mátti svo
heita, að það byrjaði göngu sína með
því, að svívirða íslenzku alþýðuna, og þá
ekki sízt bændurna, sem eru hin eigin-
lega alþýða. Eða, hvað lýsir meiri sví-
virðingu og fyrirlitningu fyrir íslenzkri al-
þýðu, en þegar »Norðurland« flytur það,
»fyrir munn sinna spámanna« :
a ð íslenzktt alþýðuna vanti ekki nema
fjöldann til þess að vera jöfn skrílnum í
stórborgum erlendis,
a ð íslenzk alþýða sé eigi betur að sér
en tyrknesk alþýða,
a ð íslenzka alþýðan sé eins og sauð-
fé, sem dregið er á hornunum, og svo er
margt fleira, sem þetta valtýska blað hefir
flutt fslenzkri alþýðu til óvirðingar, er
önnur heiðvirð íslenzk dagblöð hafa hrak-
ið. Þeim, sem skrifuðu um undirskripta-
smöiunina í Skagafirði í sumar, hefir ekki
þótt það nema eðlilegt, að bændum væru
ókunn þau mál, sem þá var um að ræða,
nefnil. undirskripta- og ritsfmamálið, þar
sem þingið sjálft, sem öll skjöl hafði,
þeim viðvfkjandi, þurfti að leggja þau í
nefnd, til þess að gera sér þau fullljós.
En smalarnir höfðu umsögn ísafoldar-
Bjarnar um málin, og gerðu allt, sem
þeir gátu til þess að sannfæra rnenn um
það, að það, sem þeir segðtt, væri heil-
agur sannleiktir, eða það eina rétta. Svo
var annað, sem einnig hafði áhrif á það,
hvað smalaðist af undirskriptum, sem var,
að farið var til fleiri, en þeirra, sem