Þjóðólfur - 02.11.1906, Side 1

Þjóðólfur - 02.11.1906, Side 1
58. árg. Reykjavík, föstudaginn 2. nóvember 1906 Xs 48. Hjónin frá Skúmsstöðum. t 1905. Hníginn er hlynur, hölda kjörvinur rymur rjúkandi Rán á brimsandi. felur hafflæði fegurst bústæði, drótt í Landeyjum er 1 dauðateygjum. Gjalli hrynhættir hljóði bjargvættir: sá varð hér mestur héraðs herbrestur síðan úr eldi * á æfikveldi námu ijauð stóra Njáll og Bergþóra. Hvar á Islandi óðals í standi mildingur betri bjó á stórsetri? hvar var húsfreyja meðal héraðs meyja fremri Ragnhildi að rausn og mildi ? Var það með sanni_ sagt í þeim ranni hver maður fyndi hvers kyns lífs yndi: auð og allsnægðir allar búshægðir, hjartans huggæði, héraðs bjargræði. Svo bar Sigurður — svarar hver spurður — af flestum höldum þótt hrósi völdum: sem kostalaukur, sem konungs haukur, og hetjur herkunnar : Héðinn, Njáll og Gunnar. Hvað marga söddu? Hvað marga glöddu laukurinn lýða og lofn hin fríða? Hvílík heims gæði gáfu þau bæði hjónin frábæru hnigin með æru. — Þau eru gengin, það bætir enginn. Helltu holbárum af hryggðartárum, Gýmir stormglaði! grafðu Skúmstaði I Þau eru gengin, það bætir enginn. Elskaði vinur — andi minn stynur — hjartkæra kveðju haf þú með beðju! — Hvað er að láta ? hvað er að gráta? Fellur á að ósi, andinn fagnar ljósi. Matth. Jochumsson. I skólabyrjun. ÁMonar Lampar og Amplar. Glæsilegasta úrval í ícirvöru- og Járnvöruóailóinni í Cóinöorg. Margbreyttustu og beztu búshlutir úr járni og leir. Blikk- og pjátur- VÖrur af öllum tegundum. Allskonar hluti úr járni, blikki, leir og tré til þæginda, gagns og prýði í eldhúsi og búri, segja allar húsmæður að sjálf- sagt sé að kaupa í Edinborg. Eitt stærsta og útbreiddasta blað Chicago- borgar, birti nú í haust ritstjórnargreiu þá, er hér fer á eptir. Hef eg þýtt hana fyrir »Þjóðólf« til birtingar, ef vera kynni að foreldrar og kennarar heima á Is- landi gætu fært sér i nyt eitthvað af þeim sannindum, er hún færir lesaranum. Og ennfremur vegna þess, að alþýðuskóla- kennsla í Vesturheimi er almennt álitin að vera praktiskari og lengra á veg kom- in, en í nokkurri a,nnari álfu. I. Til foreldra. Skólaárið er að byrja, sá tími fer í hönd, sem á að verða einn undirstöðusteinninn í framtíð hinna ungu, ein trappa i þeim stiga, er geti lypt þeim upp á við, einn áfangi á leið þeirra til menningar. Það er alvarlegur tími, sem fer í hönd, alvarlegur fyrir börnin sjálf eða ungling- ana, alvarlegur fyrir foreldrana, alvarlegur fyrir hvern hugsandi einstakling, alvar- legur fyrir þjóðina í heild sinni. Það er ekki nóg að eiga stór og skraut- leg skólahús, það er ekki nóg að eiga dýrar og góðar bækur, það er ekki nóg að eyða ákveðinni áratölu á skólabekkj- unum. Nei, heldur það, hvernig öll mennt- un alþýðuskóla vorra er færð sér í nyf. Vér þekkjum börn, pilta og stúlkur, vel af guði gerð, sem hanga 1 skóla nokkur ár, lfta sjaldan í bók, hafa hugann optast fastan við áflog og glettur hvort við ann- að, eða eitthvað því um líkt. Vérþekkj- um börn, sem hafa gaman af að standa uppi í hári kennaranna og gera þeim allt sem erfiðast og óþægilegast; já, vér þekkj- um börn, sem telja það frægð og þykjast af því, ef þau geta reitt kennara sinn til reiði og fer.gið önnur börn til þess að gera hið sama. Hvers er svo að vænta af þeim ung- lingum, sem þannig eyða skólaárum sín- um? Er það líklegt að þeir afli sér þess dýrmæta fjársjóðs, sem ætlazt er til að menntunin veiti þeim, sern ganga á veg- um hennar? Er það líklegt, að þeir verði uppbyggilegir limir þjóðfélagsins, þegar tímar líða? Er það líklegt, að þeirlauni þjóð og landi uppeldi sitt með nytsömum störfum, heilbrigðnm hugsunum og sið- fáguðu líferni ? Er það llklegt, að þeir verði hæfir menn til þess að taka við stjórnartaumum þessa lands, og halda öllu í réttu horfi? Er það iíklegt, að þeir verði sjálfum sér til sóma og öðrum til fyrirmyndar? Þessar spurningar þarfnast ekki svars; það má nálega svo að orði komast, að þær svari sér sjálfar. Sá sem engu sáir að vori, getur engrar uppskeru vænzt að hausti; það eru þau órjúfaniegu lög, sem náttúran fylgir hvarvetna, ekki einu sinni í garðrækt og jarðrækt, heldur einnig á því andlega svæði, sem táknar líf og til- veru hverrar þjóðar og hvers einstaklings. En heiðraði lesari! Það er ekki nóg að benda á sjúkdóminn, án þess að benda um leið á meðalið, og það er ekki hyggi- legt að ákveða meðalið, fyr en fundist hefur rót sjúkdómsins. Þessi veiki, sem hér hefur verið bent á, nefnilega léttúð nemendanna, á að miklu leyti upptök sín í skeytingarleysi foreldranna. Dúfa kemur aldrei úr hrafnseggi; siðprúð börn og námftis koma sjaldan eða aldrei frá afskiptalausum og andlega sofandi for- eldrum. Börnin hafa ekki nógu þroskað- an heila til þess að skilja fullkomlega alla þá baráttu, allt það stríð, öll þau óþægindi, alla þá reynslu, alla þá sjálfs- afneitun, sem hver alþýðuskólakennari verður að þola; hugsun barnsins er að mestu leyti bundin við það sjálft, eigin þægindi þess sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru; tillit til annara er þar sjaldan á háu stigi. Eigingirnin — sem í sjálfu sér er ekkert annað en sjálfsvarnar lífsskil- yrði — er einn fyrsti eiginlegleikinn, sem nokkuð ber á hjá öllu, sem lífsanda dreg- ur; og áður en önnur æðri mannleg öfl koma því til að vinna á móti ofvexti eig- ingirninnar, má svo segja, að hún sé ein- völd drottning í huga barnsins. En aptur á móti eru eiginlegleikar barnanna þann- ig, að þeir verða sveigðir og beygðirým- ist í réttar áttir eða rangar. Þess vegna er hægast að lagfæra það sem skakkt er í sálu barnsins og hugarfari þess, meðan það er ungt, lagfæra meðan stofninn er nógu ungur og nógu meðtækilegur fyrir hið háleita, hið guðdómlega, hið kristi- lega; þá, meðan barnið er ungt og sál þess er saklaus, á það hægast með að skilja frelsara sinn og fylgja honum, ganga undir merki kærleikans, trúarinnar og vonarinnar. Rótin að þessum hættulega sjúkdómi, er vér bentum á, verður því að voru áliti skeytingarleysi foreldranna, og meðalið við honum er alvarlegt vak- andi auga foreldranna á börnum sínum. Vér þekkjum foreldra, sem hlæja að þvf, þegar börnin þeirra segja frá ein- hverju, er þau hafa gert kennara sínum til kvalar, foreldra, sem þykjast af því, að hann sonur sinn eða hún dóttir sín hafi staðið fremst í flokki f einhverjum mótþróa og jafnvel ókurteisi gagnvart kennaranum. Foreldrar, sem eru slíku marki brenndir, vita sannarlega ekki hvað þeir eru að gera; eða af þeir vita það, þá ættu þeir ekki vægari hegningu skilið en hver ann- ar glæpamaður. En vér fullyrðum, að þetta er venjulegast ( hugsunarleysi gert, það er þeirra eina afsökun, ef afsökun skyldi kalla. — Þér foreldrar! Hugsið þér að eins stutta stund um stöðu kenn- aranna, setjið ykkur sem snöggvast í þeirra spor. Til þeirra er safnað börnum á öllu reki, með allskonar eiginlegleikum og uppeldi, og frá allskonar siðum. Þeir verða að hafa vakandi auga á öllum þessum »mislita« hóp, þeir verða að sam- eina þá hæfileika og þær lyndiseinkunnir, sem til þess þarf að vera bæði strangur siðameistari, réttlátur dómari og ástríkt foreldri. Kennarastaðan er einhver virðingar- verðasta staða, sem til er í mannfélaginu; hlutverk kennarans er ekki einungis það, að kenna lestur og skript, landafræði og sögu o. s. frv., nei, kennarinn finnur einnig skyldu sína til þess, að hefla þannig og fága hvern einasta nemanda, að hann beri mark skólans og kennslunnar til dauðans. Þegar svo þess er gætt, að kennarastaðan yfir höfuð er tiltölulega ver launuð en allt annað, og ennfremur ef það er athugað, að vanþakklæti er nokkurskonar aukalaun, sem stöðunni fylgja, þá má það vera samvizkulaust for- eldri, sem með fullri hugsun þyngir þá byrði, sem kennaranum er lögð á herðar, fyrir utan það, að eptirlitsleysi foreldr- anna á skólaárum barnanna di'egur jafnan þann dilk á eptir sér, sem kemur þeim á kaldan klaka. Foreldrar og skólakennarar ættu að taka höndum saman ; foreldrarnir ættu að hafa heimili sitt eins og undirbúningsskóla, til þess að barnið verði í því hugar- og sið- ferðisástandi, sem æskilegast er. Séþessa gætt, ef kennarar og foreldrar setja sér það mark með komandi ári og árum, að starfa af alefli fyrir ungdóminn og með honum, þá má vænta að skólinn og mennt- unin verði til blessunar landi og lýð á komandi tíma. (Niðurl. næst). A. Á. Sögufólagið. Félag þetta var stofnað af nokkrum mönnum hér í bænum árið 1902. í lög- um þess er ákveðið, að það skuli »gefa út heimildarrit að sögu íslands í öllum greinum, frá því á mið- öldum og síðan, og f sambandi j við þauættvísi og mannfræði þessa lands«. I áskorun þeirri til almennings, er fé- lagsstjórnin gaf út f marz 1902, er kom- izt meðal annars svo að orði: »Það getur víst engum blandazt hugur

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.