Þjóðólfur


Þjóðólfur - 12.07.1907, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 12.07.1907, Qupperneq 1
59. árg. Reykjavík, föstudaginn 12. júlí 1907. M 30. Beztu lirar. Málara - vörur, litir, fernis, lakk, þurkandi, allskon- ar tegundir penzla og áhalda. Smíðatól, lím, schellakk, bæsir. Biðjið um verðlista og tilboð. I. D. Flxlggers Filial. Köbenhavn K. Alþing-i. n. Þingsályktunartillaga var borin fram i báðum deildum um að skora á stjórnina að ráða konunginum frá því að skipa menn í sambandslaga- nefndina, fyr en nýjar kosningar til al- þingis hefðu fram farið. Var þetta gert samkvæmt áskorunum frá ýmsum þing- málafundum, er höfðu lagt allmikla áherzlu á, að nefndarskipuninni yrði frestað. Flutn.menn í N. d. Skúli Thoroddsen, B. Kr., Stef. (Skagf.), en í E.d. Valtýr Guðm. og Sig. Jensson. í neðri deild var iillggan til umræðu 8. þ. m. og felld þar með 16 atkv. gegn 4 og s. d. í efri deild með 6 atkv. gegn 5. Umræður voru mjög hóflegar og hitalausar. Lýsti ráð- herrann því þegar yfir, að frestun á nefnd- •arskipuninni nú væri sama sem eyðing málsins, og að ekkert yrði þá af nokk- urri nefndarskipun síðar, Og yrði hann að telja það tjón mikið fyrir landið, ef tæki- færi þessu yrði þannig sleppt. Þingmannafrum vö rp eru fá komin fram enn og verða ef- aust ekki mörg á þessu þingi. Þessi eru enn komin í ljósmál: x. Um bæjarstjórn í Hafnar- f i r ð i, uppvakningur frá fyrri þingum(flutn- ingsmenn Valtýr Guðmundsson og Ágúst Flygenring). 3. Um vátryggingarskyldu húseigenda og stofun bruna- b ó t a s j ó ð s (flm. Jón Jónsson, M. Kristj- ánsson). 3. Um breyting á tilskipun um bæjarstjórn 1 Reykjavík (flm. G. Björnsson, Tr. Gunnarsson). í frv. þessu er farið fram á, að skipaður sé borgarstjórij kosinn af bæjarstjórn til 6 ára f senn, og fái hann að launum úr bæjarsjóði 4500 kr. á ári, auk 1500 kr. í skrifstofufé. Bæjarfulltrúar skulu vera 15 að tölu. j. gr. frv, er svolátandi: Kosningarrétt hafa allir bæjarbúar, karlar og konur, sem eru fullra 25 ára að aldri, þeg- ar kosning fer fram, hafa átt lögheimili í bænum 1 ár, hafa óflekkað mannorð, eru fjár síns ráðandi, eru ekki öðrum háðir sem hjú, og er ekki lagt af sveit, eða hafi þeir þegið sveitarstyrk, þá endurgoldið hann, eða verið gefinn hann upp, — svo framarlega sem þeir greiða .skattgjald til bæjarsjóðs. Konur kjósanda hafa kosningarrétt, þótt þær séu eigi fjár síns ráðandi vegna hjónabands- ins, og þótt þær[eigi greiði sérstaklega gjald í bæjarsjóð, ef þær að öðru leyti uppfylla áð- urgreind skilyrði fyrir kosningarrétti. Kjörgengur er hver sá er kosningarrétt hefur. 4. gr. I janúarmánuði 1908 skal kjósa fulla töiu bæjarfulltrúa. Gömlu bæjarfull- trúarnir fara jafnframt frá, en þá má endur- kjósa. Af þeim bæjarfulltrúum, er þá verða kosnir, fer einn þriðjungur frá eptir hlutkesti eptir tvö ár, annar þriðjungur eptir 4 ár, sömuleiðis eptir hlutkesti, og hinn stðasti þriðjungurinn eptir 6 ár. í stað þeirra fulltrúa, er úr bæjarstjórninni ganga í hvert skipti, skal þegar kjósa jafnmarga í hana til 6 ára. Á þennan hátt fer svo jafnan síðan einn þriðj ngur hinna kjörnu bæjarfulltrúa frá annaðhvort ár og nýir bæiarfulltrúar kosnir í staðinn. Kosningar í bæjarstjórn fara jafn- an fram í janúar. í síðari hluta frumv. eru ýms ákvæði um skipun niðurjöfnunarnefndarinnar og starfsvið hennar. Nefnd var skipuð í mál þetta í N. d. í fyrra dag: L. H. Bjarna- son, J. Magn., St. St. (Skagf.), Guðl. Guðm. M. And. 4. Þm. Reykvíkinga bera fram breyt- ing á lögunum um mannntal 1 Reykja- vík, að það skuli fara fram frá 20.—30. nóvember ár hvert, en ekki í október. 5. Frv. um löggilding verzlun- arstaðar í Kirkjuvogi í Höfnum er borið upp í N. d. Þlngnefndir. K o s n i n g a 1 ö g (N. d.) Pétur Jónsson (form.), Jón Magnússon (skrifari), Eggert Pálsson, Björn Kristjánsson, Lárus Bjarna- son, Ól. Thorlacius, Jón Jónsson. Frv. um almennan kosningarétt vísað til þeirrar nefndar. L a g a s k ó 1 i n n (N. d.) Jón Magnús- son, Skúli Thoroddsen, Lárus Bjarnason. Fræðsla barna (N, d.) Þórhallur Bjarnarson (form.), Árni Jónsson, Eggert Pálsson, Stefán Stefánsson (Skagf.) skrif., Jón Magnússon, Guðmundur Björnsson, Magnús Andrésson. Frv. um kennaraskóla vfsað til þeirrar nefndar. Gjafsóknir (N. d.) Björn Bjarnar- son (skrifari), Hannes Þorsteinsson (form.) Ól. Briem. F o s s a r (N. d.) (takmörkun á eignar- og umráðarétti yfir þeim) Guðl. Guðmunds- son (form.), Jóh. Ólafsson, Ól. Briem (skrif.), Stefán Stefánsson (Eyf.), Magnús And- résson. Skógrækt (N. d.) Þórhallur Bjarnar- son (skrif.), Eggert Pálsson (form.), Ólafur Thorlacius. Brunabótafélag í s 1 a n d s (N. d.) Magnús Kristjánsson (form.), Jón Jónsson, Stefán Stefánsson (Skagf.), Stefán Stefáns- son (Eyf.), Ólafur Briem (skrif.). Til þessarar nefndar vísað frv. J. J. og M. Kr. um vátryggingarskyldu húseigenda og stofnun brunabótasjóðs. Bætt við síð- ar í nefnd þessa Jóni Magnússyni og Skúla Thoroddsen. L a n d s b ó k a s a f n (E. d.) B, M. Ól- sen, J. Jakobsson, Valtýr Guðmundsson. Skilorðsbundnir hegningar- d ó m a r (E. d.) Stgr. Jónsson, Jóh. Jóhann- esson, Guðj. Guðlaugsson. Lausamenn og þurrabúðar- m e n n (E. d.) Stgr. Jónsson, Guðj. Guð- laugsson, Sig. Stefánsson. Lánsdeild við fiskiveiðasjóð- i n n (E. d.) Ág.' Flygenring, É. Briem, Valtýr Guðmundsson. Utbreiðsla næmra sjúkdóma (E. d.) Stgr. Jónsson, Ág. Flygenring, Þorgr. Þórðarson. KirkjumáL Sjálfsagterkirkju-og klerkamálið stærsta málið sem fyrir næsta þingi liggur; það er ómótmælanlega stórmál. Ef satt skal segja, hefur þetta mál haft bæði langan og töluvert ítarlegan undirbúning; þjóðin hefur hvað eptir annað átt kost á að segja álit sitt um það, það hefur verið rætt eða átt að ræðast 1 hverri sókn á landinu og síðan var það rætt á hverjum héraðsfundi, þar sem hver sókn á sinn fulltrúa, síðan velur þingið til enn frekari undirbúnings þá aðferð, að stjórnin velji milliþinganefnd í málið, er byggi á tillögum héraðstund- anna. Þingið leggur fram æðimikla fjár- upphæð nefndinni til að starfa fyrir, og með konungsúrskurði 2. marz 1904 er nefndin skipuð og mennirnir í hana út- nefndir með ráðherrabréfi 22. apríl 1904. Hinn 23 ág. s. á. tekur nefndin til starfa. 7. apríl 1906 hefur hún lokið störfum og leggur þá fram 10 frumvörp um kirkju- mál Islands, með ítarlegum ástæðum og tillögum. Frumvörpin eru send út um allt land landslýð öllum til yfirlesturs og athugun- ar nærri heilu ári áður en þau eiga að takast til endilegra úrslita. Þegar þessi gangur er athugaður getur enginn óhlut- drægur maður neitað því að þing og stjórn hefur farið hér mjög rækilega 1 sakir og mjög frjálsmannlega. Hvernig sem þessu máli reiðir af, hvort þjóðin hefur illt eða gott afþeim úrslitum, sem verða, er það ekki af því, að hún hafi ekki haft nægan tíma, góð tæki og frjálsar hendur til að laga málið í hendi sinni sér til blessunar og hags. Naumast verður nefndinni heldur legið á hálsi fyrir hyskni eða óvandvirkni, verk hennar er mikið og vandvirknisiega af hendi leyst. Menn geta lengi deilt um réttmæti skoðana nefndarmanna; enginn réttsýnn maður hallmælir öðrum þó skoð- anir komi ekki saman. En í verki nefnd- armanna skín dugnaður, samvizkusemi og einlægur vilji á að vinna þarft verk. Þetta segi eg bæði um minni og meirihlutann. Og ætti nú að álykta af opinberum und- irtektum þjóðarinnar um þetta stóra mál, undirtektum á öllum þessum árum síðan 1902, þá er full ástæða til að skoða svo, að þjóðin sé miklu fremur ánægð en óá- nægð með það, sem gerzt hefur í þessu máli yfir höfuð. Svo virðist sem fullur rétt- ur sé til að álykta þannig af þögn þjóð- arinnar um gerðir bæði héraðsfundanna og milliþinganefndarinnar, að þögnin sé skoðuð sém samþykki, enda virðist eigi rangt að skoða svo, að þjóðin sjálf með héraðasamþykktunum (1 maður kosinn af söfnuði hverrar sóknar, auk prestsins) hafi lagt grundvöllinn; að það hafi komið fram sannur þjóðarvilji það sem hann náði til að fjalla um, og síðan milliþinganefndin lagði verk sitt fyrir þjóðina, hefur hún, má heita, þagað — þegjandi samþykkt allt. Eptir þessu ætti allt að vera gott og blessað. En mun það nú svo í raun og sannleika ? Eg er hræddur um að svo sé ekki, því miður ef vel væri rannsakað; en víst er um það að ef þjóðin er óánægð, þá má hún sjálfri sér um kenna, að hafa ekki sagt til í tíma. Við henni hefur fylli- lega verið ýtt, hún gat vakað eða vaknað íyr en á 11. stundu. Fáeinar, já örfáar einstaklingsraddir hafa nú upp á síðkastið heyrzt í blöðunum, sem andæfa því sem gert er, og mér er kunnugt að minnsta kosti á einum þingmálafundi, sem búið er að halda, komu fram andvíg orð gegn gerð- um milliþinganefndarinnar; á fundinum voru reyndar að eins örfáir menn, allir svo að segja komnir af fundi, svo naumast er hægt að búa til þjóðar- eða héraðsvilja úr slíkri ályktun. En slíkar raddir nægja til að sýna það, að einhver víma og ráðleysi og hringl er enn yfir huga manna, þrátt fyrir hinn ítarlega undirbúning. Og eg hygg að eigi verði til stórsynda talið þó sagt sé, að enn sé þjóðin eigi búin að átta sig; með skýrari orðum mælt, að hún í þessu máli viti eigi enn h v a ð a breyt- ingu hún vill, en breyting og bót vill hún. Aðallega hygg eg óhætt aðjjsegja, að hugir manna snúist um þetta þrennt: þjóðkirkju, fríkirkju eða enga kirkju; væri þjóðin öll komin saman á einn stað, og þessi 3 hugtök borin upp til atkvæða er eg sann- færður um, að þau fengju öll eitthvað af atkvæðum hvert þeirra, jafnvel hið síðasta myndi fá nokkur atkvæði, ef nokkurt mark er takandi á ræðum manna. Ef nú ástand- ið er svona, þá er sannur vandi að ráða úr hvað gera skuli; en einmitt ef ástandið er svona verður þó eitthvað að gera. Héð- an af eru að líkindum þingmálafundirnir einu samkomurnar, þar sem þetta vanda- mál kemur til umtals, og mér þykir ekki ósennilegt, að hinir örfáu, sem láta þar um það nókkurt álit í Ijósi, hallist helzt að aðskilnaði ríkis og kirkju;"í þeim hóp má og fela þá, sem enga kirkju eða klerka vilja hafa, hvort þeir eru margir eða fáir, svo vel má komast af með að hafa hug- tökin að eins tvö: þjóðkirkju eða fríkirkju (frítt hvort er nokkur kirkja eða engin). Það, sem hefur verið rætt og ritað um kirkjumál, hefur aðallegalverið í þjóðkirkju- áttina; fáeinar raddir hafa að vísu heyrzt um fríkirkju eða aðskilnað ríkis og kirkju, en enginn mun neita að sú hugmynd megi enn heita með öllu óundirbúin. Á hér- aðsfundum þeim, sem haldn'ir voru um kirkjumálin, snýst allt um þjóðkirkjufyrir- komulagið. Hafi nokkur þjóðarvilji verið til í þessu máli hlýtur hann að’vera í hér- aðasamþykktunum, en þar heyrist engin rödd í skilnaðaráttina, eða svo er eigi að sjá á fundargerðunum. Þegar þetta er nú þannig að fríkirkja eða aðskilnaðarfyrir- komulagið, er með öllu óundirbúið, er þá hyggilegt að þingið í sumar rjúki í að skilja ríki og kirkju? Allir hyggnir menn munu svara: »nei«; og skilnaðarmennirn- ir og máske kirkjuleysingjarnir segjast alls ekki hafa það í huga að rjúka í þetta í sumar, en þeir segjast vilja vama því að þingið geri nokkuð í þá átf, er tafið geti I

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.