Þjóðólfur - 15.11.1907, Blaðsíða 2
198
ÞJÓÐÖLFUR.
*
réttir ræður sínar svo löngum tíma eptir
að þær eru haldnar, því að það er óhugs-
andi, að hann g e t i skrifað þær svipað
því, sem hann hélt þær, einkum þá er
hann skrifar sjaldnast upp hjá sér aðal-
atriði ræðunnar, eins og sumir gera, og
geyma síðar til leiðréttinga eptir á. Það
hlýtur þvl að verða meiri og minni skáld-
skapur hjá honum, þetta ræðusmíð hans
löngu slðar. En það er afar óheppilegt,
og kemur óþægilega niður á öðrum, er
leiðrétt hafa ræður sínar á þingi. Þeir
liggja vitanlega alveg 1 »vaskinu« hjá
lesendum þingtíðindanna fyrir þessum
heimabökuðu og heima hugsuðu ræðum
ráðherrans. En allt þetta stafar at hinu
óhentuga og öfuga fyrirkomulagi á þessu
öllu, sem óhjákvæmilega þarf að breytast.
Og hygg eg, að ekki hafi verið vakið
aiáls á þessu ófyrirsynju.
fiingmadur.
Radium,
þetta dularfulla, afarfágæta efni, er hjónin
Curie uppgötvuðu, er svo afardýrt, að sá
sem ætti eitt einasta kvint af því hreinu,
gæti selt það fyrir 2 miljónir franka. Það
hefur alllengi verið fastákveðið verð á
radium frá r5 frönkum fyrir grammið upp
1 1000 franka fyrir sentigramm, allt eptir
styrkleika þess. Hvert milligram af hreinu
radium er 400 fr. virði, og samsvarandi
verð á gramminu væri þá 400,000 fr.
Verðið á einu kíló (2 pd.) mundi þá
verða 400 miljónir franka. Svo mikils
radiums er ekki unnt að afla, því að
hvorki hefur hingað til tekizt að ná svo
miklu af þessu efni, eða verið unnt að
sanna, að það geti náðst. Ef 2 pd. af
hreinu radium fyndust, þá félli það vitan-
lega nokkuð 1 verði. En nú sem stendur
getur naumast nokkur verksmiðja látið af
hendi jafnvel 1 gramm (V500 úr pd.) fyrir
400,000 fr. Allar birgðirnar af hreinu
radium, sem eru til sölu í heiminum,
ætla menn að séu 5—6 desigrömm, er
mundu kosta um 200,000 fr. Hér um
um bil jafnmikið er í efnarannsóknarstofu
ekkjufrú Curie, og ennfremur eiga sjálfsagt
aðrar efnarannsóknarstofur, læknar, sjúkl-
ingar og einhverjir aðrir til samans hér
um bil 4—5 desigrömm. Nálega allt, sem
menn hafa handa á milii af radium, er
komið frá hinum efnafræðislegu verk-
smiðjum í Javel og Ivry (nálægt París).
í fyrstunni var reynt að ná því úr málm-
tegundum, er lengi höfðu verið undir áhrif-
um loptsins, og þó varð »uppskeran« ekki
meiri en 2 desigrömm úr tonninu. Síðar,
þá er menn fóru að vinna það úrnýupp-
teknum málmtegundum, fengust stundum
að eins 3 sentigrömm úr tonninu. 1905
var hætt að vinna það, enda hafa birgð-
irnar fullnægt eptirspurninni síðan. — Þá
er þau Curiehjónin fengu Nóbelsverðlaunin
1903, vildu allir ná í radium, vísinda-
mennirnir til að rannsaka það, læknarnir
til að selja það aptur sjúklingum sínum,
sjúkir miljónamæringar til að ná aptur
heilsu sinni o. s. frv. Það er sagt um
einn sjúkan mann, að hann keypti radium
í eitt skipti fyrir 10,000 fr., og aðrir auð-
ugir sjúklingar eða gróðabrallsmenn buðu
1000 fr. fyrir 1 milligramm, er nú kostar
400 franka og gátu ekki fengið það. Einn
féglæframaðurinn hafði ásett sér að fleygja
örlitlu af þessu dýrmæta dupti í lind
nokkra og láta svo vísindamenn staðhæfa,
að af því lindarvatni gætu menn fengið
bót allra meina. Það var að eins að
þakka ráðvendni þeirra, er efnafræðis-
verksmiðjunum stýrðu, að ekkert varð úr
þessu stórkostlega fjárglæfratilræði.
Nú sem stendur hafa efnarannsóknar-
stofur víðsvegar um heim nægilegt radium
til sinna nota, og með þvf að radium
deyfist ekki, þurfa þær ekki að endur-
nýja forða sinn, en láta sér nægja, að
auka hann lítilsháttar, til þess að geta
gert rannsóknirnar víðtækari. Hins vegar
eru allir samvizkusamir læknar á einu
máli um, að radium eigi að eins að nota
við örfáa sjúkdóma, og að eins með eptir-
liti sérfræðinga í þessari grein. Annars
er enn ekki hægt að spá neinu um, hversu
víðtæk og furðuleg áhrif þetta dularfulla
aflmikla efni kann að hafa í framtíðinni
fyrir mannkynið. I radium liggja huldir
kraptar, er vísindamennirnir þurfa ef til
vill langan aldur til að geta gert sér grein
fyrir og sýnt fram á nothæfi þeirra.
Eins og kunnugt er, hefur verið leitað
að radium hér á landi helzt við hverina,
og fékk einn ungur efnafræðingur (Þor-
kell Þorkelsson) nokkurn styrk til þess af
dönsku fé. En hann mun lítils eða einskis
var hafa orðið. Og því síður þarf að
vænta, að radium finnist í gullnámunni(l)
í Vatnsmýrinni, eins og sumir hafa verið
að óska og vona. Vér verðum eflaust að
sætta oss við dálítið ódýrara efni.
Gull og silfur
hefur nú fundizt í tveimur sýn-
ishornum upp úr borunarhol-
unni 1 Vatnsmýrinn i á 133'/»—1351/2
feta dýpi 1 leirlagi, það er að segja það
sýnishornið, sem meira var í af gulli og
silfri, en hitt sýnishornið var neðar úr hol-
unni. Þetta fannst í fyrra kveld við rann-
sókn Asgeirs Torfasonar forstöðumanns
efnarannsóknarstofu landsins, er ekki
hafði fyr getað snúizt við að rannsaka
þetta vegna þess, að hann vantaði bræðslu-
ofn til rannsóknanna. Þau tvö sýnishorn,
er gull hafði fundizt áður í, og fyr er um
getið hér í blaðinu, voru rannsökuð af
Erlendi Magnússyni gullsmið og Birni
Kristjánssyni kaupm., er hefur góð áhöld
til sllkra rannsókna og góða þekkingu í
þeim efnum. En silfur hefur ekki fundizt
þarna fyr en nú í þessum tveimur sýnis-
hornum. Hversu mikið sé af gulli eða
silfri í Vatnsmýrarnámunni, er ekki unnt
að segja, með því að rannsóknarefnið er
svo lítið, þyrfti að vera svo margfalt meira,
til að geta sagt með vissu, hversu auðug
náman væri af gulli og silfri eða öðr-
um málmum. Borinn er nú kominn
152 fet niður, en ef til vill verður hætt
við að bora dýpra að sinni, en snúizt að
því að grafa námugíg niður að gullinu.
Þó er það allt óráðið enn. En »nú þarf
framar enginn efast«, að gull 0. fl. málm-
ar eru þarna niðri. Opinberi stimpillinn
er á það fenginn með rannsókn lands-
efnafræðingsins.
Vatnsveitan.
Kostnaðaráætlun við bæjarvatnsveituna
hefur Jón Þorláksson verkfræðingur nú
lagt fyrir bæjarstjórnina. Gerir hann ráð
fyrir, að 340,000 kr. muni kosta að ná
vatni handa bænum úr vatnslindum nokkr-
um við Elliðaárnar, en 80,000 kr. meira,
ef það verði tekið ofan úr svonefndum
Gvendarbrunnum. Þar er vatn betra og
hreinna en f ánum eða lindunum, og
óhreinkast síður í leysingum og vatna-
vöxtum. En álit margra manna er, að á
hvorugum staðnum fáist viðunanlegt og
heilnæmt neyzluvatn fyrir bæinn án vatns-
síunaráhalda, en þau eru feikidýr, ef góð
eru og þurfa nákvæmt eptirlit, en endast
þó ekki lengi. Telja því margir ógern-
ing, að fá vatnsveitu með þeim annmarka
og aukakostnaði. Én kostnaðurinn við
fyrirtæki þetta er svo mikill, að varla má
minna vera, en að bærinn geti þá fengið
hreint og gott vatn eptir allt saman.
annars væri ver farið en heima setið.
Lítill vafi er á því, að með brunngreptri
hingað og þangað í bænum mundi mega
fá ágætt vatn og nægilegt handa bænum,
en kostnaður yrði auðvitað allmikill, að
dæla því upp í vatnsþrór, en óvfst er, að
brunnarnir þyrftu að vera margir. I
Vesturbænum hefur t. d. fengiztmikið og
gott vatn í brunnum, er þar hafa verið
grafnir. Hættan auðvitað á, að vatn þetta
mundi þverra í afarmiklum þurktim. Én
nú er eflaust ekki annað fyrir hendi, en
að ákveða, hvort bærinn skuli leggja út
í þetta vatnsveitufyrirtæki eða ekki, með
þeim kostnaði, sem ráðgerður er. Líklega
nauðugur einn kostur að bæta á sig
80,000 kr. til þess að geta þó fengið
nokkurnveginn brúklegt vatn.
Mislingarnir
eru nú á förum hér í bænum. Þó ligg-
ur allmargt fólk enn, og sumt veikt af
afleiðingum þeirra. Mannskæðir hafa þeir
ekki orðið, að því er kalla má, þótt dáið
hafi alls í bænum líkl. 20—30 manns,
flest börn og unglingar, ♦ er venjulegast
hafa haft einhverja aðra veiki undir.
Berklaveiku fólki hefur einkum verið hætt.
— Nú eru mislingarnir komnir víðsvegar
um Arness- og Rangárvallasýslur, og fólk
að leggjast þar óðum. Þeir eru og komnir
upp í Borgarfjörð, en ekki almennt. A
Akureyri hefur sóttkvíunarráðstöfunum
gegn þeim verið hætt, og líkur fyrir, að
þeir gangi um allt Norðurland, þótt enn
hafi tekizt að hepta þá sumstaðar þar.
A Vestfirði eru þeir og komnir.
Laust prestakall.
Staður í Steingrímsfirði í
Strandaprófastsdæmi (Staðar- og
Kaldrananessóknir). Núverandi mat kr.
1313,61. Prestsekkja er að vísu í brauð-
inu, en hún fær væntanlega eptirlaun úr
landsjóði. Auglýst 12. nóvember. Um-
sóknarfrestur til 16. janúar 1908. Veitist
frá næstu fardögum.
HálftírœOup
varð Páll Melsted sagnfræðingur í fyrra
dag (f. 13. nóv. 1812), og blöktu fánar á
stöng hér í bænum honum til heiðurs
þann dag. Páll Melsteð er nú langelztur
lærðra manna hér á landi. Næstur hon-
um séra Daníel Halldórsson uppgjafa-
prestur frá Hólmum, tæpum 8 árum yngri
(f. 12. ágúst 1820). Síðan fyrir miðja 18. öíd
hafa að vorri ætlun að einsj3 skólagengnir
menn íslenzkir orðið eldri en hálftíræðir,
þ. e. Bjarni Þorsteinsson konferenzráð
(t 1876) 957/1», séra Þórarinn Erlendsson
á Hofi (J* 1898) 98V4 og séra Benedikt
Eiriksson (-j- 1903) 96T/».
„Hólar" og „Skálhoit
komu hingað loks um næstl. helgi úr
hringferð kringum land, en »Vesta« enn
ókomin. »Hólar« farnir til útlanda og
»Skálholt« einnig í morgun.
Mannalát.
Hinn 8. f. m. andaðist á sjúkrahúsinu
á Akureyri Skapti Jóhannsson
gagnfræðingur, síðast bóndi í Litlagerði í
Laufássókn, sonur Jóhanns bónda á Skarði
í Dalsmynni Bessasonar frá Skógum í
Fnjóskadal Eiríkssonar.
Hinn 26. f. m. varð bráðkvaddur á
Eskifirði Narfi Sveinsson frá Kot-
húsum í Garði, ættaður af Akranesi, sjö-
tugur að aldri.
Prestskosning.
í Hofteigsprestakalli er Haraldur Þór-
arinsson cand. theol. kjörinn prestur.
Drukknanir.
Hinn 20. f. m. hvolfdi bát á Stöðvar-
firði með tveimur mönnum, og drukknaði
annar þeirra: Jón Daníelsson ungur
maður, ókvæntur. Hinn maðurinn (Páll
Skarphéðinsson frá Hvalnesi) komst á
kjöl og varð bjurgað.
Hinn 12. f. m. drukknaði í Héraðs-
vatnaós Bjarni Bjartmarsson bóndi
frá Borgargerði í Norðurárdal. Menn,
sem voru að gera að landsímanum þar í
grennd, sáu þegar maðurinn lagði út í
ósinn andspænis þeim, og vöruðu hann
við, en það kom fyrir ekki. Brim skall
inn í ósinn og tók þegar manninn, en
hesturinn hröklaðist aptur til sama lands.
Símamennirnir höfðu bát hjá sér, og fóru
þegar að hjálpa, en það var um seinan.
Þá er þeir komu yfir um, fundu þeir son
Bjarna sofandi á bakkanum, þar sem faðir
hans hafði lagt út í. Segir »Norðri«, að
báðir mennirnir hafi verið mjög ölvaðir.
Skíðafélag,
er nefnist »Áfram«, er nýstofnað hér í
bænum og ætlar að hefja skíðahlaup á
sunnudaginn kemur, ef veður leyfir, í
brekkunum hjá Ártúni. Munu Norðmenn
þeir, er hér eru búsettir, mest hafa geng-
izt fyrir þessum félagsskap, enda eru Norð-
menn skíðamenn miklir og skíðaferðir
mjög tíðkaðar í Noregi, bæði til gagns
og gamans. Andrakapphlaupin við Holm-
enkollen eru t. d. víðfræg. Það er þarft
verk og gotl, að kenna æskulýð Reykja-
víkur að fara á öndrum, og getur naum-
ast hollari og notalegri hreyfingu, er æfir
og styrkir alla vöðva, Það er og bezta
skemtun að sjá þaulæfða skíðamenn leika
þessa list, henda sér fram af hengi-
flugi o. s. frv.
Ur Mjóaflrði eystra er ritað 24. f. m.:
»Storma- og úrkomusöm er hausttfðin
hér eystra, enda sýna símabilanirnar
bezt veðuráttuna. Það má svo heita, að
síminn til Reykjavfknr héðan sé eins opt
í ólagi eins og í lagi á hausti þessu.
Afli heldur tregur í allt sumar hér
eystra, nema á sunnanverðum Héraðsflóa
(flóanum út af Fljótsdalshéraði), þar hefur
fiskazt mjög vel, en það eru fáir, sem
þangað sækja eða geta sótt. Frá okkur
t. d. úr Mjóafirði. eru menn fullan sólar-
hring f róðrinum, og má ganga vel, ef
menn eru eigi lengur. Mótorbátar hér í
Mjóafirði hafa fengið um 100 skpd. til
verkunar í sumar, og mun það vera með
betra móti hér eystra. Þó hafa tveir
fengið miklu minna, um 50—60 skpd.
Verð er hér allhátt á fiski, enda er það
gagn, því dýr er mótorbátaútgerðin, lík-
lega 11—1200 kr. um mánuðinn á báti«.
€rlenð síœskeyti
til Pjóðólfs frá R. B.
Kaupm.höfn 14. nóv., kl. 4s° e. h.
Morð og sjálfsmorð.
Sofus Rasmussen, foringi stjórnleysingja
og ritstjóri blaðs þeirra »Skorpionen«, í
Kaupmannahöfn, skaut í gær lögregluþjón,
er átti að sækja hann til að afplána hegn-
ingu, og skaut því næst sjálfan sig áeptir.
Rílcisþingið rússneska
sett í dag með hátíðlegri viðhöfn. Flokka-
skipunin þar: 195 hægri menn, 128 miðl-
unarmenn, 41 rótnemi (svonefndir »Ka-
detter«) 15 Pólverjar, 28 vinstri menn,
14 jafnaðarmenn, 6 Múhameðstrúarmenn
m. m.
Pijzka keisarahjónin
eru í heimsókn í Lundúnum.
Yflplýsing.
í tilefni af nafnlausu bréfi til Jónasar Jóns-
sonar í Nýjabæ, sem prentað er í 38. tölu-
blaði Þjóðólfs þ. á.,1) lýsum við undirskrif-
1) Til frekari skýringar skal þess getið,
að bréf þetta tók Jónas sjálfur upp í grein
sína f Þjóðólfi, þar sem hann skoraði á