Þjóðólfur


Þjóðólfur - 27.12.1907, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 27.12.1907, Qupperneq 1
JÓÐÓLFUR 59. árg. Reykjavík, föstudaginn 27. desember 1907. Jtf 60. Horfurnar. g skal taka það þegar fram, að eg mér ekki að minnast á hinar póli- k u horfur þjóðar vorrar á yfirstand- 2i tíð, því að eg ætla mér ekki þá dul, spá þar í eyðurnar eða reyna að ráða þær pólitisku rúnir, sem stjórnmálamenn okkar eru að draga upp. Hvort það eru heilla- eða óheillarúnir, skal eg láta ósagt, en það þykist eg vita með vissu, að hér verður alltaf sama þrefið ogþjarkið, sama óánægjan og sama ósamlyndið, þangað til vér fáum rétt vorn til fuilrar sjálfstjórnar viðurkenndan og löghelgaðan, afdráttar- laust og takmarkalaust. Fyr verður naum- ast nokkur pólitisk eindrægni og samheldni 1 landinu. Það sannast. En þá koma til greina hinar fjárhagslegu horfur, og þær eru naumast svo glæsilegar nú sem stendur, að vér getum ókvíðnir horft gegn framtíðinni, þótt vonandi sé, að bet- ur ráðist úr en á horfist. Allir vita, að landsbúskapurinn, fjárhagur landsjóðs, er ekki sem álitlegastur, og þótt rétta megi hann við með varasamri og hagsýnni l fjármálastefnu þings og stjórnar, þá er því miður allhætt við, að erfiður fjárhagur landsjóðs verði því til fyrirstöðu, að vér getum haft f fullu tré í kröfum vorum á hendur Dönum, og að árangur sjálfstæðis- baráttu vorrar verði því minni en ella. En það er rangt, að kenna stjórninni ein- göngu um fjárhagskreppuna. Þingið á ekki slður sök á henni, þarámeðal minni hluta þingflokkurinn, alveg eins og meiri hlutinn, því að minni hlutinn þvær ekki hendur sínar með því að hrópa hátt um fjáreyðslu stjórnarinnar, en ganga þó í reyndinni alveg jafn langt í öllum fjár- kröfum eins og meiri hlutinn. í því er engin samkvæmni. Það væri engin ástæða til að vera kvlða- fullur út af fjárhag landsjóðs, ef fjárhag- ur þjóðarinriar væri þannig, að hana mun- aði lítið urn auknar álögur. Það eru fjár- hagsástæður einstaklinganna, sem gjald- þol og auðmagn landanna verður að mið- ast við. Nú verður því ekki mótmælt, að íslendingar eru fátæk þjóð, sárfátæk í samanburði við flestar eða allar aðrar siðaðar þjóðir. Hér er t. d. hvergi nokk- urt auðmagn að nokkru ráði, og þar sem , unnt hefur verið að tala um það hjá ein- stökum mönnum, þá hefur það helzt verið hjá útlendum eigendum stórverzlana hér, mönnum, sem ekki hafa verið búsettir hér á landi. Nú munu margir segja, að efnahagur landsmanna sé miklu betri en hann var fyrir 30—40 árum. Það getur verið, að svo sé, en meir mun það vera í orði.ená borði. Framleiðsla hefur að vísu aukizt all- mikið í ýmsum greinum, en eyðslan er lfka orðin margfalt meiri, en hún var fyrir manns- aldri sfðan. Kröfurnar til lffsins hafa aukizt svo fjarskalega, að vafasamt er, hvort auk- in framleiðsla hefur gert betur en að halda í horfinu, og má þykja gott, ef hrokkið hefur til sumstaðar. Sérstaklega eru breyt- j ingarnar miklar í betri húsakynnum og betra viðurværi og aðbúnaði mknna á allan hátt. Slíkt eru vitanlega framfarir, stórmikil breyting til batnaðar. En þessi þægindi hafa orðið þjóðinni svo dýr, að ekkert auðmagn hefur getað myndazt hjá henni. Það sem aflað hefur verið, hefur gengið til þess að hafa sómasamlegaí sig og á, eins og kallað er, og þótt gott. Um verulegán afgang — auðsöfnun — hefur ekki verið að tala. En hvað um það. Framförin er auðsæ, ekki sízt í því, að nú er óhugsandi, að hér yrði almenn hungursneyð eða mannfellir af hallæri, elns og fyrrum. Þeir tímar koma vænt- anlega aldrei yfir þjóð vora framar. En þótt fullnægt verði hinum allra brýn- ustu þörfum til lífsins viðurhalds, þá er langt spor óstigið til þess, að talað verði Om almenna velmegun. Og er eg þá kom- inn að því atriði, er eg vildi minnast á, en það er efnalegt sjálfstæði landsmanna, eins og það e r í raun og veru, en ekki eins og það sýnist vera. Eg er mjög smeikur um, að þegar öllu er á botninn hvolft, sé efnahagur þjóðarinnar á yfirstand- andi tíð ekki glæsilegur. Undarlegt er það og óviðfelldið, að heyra nú stöðugt kvartanir um peninga- leysi, háværari og háværari són nm, að peninga vánti 1 landið, einmitt eptir að nýr banki (íslnnds banki) var settur á stofn, peningasökum landsins til viðreisn- ar, eptir þvf sem kallað var. Og það er ekkert útlit fyrir, að þessi peningavandræði fari minnkandi, heldur auðsætt, að ávallt harðnar á hnútnum, eptir því sem bank- arnir lána meira. Það er í sjálfu sér ekk- ert torvelt, að finna í hverju þetta liggur, hversvegna kröfurnar um meiri, meiri pen- ingar verða ákafari og ákafari. Það er einmitt síðan íslands banki var settur á laggirnar — illu heilli vil eg segja —, að þessar kröfur hafa aulcizt ár frá ári. Þá er hann tók til starfa, þá var eins og tekin væri stýfla úr stóru fljóti. Menn kunnu sér ekki hóf. Peningarnir voru rifnir út úr bankanum og þeim var mest varið til stórfelldra húsabygginga. Allt hækkaði svo afsalega og skyndilega í verði. að undrum sætti: hús, lóðir og allar fast- eignir. Einstakir menn hafa eflaust auðg- azt töluvert við þessa stórvægilegu breyt- ingu, sem umhverfði öllum hugmyndum manna um verðmæti eigna hér í bæ. Þetta hefði allt verið gott og blessað, ef ekki hefði verið svona gassalega af stað farið. Menn, sem ekki áttu einn grænan eyri, byggðu dýrustu stýrhýsi og veltu sér út í allskonar fjárgróða»spekulationir«, og til að standa í skilum með vexti og af- borganir af allri skuldasúpunni, þurfti svo ný lán, meiri peninga. Og allur almenn- ingur sogaðist á einhvern hátt inn í þessa hringiðu, með eintómum skuldbindingum og ábyrgðarlánum á víxl. Og landsbank- inn varð að fylgjast með hinum bank- anum, þá er hann var búinn að þenja eignir manna á pappírnum upp úr öllu valdi. Avextirnir af þessari óeðlilegu hækkun, þessum skyndilega eigna-ofvexti á pappírnum, er nú að koma í Ijós, aptur- kastið að gera vart við sig alltilfinnan- lega, eins og búast mátti við fyr eða síðar. Eg ætla ekki að fara að lýsa hér atferli sumra manna í húsasölum og húsa- kaupum síðustu árin og hversu heilbrigð sú verzlun hefur verið. Fasteignasölunum ætti að vera kunnugast um það. En svo mikið er óhætt að segja, að fyrir aðstoð bankanna hefur verið rekið hér í bæ all- athugavert fjárglæfrabrall, er komið hefur og kemur líklega enn frekar allhart niður á einstökum mönnum. Um það er í sjálfu sér lítið að segja — því að það fylgir nú einu sinni öllu slíku skyndiuppþoti, eins og hér hefur verið — en það er lakast, ef allur almenningur eða bærinn 1 heild sinni verður fyrir afarmiklu skakkafalli fyrir þessar sakir, þvf að það hefur aptur áhrif á landið í heild siuni, og getur orð- j ið fví til afarmikils fjárhagslegs hnekkis um langan aldur. Það getur vel verið, að alda sú, er nú virðist vera í aðsigi: um verðhrun eigna, skelli ekki yfir bæinn að sinni, en þess verður naumast langt að bíða, að eðlileg festa myndist í verði eigna, þannig að sannvirði þeirra komi fram. En hversu I langt það er fyrir neðan, eða hvort það I slagar hátt upp í pappírsverð það, sem nú er talið á eignunum, er ekki unnt að segja. Að sannvirðið sé jafnhátt papp- írsverðinu nú, er lítt hugsanlegt á nokk- urri einustu eign. En þá er sannvirðið er komið á eignirnar, þá hækka þær eðlilega og skaplega í verði; þá er fyrst myndaður fastur grundvöllur, er verðmætið byggist á, svo að ekki verður um haggað. Tiltölulega lítill hluti fjár þess, er bank- arnir hafa lánað, heffur verið til þarflegra, nytsemdarfyrirtækja,.til að efla atvinnu- vegi landsins, að undanskildu einhverju lítilræði til skipakaupa. Mestallt féð hefur farið í hússkrokka hér i bænum og stendur þar fast. Og til þess að sitja ekki uppi með þessar eignir, verða svo bankarnir að halda þessu fljótandi með því að píra úr sér nýjum lánum til vaxta og afborgana. Nú er aðgangurinn að lánunum ekki orðinn jafngreiður sem fyr, þykir nú orðið fullmikið standa fast í húsum og lóðum. En með því að fjöldi manna hefur reist sér hurðarás um öxl með óþarflega dýrutu húsabyggingum og óþarflega dýrum húsakaupum og öðru brangsi, þá kreppir nú peningaþröngin að mönnum meir en nokkru sinni fyr. Menn geta ekki staðið í skilum við bankana, enda kvað þeir láta afsegja (»protestera«) 5—6 víxla nú á hverjum degi, og hefur aldrei verið jafnmikið um víxilafsagnir. í öllum viðskiptum manna á meðal kemur sama peningakreppan í ljós. Og litlar horfur á, að það batni bráðlega. Horf- urnar eru því alls ekki glæsilegar. Að vísu er nú sem stendur peningaþröng víða annarsstaðar en hér, en hún er sprott- in af allt öðrum ástæðum, aðallega af háum peningavöxtum, er aptur leiða af fjárþurð banka í einni heimsálfu (Ameríku). Hér er það ekki vaxtahækkunin eða ein- göngu lántregðan í bönkunum, er pen. ingaeklunni veldur, 'netdur það, að al- menningur hefur þegar oftekið sig á lán- um, notað lánstraust sitt meira en hann mátti og gat, og fær því ekki lengur við bætt. Láns-hámarkinu er náð, og ekki unnt yfir það að komast. Það er sann- leikurinn. Og þetta ástand hefur íslands banki skapað aðallega, bankastofnun, sem útlendir auðmenn eiga nær eingöngu. Meiri hluti höfuðstaðarins er að veði hjá þeim. Og þeir ná ár frá ári fastari tök- um á eignum manna hér, unz einveldinu er náð. Og 'kemur þá fram í réttu ljósi árangurinn af starfi þeirra »þjóðvina«, er í upphafi dembdu þessari stofnun á þjóð- ina með frekju og ofurkappi, og allra þeirra, er síðan hafa barizt með hnúum og hnjám fyrir því að auka hlunnindi hennar og efla hana af öllum mætti. En það er sannfæring mín, að það se þýðingarlítið fyrir oss, að arka upp á pólitiskt sjálf- stæði, ef þjóðin er efnalega ósjálfstæð og keyrð í dróma erlends auðvalds og er- lendra peningayfirráða. Hitt verður þá hefndargjöf. En þá hlið málsins — efna- legt sjálfstæði .— hirða hinir vísu stjórn- málamenn vorir minna um, eða réttara sagt, þeir virðast alls ekki sjá, að þar sé nokkru ábótavant. En ef vér verðum fjárhagslega ofurseldir Dönum, þá verður það sá læðingur, er vér seint losnum úr. 20/1-2 07. Verax. Samnmgurinn um millilandaferðir og strandferðir er ráðherrann hefur gert við hið samein- aða danska gufuskipafélag, gildir aðeins næstu tvö ár, 1908 og 1909. Félagið var ó- fáanlegt til að fullnægja þeim skilyrðum síðasta þings um 8 ára samning, að láta smíða tvö ný skip til Islandsferðanna, og var bá ekki annað fyrir en að semja að eins til næstu 2 ára, þangað til þing keinur saman næst. Samningurinn við félagið virðist fremur hagfelldur. Samkvæmt honum eru millilandaferðirnar fjórum fleiri en nú að frádregnum utanferðum Hóla og Skálholt en strandferðirnar eru hinar sömu og þær voru 1904 og 1905, eða eins og þá, er þær hafa rífastar verið. Vegna þess, að félagið treystist ekki til að fullnægja skilyrðum þingsins, varð gjaldið, sem greiða á úr landsjóði, 30,000 kr. hvort árið í stað 40,000, og sparast þvl 20,000 kr. á fjárhagstíma- bilinu. Áætlunin um millilandaferðirnar er prentuð, en strandferðaáætlunina höfum vér enn ekki séð. Thorefélagið mun halda uppi ferðum sínum hingað, eins og áður, og fylla upp stærstu glompurnar hjá því „sameinaða", enda mun naumast veita af því enn, því að stundum líður alllangt milli beinu ferðanna hja því. T. d. kemur ekkert skip hingað til Rvlkur frá útlöndum frá því „sameinaða" eptir nýju áætluninni frá 21. okt. til 18. nóvember, og síðari ferðin („Laura") þó kringum land, svo að beina leið hingað fer ekkert skip frá n. okt. til 27. nóv. („Vesta") og kemur hún þó við í Færeyjum og á Seyðisfirði og á að koma hingað 8. des. Sé það talin bein ferð, líða þá 7 vikur (21. okt. — 8. des.) milli þeirra hingað til Reykjavlkur, og er það óhæfilega langt bil. Haldi Thorefé- lagið áfram að vera jafnan 1 hælunum á því „sameinaða“, verður rtiinni bót en ella að þeim eyðufylli.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.