Þjóðólfur - 24.07.1908, Qupperneq 3
ÞjOÐOLKUR.
125
gallar eru á frumvarpinu og hversu bráð-
nauðsynlegt er að fá það lagfært, áður
en samningur þessi verður gerður að
bindandi fullnaðarsamþykkt. Hér í blað-
inu hefur áður verið getið um undirtekt-
irnar í ýmsum kjördæmum, er orðið hafa
mjög á einn veg víðast hvar, og er óþarft
að geta nánar um það að sinni, enda
mun það ljósast koma fram við kosning-
arnar, hvort frumvarpsmönnum verður að
þeirri trú sinni, að mikill eða að minnsta
kosti nokkur meiri hluti þingmanna, verði
af þeirra flokki. Vér ætlum, að sú trú sé
að eins látalæti ein, ekkert annað en
uPPKerðar'fyrirsláttur til að harka af sér
( lengstu lög á þessum þrenginganna
tímum, svo að áhangendurnir missi sfður
móðinn, er þeir sjá, að forsprakkarnir
þykjast öruggir. En undanhaldinu verður
ekki leynt á þann hátt. Tillögurnar, er
í seinni tíð hafa verið bornar upp til
fylgis við frumvarpið, hafa verið svo veiga-
lausar og óákveðnar, að þær lýsa því
bezt, hversu voniitlir um sigur frumvarps-
formælendur eru orðnir, og að nú er ekki
hærra hugsað, en að bjarga inn á þing
einhverjum mönnum, er geti komizt hjá
því gagnvart kjósendum, að láta uppi
ákveðna skoðun með eða móti frumvarp-
inu, þvf að alla slíka menn reikna þeir
sér tvímælalaust, er á þing kemur. En
kjósendur munu sjá við þeim leka og
setja undir hann, og alls ekki kjósa þá,
er ekki þora að láta uppi ákveðna skoð-
un á málinu, annaðhvort með eða móti.
Hálfyrði og hálfvelgju mega kjósendur
ekki taka sem góða og gilda vöru í jafn
alvarlegu máli. Hér duga engin undan-
biögð eða vífillengjur, sem opt þykir
hentugt til kjörfylgis í bili, en enginn
getur hönd á fest, þegar á þing er komið.
Og sérstaklega verður að gjalda varhuga
við þeim mönnum, sem kunnugt er um,
að enga pólitiska sannfæringu hafa haft
eða geta haft, nema fyrir eigin hagsmuna
hvatir eða af blindu fylgi við valdhafana.
Slikum mönnum á þjóðin að sparka frá
allri hluttöku f almennum málum, því að
þeir eru gersamlega óhæfir í fulltrúastöðu
og hafa mjög spillandi áhrif út frá sér.
Þeim ætti enginn kjósandi í landinu að trúa.
pingmannaefni.
Frumvarpsandstæðingar af öllum flokk-
um hér í bænum héldu fund í Bárubúð
1 gærkveldi til að koma sér saman um
þingmannaefni nú við kosningarnar. Til-
nefndir voru samkvæmt skriflegri atkvæða-
greiðslu: dr. Jón Þorkelsson landskjala-
vörður, Magnús Arnbjarnarson cand. jur.
°g ^agnús Blöndahl verksmiðjustjóri. En
Magnús Arnbjarnarson hefur neitað að
gefa kost á sér til þingmennsku, og verða
þá hinir tveir í kjöri af hálfu frumvarps-
andstæðinga. Hinu meginn er sagt að
verði þeir Guðm. Björnsson landlæknir og
Jón Þorláksson verkfræðingur.
Skilnaðar-áskoranlr.
Frá íslendingum f Ameríku hafa komið
tvö hraðskeyti til Blaðamannafélagsins hér,
hið fyrra frá Edinburgh í Norður-Dakota
ds. ig. þ. m. svo látandi: »Vestur-íslend-
ingar á fjölmennum fundi á Garðar láta
f Ijós sem einhuga vilja sinn, að ísland
segi skilið við Dani og gerist fullveðja
og sjálfstætt lýðveldi. Ástæður bréflega«.
Sfðara skeytið er frá Winnipeg ds. 22.
þ. m., svo látandi: »Islendingar á alls-
herjarfundi í Winnipeg 20. júlí vilja að
ísland verði fullveðja, sjálfstætt rfki, segi
sig úr sambandi við Dani, gerist lýðveldi«.
Vér erum löndum vorurn vestanhafs
þakklátir fyrir áhuga þeirra á þessu máli,
og skilnaðaráskoranir þeirra geta engu
spillt, þótt þær komi fram. En vitanlega
er Vestur-íslendingum lítt kunnugt um,
hvílíkir erfiðleikar eru á skilnaði nú að
Stórt herbergi með húsgögnum í Miðbæn-
um með eigm ínngangi óskast til leigu strax
til I. okt. í haust. Menn snúi sér til Karls
Einarssonar, Lækjargötu 12 A.
sinni, og að hann getur ekki komið til
nokkurra mála fyr en fullreynt er, hvers
réttar Danir vilja unna oss. Til skilnaðar
nægja ekki eingöngu góðar óskir oggóð-
ur vilji. Þar þarf langan og rækilegan
undirbúning, því að skilnaðar-flan út f
bláinn, fyrirhyggjulaust og athugalaust,
getur orðið til hinnar mesta ógæfu. Hitt
er annað mál, að markmið vort verður
að sjálfsögðu fullur skilnaður við Dani,
fullt og óskorað sjálfstæði, eptir skemmri
eða lengri tíma og rækilegan, öflugan
undirbúning.
Alberti á förum.
Símskeyti frá Seyðisfirði í gær segir
eptir hraðskeyti frá Kaupm.höfn, að
»Dannebrog« skýri frá því, að Alberti
ætli að segja af sér ráðgjafavöldum vegna
heilsubrests.
Skipsti-and.
Hinn 18. þ. m. strandaði gufuskipið
»Gwent« í þoku við Langanes. Var það
á leið til Sauðárkróks með kolafarm, en
átti að taka aptur hesta fyrir Zöllner. Var
hann farþegi með skipinu ásamt Jóni frá
Múla. Björguðust menn allir, en skipið
sagt svo mjög brotið, að það muni ónýtt,
þótt það næðist út, sem talið er hæpið.
l»ýzkir ferðamenn
hafa verið hér allmargir. Hópur sá
(um 20), er kom með »Sterling« 14. þ. m.
var ekki eingöngu kennarar (sbr. síðasta
blað), heldur menn af ýmsum stéttum. Sá
flokkur fór til Geysis og Gullfoss.
Dr. Karl Kuchler hinn nafnkunni
fræðimaður og Islandsvinur er kominn til
Akureyrar og ætlar að ferðast um Þing-
eyjarsýslu. Hefur 11 daga til ferðarinnar,
og fer aptur heimleiðis með fyrstu ferðum
frá Akureyri.
Héðan fór í gærkveldi með »Sterling«
Heinrich Erkes kaupmaður frá Köln,
sá er snúið hefur á þýzku sögu Þorgils
gjallanda »Upp við fossa*. Hefur hann
tvísvar áður verið hér á landi, og í þetta
skipti kom hann til Norðuramtsins og
ferðaðist til Dyngjufjalla (Öskju) og suður
Sprengisand hingað. Hann ráðgerir að
koma hingað aptur að 2 árum liðnum.
Látin
er í Kaupmannahöfn frú Ingibjörg
Óladóttir Schulesen, ekkja Sig-
fúsar Skúlasonar fyrrum sýslumanns í
Þingeyjarsýslu (J- 1862), en systir Árna
Sandholts kaupmanns á Isafirði (J- 1869)
hálfníræð að aldri. Hún á eina dóttur á
lífi, Fanney Marcellinu, sem er ógipt í
Kaupmannahöfn. Tveir synir þeirra hjóna,
Hans Árni og Óli Theodói, dóu uppkomnir.
Árni Beinteinn stúdent, son frú Ingibjargar
og Gísla skólakennara Magnússonar and-
aðist í Kaupm.höfn 1897, 28 ára gamall,
mesti efnispiltur.
Friðrik Eggertssonfyrklæðskeri
hér í bænum, ættaður úr Breiðafjarðar-
eyjum, fannst dauður nýlega íeinubæjar-
síkinu í Kaupm.höfn, og vita menn ekki
nánar um atvik að dauða hans.
Laust prestakall. Wiðuík í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi (Viðvíkur-, Hóla- og
Hofstaðasóknir og Rípursókn í Hegranesi,
samkvæmt hinum nýju lögum frá 16. nóvbr.
1907 um skipun prestakalla), sem auglýst
var 7. janúar þ. á., auglýst af nýju til um-
sóknar, með því að sá, sem veitingu fékk
fyrir þvf, hefur afsalað sér því.
Veitist frá síðastliðnum fardögum með
launakjörum eptir nýju prestalaunalögunum.
Auglýst 20. júlí.
Umsóknarfrestur til 5. september næstk.
Eptirmæli.
Sunnudaginn 10. maí síðastl. andaðist
heiðursbóndinn Jón Árnason í Eyjar-
hólum í Mýrdal, eptir 5 daga stranga legu
í lungnabólgu. Jón sál. hafði búið allan
sinn búskap — um 40 ár — í Mýrdal, og
alltaf búið góðu búi. Fyrstu 5 búskapar-
árin bjó hann í Dyrhólahjáleigu, svo flutti
hann þaðan að Garðakoti og bjó þar 5 ár.
Þaðan flutti hann að Suður-Hvammi og bjó
þar 8 ár, og síðast að Eyjarhólum og bjó
þar yfir 20 ár. Allar þessar jarðir tók hann
niðurníddar og byggði upp að öllu leyti,
einkum þá síðustu, þvf þar var hann lengst,
og jörðin í framúrskarandi mikilli órækt,
og því nóg fyrir framan hendina að gera
fyrir jafn duglegan og áhugasaman mann
og Jón sál. var, Hann hafði orð á sér fyrir
framúrskarandi dugnað, bæði til sjós og
lands. Full 30 ár var hann formaður, og
heppnaðist það svo vel, að hann var talinn
einn bezti formaður, sem hér hefur verið
lengi. Fyrir 4 árum lét Jón sál. af búskap
og seldi bú sitt f hendur tengdasyni sínum,
Lopti Jónssyni, sem nú býr á jörðinni. Hjá
honum dvaldi hann ásamt eptirlifandi konu
sinni Guðríði Eyjólfsdóttur, þessi síðustu 4
ár. Þau hjónin áttu saman 11 börn, og eru
6 þeirra á lffi, 2 dætur: Þórunn kona í Eyj-
arhólum og Guðrún ógipt, nú í Reykjavk,
4 synir: Friðrik, Árni og Ólafur í Vestm.-
eyjum og Þorsteinn í Eyjarhólum. Einnig
eiga þau fósturson, Vilhjálm Grfmsson, sem
þau ólu upp að öllu leyti endurgjaldslaust.
Reglumaður var Jón sál. einhver sá mesti.
Heimili hans mesta fyrirmynd að allri um-
gengni, og svo var hann viss og áreiðan-
legur í öllum viðskiptum, að sagt var að
það stæði eins og stafur á bók, sem hann
lofaði. Vinfastur var hann mjög, en líka
vinavandur, var mjög illa við allt prjál, og
kom því sjálfur alltaf til dyranna eins og
hann var klæddur, yfirlætislaus að öllu.
Hann var mjög gestrisinn, og gafst færi á
að veita mörgum beina, því hann bjó mörg
ár við þjóðbraut. Mörg ár af miðbiki æf-
innar átti hann við mikinn heilsubrest að
stríða, en vann þó optast sem heilbrigður
væri, því hann var framúrskarandi harð-
gerður maður, en svo síðari árin var hann
heilsuhraustur,* nema’ hvað lúi og árafjöldi
voru farin að lama kraptana. Hann var 68
ára að aldri, þegar hann dó. Hann bjó
allan sinn búskap leiguliði, en lagði þó jafn-
mikla stund á að bæta jarðir þær, sem hann
bjó á, og bar það eitt úr býtum, sem altítt
er um leiguliða, að landsdrottnar reyna að
skrúfa upp gjald af jörðunum, eptir því sem
þær batna. Hann fylgd>st vel með í öllu,
nema því einu, að hann vildi aldrei skulda
nokkrum manni, og botgaði mörg sín gjöld
á undan tímanum. Jón sál. var yfirleitt
fyrirmyndar maður og Mýrdalurinn á víst
fáa hans líka. Kunnugur.
Veðurslíýrsluiigrip
frá 18. til 24. júli 1908.
Júlí Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh.
18. + 12,0 + 12,0 + 14,0 + i3,5 + 9,2 + 8,7
r9' + 10,7 -{-12,0 + 15,8 + '3,6 + 9,6 +10,1
20. + 10,2 4-11,8 J-I4.3 + 12,0 + '4,5 4-10,0
21. + 11.5 +15.0 + 14,4 + 14,0 -)- 9,2 + 11,0
22. + 11,1 +13,9 + 13,4 + ",5 + 10,8 + ",3
23' + n,9 —j—12,6 + io,3 + 10,7 + 9,4 + ",6
24. + 12,2 -t-10,4 -j-10,0 + 7,6 + 11,6 + '0,0
Stjórnvalda-birtingar.
Skuldum skal lýsa í dbúi Arna Ingimund-
arsonar á Brekku í Vestmannaeyjum og í
dbúi Gunnsteins Þórðarsonar á Bólstað í
Vestmannaeyjum innan 6 mán. frá 9. þ. m.,
í dbúi Guðjóns Guðmundssonar búfræðings
innan 6 mán. frá 16. þ. m. og dbúi Sveins
Eiríkssonar prests frá Ásum innan 6 mán.
frá 16. þ. m. og í þrotabúi Bjarna Sigurðs-
sonar kaupmanns á ísafirði innan 12 mán.
frá 23. þ. m.
Erfingjar Magnúsar Guttormssonar á Djúpa-
vogi gefi sig fram innan 6 mán. frá 16. þ. m.
Uppboð augl. á húseign nr. 43 B á Lauga-
vegi 31. þ. /Hi.
Magnús Gíslason
hefur sett á stofn ljósmyndastofu í
Bankastræti 14. Hjá honum fá menn
myndir fljótt og vel af hendi leystar fyrir
lágt verð.
c76n cJirisfjánsson
nuddlæknir.
Aðalstræti 1§. Telef. 124.
Heima til viðtals kl. 2—3
og 5—6 ðaglega.
Góð eig-n.
Jörðin Sauðagerði í Reykjavik,
4.50 hndr. nýtt mat, fæst til ábúðar
nú þegar, og kaups, ef um semur.
Henni fylgir stórt erfðafestuland,
túnið og erfðafestulandið slétt og
vel ræktað, allt afgirt. Nýtt íbúðar-
hús, geymsluhús, ijós og heyhús
stendur á jörðinni.
Góðir borgunarskilmálar.
Reykjavík.
En ældre proper og dansktalende
Pige eller Enke söges strax til at
holde en mindre Lejlighed ren for
en ældre Herre. Billet mærk G.
bedes indlagt paa Bladets Kontor.
En ældre Herre önsker daglig
Middagsmad, god sund Kost tilhragt.
Billet mærk Middagsmad bedes ind-
lagt paa Bladets Kontor.
Góð heilsa
og þar af leiðandi dagleg vellíðan,
fæst, ef menn nota heilsubitter þann,
sem viðurkenndur er um allan heim,
sem meltingarlyf, en það er:
Kína-lífs-elixír.
Slæm melting.
Mér er kært að geta vottað, að eg
sem um langan tíma hef þjáðst af
slæmri meltingu, slímuppgangi.svefn-
leysi og sárum þrýstingi fyrir hjart-
anu, hef fengið fulla heilsu eptir
að eg fór að nota hinn fræga Kína-
lífs-elixír Waldemars Petersens.
Engel stórkaupmaður,
Kaupmannahöfn.
Heilbrigður eptir vonleysisástand.
Eptir það, er konan mín hefur
legið 2 ár í vonleysisástandi og reynt
marga duglega lækna, án árangurs,
reyndi eg nokkrar flöskur af Kína-
lífs-elixír Waldemars Petersen’s, og
bar það svo góðan ávöxt, að konan
min er nú orðin fyllilega heilbrigð.
Jens Becli, Strandby.
Hlóðuppköst.
Undirritaður, sem í eitt ár hefur
þjáðst af blóðuppköstum og sárs-
auka milli magans og brjóstsins, lief
orðið fyllilega heill heilsu, eptir að
eg fór að brúka hinn fræga Kína-
\ífs-elixír.
Martinius Christensen, Nyköbing.
Gætið yöar gegn eptirstælingum.
Athugið nákvæmlega, að á einkenn-
ismiðanum sé hlð lögum verndaða
vörumerki mitt: Kínverji með glas
í hendi, ásamt merkinu vFf' r grænu
lakki á flöskustútnum.