Þjóðólfur - 18.02.1910, Page 3

Þjóðólfur - 18.02.1910, Page 3
ÞJOÐO LFUR. 2 7 fjallkonan ritar. i í síðasta tölublaði »Fjallkonunnar« er •eljarlöng grein, sem er ekkert annað en einber endileysa og lokleysa um banka- málið, og ber sorglegan vott um fáfræði j og siðspillingU höfundarins. Flest af þvf, sem í grein þessari er, eru rnarghraktar og úreltar fjarstæður, sem stjórnarblaðið er nú dauðleitt á, og meira að segja skammast sín fyrir að flytja. Hér skal aðeins minst á eitt atriði. Höf. prentar með breyttu letri, að mér geti ekki verið kunnugt um, hvaða lán rannsóknarnefndin hafi talið töpuð. Hér fer höf. þessi með svo mikla vitleysu, að mesta furða er, að hann skuli ekki sjá það sjálfur, þótt óskýr sé. í fyrsta lagi getur höf. ekkert vitað um það, frá álmennu sjónarmiði séð, hvað mér er kunnugt um þetta efni. Nefndar- mennirnir eru margir, og ekki gott að vita nema þeir hefðu sagt það. í öðru lagi hlýtur höf., ef hann er með fullri rænu og ráði — sem efasamt er af grein hans — að vera það ljóst, að fleiri en nefndin vita um það, hvaða lán nefnd- in hafði við að athuga. A fundum nefnd- arinnar 12., 16. og 17. Nóv. er nefndin eingöngu að skýra bankastjórninni frá athugasemdum sínum (sbr. bls. 67 og 68 i áliti nefndarinnar) við sjálfskuldarábyrgð- arlán allskonar. Það sér þvf hver heilsýnn maður, er les skýrsluna, að fleiri vita en nefndin, hver töpuðu lánin eru, en máske greinarhöf. hafi ekki lesið skýrsluna! Því er vel hægt að trúa af grein hans. Þar sem höf. berfram, að mér geti ekki verið kunnugt um, hver lán nefndin taldi töpuð, þá vona eg að sýnt sé, að Fjall- konan fer hér með staðlaus ósannindi, og það trúlega vísvitandi. Auk þess skal eg upplýsa höf. um Jrað, að á fundinum 16. Nóv. var eg frá upp- hafi til enda, og ætti því að vera full- kunnugt um, hvað þar fór fram, bæði um ián og miður réttar fundarbókanir. Pétur Zóphóníasson. Úr sveitinni. Úr Dalasýslu er skrifað 1. þ. m. „Héðar eru litlar frettir að segja. Tíð- m hefir í vetur verið hér fremur góð Stjórnmálin eru hér lítið á dagskrá nú, önnur en þetta makalausa bankamál, ef alt annaö hverfur í skuggann fyrir og alt samtal manna snýst nú um, ýmist með eða móti áðgerðum ráðherrans, eins og raunar vant er að vera í hverju máli. Og hvað mig sjálfáh snertir, þá er eg álveg á móti aðförum ráðherra 1 þvf mi\\t og eg álit, að allir sannir landvarnarmenn ættu að vera það. Þótt þjóðraeðismenn séu flestir fylgismenn ráðherra í banka- málinu, sé eg enga ástæðu fýrir okkur landvarnarmenn að vera það. Við land- varnarmenn erum of fámennur flokkur í landinu ennþá, til þess að geta náðundir okkur stjórninni, en á meðan svo er, álít eg pað vera kölluh okkar að vera mið- flokkur í landinu og fleygur 1 þinginu, er s’ær sér ávalt f lið með þeim flokknum í hvert skifti, er á réttara máli hefir að standa, og meö þessu ættum við að geta unnið þjóðinni stórgagn. Því í samvinnu við minni hlutann, sem í það sinn er uppi, sköpum við meiri hluta í svipinn og getum svo á þann hátt kæft niður og eyðilagt ranglæti ofsafengins meiri hluta °g þannig bjargað landinu undan ofrlki °K einveldi valdhatanna, þegar það keyrir ftam úr réttu hófi. — “ AlliHiis-kjorskrí Reykjavíkur fyrir árið 1910—1911 liggur frammi á bæjar- þingstofunni almenningi til sýnis dagana frá 17. Febr. til 5. marz næstk., frá dagmálum til miðaftans hvern dag. Kærur yfir kjörskránni verða að vera komnar til borgar- stjóra ekki síðar en laugardaginn 12. Marz þ. á. Borgarstjóri Reykjavíkur, 17. Febr. 1910. Páll Einarsson. Bæar-aimáll Styrlítn t— og sjúUraKj óðiir veri^Iunarmanua í Beykja- víli er elsti og öflugasti styrktarsjóður bæarins, yfir 40 ára, og eru eignir hans orðnar yfir 34 þús., og síðastl. ár voru veittar úr honum um 1400 kr.— Formaður er Sighv. Bjarnason bankastjóri og gjald- ! keri Guðm. Ólsen kaupm. EUUnasjúóur ReyUjavíkur telur rúma 300 félagsmenn og á í sjóði hálft 16. þúsund króna. Sfðastliðið ár nutu 46 ekkjur styrks úr sjóðnum, er nam um 600 kr. alls. Formaður er Jóhann Þor- kelsson dómkirkjuprestur, en gjaldkeri Gunnar Gunnarsson kaupm. Bœarstjórnin úrskurðaði á fundi í gærkvöldi, löglega sfðustu bæarstjórn- arkosningu. — Talið er víst, að áfrýað verði þeim úrskurði til stjórnarráðsins og munu þá óvfs forlög hennan, þvf þeir »sam- einuðu" landvarnar- og þjóðræðismenn, er nú heita sjálfstæðismenn, komu engum sinna manna að. Rúðherrann ritar í síðustu Isa- fold um Pál heit. Melsteð og telur hon- um það mest til gildis, að hann hafi lifað 9 ár samtíða Napóleoni mikla og séð 5 Danakonunga, þar á meðal Kristján Xlll.(!!). .Jarðarför Páls MelsteðB fór fram í gær, að viðstöddu miklu fjöl- menni. Gæslustjórar Landsbank- ans. Þeir verða ekki langgæðir, þessir ólöglegu gæslustjórar við Landsbankans. Nú eru þeir Jón Hermannsson og Guðm. Helgason farnir, en Jón Gunnarsson samá- byrgðarstjóri og Oddur Gíslason mála- flutningsmaður teknir við. A tæpum 3 mánuðum hafa alls 7 gæslustjór- ar verið þar, en f þau 23 ár, sem bank- inn hafði áður starfað, hafa aðeins 4 verið gæslustjórar: Eiríkur Briem alla tíð og Jón Pétursson háyfirdómari 1886—1890, Benedikt Kristjánsson prófastur frá Múla 1890—1898 og Kristján Jónsson dómstjóri frá 1898. Leikfélag: Rvíkur. „Sinna- skiftin" eftir Stepniak hafa verið leikin 12., 13. og 17. þ. m. Innbrot. Nýlega brautst unglings- piltur inn í tóbáksverslun ■ Ragnars P. Leví, en eigandi varð strax var við og náði piltinum, þá hann hafði brotið upp peningaskúffuna. Hann var ölvaður, og mun það hafa ráðið mestu um þetta athæfi. Dánir : 32. Jan.: Ingibjörg Jóhannes- dóttir frá Grímsey, á holdsveikraspítal- anum. 25. s. m.: Salgerður Gróa Guðmunds- dóttir, ógift, á Efri-Vegamótum. S. d.. Þorbergur Kristjánsson ungbarn, í Ingólfsstræti 10. 26. s. m.. Jóháhna Kristjana Ragnheið- ur Jakobína, ungbarn, í Sólheimum við Brekkustíg. 27. s. m.: Runölfur Guðmundsson hús- maður, Vitastlg 9. 30. s. m.: Guðbjörg Ástríður Björns- dóttir, barn, á Frakkastíg 14. 3. Febr.: Þorbjörg Jónsdóttir, ekkja, á Lindargötu 28. 9. s. m.: Páll Melsteð sagnfr. 11. s. m.: Kristín Jónsdóttir frá Bakka í Fljótum, á holdsveikraspftalanum. S. d.: Árni Jósefsson trésmiður, Grett- isgötu. 11. s. m.: Sigríður Pálsdóttir, ekkja, Laugav. 24 A. 15. s. m.: Margrét Helgadóttir, ekkja, Bræðraborgarstíg 25. Brunamálastjórinn. Kristján O. Þorgrímsson konsúll sagði lausu bruna- málastjórastarfinu á bæjarstjórnarfundi í gær. Hvað er að frétta? Dúin er á Akureyri 11. þ. m. ungfrú Ingveldur Matthíasdóttir skálds Jochumssonar, hálfþrítug að aldri. Bana- mein hennar var brjósttæring. Gfísli Sveinsson hefir lokið laga- prófi með 2. eink. betri. „Oft má á máli pekkja“. í 47. tbl. Þjóðólfs þ. á. er greinarstúf- ur undirskrifaður af M. F„ þar sem hann gefur í skyn, að þeir Einar Hjaltason og Halldór Jónsson f Vík séu sök i því, að tveir menn töpuðust af mótorbát, sem kom frá Vestmannaeyjum til Víkur 7. okt. þ. á. Þegár eg las þessa grein M. F. flaug mér f hug, að hefði' hún verið skrifuð af höfðingja eða sæmdarmanni, þá hefði sá hinn sami mátt skammast sln, en þarna var hún svo passandi sem fangamark höfundarins. Það er svo und- ur-kvikindislegt, þegar menn finna ástæðu til að ásaka sjálfa sig og skammast sín fyrir sína eigin framkomu, að hugsa sér þá, að koma skugganum af sjálfum sér yfir á aðra. M. F. gefur það í skyn, að Einar Hjaltason hafi átt mestan hlut að því, að M. E. og hans félagar voru að flækjast í landi, en skildu hina tvo fé- lagana eftir 1 mótorbátnum. En allir, sem þekkja Einar, vita, að hann hefur ekkert »vín« á boðstólum, en það hefur að iafnaði mest svona herra, sem koma frá Vestmanneyjum til Víkur og nokkr- um sinnum hefur það komið fyrir, að orðið hefur að bera þá upp í bátinn, þeg- ar frá landi hefur átt að halda, og svo, þegar upp 1 bátinn hefur verið komið, þá hefir þurft að halda i þá, eins og gemsa eða naut. En frá Eyjunum koma Uka margir góðir og kusteisir drengir til Víkur. Hafi þeir Einar Hjaltason og Halldór Jónsson í Vík álitið langsamlega ófært úr landi, þegar M. F. og hans félagar voru ferðbúnir, þá blandast engum, sem þá báða þekkir, hugur um, að svo hafi verið, og enginn trúir því, að þeir hafi ekki verið með réttu ráði. En þeir eru jafnframt því að vera álitnir kjarkmenn einnig af almenningi þektir að gætni og stillingu, og þarf því enginn aðhugsa, að þeir ati mönnum út í ófært, þó svigurmælum sé að þeim beint. — Ætli það hafi ekki verið þeim Halldóri og Einari að kenr.a, að M. F. og hans félagar fóru af stað frá Vestmannaeyjum með mótorbátsvél- ina í því ástandi, að hana þurfti að taka í sundur á leiðinni og hreinsa, en sem mun hafa tekið 3—4 kl.tíma?(!l) Eg verð að minnast þess f sambundi við þetta, að einn af þessum herrum kom frá Eyum með mótorbát sunnudaginn fyrsta í sumri á þessu ári; fór hann 1 land á Hvoli ásamt fleirum, en báturinn fór til Víkur; en þar var þá ófær sjór það kveld af brimi. Þetta sama kvöld kom formað- ur bátsins til Víkur, seint, svo að menn voru komnir til náða, og gisti hann hjá Einari Hjaltasyni, er þá, sem oftar, hafði marga gesti. Næsta morgun var sjórinn orðinn fær, og réru þá allir bátar í Vfk, og létu þeir, sem í land höfðu komist úr mótorbátnum, róðramenn flytja sig út í hann. En formaðurinn varð sjálfur eftir í landi, og hefði mótorbáturinn mátt bfða þar allan þann dag eða máske eitthvað atvikast á líkan hátt og nú, hefði ekki Þorsteinn hreppstjóri í Vfk snúið aftur úr fiskiróðri og sótt hann í land fyrir beiðni þeirra, sem um borð voru í mótorbátnum. En ekki voru það Einar eða Halidór, sem þá töfðu manninn, heldur þurfti hann að fá brennivín eða spritt fyrir sig eða aðra i Brydes-búðinni, sem ávalt hefur nóg af þeirri vöru, en verslunarmaðurinn var seinni á fætur en sjóróðramennirnir. Þetta er aðeins eitt dæmi af 18, og sem benda má á, að öðrum er frekar um að kenna, en Halldóri eða Einari, að tefst fyrir svona mönnum í Vík. Skrifað 1 Des. 1909. Mýrdælingur. Eptirmæli. Sigurlaug Þorkelsdóttir ekkja 1 Brimnesi 1 Skagafirði lést að heimili sínu hinn 3. f. m. 81 árs að aldri. Hún var dóttit merkishjónanna Þorkels óðalsbónda á Svaðastöðum, Jónssonar á Svaðastöðum, Björnssonar þar, Sigfússonar 1 Ási, Jónssonar prests á Ríp, Sigfússonar. Móðir hennar var Rannveig Jóhannesd. á Sveinsstöðum, Jónssonar á Balaskarði, Jóns- sonar, en móðir Rannveigar hét Helga Jóns- dóttir á Litla-Vatnsskarði, Þorkelssonar Jónssonar á Framnesi, Ólafssonar, Kárs- sonar, Bergþórssonar, Sæmundssonar í Glaumbæ Kárssonar. Maður hennar var Simon Pálmason (bönda á Brimnesi, Gunnlaugssonar 1 Hvammi f Hjaltadal, Þorsteinssonar í Garði í Ólaís- firði, Péturssonar í Stórubrekku í Fljótum, Þorsteinssonar þar, Eiríkssonar — Stóru- brekkuætt, mjög fjölmenn og merk bænda- ætt) og reistu þau bú á Brimnesi 1865 og bjuggu þau þar síðan. Símon dó 15 Mars. 1874 og bjó Sigurlaug þar slðan, þar til Einar tengdasonur hennar tók við jörðinni. Börn þeirra hjóna eru: Kristín gift Hartmann Ásgrímssyni kaupm. Kolkuósi. Pálmi óðalsbóndi á Svaðastöðum. Margrjet gift Einari Jónssyni hrepp- stjóra i Brimnesi, og Guðrún gift Sigurði Jónssyni á Hvals- nesi. Sigurlaug heit. var góðum gáfum gædd og hin mesta búsýslukona, enda var heim- ili hennar viðurkent rausnar- og myndar- heimili. Hún var trygg og vmföst, skemti- leg og glaðlynd, enda saknað af öllum, er hana þektu.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.