Þjóðólfur - 20.05.1910, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR
83
Halastjörnudagarnir.
Loksins erum við búin að lifa þessa hættulegu daga og mun margur þakka Guði
sínum, að vera lifandi og heill heilsu. Að minsta kosti ættu þeir Fjallkonu-Flóki og Ing-
ólfs-Hrói að gangast fyrir því, að bænarsamkomur yrðu nú haldnar í þakklætisskyni.
Annars voru menn 1 miklum vafa um, hvenær jörðin fseri í gegnum halastjórnuhal-
ann, því blöðunum okkar og vísindamönnunum bar ekki alveg saman, frekar en
vant er, og vil eg því, góðum mönnum til skemtunar, skýra frá nokkrum missögn-
um þeim, er eg hefi rekið mig á í íslenskum blöðum:
Fjallkonan 11. Mai.
»19. þ. m. veður
jörðin um halann um
11 kl.stundir. Þá ber
stjarnan í sólinasvo
endilangur halinn og
stjarnan sjálferumilli
jarðar og sólarc.
Isafold 4. Maí.
»H. 18. Mai kl.
3J/» um morguninn
verður halastjarnan
næst jöiðinnic.
Fregnm. ísaf. 18. Maí.
ijörðin er i hal
anum i dag og verð
ur i honum á morg
un og á föstudaginn
En sjálfur stjörnu
kjarninn fer fram hjá
sólunni í nótt milli kl
i1/*—2*/» eftir vor
um tímareikningi*.
Lögrétta 16. Febr.
»20. Apríl er hala-
stjarnan næst jörðu,
18. Maí strýkst hal-
inn rétt hjá okkur
og 30. Maí hverfur
hún sýnumc.
k. Maí.
»i8.þ.m.ájörðin að
fara gegnum halann".
18. Maí.
».. . snertir jörðin
fyrst halann 18. Maí
kl. 10,37 e.m. og fer í
gegnum hann áein-
um kltíma og verð-
kominn úr honum
Reykjavik 7 Maí.
»20. Maíer stjarn-
an sjálf næst jörðu,
en halann höfum við
farið í gegnum dag-
inn áðurc.
aftur kl. n,37c.
Ekki hafa menn orðið varir við nein áhrif af halastjörnunni, og sem betur fer
hefir líklega lítið af blásýrugasinu, sem vera kvað 1 halanum, blandast saman við
andrúmsloftið. Ekki hafa menn heldur orðið varir við hið undra-heilnæma stjörnu-
efni, er dr. Helgi Péturss getur um 1 Isafold; er það illa farið, því ekki veitir mann-
kyninu af því, þótt það yrði þröttmeira og greindara. — Ekki hefir Björn Jónsson
sagt af sér ráðherraembættinu, og líklega er dr. Helgi Péturss ekki hættur að dæma
um skáldskap, og ber það hvorttveggja vott um það, að ekki hefir halastjarnan haft
nein áhrif á gáfur manna.
hafði fengið mikinn undirbúning heima
utan skóla. Nr. 17 í yngri deild var
yngri deildar nemandi 1908—9, en gat
eigi flutst upp 1 eldri deild í haust.
Hvað er að frétta?
Prestskosning í Grindavíkur-
prestakalli fór fram 17. þ. m. og var
Brynjólfur Ma gnú sson cand. theol.
kosinn með nær öllum atkvæðum. Hinir,
er i kjöri voru, Jón Jóhannessen prestur
á Sandfelli og Sigurður Guðmundsson
prestur á Þóroddsstað, fengu örfá atkv..
Einn umsækjandinn, séra Pálmi Þórodds-
son í Hofsós baðst undan kosningu.
Fisklskip vantar. Fiskiskipið
»Gyða«, eign hlutafél. P. J. Thorsteins-
son & Co. á Bíldudal, hefir ekki sést síð-
an 22. f. m., og eru menn hræddir um,
að það hafi farist. A því voru iomenn,
flestir af Bíldudal og þar í grend, þar
á meðal sonur sr. Jóns prests á Bíldudal,
Páll að nafni, ungur maður og efnilegur.
Veitt lœknisliéruO: Flateyrar-
hérað er veitt Halldóri Stefánssyni sett-
um lækni 1 Höfðahverfi.
Strandahérað er veitt Magnúsi lækni
Péturssyni.
Nauteyrarhérað er veitt Sigvalda Stef-
ánssyni settum lækni 1 Strandahéraði.
Veitingar þessar eru dagsettar 27. f. m.
og eru tvær hinar síðari frá 1. Júní, en
hin tyrsta frá 1. Júlí að telja.
\
Bæar-annáll.
Afii botnvðrpuskipanna is-
lensku á vetrarvertíðinni er þessi:
Snorri Sturluson..................173 þús
Freyr ......................... . 116
Valur............................ 40 —
Mars..............................120 —
íslendingur ...................... 98 —
Jón forseti ......................187 —
Við skýrslu þessa, er það að athuga, að
sum þeirra hafa verið að veiðum síðan
um nýár, en önnur byrjuðu fyrst i Mars
og eitt (Valurinn) 1. Apríl.
(Lögr.).
Afli þilskipanna islensku á
vetrarvertíðinni er þessi:
Ása, eign Duus-verzlunar. . 43,600
Björgvin — _ . . 27,000
Haraldur — — . . 17,000
Keflavík — — . . 28,000
Milly — — . . 21,000
Svanur — — . . 27,000
Sigurfári — — . . 24,000
Sæborg — _ . . 34,000
Portland eign h/f. P. J. Th. & Co. 13,000
Grreta — — 13,000
Bagnheiður — 21,500
(ruðrún (frá Gufun.). — 23,000
Toiler — 13,000
Björn Ólafsson — 27,500
Langanes — 30,000
Skarphéðinn — 18,500
Sléttanes — 15,000
(feir eign h/f. Sjávarb. í Rvk. 31,000
Isabella — — 17,000
Fríða — — 20,000
(Juðrún Zoega — 20,000
Josefine eign — 19,000
Acorn — — 11,000
Morning Star eign s. fél. i Hafnarf. 26,000
Robert _ _ 14,500
Sjana — — 16,000
Himalaya — — 9,000
Margrjet eign Th. Thorsteins. kpm. 18,000
Sigríður — — 17,000
Haft'ari eign Sigurðar í Görðum 21,000
Ilaraldur frá ísafirði 24,000
Hafstein eign Jóns Ólafss. skipstj. 21,000
Scagull eign Odds Jónss.f. Ráðag.ofl. 29,000
Ester eign fiskiveiðafél. Stapinn 15,000
Á frönsku hefir nýlega verið gefið
út kver hér 1 bænum. Eru í þvl ýmsar
uPplýsingar, er Frökkum þeim, er hing-
aö korna, er nauðsynlegt að vitá, svo sem
um skipaferðir, hvenær söfnin, ritsíma-
stöðin og pósthúsið er opið o. s. frv.
Auk þess hafa margir augiýst í kverinu.
Frágangur er góður að ytra útliti, en
um prentvillur og þýðingarvillur verður
ekki dæmt hér, en líklega er minna um
það en í ritsímaeyðublöðunum forðum
daga. —
Skipaferðir: »Sterling« kom frá
útlöndum 4. þ. m. með um 50 farþega.
»Kong Helge« kom frá útlöndum s. d.
»Vendsyssel«, aukaskip Sam. gufusk.fél.,
kom frá útlöndum í fyrra dag, og
»Gambetta«, aukaskip frá Thorefél., kom
frá útlöndum 1 gær.
»Vestri tór í strandferð á hvítasunnu-
dag með fjölda farþega.
Islenzkar sagnir.
Frá Hljóða-Bjarna.
Eitt sinn fór Bjarni af Langanesi aust-
ur í Fljótsdalshérað. Þá var hann orð-
inn gamall. Vildi hann finna Pál sýslu-
mann Melsteð, og fá hjálp hans að
ná aftur konu sinni. A þeirri ferð var
Bjarni nótt á Finnstöðum. Þar bjó Þórð-
ur bóndi Glslason, búhöldur mikill og at-
hafnamaður, skynugur vel, en nokkuð
brellinn og meinlegur. Hann tók Bjarna
vel, spurði margs og veitti ótæpt brenni-
vín, svo karl varð ölvaður. VTísaði Þórður
honum til rúms á skák á hápalli, og var
ilt rúm á bálknum, en hátt niður á gólf,
og var steinlagt. Bjarni lét illa í svefni
og byltist mjög í ölæðinu, svo hann valt
fram af niður á gólfið. Þá vaknaði Bjarni
og hljóðaði ákaflega. Þórður heyrði og
sagði: „Æ! meiddirðu þig, Bjarni minn“.
„Hví spyr þú svo“, sagði Bjarni. „Heyrð-
irðu það ekki? Eg rotaðist". „Ekki hefur
þú rotast", segir Þórður, „þess vegna
hljóðar þú". „Bölvaður gikkurinn", sagði
Bjarni; „er það ekki annað, að rotast, og
annað að dauðrotast". Aldrei náðiBjarni
aftur samvistum við Sigríði konu sína.
Ekkert barn átti hann við hvorugri konu
sinni. Lengi var Bjarni á elliárum niður-
setningur á Langanesi. Þar sem sveitar-
óinögum var lýst 1 hreppsbók Langnes-
inga, stóð vlða hjá nafni Bjarna: „gamall
letingi", eða annað verra. Alla tíð var
hann hvimleiður, og var settur niður á
fleiri stöðum en einum hvert ár. Sfðajst
átti hann að vera missiri á Sauðanesi. Þá
ók eg, sem skrifa þetta, karli í vistina
snemma vetrar, og var honum þar sam-
tíða, þangað til hann dó seint á útmán-
uðum1). Tók eg að honum gröf með öðr-
um út við garð, suður frá sáluhliði. Þennan
vetur var Bjarni mikið meinhægtir, hafði
oft yfir sálma úr Hallgrímskveri, og virtist
orðinn guðrækinn. Þó brá enn fyrir hjá
honum strákskap í orðum, og oft var hann
á nóttum frammi með ljós, að rusla í
kistu sinni, en aldrei um daga. Menn
ætluðu að hann ætti peninga, en ei fund-
ust eftir hann nema 3 krónur. Enda hafði
það ætíð verið siður hans, að geyma pen-
inga í jörðu, í þúfum og holum. Því ætl-
uðu menn, að hann mundi víða hafa
fólgið fé í jörðu; og það vissu menn, að
hann hafði oft mikla peninga og lét aldrei
burtu. Hann var hjátrúarmaður; heitaðist
við menn og var ei trútt um, að menn
hræddust hann fyrir fjölkyngi.
Bjarni Pétursson var orðheppinn og
talaði oft í líkingum mjög einkennilega.
Til vitnis um það, skal segja liér nokkuð
um orðtök hans. Síðasta vetur, sem Bjarni
lifði, rólaði hann ( stofu, þar sem maður
þiljaði innan. Bjarni tók upp heflaða
tjöl öðrum megin, en var svört hins vegar
og ekki ásjáleg. „Hvert á þetta aðsnúa?"
sagði Bjami og benti á svörtu hliðina.
„Að veggnum", sagði smiðurinn. „Eg
skil það kunningi", sagði Bjarni, „þvl
hann hefur ekki augu".
1) Bjarni andaðist 20. Júlí 1826, og hefur
því orðið 78 ára.
lbilikiirú vsi j>. Við undirrituð get-
um ekki með orðum útmálað þær þakkir,
sem við vildum geta fært öllum þeim
mönnum ungum og gömlum, sem á svo
margvíslegan hátt sýndu okkur innilegan
vináttu og virðingarvott, með nærveru
sinni og annari örlætislegri og kærleiks-
ríkri hluttöku í 80 ára afmælisfagnaði mín-
um (Lofts Gíslasonar) og 52 ára búskap-
arminning, sem þeir heiðruðu sveitarhöfð-
ingjar Gunnl. hreppstjóri Þoisteinsson
dbrm. á Kiðjabergi og Jóhannes hrepps-
nefndarm. Einarsson í Eyvfk, stofnuðu til
ásamt konum þeirra, sem voru þeim mjög
samtaka í því sem öðru, að leysa þetta
fyrirtæki af hendi með sérstaklegri alúð,
rausn og heiðri. Þessi heiðurs-samkoma,
sem haldin var á sumardaginn fyrsta í
barnaskólahúsinu á Minniborg, veitti okk-
ur þann fögnuð að við minnumst ekki að
hafa lifað glaðari dag, enda var veðrið
yndislega fagurt.
Við viljum því þakka góðum guði fyrir
alt það góða, sem fram við okkur hefur
komið 1 þessu sem öðru, og biðjum hann
að launa öllum þeim, er hér áttu hlut að
máli, þær rausnarlegu gjafir, sem okkur
voru afhentar til menja, og öll þau fögru
orð, er okkur voru flutt við tækifærið
bæði 1 bundnu og óbundnu máli.
Með glaðri og þakklátri endurminningu
um þennan ánægjulega sumardag, send-
um við öllum hluttakendum kæra kveðju
okkar.
Vatnsnesi í Grímsnesi 29. Apríl 1910.
Margrét Tómasdóttir. Loftur Gíslason.
CgcjQrt Qlaessen
7firréttaraálifintnlni!Möiir.
Pésthússtræti 17. Venjulega heima kL
10—11 og 4—5. Tals. 16.
Sveitarnenn!
þegar þið komið til bæarins, þurfið
þið ekki að ómaka ykkur til að, fá
ykkur vindla og allskonar tóbak búð
úr búð, heldur farið beint í
Tóbaksverslunina í Ansturstræti 4
því hvergi fást vindlar og allskonar
tóbak
betra og ódýrara
en í
Tóbaksverslun R. P. Leví,
Austurstræti 4.
Munið það!
Jurtapottar
ódýrastir í verslun
Sturtu Jónssonar.
Fimtudaginn 9. Júní næstkom-
andi verður opinbert uppboð
haldið og þá selt ýmiskonar
tiinbur. svo sem plankar.
bitatré, loftlistar o. fl. tilheyr-
andi þrotabúi hlutafél. »Bakka-
búð« hér í bænum.
Uppboðið verður haldið í timb-
urgeymsluskúr nefnds þrotabús
við LindargÖtu og hefst kl. 11
árdegis.
Bæarfógetinn í Beykjavik,
19. Mai 1910.
Jón Magniisson.
Allar
brúkadar Íslenskar sögu og
Ijódabœkur kaupi eg fyrir pen-
inga einnig orðabœkur o. //.
*3ófí. <3ófíannesson.
Laugaveg 19.