Þjóðólfur - 15.07.1910, Page 1
62. árg.
Reykjavík, Föstudaginn 15. Júlí 1910.
M 29.
gjörn jónsson.
Bt'ot úr stjórnmála- og menningarsögu
íslands.
X. Yfirlit.
Björn Jönsson er einn núlifandi manna,
þeirra er einna lengst og svo að segja
óslitið hefir »talað rneð« um flestöll lands-
mál. Hann hefir stýrt blaði slðan ísafold
varð til, 1874, og alt til þessa dags. Til
þessa dags segjum vér, af því að það er
opinber leyndardómur, að ísafold stýrir
hann enn, þótt ekki sé hann talinn fyrir.
Ritháttur hans þekkist svo vel, að enginn
þarf að villast á því, hvað hann hefir
skrifað og hvað aðrir hafa skrifað 1 blaðið,
jafnvel þótt sumir menn hans séu nú
farnir að bera við að stæla hann. Það
er því svo farið um ritstjóra Isafoldar,
Ólaf Björnsson og Björn Jónsson, föður
hans, að Ólafur er talinn fyrir, en Björn
stendur að baki honum og stýrir. Fyrir
því er það alveg réttmætt, að taka með
ísafold frá þeim tíma, er Björn hætti í
orði kveðnu ritstjórn hennar, og til þessa
dags, þegar lýsa skal hátterni B. J. i riti
og stjórnmálaafskiftum.
Ef segja skyldi upp dóm um blaðamensku
B. J., þá yrði efni þess dóms í verulegum
atriðum alveg gagnstætt dómum um flesta
menn aðra. B. J. er oftast fremur spak-
látur, umburðarlyndur og kurteis hin fyrri
ár ritstjórnar sinnar og lengi fram eftir,
þó að hann eigi við skoðana-andstæðinga
sina. Hann velur þeim sjaldan — síst að
fyrra bragði — ill eða ómakleg orð, veitir
jafnvel ákveðnum andstæðingum sínum
rúm í blaði sínu, gerir þeim ekki upp
eigingjarnar eða óvirðulegar hvatir að öðru
leyti o. s. frv. Ritháttur hans er óbrot-
inn og einfaldur oftast nær, í samanburði
við síðari ritsmíðar hans. Víðáttu-illmæli
eru sjaldgæf ( samanburði við það, er
síðar verður. Um 1895 bregður mjög til
hins verra. Þótt hæpið sé að kenna E i n-
ari Hjörleifssyni það alt, þá verð-
ur því ekki neitao, að ísafold stórhrakar
að mörgu leyti eftir að hann gerist með-
ritstjóri hennar, en það varð hann ein-
mitt 1895. En víst er um það, að þá
missir hún marga hinna (yrri kosta sinna.
Hún hættir að vera jafn látlaus, einföld
og óbrotin. Rithátturinn verður tilgerðar-
legur, bæði á þeim greinum, sem sýnilega
eru eftir B. J., og eigi síður ritsmíðum
Einars i blaðinu — og það, þótt Björn
riti alveg óreiður og af engu kappi. Um-
burðarlyndi víkur nú fyrir ofstæki því,
sem ávalt siðan hefir loðað við ísafold
gagnvart öllum og öllu, sem ekki var á
sömu bók lært sem B. J. vildi vera láta.
B. J. virðist að vísu altaf hafa haft sterka
hneiging til trúrækni, en sú tilhneiging
endar síðast í andatrúnni, sem Einar Hjör-
leifsson prédikaði sýknt og heilagt 1905—
1909, og hafði nær drepið blað hans,
Fjallkonuna, sem hann stýrði til áramóta
1906—1907, því að íslenskir blaðalesendur
°g blaðakaupendur kunnu að meta hinar
*v<sindalegu« rannsóknir »dularfullra fyrir-
krigða«, samtál við framliðna, »krabba-
memsl0eknjngar<( með andatrú o. s. frv.
En fyrsti postuli alls þessa var Einar
Hjörleifsson, sem alkunnugt er. Þessi
trúræknisalda erti og egndi vitanlega
sjálfan B. J. allra manna mest. Hann
var og er örgeðja og geðríkur kapps-
maður, tilfinningamaður allmikill, en ekki
skapfastur né hugsandi og rökfastur að
sama skápi. Einar Hjörleifsson hafði og
undirbúið sendingu »andans« í huga B. J.
rækilega og með allri þeirri lægni, sem
honum er eiginleg, og svo var hann þá
sem enn, að margir trúðu satt vera, það
er hann sagði, því að svo kunni hann áð
stilla orðum og látbragði, að ekki var
hægðarleikur að rengja hann, þeim mönn-
um, er annars var meinlaust eða vel til
mannsins. Það ber og öllum saman um
það, sem til þekkja, að E. H. hafi verið
leiðandi andi í mjög mörgum athöfnum
B. J. Og þótti mörgum sem hann mundi
ekki hafa verið skapbætir B. J., frá almennu
sjónartniði, þeim er vinir voru B. J. Sá er
dæma vill athafnir B. J., hvort heldur er
í blaðamensku eða annarstaðar, getur
ekki hjá þvi komist, að lýsa E. H. að
nokkru, því að það er ekki ofmælt, að
hann beri siðferðilega ábyrgð á afturför
B. J. í ýmsum greinum frá 1895 °g dl
þessa dags — eða, að sumra skoðun, að
hann eigi þakkirnar skilið fyrir umhreyt-
ingar B. J. síðan 1895.
Því næst er einkum einn annar maður,
sem eigi á síður — og eflaust nii a ð
a 11 r a d ó m i — óþökk skilið fyrir áhrif
sín á Björn Jónsson. Þessi maður er dr.
Valtýr Guðmundsson. í raun
réttri má segja, að þeir E. H. og V. G.
hafi bætt hver annan upp í þeirri starf-
semi, að breyta skoðunum B. J. og öll-
um manndómi. Valtýr Guðmundsson
vakti upp hér á landi nýa stjórnmála-
stefnu — valtýskuna — sem hiklaus
var stórkostlegt misstig í stjórnmálaefnum,
hvernig sem á er litið, enda heyrist nú
enginn framar leggja henni liðsyrði. Val-
tý tókst þó að vinna B. J. á sitt mál. —
E. H. og V. G. hafa ýmislegt sameigið:
lipurð og ljúfmensku í hversdagsfari, yfir-
borðsþekkingu á mörgum málefnum, ná
sér báðir einkar fljótt aftur, þó að þeir
séu hraktir í orðum og röksemdum, eru
venjulega vel stiltir, að minsta kosti á
yfirborðinu, hvað sem á bjátar, eigi altaf
kallaðir glöggmálir — og þó er Valtýr
s t u n d u m óþarflega opinskár. Það er
því engin furða, þó að slíkir menn mættu
miklu til vegar koma um Björn Jónsson,
sltkan tilfinninga- og skapólgumann. Sið-
ari atburðir hafa þó sýnt það, að E. H.
hefir náð miklu fastari tökum á B. J.
Valtýr er nú, eins og allir vita, »fallinn
engill«, sem hefir gersamlega mistnáð og
hylli B. J. —og þar með E. H., enEinar
Hjörleifsson er ennþá sami viskubrunnur
og ágætismaður í hvívetna, sem hann var
í hugskoti B. J. í öndverðu, þegar eftir
að hin andlega blóðblöndun milli þeirra
varð 1895. Þó var Valtýr víst fremur
veitandi en þiggjandi um öll fjarframlög
til flokksþarfa, en Einar aldrei veit-
andi — af afsakanlegum ástæðum — og
er því ekki fjárhagsástæðum til að dreifa,
að svo fór um félag þeirra B. J., V. G.
og E. H., sem raun er nú á orðin.
Sjálfur er Björn Jónsson óskaplíkur
þessum tveimur mönnum. Einmitt þess
vegna hafa þeir haft svo mikla þýðingu
— extrema se tangunt. Meðlægni
sinni og ísmeygni áttu þeir svo auðvelt
með að sannfæra hann um svo margt, sem
öðrum mönnum hafði aldrei eða trauðla
tekist, — og auk þess tók E. H. trúar-
taugar B. J. í sína þjónustu. Hann var
eins og æfður trúboði, tók þá hliðina,
sem veikust er fyrir hjá flestum örlyndum,
en ekki að sama skapi hugsandi mönn-
um. Slíks var og von af Einari, að skáld-
auga hans sæi þ a r þá leiðina, sem auð-
veldast og heppilegast var að fara. Ynni
hann þetta vígi, þá vissi hann, að borgin
mátti vel verða unnin öll, Þá vissi hann
líka, að hann var orðinn æðsti spámaður
B. J. — og með tfmanum ef til vill eini
spámaðurinn. Með þessu var Valtý líka
ruddur vegur. Þegar los er komið á í
eina átt, og þegar sá, sem því losi veldur
og stýrir, gerist samverkamaður hins, er
enn vill koma inn nýum áhrifum, þá er
brautin líka rudd slíkum áhrifum. Það
er alveg eins og þegar menn trúa fastlega
á einhvern guð, þá eru líka siðferðiskenn-
ingar þær og skoðanir, sem þeim guði
eru eignaðar, góðar og gildar í alla staði,
ávalt meðan slík guðstrú hallast ekki.
Það verður líka óbifanleg trúarsetning, að
allar kreddur þess guðs og spámanna
hans séu alger og eilífur sannleiki. Þegar
á þetta er litið, þá verður fullskiljanlegt,
hvers vegna dr. Valtýr fær Björnjónsson
á sitt mál. Agæti valtýskunnar verður
B. J. trúarsetning, föst og óhagganleg, og
hann berst fyrir henni á móti Benedisk-
unni svo ótrauður og hlífðarlaus, sem
hinn eldheitasti og ótrauðasti trúboði
getur barist í þjónustu guðs síns.
En það verður ekki bæði slept og
haldið. 1902 kom nýtt atriði til sög-
unnar. Það var A1 b i r t a n eða stjóru-
lagabreyting sú, sem kend hefir verið við
Alberti. Hún bauð meira en valtýskan,
en lögfesti íslandsráðgjafa í ríkisráði Dana,
að sumra manna skoðun. Þeir félagar,
B. J., E. H. og V. G. sleptu þá valtýsk-
unni, og þrumaði Björn nú um hríð móti
hinum nýa og fáliðaða flokki, er nefndist
Landvörn, og vildi ekki hafa rikisráðs-
ákvæðið í stjórnarskránni. Eftir að ný
stjórn var sest her í landi á laggirnar,
sneru þeir við blaðinu og sáu nú margan
»meinlegan þverbrest* ástjórnlögum lands-
ins, er þeir töldu áður engu skifta. Á
þetta eflaust rót sína að rekja til einhverra
vonbrigða, er þeir félagar og flokkur þeirra
hafði liðið, Þessi snöggu skifti B. J. er
mjög auðvelt að skýra, þegar litið er til
þess, sem á undan var gengið og nokkuð
er á drepið að framan. Þess var ekki að
vænta, að allir þeir boðar, er risið höfðu
innan í Birni, mundu falla alt í einu.
Vindstaðan var aðeins orðin önnur og
móthverf þeirri, sem áður var. Valtýr og
Einar höfðu enn bein áhrif á hann og
lík sem fyrri. Þar að auki braust nú trúar-
aldan fram í B. J. aföllum sínum krafti. Árin
1905—1909 hafði andatrúin alveg heillað
huga hans, og, eins og vant er að vera,
urðu þeir flestir »vargar í véum«, sem
hófu andblástur móti þeirri trú. Stjórn-
máladeilan blandaðist inn í, svo að nú
| komst hitinn að suðumarki í huga B. J.
Svo kom milliríkjanefndin 1907. Hún
var að nokkru leyti afspringur alls þess
' gauragangs, sem á undan var farinn. Nú
komu margir nýir liðir — og leiðtogar
til sögunnar. Eftir að uppkastið var orðið
heyrinkunnugt, féll V. G. úr náðinni hjá
B. J. Því olli Einar Hjörleifsson þó ekki,
heldur ýmsir aðrir, sem fyrstir eða einna
fyrstir hófu baráttuna gegn Uppkastinu,
þar á meðal Bjarni Jónsson frá
Vogi, dr. Jón Þ o r k e 1 s s o n o. fl.
Það var og sjálfsagt nauðsynlegt, að offra
Valtý, því að á þinginu 1909 voru komnir
ýmsir nýir andar í flokkinn, sem Valtýr
var eigi þóknanlegur. Og það var happ
sumum mönnum í flokknum, því að Val-
týr hefði eflaust orðið allhættulegur keppi-
nautur, ef hann hefði haldið áhrifum stn-
um. En siðan hefir hann legið í póli-
tisku dái. Þar fyrir mega menn nú ekki
halda, að allar þær rúnir, sem dr. Valtýr
hafði rist á meðvitund B. J. séu máðar
út. Nei, því fer fjarri; andi V. G. lifir
þar enn, og það er eins og áður er sagt,
óhætt að þakka eða vanþakka honum
óbeinlínis margt af því, sem B. J. hefir
gert og er að gera. Löng sambúð og
samhygð og innilegur átrúnaður á menn
mótar svo skapsmuni og skoðanir manna,
að áhrifin hverfa ekki á skömmum tíma,
enda þótt sá, sem fyrir þeim hefir orðið,
sé sér þeirra ekki framar meðvitandi.
Þau eru uppeldi og vani, sem aldrei verð-
ur fullkomlega upprættur.
Eftir þessa fortíð er þá B. J. kominn
upp í valdasessinn. Því verður ekki
neitað, að hann hefir mörg ár og eigi
litla lífsreynslu að baki sér. En sú Iífs-
reynsla hefir ekki verið verið vel löguð
til þess að gera hann að heppilegum
stjórnanda. Hún hefir ekki verið löguð
til að bæta meðfædda skapbresti, til að
kenna honum að athuga málefni rólega
og með þeirri víðsýni, sem landstjórnar-
manni er nauðsynleg, til þess að innræta
þá skapfestu, þrautseigju og sanngirni um
menn og málefni, sem slikum manni er
ómissandi. Landsstjóinarmenn mega ekki
kasta steininum eða hnútunni, sem að
þeim er varpað, á sama hátt sem blaða-
maðurinn eða »agitatorinn«.
Eftir þessar bráðabirgðarathugaseradir
skal reynt að lýsa afskiftum B. J. af ein-
stökum hinum helstu málum, rithætti
hans, meðferð á mönnum, framsýni, sam-
ræmi í orðum og athöfnum, heilræðum
og spádómum, eftir því sem alt slikt
birtist í æfistarfi hans hingað til, en aðal-
heimildin er vitanlega Isaf., bæði fyr og nú.
Slcii»af erðir: „Vestri" kom úr
strandferð n. þ. m. og fór aftur í morgun.
„Sterling“ kom frá útlöndum í fyrra-
kvöld með fjölda farþega, Þar á meðal
voru Vigfús Einarsson cand. jur., Júlíus
Havsteen stud. jur., Rigmor Schutz heit-
mey Jóns málfræðings Ófeigssonar, og
giftust þau i gær, kona Björns Sigurðsson-
ar bankastjóra og kona Bjarna frá Vogi,
Sömul. hljóðfæraleikararnir Arthur Shat-
tuck og Julius Foss o. fl.
„Oce»na“, þýska skemtiferðaskip-
ið, kom hingað á þriðjudagsmorguninn
með um 270 farþega. Skipið fór aftur
þá um kveldið.