Þjóðólfur - 03.12.1910, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 03.12.1910, Blaðsíða 1
62. árg. Reykjavík, Laugardaginn 3. Desember 1910. M 51. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ BOGI BRYNJÓLFSSON ♦ J yflrréttarmálafiutningsmaður J J Austurstræti 3. J ♦ Tals. 140. Helma 11—12 og 4—5. ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Stjirnarsaga Jjarnar. Svartr á Hofsstöðum sagði fyrir. 1. Formáli. Eins og kunnugt er, hafa sumir menn á landi hér háð langa og harða baráttu fyrir flutningi æðstu stjórnar landsins hingað í landið. Þótti flestum mönnum sem létta mundi þá af synjunum þeim á konungsstaðfestingu íslenskra laga, er svo algengar voru og illræmdar orðnar, með- an stjórnarherra sá sat í Kaupmannahöfn, er flytja átti íslensk mál fyrir konungi og svara til sakar fyrir meðíerð sína á stjórn- arlögum landsins. Svo væntu menn þess, að stjórnin bæri meiri umhyggju fyrir högum landsins og léti sér framar skitta öll mál þess, ef stjórnarherrann væri hér búsettur, en áður hafði reyndin á orðið. Það var og geta manna, að maður ís- lenskur, er ætti lögheimili á íslandi, mundi að öllu samlögðu reynast þjóð- hollari, og að hann mundi Iáta sig meir skifta skoðanir og almenningsálit íslend- inga en danskur maður, búsettur í Kaup- mannahöfn. Það er mönnum kunnugt, að stjórnar- herra íslands flutti sig inn í landið með skjifstofu sína samkv. breytingu þeirri á stjórnarskrá íslands 5. Jan. 1874, er kon- ungsstaðfestingu hlaut 3. Okt. 1903 og í gildi gekk 1. Febr. 1904. Frá þeim tíma hefir stjórnin átt að heita innlend í mála- flokkum þeim, sem venjulega eru kölluð >sérmál« íslands. Ánægja manna með stjórnarbreytingu þessa varð þó hvergi öblandin, enda var stjórnarbreytingin k e y p t af Dönum, en ekki g e f i n, eftir þvl sem Landvarnarmenn litu á málið, og «ftir þvf sem hinir stjórnarflokkarnir mundu hafa á það litið, ef þeir hefðu haldið fyrri skoðunum sfnum á afskiftum rlkis- ráðs Dana af sermálunum, því að flutn- ingur þeirra fyrir konungi í ríkisráði var 1 ö g m æ 11 u r í breytingu stjórnarskrár- innar 3. Okt. 1903. Ennfremur varð ^a 1 týski -Stjórnbótar-Fram- sbknar-Framfara-Þjóðræðis- Sjálfstæðisflokkurinn brátt lítt unnandi stjórnartilhöguninni nýu, enda þó að þeir ynnu ósleitilega með fjandmönn- um sínum fornum og nýum að fram- gangi og samþykt stjórnlagabreytingar- innar 1903. Illgjarnir menn og óorðvarir kváðu óánægju þessa sprottna af því, að þessi marguppskfrði flokkur hefði ekki þegið aðrar sæmdir fyrir vasklega fram- göngu sína fyrir Valtýskuna og stjórnlaga- Þreytinguna 1903 en 2 — tvær — Albertskar riddaranafnbætur, aðra á velbygðugan eðla heiðursmann Valtý doktor Guðmundsson, og hiiia á þann fróma mann, þá ritstjóra Isafoldar, síðan veleðla og einkennisbúna hágöfgi og nú réttan og sléttan Björn Jónsson ráðgjafa. Má hverjum sýnast um þetta og svo um það tala, sem hann vill. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦■♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ Gísli Syeinsson ♦ & Yigfús Einarssont ♦ yfirdómslögmenn. ^ Skrifstofutimi II1/.—I og 5—6. ^ Þingholtsstræti 19. Talsimi 263. ♦ ♦ ♦ ; Þegar ráðherrastjórnin nýa var hér sett á laggirnar 1904, var glaumur mikill og gleði. Skorti þá ekki drykkjur stórar og veisluhöld hin prýðilegustu. Sköpuðust þá allmörg ný embætti og sýslanir, sem hin nýa landstjórn hlaut að skipa. Þótti stjórnarmönnum og fylgdarmönnum ráð- herrans, sem þá var, sem endurfædd væri gullöld íslands. Flokkurinn með mörgu nöfnin stóð álengdar, horfði á glauminn og gleðina og sýndi brátt heldur ilt bragð á sér, svo sem oftast er um börn, sem eru eða kallast vera höfð út undan. Kölluðu þau nýu stjórnina flokkstjórn, en kváðu hana eigi mega heiti landstjórnar bera. Það er eigi ætlun vor, að skrásetja hér sögu þeirrar stjórnar, sem að völdum sat fyrir stjórn vora nú. Þetta eiga aðeins að vera upphafsorð. Er það áform vort, að skýra í stuttu máli og brotalaust frá stjórnarfari í landinu, svo sem það hefir verið sfðan Björn Jónsson gerðist ráðgjafi. 2. Björn kjörinn ráðgjafl á flokksþingi. Sumarið 1908 vann Valtýski-Stjórnbót- ar-Framsóknar-Framfara-Þjóðræðis-Land- varnar-Sjálfstæðisflokkurinn mikinn sigur í baráttunni um völdin. Þegar á þing koma og einsætt þótti, að Hannes ráð- herra hlyti að láta af völdum, gerðust viðsjár miklar með görpum margnefnda flokksins, svo að nær þótti til vandræða stefna. KöIIuðust margir hafa til vald- anna unnið, þeirra manna, er eigi máttu tignarheiti bera, enda var sá ljóður á ráði flokksins, að eigi mátti verða nema einn mágurinn að sömu og einu dótturinni. Nefnum vér einn þeirra tilkallsmanna Bjarna Jónsson frá Vogi. Hann er ofurhugi mikill. Hafði hann sýnt drengilega fram- göngu gegn »Uppkastinu« um Dali vestur og víðar um landið. Svalg hann stórum skyr búandmanna um sumarið, og þótti sýnn brestur í skyrsáum manna vestur þar um haustið. Er og skyr kallað góð fæða og ódýr, enda þarf skotsilfurs lftils f Dölum, því að þar eru skytningar engir. Þó urðu þær lyktir á valdatilkalli Bjarna að þessu sinni, að eigi þótti hann svo framur maður, að hafa mætti hann landráð á hendi. Flestir mæltu f upphafi Kristján Jónsson dómstjóra til valdsmensku. Gerð- ist hann þó eigi heldur ráðherra. Bar til þess yfirlætisleysi hans op óframgirni. Seiddi Jón Þorkelsson til í ' Hannes Þorsteinsson tæki ráðherradóm, en Björn Kristjánsson glapti honum seiðinn. Eru þá ótaldir tveir einherjar Valtýskunnar, þeir Björn og Skúli. Sátu nú Æsir oft og lengi á þingum og réðu ráðum sínum um þetta hið mikla vandamál. Héldu flestir í upphafi taum Skúla, en ekki hélt hann sjálfur mjög á máli sínu. Björn færðist og fast og lengi undan, enda kvaðst hann lengi hafa verið hart hald- inn af valdalystarleysi. Var nú málum jVIagnús Sigurðsson yfirróttarm&laflutningsmaður, Aðalstrœti 18. Venjulega heima kl. 10—11 f. h. og 5—6 e. h. Talsími 124. manna komið í allóvænt efni. Beittist Björn Kristjánsson loks fyrir því, að lækn- ast mætti valdalystarleysi Bjarnar. Var fyrst leitað til Guðmundar læknis Hannes- sonar. Var hann á báðum áttum og kall- aðist ófær til að »operera« valdalystarleysi úr Birni, enda væri maðurinn orðinn hrumur af elli, og eigi mundi lífi hans með öllu óhætt, ef skera skyldi úr hon- um svo gamalt og grómtekið mein. Var svo leitað ráða flestra lækna og smá- skamtalækna, sem í flokknum voru, og kölluðust allir ófærir til, enda mikið í húfi, ef illa tækist til. Þótti mönnum nú einsætt að leita til Skúla aftur og vinna hann til að taka völd, Þá kvað Þorsteinn: »Þessu var aldrei um Álftanes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar«. Við kviðling þennan brá mönnum svo i mjög, að þeir vildu eigi hætta á það, að týna svo frelsi landsins, að þeir gerðu Skúla að ráðgjafa, því að þeir vissu, að Þor- steinn var spekingur mikill, forvitri og nærgætur um margt. Kvað Þorsteinn og ekki fullreynt um lækningar Bjarnar, því að enn hefði eigi verið sótt ráð að Þórði á Kleppi. Það varð nú sammæli allra bestu manna flokksins, að sækja ráð að Þórði. Gengu þeir Björn Kristjánsson og sfra Jens á fund Þórðar, en Einar Hjörleifsson hafði orð fyrir þeim og bað Þórð allþarflega ásjá. Lýsti hann krank- leika Bjarnar með mörgum spaklegum orð- um. Kvaðst og sjálfur hafa kent hins sama meins, og marga sinna manna. Að svo mæltu setti Þórð hljóðan um stund og hugs- aði málið. Kvað hann veiki þessa afar-ill- kynjaða, en bjóstþóvið, að sér mætti auðn- ast með guðs hjálp og fyrirbænum Einars og annara halgra manna, að bæta Birni meinið. Kallaðist og eigi nenna að drepa hendi við sæmd sinni og kvaðst því mundi freista, enda alt geranda fyrir vin sinn og ættland. Sagði þó stórmikla tvísýni á því, hvort sér mætti takast svo lækning valdalystarleysins, að eigi mundi Björn henda frá sér völdunum jafnharðan aftur, þótt mein hans bættist svo í svip, að hann ynnist til að taka við þeim. Þökk- uðu þeir Einar Þórði mörgum fögrum orðum drengskap hans og áræði. Svo er sagt, að Þórður læknaði valdalystarleysi Bjarnar fullkomlega, svo að hann greiddi sjálfum sér atkvæði til' ráðgjafatignar. Þykir af því mega marka, hvílíkur snill- ingur Þórður á Kleppi er um læknis- dóm. Og svo var lækning Þórðar al- ger, að ekki hafa sögur farið af því, að Björn hafi síðan leitast við að henda frá sér völdum, slðan er menn hans kjöru hann til þeirrar tignar. Fjós brann fyrir nokkru 1 Miklaholi 1 Skagafirði hjá Þorgrími óðalsbónda Helgasyni. Brunnu þar inni 7 nautgripir. Kviknaði í ösku og brann fjósið um nótt. Sveinn iRjörnsson yfirdómslögmaður. Hafnarstræti 16. (á sama stað sem fyr). Talsimi 202. Skrifstofutimi 9—2 og 4—6. Hittist venjulega sjálfurtl—12 og 4—5. ijaðhúsið í Rcykjavik. í síðasta tölublaði Þjóðólfs hefir ein- hver »Óþ.« ritað grein um baðhúsið hér í bænum. Með því að eg er formaður hlutafélags þess, sem á baðhúsið, vil eg svara grein þessari nokkrum orðum. Greinarhöfundurinn byrjar með því, að fara vingjarnlegum orðum um baðhúsið, telur það nytsemdarstofnun og styrknum til þess úr bæarsjóði vel varið. En því undarlegra virðist það vera, að greinar- höfundurinn skyldi ekki snúa sér til stjórn- enda baðhússfélagsins og bera upp að- finningar sínar við hana, en þá fyrst fara að rita í blöðin, ef stjórnendur vildu ekki taka þær til greina. Svona hefði hver sannur vinur baðhússins farið að. En hr. »Óþ« hefir alls ekki snúið sér til stjórn- endanna, og yfir höfuð hefir ekki komið til mín né meðstjórn- enda minna nokkur ein einasta umkvörtun y f i r b a ð h ú s i n u e ð a baðverði nú í næstu tvö ár. Sfðasta aðfinslan, sem borin var fram við stjórnendurnar, var sú, að loftið væri ekki nógu gott 1 steypibaðaklefunum, og úr þessu var þegar í stað bætt. Eg skal þó taka það fram, að nú ( haust birtist grein í Fjallkonunni viðvíkjandi baðhúsinu, en hún var mjög almenns efnis og gerði sum- part svo strangar kröfur, að ómögulegt var að uppfylla þær. En auk þess, sem þessi aðferð hr. »Óþ.«, að fara að rita ásakanir á hendur bað- húsinu f opinbert blað, án þess að hafa látið stjórnendur vita, hvað honum virtist ábótavant, sýnir að hann er ekki vinur þess, þrátt fyrir hin vingjarnlegu orð í byrjun greinarinnar, þá sýnir aðal innihald greinarinnar, að hann er blátt áfram ó v i n u r þess, því flest af þvf, sem hann segir um baðhúsið, er gersamlega ó s a 11, og ef greinarhöfundurinn er gæddur almennri skynsemi, hefur hann hlotið að sjá, að hann með grein sinni hlyti að vinna baðhúsinu mjög mikið tjón, með því að vera að hræða fólk frá því að baða sig þar. Fyrstu ósannindin hjá greinarhöfund- inum eru þau, að baðhúsið hafi eigi komið að tilætluðum notum vegna þess, að margir, sem f öndverðú vöndu komur sfnar í baðhúsið, séu með öllu hættir ferðum sínum þangað af þeim orsökum, að mönnum þykt þrifnaði í baðhúsinu sjálfu í mörgu áfátt, og að þess séuýms dæmi, að menn hafi fengið þar sjúkdóma, t. d. útbrot og kláða. Eg skal nú fyrst athuga þessar »orsakir« og sýna fram á, að greinarhöfundurinn fer með rangt mál um það, að menn séu hættir að sækja baðhúsið. Að því er hina fyrnefndu or- sök snertir, þá virðist mjög ósennilegt að nokkuð sje hæft í því, að menn séu óánægðir með þrifnað f baðhúsinu, úr

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.