Þjóðólfur - 17.12.1910, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 17.12.1910, Blaðsíða 1
62* árg. KeflaYíkur-samþyktin. Eg sé, að það er töluvert ritað nú um samþykt þá, sem mennirnir í Keflavík hafa verið látnir gera nýlega, eða um þann lið hennar, sem fer fram á, að ráð- herrann stytti kjörtímabil þeirra konung- kjörnu þingmanna, sem nú eru, og til- nefni nýa konungkjörna þingmenn fyrir næsta þing. Eg sé, að blöð andstæð- ingaflokksins gera alt sitt besta til þess, að sýna fram á með lögfræðislegum rök- um, að slíkur skilningur á 14. gr. stjórn- arskrárinnar sé á engum rökum bygðar. Eg ætla nú alls eigi að ræða þetta mál frá lögfræðislegu sjónarmiði, þvl jeg er ekki lögfróður maður; enda virðist mér nærri þvf, að það sé að gera slík- um óvitaskap of hátt undir höfði. En eg hygg, að það sé hægur vandi að sýna fram á, hve haldlitlar þær ástæður eru, sem formælendur þessa skilnings á 14. gr. stjórnarskrárinnar hafa til brunns að bera, ef málefninu er snúið dálítið við. Mér hefir skilist, að veigamesta — og reyndar einasta frambærilega — ástæðan hjá þeim sé sú, að þó stjórnarskráin að vísu segi með ótvíræðum orðum, að kjör- tímabilið skuli vera 6 ár, þá sé samt meiningin sú, að það skuli aðeins ná yfir 3 regluleg þing. Þvl verði, segja þeir, að stytta kjörtímabilið þegar svo stendur á sem nú, að það vegna flutn- ings þingtímanum að öðrum kosti mundi ná yfir 4 regluleg þing. Eg ætla nú ekkert að fara út í það, hvaðan mönnunum í Keflavík koma vits- munir eða heimild til, að skýra stjórnar- skrá vora eftir sínum geðþótta og til að skora á ráðherrann að frarafylgja þeirra skýringu, sem er þvert ofan í þann skiln- ing, er áður hefir verið lagður í þessa grein. Eg ætla að setja svo, að þessi lögskýring væri rétt, og athuga, hverjar verða hugsanréttar afleiðingar hennar. Það er þa auðsætt, að svo framarlega sem það er tilætlun stjórnarskrárinnar, að kjörtímabilið skuli aldrei geta náð yfir fleiri regluleg þing en þrjú, þá er það einnig tilætlun hennar, að það skuli aldr- ei geta náð yfir færri regluleg þing en þrjú, nema þingmaður deyi á kjörtíma- bilinu, því stjórnarskráin segir áreiðan- lega ekki eitt í dag og annað á morgun. Nú verða tilnefndir nýir konungkjörnir þingmenn, segjum t. d. 1. Mal 1911. Kjörtímabil þeirra endar þá 30. Apríl 1917. Þeir eiga þá að mæta á hinu fyrsta reglulega þingi 15. Febrúar 1913, á hinu öðru reglulega þingi 15. Febrúar 19^5 °g á hinu þriðja reglulega þingi 15. Febrúar 1917. En setjum nú svo, að landið verði þá svo heppið (eða óheppið) að eiga fyrir ráðherra einhvern jafn-mætan mann sem Björn Jónsson og jatn-geðþekkan þing- mönnum Gullbringu- og Kjósar-sýslu. Setjum svo, að hann, af einhverjum á- stæðum álíti sjer hentugt að fresta þing- inu 1917 fram á sumarið, t. d. þar til í Maí eða Júní eða lengur (eins og sagt er, að Björn Jónsson hafi álitið). Setjum svo ennfremur, að hann sé það mikil- menni, að hann þori að bera þetta á- form sitt fram í ríkisráði (sem sagt er, að Björn Jónsson hafi ekki þorað) og að honum tækist að fá því framgengt. Þá Reyjavík, laugardaginn 17. Des. 1910. M 54. Frá i dag og til Jóla verða allar vörur við verslun Jóh. Ögm. Oddssonar, Laugaveg 63 seldar með mjög miklum afslætti. T. d. Kaffi á 0,66. Grjón á 0,12 (í 10 pd. II3/*) Sykur 0,26 og 0,27 aura, og allar aðrar nauðsynjavörur eftir þessu. 3 05 •H (M ^ V—< > £ oc o C$ S 0 'O 0 Glervara. Þrátt fyrir hið afarlága verð, sem á henni hefur verið áður, verður hún seld ineð IO°/o afslætti. Hinir margþráðu og marg-eftirspurðu SKELJA- KASSAR komnir aftur. Karlm.-alklæðnaðir\ 100/o af»l. MYNDA- og PÓSTKORTA-ALBÚM, hund-ódýr. Basar.vörur allar með 10--15°/o afsl. Póstkort á 2, 5 og 10 aura. 0 & Sterósköp og Ster r 0- V ci skóps-mgndir með luílf- K SS: M r—1 virði. Sömuleiðis Jólakort. Viudlar, Cigaretiur og Reyktóbak af mörgum tegundum hvergi eins ódýrt. Best fyrir einn og sérhvern að sannfærast um það sjálfur, að þetta er ekkert auglýsingaskrum. Rvík 12. Des. 1910. Virðingarfylst JÓH. ÖGM. 0DDSS0N Laugaveg 63. yrði óhjákvæmilegt, til þess að fullnægt yrði 14. gr. stjórnarskrárinnar, eins og Keflavíkurmennirnir skilja hana, að lengja kjörtímabil hinna konungkjöruu þing- manna svo, að þeir samt sem áður geti setið á þremur reglulegum þingum, sem þeim annars mundi ekki gefast kostur á. Að þetta sé hugsanrétt og óhjákvæmi- leg afleiðing af Keflavíkursamþyktinni, því hygg eg, að jafnvel Keflavíkurmennirnir sjálfir treysti sér eigi til að neita, svo framarlega sem stjórnarskráin á að vera órjúfanleg lög, en eigi pappírsgagn, sem hver ráðherra á að geta teygt eins og hrátt skinn, sér og sínum fylgifiskum í vil. En ef nú skyldi svo til bera, að hinir konungkjörnu þingmenn væru eígi á þess- um tlma geðþekkir ráðherra — mundu þá Keflavíkurmennirnir verða látnir halda fram lögskýring sinni? Mundu þeir þá ekki einmitt verða látnir gera aðra sam- þykt um það, að kjörtímabilið samkvæmt stjórnarskránni nái aðeins yfir 6 ár, og að þvf geti hinir konungkjörnu þingmenn að þessu sinni ekki fengið að sitja nema 2 regluleg þing? Þessum spurningum verða Keflavlkur- mennirnir að svara, ef þeir vilja láta skoða sig sem hugsandi menn, en ekki sem óvita. Ó. Hvað er að frétta? Jarðarkaup. Altalað er, að Jón óðalsbóndi Árnason 1 Þorlákshöfn hafi selt Þorlákshöfn fyrir 30,000 krónur. Kaupandinn er íslendingur, en hann mun kaupa fyrir hönd útlendinga — Frakka. Valdsmunnaránið í erlendum blöðum. Útlent blað, er vér höfum séð, endar ummæli sfn f tilefni af valdsmanna- ráninu : (G. B. og S. K.) á þessa leið: »Af ofanrituðu má sjá, hvernig fara mundi, ef íslendingar sjálfir, eins og tal- að hefir verið um — ættu að sjá um sjó- varðveisluna, Hið eina, er botnvörpung- arnir bera virðingu fyrir, er danska varð- skipið*. Er ekki eitthvað hæft f þessu? Jólabókln. Þeir Árni bankaritari Jóhannsson og Theodór sonur hans hafa gefið út 2. hefti af Jólabók sinni. Er hún fjölskrúðugri en í fyrra. í henni eru Jólaljóð eftir Guðm. Guðmundsson, Valdi- mar Briem og Matth. Jochumsson, jóla- minningar eftir Þórhall biskup og Guð- mund Magnússon og saga eftir Selmu Lagerlöf. Bókin er vönduð að ytri frá- gangi og mjög handhæg jólagjöf, og mörgum vafalaust velkomin. Bæar-annáll. Lík drengslna úr Hafnarfirði, elr týndist 3. Júlf sfðastl., fanst 9. þ. m. í klettaskoru uppi í Lyklafelli, nokkuð langt frá veginum. Líkið fann Bjarni Jensson smali frá Þormóðsdal. Hafn- firðingar sóttu það daginn eftir og var drengurinn jarðaður að Görðum, að við- stöddu fjölda fólks. SklpaferOlr. »Vesta< fór til út- landa 11. þ. m. og »Ceres< daginn eftir. Með »Ceres« fóru Brillouin konsúlll og Claus, frakkneskur verkfræðingur, er dval- ið hefir hér um tíma. Guðm. trésmiður Jakobsson fór og til útlanda. »Ask<, skip frá Thorefélaginu, kom hingað 13. þ. m. frá útlöndum, fer aftur f dag. Þinglýsingar 24. Nóv.: Björn útgerðarmaður Gfslason selur Jó- hanni P. Péturssyni gagnfræðing og Sig- urði stud. art. Guðmundssyni húseign nr. 45 við Bergstaðastræti með tilheyrandi fyrir 16000 kr. Dags. 5. nóv. 1910. Einar M. Jónasson yfirréttarm.fl.m. sel- ur Sigurjóni Ólafssyni trésmið húseign nr. 58 B við Grettisgötu með tilh. Dags. 15. Nóv. 1910. Jón Magnússon bæarfógeti og skiftaráð- andi í dánarbúi Guðmundar Daníelssonar selur ekkju Önnu Guðmundsdóttur hálfa húseign nr. 60 við Laugaveg fyrir 1700 kr. Dags. 31. Des. 1909. Samúel Jónsson trésmiður fær uppboðs* afsa.1 fyrir húseigninni Gíslaholti við Vest- urgötu fyrir 3000 kr. Dags. 3. Febr. 1909, Sigurður Matthíasson Laufásveg 16 sel- ur yngispilti Helga Bjarnasyni húseignnr. 50 við Njá’sgötu með tilh. Dags. 22. Nóv. 19^0. Sigurjón Ólafsson trjesmiður selur Einari M. Jónassyni yfirréttarmálafl m. húseign nr. 40 B. við Njálsgötu með tilh. Dags. 15. Nóv. igro. Þingl. 1. Des.: Árni Sigbjörnsson selur Helga Árnasyni dyraverði. Jóni Vilhjálmssyni skósmið og

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.