Þjóðólfur - 17.02.1911, Side 2

Þjóðólfur - 17.02.1911, Side 2
26 ÞJ OÐOLFUR Pmgmálaflindir Skagfirðmga. Þingmenn Skagfirðinga héldu 5 þing- málafundi 1 héraði sínu. 1. fundurinn var í Haganesvlk 23. í. m. Fundarstjóri þar var Páll Árnason hreppstj. á Ystamói, en skrifari Guðm. Daviðsson hreppstj. á Hraunum. 2. fundurinn var á H o f s ó s 24. f. m. Fundarstj.: Jón Konráðsson hreppstj. í Bæ, en skrifari sr. Pálmi Þóroddson á Hofsós. 3. fundurinn var í Kolkuós 25. f. m. Fundarstj.: Friðrik Stetánsson fyrv. alþm., en skrifari: Sig. Sigurðsson kennari á Hólum. 4. fundurinn vará Sauðárkrók27. f. m. Fundarstj.: Páll V. Bjarnason sýslum., en skrifarar: sr. Arnór Árnason í Hvammi og Gísli kaupfélagsstj. Jónsson. 5. fundurinn áReykjum í Tungu- sveit 30. f. m. Fundarstj.: Magnús Gísla- son hreppstj. á Frostastöðum, en skrifari Brynleifur Tobíasson kennari í Geldinga- holti. Á fundunum voru þessi mál raedd. 1. S t j ó r n a rs k r á r m á 1 i ð. »Fundurinn telur nauðsynlegt að stjórn- arskráin sé endurskoðuð og gerðar ýmsar breytingar á henni, þar á meðal (a.) að konungkjörnir þingmenn séu afnumdirog (b.) að konum sé veittur kosningarréttur. En fundurinn leggur áherslu á, að engar þser breytingar séu gerðar, sem veiki roálstað Islendinga gagnvart Dönum að því er snertir sambandsmáliðc. Samþ. í einu hlj. á 1. fundi. Á 2. fundi var samþ. með 55 atkv. gegn 1 að »óska« stjórnarskrárbreytinga: a. afnám konungkjörna þingmanna, b. að konum verði veittur kosninga- réttur og kjörgengi, c. að íslensk mál verði ekki borin upp í ríkisráðinu, d. að breyta megi með einföldum lögum tölu ráðherra. e. að afnema megi með einföldum lögum eítirlaun embættismanna, f. að slíta megi sambandi ríkis og kirkju með einföldum lögum, en með 35 atkv. gegn 8 var samþ., að leggja enga áherslu á, að það yrði gert á næsta þingi, á 3. fundi voru samþ. a—f-liðir, en auk þess: g. að þingmenn verði eftirleiðis 36 að tölu og h. að kosningarréttur verði bundinn við lögaldur, en kjörgengi 5 árum hærra; á 4 fundi var í einu hljóði samþ., að stjórnarskrárbreytingin yrði »tekin fyrir og afgreidd á næsta þingi« og stafliðir a—d samþ., og ennfremur: i. að þingið verði háð í tveim mál- stofum og j. að þingmenn þeir, er koma 1 stað hinna konungkjörnu verði kosnir með hlutfallskosningum um land ait; á 5. fundi var samþ. með 27 : 1 að skora á þingiö að taka stj.skr.m. »til rækilegrar endurskoðunar og endanlegrar afgreiðsluc. Stafliðir a,c, d, e, g og j samþ. í e. h!. — b samþ. með 23 atkv. gegn 3 — f. — — samhl. atkv. ennfrejnur: k. afnám ráðherraeftirlauna í e. hl. l. að skipað sé fyrir um þjóðarat- kvæði í mikilsvarðandi málum, er snerta hagsmuni almennings. Samþ. 1 e. hlj. 2. Skattamál. 1. fundur var með farmgjaldi, en mótfallinn eignaskatti af óarðbæru lausa- fé og taldi mjög ísjárvert, að fastir skatt- ar væru hækksðir að nokkrum mun. Var þetta samhljóða. Á 2. fundi var hið sama samþ. með 32 : 8. Á 3. fundi var þessi tillaga feld með 8 : 4, en samþykt að aðhyllast stefnu skattamálanefndarinnar. Á 4. og 5. fundi var 1 einu hlj. samþ. að aðhyllast tillögur skattamálanefndar- innar, beint á einokun á tóbaki í stað vínfangatollsins, næst honum bent á faktúrugjald. Síðari hlutinn var samþ. á 4. fundi með 27 : 5, en á 5. fundi með 18 : 8. 3. Bankamál. a. »Fundurinn er mótfallinn því, að landsjóður kaupi hlutabréf í íslandsbanka«. Samþykt á öllum fundunum. b. » styrkj a Landsbankann eftir föngum «. Samþ. 1.—4. fundi. c. »Fundurinn telur sjálfsagt, að hið svonefnda »bankafargan< verði tekið fyrir á næsta Alþingi og æskir þess, að málið útkljáist áður en því þingi verður slitið*. A 1. fundi samþ. 27 : 8. - 2. — — með meiri hl. atkv. - 3. — — 1 einu hljóði. d. Á fjórða fundi var aftur tillaga þessi orðuð svo: »Fundurinn skorar á Alþingi að taka til alvarlegrar íhugunar afskifti landstjórnarinnar af Landsbankanum og bankamálum landsins*. Á 5. fundi var í e. hlj. samþ. svohlj. tillaga frá Ólafi alþm. Briem: e. »Fundnrinn er því mótfaliinn, að seðlaútgáfuréttur landsjóðs til handa Lands- bankanum sé takmarkaður meir en orðið er, eða réttindi bankans skert á nokkurn hátt og treystir því, að þing og stjórn verði samtaka um að efla vöxt hans og viðgang, eftir því sem föng eru til. í annan stað álltur fundurinn, að land- stjórnin geti haft fullkomið eftirlit með landsbankanum, á þann hátt, að heimta allar nauðsynlegar skýrslur af endurskoð- endum bankans, og það því fremur, sem stjórnin skipar annan þeirra. Hin vegar telur fundurinn hættulegt og skaðlegt fyrir hag bankans, að það lag koroist á, að skipuð verði sérstök ransóknarnefnd við ráðgjafaskifti, og skorar á alþingi að gera fullnægjandi ráðstafanir til að aftra því, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi«. Undir þessum umræðum kom fram til- laga, sem hér í er færð undir »rannsóknar- nefnd«. f. Á 2. og 3. fundi var í einu hlj. samþ. að »bankastjórum Landsbankans væri bannað að hafa nokkur afskift af pólitiskum "málum«. Svipuð tillaga var samþ. á þessum tveim fundum um yfir- dómendurnar. 4. Bannmálið. Tillaga með bannlögunum vár á 1. fundi samþ. með 22 atkv. gegn 5. — 25 — — 17. — öllum atkv. — 24 atkv. gegn 17. - 2. — - 3- — - 4. — • 5- — feld 11 10. 5. Kvennréttindi. Tillaga: »Fundurinn mælir eindregið með því, að alþingi veiti konum fult jafn- rétti við karlmenn«. Samþ. á öllum fundunum, stundum í einu hlj. 6. S í m a m á 1. A 4. fundinum var f einu hlj. samþ. svohlj. tillaga: »Þar eð fuil reynsla er fengin fyrir því, að talsímasamband ís- lands er í framkvæmdinni orðin álitleg tekjugrein fyrir landsjóð, finnur fundurinn ástæðu til þess að skora á Alþingi, að það létti öllum starfrækslukostnaði við allar símastöðvar á íslandi af híutaðeig- andi hrepps- og sýslufélögum«. Samskonar tíllaga var samþ. á 1., 2. og 3. fundi, vildu líka láta endurgreiða hlutaðeigendum þau lán, er þeir hafa tekið í slíku skyni. 7. Eftirlaun. Afnám allra eftirlauna — undantekn- ingarlaust, var f einu hlj. samþ. á 1. fundi, hið sama var samþ. á 4. f. með öllum þorra atkv. 8. Fiskiveiðafélag. Tillaga: »Ef frumvarp þess efnis, að styrkja sjávarútveg landsmanna, á líkan hátt og nú er styrktur landbúnaðurinn, skyldi fram koma á næsta Alþingi, felur fundurinn þingmönnum sínum að fylgja því máli«. Samþ. með öllum atkv. á 1. fundi. 9. B r ú a r m á 1. 2., 3., 4. og 5. fundur vildu fá brú á vestari ós Héraðsvatnanna. 10. Akbraut frá Sauðárkrók fram Skagafjörð samþ. 4. og 5. í einu hljóði, og »væntu þess fast- lega, að ekki yrði frekari dráttur á fram- kvæmd verks þessa«. 11. B ry g g j u m á 1. I einu hlj. var samþ. á 4. og 5. fundi, að skora á Alþingi að veita 6000 kr. styrk til hafnarbryggjubyggingar á Sauðár- krók. 12. K o n u n g k j ö r n ir þingmenn. Umræður urðu um þá á öllum fund- unum, og bornar fram mjög mismunandi tillögur um þá á öllum fundunum neraa hinum fyrsta, þar var engin samþykt ger. Þegar atkvæðafjöldi er lagður saman á öllum fundunum, kemur í ljós tillaga á 5. fundinum, er hljóðar svo: »Fundur- inn mótmælir röddum þeim, er heyrst hafa um að víkja núverandi konung- kjörnum þingmönnum úr löglegum þing- sessi þeirras. Er samþykt með öllum greiddum atkv. (um 54) gegn 32 atkv. 13. Vantraust á ráðherra. Trausts- og vantrausts-yfirlýsing til ráð- herrans voru ræddar á 2.—5. fundi. Þeg- ar atkvæði eru lögð saman, er v a n - traustsyfirlýsingin til ráðherrans samþykt með 54 atkv. gegn 42. Á 2. fundinum var traustsyfirlýsing samþ. 26 : 7 og á 3. fundi með 9 : 3, v a n traustsyfirlýsing á 4, fundi með 27 samhlj. atkv. og 5. fundi með 17 atkv. gegn 7. 14. Búnaðarmál. Tillaga samþ. á 4. fundi: »Fundurinn skorar á Alþingi að hlynna sem best að landbúnaðarframförum og að auka styrk þann, sem veittur er til búnaðarfélaganna«. Svipað samþ. á 2. og 3. fundi. 15. Lögaldur. Á 3., 4. og 5. fundi var saraþ. svohlj. tillaga: »Fundurinn skorar á þingið, að semja ný lög um lögaldur og færa lög- aldurstakmarkið niður til tvítugsaldurs, (Frh.). Alþing'i. I. Þingsetning. Alþingi var sett 15. þ. m. og prédikaði Björn prófastur í Dvergasteini, Þorláksson á undan þingsetningu í dómkirkjunni. —. Allir alþingismenn voru mættir. Forseti sameinaðs alþingis var kos- inn Skuli Thoroddsen með 23 atkv. Hannes Hafstein fékk 13 og Ólafur Briem x. Varaforseti var kosinn Sigurður Gunnarsson með 20 atkv. Ólafur Briem fékk 1, og 18 seðlar voru auðir. Skrifarar í sameinuðu þingi kosnir með hlutfallskosningu Sigurður Stef- ánsson og Jón Ólafsson. Forseti efrideildar var kosinn með hlutkesti Jens Pálsson og fengu þeir jöfn atkvæði hann og Kristján Jóns- son. Varaforsetar kosnir Stefán Stefáns- son með 7 atkv. og Júlíus Hafsteen með 7 atkv. Skrifarar með hlutfallskosningu Krist- inn Daníelsson og Steingrímur Jóns- son. Forseti neðrideildar var kosinn Hannes Þorsteinsson við ítrekaða kosningu með 14 atkv. Ólafur Briem fékk 12, fengu jöfn atkvæði (12 hvor), í fyrra sinni. Varaforsetar Benedikt Sveinsson með 14 atkv. við ítrekaða kosningu. (Við fyrri kosninguna fékk Ól. Br. 2 og 12 seðlar voru auðir), og Hálfdán Guðjónsson með 14 atkv. Skrifarar með hlutfallskosningu Björn Þorláksson og Eggert Pálsson. í kjörbréfanefnd voru kosnir: Kristján Jónsson, Jón Magnússon, Sig. Stefánsson, Ben. Sveinsson og L. H. Bjarnason. Ráðherra lagði fram stjórnarfrum- vörp þau er áður hefir verið getið um hér í blaðinu, sín 12 í hvorri deild. — 1 gær var enginn fundur haldinn. Frumvarp um nýa stjórnarskrá bera þeir Jón Þorkelson og Bjarni Jónsson fram. Hafnarl'óg fyrir Reykjavík flytja þeir Magnús Blöndahl og Jón Þorkelsson. Landbúnaðar?ieýnd fyrir þingið, skip- aða 5 mönnum, vilja Sig. Sigurðsson, Ól. Br. og Jón á Hvanná láta kjósa. tingnefndir. Fjárlagan. (Nd.)Skúli Thoroddsen, Pétur Jónsson, Sig. Sig- urðsson, Bj. Sigfússon, Eggert Pálsson, Bj. Þorláksson, Jóh. Jóhannesson. Landsreikningan. (Nd) Ól. Briem, St. St. Eyf., sr. Hálfd. Guðj. Fjárkláðan. (Nd.) Jón Hvanná, Einar Jónsson, Þorleifur, sr. Hálfd. Guðj., Pétur Jónsson. Þingjlutningan. Jón Ól., Sig. Gunro arsson, Þ. Jónsson. Viðskiýtalagan. (Ed.) Kr. Jónss., Gunn. Ól., Jósef, L. H. B., Ág. Flygenring. Utanþjóðkirkjumenn (Ed.) Sig. Stef., Sig. Hjörl., E. Briem, Kr. Dan., Stgr. Jónsson. Hvað er að frétta? Slysfarir. Konan Kristin Berg- vinsdóttir á Stóraási í Mývatnssveit varð úti 15. f. m. Fór hún ásamt dóttur að leita að syni þeirra er stóð yfir fé. Dreng- urinn haíði sig heim um kveldið, en mæðgurnar viltust, en dóttirin komst um morguninn til bæa, en móðir hennar dó- síðari hluta næturinnar. (Gjallarhorn). ISTý uppfynding. „Gjal]arhorn“ flytur 12. f. m. grein um Jóhann skáld Sigurjónsson. Þar segir meðal annars svo: „Þess má geta, til gamans, að hug- vit jóhanns kemur fram í fleiru en skáld- skapnum- Hann hefir fundið upp mjög haglega gert áhald, sem ætlað er til þess, að halda höttum föstum á höfði kvenfólks- ins, og á það því að útrýma hinum ill- ræmdu löngu hattprjónum, sem margir karlmenn hata og margann hafa meitt, og, kvenfólkinu sjálíu þykja óhentugir. Jóhann hefir fengið einkaleyfi fyrir þess- ari uppfynding sinni í Danmörku. Dansk- ar konur eru mjög hrifnar af þessu áhaldi og segja það einkar þægilegt, og ein af helstu skartgripaverslunum í Austurgötu í Khöfn hefir beðið um að hafa það á boð- stólum. Matthías Jochunison hefir elr rn 11 f r*i to (\ »5 31

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.