Þjóðólfur - 10.06.1911, Qupperneq 1
Þ JOÐOLFUR.
63. árg.
Reykjavík, Laugardaginn 10. Júní 1911.
J»23.
Bændaveiðar 09 féfletting.
Bændaveiðar eru reyndar ekki
alveg ný atvinnugrein hér á landi.
Þær hafa þekst hér áður í ýmsum
myndum.
Nú er verið að byrja að reka
hér nýja tegund bændaveiða. Það
er full ástæða til, að vara menn
við henni.
Aðferðin er þessi: Maður einn
hér í Reykjavik, sem vér hirðum
ekki að nefna, að minsta kosti
ekki að sinni, sendir menn út um
land, til þess að fala að jarðeigend-
um námurétt á landi þeirra. Hann
borgar þessum mönnum ferða-
kostnað og gott kaup; en bænd-
unum mun vera boðið svo sem
tuttugu til tuttugu og fimm krónur
fyrir námuréttinn á jörðu þeirra.
Það er nú svo sem ekki tilgang-
ur kaupandans að fara að leita
sjálfur að neinu verðmætu í jörð-
inni, því síður að fara að reka
þar námustarf. Nei, tilgangurinn
er, að kaupa upp fyrir gjafvirði
sem mest af námuréttindum jarða
í þessu landi. Síðan á að hafa
námuréttindin á boðstólum fyrir
útlendinga, Breta og Þjóðverja, og
selja þeim réttindin fyrir ærið verð
— og það er varla að efa, að
Reykjavikur-maðurinn, sem keypti
eða leigði námuréttinn af íslenzku
bændunum fyrir sama sem ekkert
verð, getur grætt, og ætlar sér að
» græða, tugi eða hundruð þúsunda
króna á þessu bralli.
Ekki fyrir það að svo mikil líkindi
séu til, að margt verulegt verðmæti
sé hér í jörðu fólgið, heldur af því,
að ekki þykir samvizkusök að narra
gullauðgan Bretann, og — ef á
þarf að halda — salta handa hon-
um námurnar.
Ekki er þó iyrir það að synja,
að dýrir steinar séu til hér á landi
og, ef til vill, eitthvað af málmum.
En ef svo reynist, þá væri sjálf-
sagt hyggilegra fyrir jarðeigendur
að eiga námurétt sinn sjálfir og
selja eða leigja hann sjálfir þeim
útlendingum, sem kynnu vilja
kaupa. Því að þar sem eitthvað
verulega verðmætt er i jörðu eða
á af málum eða dýrum steina-
tegundum, þar er fásinna að fleygja
frá sér réttindunum fyrir fáa tugi
króna; þvi að þau geta þá verið
mörg hundruð króna í árlegt eftir-
gjald.
Þessir kaupahéðnar, sem nú fara
yfir landið eins og logi yfir akur,
þeir setja sjálfir saman samninga
við bændur og stýla þá eins og
þeim sjálfum sýnist. Fæstir bænd-
ur, og jafnvel fæstir prestar líka,
bera skyn á að orða samning svo,
að eigi sé nein gloppa á fyrir kaup-
anda til að smjúga í gegn um og
losna þannig við skuldbindingu
sína, ef þeim býður svo við að
horfa. Þeir jarðeigendur, sem endi-
lega vilja selja réttindi undan landi
sínu, ættu þó aldrei að skrifa und-
ir samningana sjálfir, heldur fá lög-
fræðing til að gera samningana
fyrir sig. Nái þeir í sýslumann,
mun oftast mega fá hann til að
gera þetta. Sé þess eigi kostur,
þá er hezt að senda áreiðanlgum
málaflutningsmanni umboð sitt til
að gera samninginn fyrir sína
hönd. Til þessa skyldu menn þó
forðast að hafa þá málaflutnings-
menn, sem sjálfir eru riðnir við
námubrask, eða menn vita, að eru
opinberlega eða leynilega í félags-
skap við námabraskara eða aðra
fjárglæfra-menn. Skulumvér benda
hér á fáeina: 1 Reykjavík t. d.
Eggert t'.laessen, Lárus Fjeldsted,
Odd Gíslason, Vigfús Einarsson,
alla saman áreiðanlega og vandaða
menn, sem eigi er kunnugt um að
sé neitt við námubrask riðnir. Á
Akureyri má nefna Björn Líndal og
Valdemar Thorarensen; en á Isa-
firði Guðmund Hannesson.
Nú er nýlega einn sendimaður-
inn heim kominn norðan úr Húna-
vatnssýslu, en annar leggur bráð-
um á stað austur í Breiðdal, og
ef til vill viðar um Múlasýslur,
báðir í erindum þess námubrask-
ara hér í Reykjavík, sem vér gát-
um um í upphafi þessarar greinar.
Það er tilgangur þessara lina,
að vara menn alvarlega við að
lenda í klónum á þessum bænda-
veiðurum.
★
* *
Síðan framanrituð grein var
skrifuð, höfum vér orðið þess
áskynja, að námubralls-maðurinn
hér í Reykjavík er ekki annað en
umboðsmaður Einars Benedikts-
sonar, reiðara »Vöruhússins tóma«
hérna í Rvík (»tómthússmann«
heyrum vér suma nefna hann).
Þessi starfsemi hans er þó að eins
eínn liður í viðleitni hans til að
ná öllum auðsuppsprettum þessa
lands úr höndum landsmanna og
leggja þær undir útlendinga. —
Fossum, námurétti, í einu oi'ði
öllu verðmæti þessa lands, sem við
fasteignir er tengt, reynir hann að
ná úr höndum landsmanna í hend-
ur útlendinga.
Vér erum ekki að lá hr. E. B.
og erindreka hans þetta. Hver
skarar eld að sinni köku. En þeir
mega heldur ekki kippa sér upp
við það, þótt aðrir menn líti fi'em-
ur á hag landsmanna, en á hag
þeii’ra.
„Ijvalfjaran mikla“.
(Eftir „Lögréttu").
Svo nefnir „ísafold" grein, sem
upphaf er að, í síðasta blaði hennar
(3. þ. m.) og ræðir hán um embættis-
veitingar og sýslana Hannesar Haf-
steins. Fyrst er það auðvitað skip-
an stjórnarráðsembættanna, sem „ísa-
fold“ finnur að, og segir að feitusta
bitunum öllum hafi verið skift upp
milli heimastjórnarmanna. — Þetta
er rangt, því Eggert Briem var á-
kveðinn andstæðingur heimastjórnar-
innar, og þó var hann gerður að
skrifstofustjóra. — Jón Hermannsson
hefir aldrei tekið opinberann þátt í
stjórnmálum. Enginn ráðherra -nema
Björn Jónsson? hefði getað gengið
fram hjá Jóni Magnússyni, sem hafði
um mörg ár verið landritari og auk
þess slíkur hæfileikamaður, og óverj-
andi hefði verið með öllu, ef hann
hefði ekkí verið gerður að skrif-
stofustjóra, án tillits til þess hvaða
flokki hann tilheyrði. — Svo kemur
auðvitað vandlætingin, að gera ekki
Indriða Einarsson að skrifstofustjóra;
þeir sem kunnugastir eru telja það
hafa verið vel ráðið af H. H. Það
eru ekki altaf einhlýt meðmæli, að
hafa haft einhver störf alllengi á
hendi, því þó þau hafi mátt heita
vansalaust af hendi leyst, þá er engin
ástæða til að halda, að enn vanda-
samari verk verði leyst svo af hendi,
að vel megi við una, og ekki síst
þegar tillit er tekið til þess, hvað
surnir menn eldast fljótt. Og mörg-
um er miklu sýnna um að vera
undir stjórn annara en að stjórna
sjálfir.
Þegar ræða er um hlutdrægni í
emhættisveitingum, þá verður að
taka fult tillit til þess um hverja er
að velja. En það gerir „ísafold"
ekki. H. H. veitti t. d. Einari Bene-
diktssyni Rangárvallasýslu, Guðlaugi
Guðmundssyni Eyjafjarðarsýslu og
Magnúsi Torfasyni ísafjarðarsýslu.
Ekki voru þeir heimastjórnarmenn.
Hverjir sóttu móti Björgvin Vigfús-
syni um Skaftafellssýslu, Páli V.
Bjarnasyni um Skagafjarðarsýslu og
Guðm. Björnssyni um Barðastrand-
arsýslu? Engir, sem með nokkurri
sanngirni var hægt að taka fram
yfir þá.
Porgrimi Pórðarsgni, þjóðræðis-
garpi miklum, var veitt Keflavíkur-
læknishérað, þrátt fyrir það, þó 8 ára
eldri kandídat, sem var heima-
stjórnarmaður, sækti á móti hon-
um. Voru þar hagsmunir heima-
stjórnarinnar hafðir fyrir augum?
Sigurður Thoroddsen, bróðir Skúla,
varð kennari'við latínuskólann. Ekki
var hann heimastjórnarmaður. Ekki
fann „ísaf." eða Þjóðv. að þeirri
embættisveitingu. Og ekki mintust
þau á óánægju skólasveina með hann.
Pórð Pálsson, tengdason Björns
Jónssonar, flutti H. H. í miklu betra
læknishérað. Var það gert í flokks-
hagsmunaskyni ?
„ísafold" finnur að því, að Stefán
Stefánsson var gerður að skólameist-
ara sjálfan kosningardaginn!! Því-
lík býsnl Eins og ekki megi veita
embætti „sjálfan kosningardaginn".
Ekki gat það verið gert til að auka
Stefáni fylgi í Skagafirði, því ef
Skagfirsku kjósendurnir hefðu tekið
eitthvert tillit til þess, að hafa skóla-
meistara fyrir þingmann sinn, þá hefði
það verið of seint að skipa hann
kosningardaginn. Hvern átti að taka
fram yfir St. St. ? Mann, sem búinn
var að vera kennari við þenna skóla
í rúm 20 ár.
Alþingi 1907 veitti Einari Arn-
órssyni styrk til að ransaka réttar-
sögu Islands. Hann var þá ritstjóri
„Fjallk." og því ekki heimastjórnar-
maður. Hvern átti að skipa annan
en hann sem kennara í rjettarsögu
við lagaskólann? „ísafold" finnur
að því, að í skattamálanefndinni hafi
að eins verið einn stjórnarandstæð-
ingur. Hún lætur þess ógetið, að
fjórir nefndarmennirnir voru kosnir
af alþingi með hlutfallskosningu og
þá voru heimastjórnarmenn í svo
miklum meiri hluta, að þeir komu
að þremur mönnum. Átti Hannes
Hafstein að skipa aðra menn í nefnd-
ina en alþingi kaus?
Eða áttu heimastjórnarmenn að
kjósa í nefndina menn af andstöðu-
flokki sínum?
Ekki hafa þjóðræðishetjurnar gjört
það.
Hvað skyldi „ísafold" hafa sagt,
ef núverandi ráðherra hefði ekki
skipað þá Sig. Hjörleifsson og Magn-
ús Blöndahl í peningamálanefndina,
sem kosin var af alþingi?
Þannig er alt á eina bókina Iært
hjá „ísafold".
En hvað hefir svo sjálfstæðisflokk-
urinn gert þennan tíma, sem hann
hefir setið við „kjötkatlana" ?
Hafa þeir kosið heimastjórnarmenn
í bankaráð íslandsbanka eða gæslu-
stjóra Landsbankans og endurskoð-
unarmenn hans?
Eru þeir Ari Jónsson, Magnús
Blöndahl og Sigurður Hjörleifsson
heimastjórnarmenn?
Eru þeir Vilhjálmur Briem og Bene-
dikt Sveinsson heimastjórnarmenn?
Nei! Peir eru ekki heimastjórnar-
menn.
»ísafo!d« veit ekki — vill ekki
vita? að Bjarna frá Vogi var vikið
frá kennarastöðu sinni eftir tillögum
(stiftsyfirvaldanna) Hallgríms biskups
Sveinssonar. — Og sú frávikning var
svo réttmæt, að hvorki treysti „ísaf.*
né „Fjallk." að finna að henni, þar
til „Þjóðv, “ fann púðrið og sagði að
hún væri af pólitískum rótum runnin.
Þá kom auðvitað »ísafold« og öll
halarófan á eftir ög hrópaði hástöf-
um: »Bjarni frá Vogi pólitískur
píslarvottur!«
Hvað gerði Björn Jónsson við
Landsbankastjórnina ?
Setti hana af.
Hvað gerði Björn Jónsson við tvo
umboðsmenn?
Setti þá af?
Voru það sjálfstæðismenn?
Nei! Peir voru heimastjórnarmenn.
Hverja skipaði hann í staðinn?
Voru það heimastjórnarmenn?
Nei! Pað voru sjálfstæðismenn.
Hverjir sóttu um bankastjóraem-
bættin við Lan dsbankann, auk þeirra
sem fengu?