Þjóðólfur - 25.08.1911, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 25.08.1911, Blaðsíða 2
122 ÞJOÐOLFUR. Ijáskólar á jforðurlðnðnm. Elstur allra háskóla á Norðurlönd- um er háskólinn í Uppsölum. Sixtus páfi hinn fjórði leyfði stofnun háskól- ans með brjefi 27. febr. 1477; talið er, að kensla hafi hafist þar þegar hið sama haust. Mjög tók þá þess- um háskóla að hnigna áður langt um liði, og var hann með dauðamarki til þess er Karli hertoga, síðar konungi hinum níunda, tókst að lífga hann við árið 1595. Gústaf Adolf arfleiddi há- skólann að miklum hiuta eigna sinna árið 1624, og varð háskólinn við það fastur á svelli. 1595, er háskólinn var endurreistur, gengu í hann 64 stúdent- ar. 1630 voru stúdentar um 1000. 1905 voru stúdentar 1466. Flestir hafa þeir orðið 1886; þá voru þeir 1928. Árið 1905 voru á háskólanum 63 kvenstúdentar. Háskólinn í Kaupmannahöfn var stofnsettur af Kristjáni fyrsta með brjefi 4. okt. 1478. Þar með var og háskólanum veitt ýmis hlunnindi. 1. júní 1479 var háskólinn vígður. Ekki kvað þó mikið að háskólanum, enda var hann efnalítill. Fyrirkomulagið var ilt og kennararnir fáir og urðu að miklu leyti að afla sjer viðurværis með öðrum störfum. Iðulega voru þeir og fluttir úr einni grein í aðra. Bæði Hans konungur og Kristján ann- ar ljetu sjer mjög ant um skólann og lögðu til hans ýms hlunnindi. En þó var svo komið á sfðustu árum Frið- riks hins fyrsta, að skólinn mátti heita dauður. Kristján hinn þriðji endnr- reisti skólann í hátíðlegri samkomu í Maríukirkju (Vor Frue Kirke) 9. sept. 1537. En reglugerð nýja fjekk hann 10. júní 1539, og var hún samin af Bugenhagen og löguð eftir Witten- bergsháskóla. Voru nú eignir hans og hlunnindi mjög aukin. Kenslu- kraftarnir voru: 3 guðfræðingar (þar á rneðal Sjálandshiskup), 1 lögfræðingur, 2 læknar og 6 heyrarar eða kennarar í heimspeki og tungumálum (latínu, grísku, heimspeki, mælskufræðu, eðlis- fræði og stærðfræði). Örðugt átti þó háskólinn uppdráttar og lítil aðsókn var þangað enn um hríð. Á dögum Friðriks annars fór skólinn að færast í aukana. Konungur gaf mikið fje til uppheldis stúdentum (Garð). Þá voru og uppi ýmsir ágætir vísindamenn, er urpu frægð á háskólann, t. d. Tyge Tyge Brahe og Niels Henningsen. Mikinn hnekki beið háskólinn við brunann 1728. Þá brann til kaldra kola háskólahúsið, Garður, stjörnu- turninn og bókasafnið. Kristján hinn sjötti ljet endurreisa húsið og gaf út nýja reglugerð fyrir skólann. Var nú kenslan bætt til mikilla muna, einkum í lögfræði og læknisfræði. Þó var ekki fyrirskipað sjerstakt próf í lög- fræði fyr en 1736. Kennararnir voru alls 15, 4 í guðfræði, 2 í lögfræði, 2 í læknisfræði og 7 í heimspeki og tungumálum. Nú eru þar um 50 pró- fessorar, auk dósenta. Stúdentar um 2000. Háskólinn í Lundi var stofnaður 19. desbr. 1666. Var það skömmu eftir að Svíar unnu Skán frá Dönum. Skól- inn var stofnaður f því skyni, að venja Skánunga af að sækja háskólann í Kaupmannahöfn, enda tókst það til fuils. Vígður var skólinn 28. jan. 1668. Við Skánarstríðið 1676—79 lagðist háskólinn niður, en var endur- reistur 1682. Heldur átti þessi há- skóli þröngt í búi framan af, einkum á dögum Karls hins ellefta. Fyrst eftir 1720 fer skólinn verulega að blómgast, og um það bil voru þar kennarar mjög frægir vísindamenn, svo sem Rydelius og Stobæus. Aftur- för var skólinn í um tíma eftir 1750; þá voru stúdentar þar að eins um 200. Mestur frægðartími háskólans er tíma- bilið 1790—1825. Þá voru þar kenn- arar Lundblad, Norberg, Fremling og skáldið Esaias Tegnér. Prófessorar eru þar nú um 50, auk docenta. Stúdentar um 700. * Háskólinn í Ósló (Kristjaníu) var stofnaður 2. sept. 1811 af Friðriki hinum sjötta og er við hann kendur. Höfðu Norðmenn lengi barist fyrir há- skólastofnun í ræðu og riti, en Danir jafnan róið á móti og stjórnin farið undan bænum Norðmanna í flæmingi. Jarlsberg greifa tókst loks að fá stjórn- ina til að samþykkja stofnun háskól- ans. Samtímis voru og hafin almenn samskot og brugðust menn mjög vel við. Konungur sjálfur lagði til hins nýstofnaða háskóla bókasafn það, er hann átti og kent er við Colbjörnsen, eitt eintak af bókum þeim, er háskóla- bókasafnið og konungsbókhlaðan í Kaupmannahöfn átti, ef fleiri voru en eitt, slíkt hið sama gripi úr náttúru- fræðasöfnum, árgjald það, er presta- köllin höfðu áður greitt til Kaupmanna- hafnarháskóla, konungstíundir af Heið- mörk, og enn styrktarfje það, er norsk- um stúdentum var ætlað af norsku fje til náms við háskólann í Kaupmanna- höfn. Næsta ár lagði konungur enn meira fje og eignir til skólans. Sum- arið 1813 tók háskólinn til starfa. Kennarar við skólann voru þá að eins sex,- Bjarna Þorsteinssyni, síðar amt- manni, var boðin kennarastaða við háskólann, en eigi þá hann það. í fyrstu varð að leigja hús handa há- skólanum, og stóð svo til þess um 1840. Prófessorar eru þar nú yfir 50, auk óreglulegra prófessora (extraordin- æra) og dócenta. í Stokkhólmi er eins konar háskóli (Stockholm’s Högskola) stofnaður 1878. Þar eru einkum kend náttúruvísindi. Laiknaskóli var þar stofnaður 1815 (Karolinska Institutet), og er hann tal- inn helstur læknaskóli í Svíþjóð. Kenn- arar eru 20—30, stúdentar á fjórða hundrað. I Gautaborg var stofnaður háskóli 1887. Þar eru þó ekki kendar allar þær greinar, sem tíðkast við fullkomna háskóla. Aðallega er þar kend mál- fræði, saga og hag- og fjelagsfræði. Um háskóla vorn íslendinga og bar- áttu vora fyrir honum, þarf eigi að minnast. Öllum mun vera í fersku minni saga háskólamálsins, er svo oft hefur verið rifjuð upp fyrir mönnum nú f sumar. Það má sjá af því, sem að framan er sagt, að eigi hafa allir háskólar farið glæstara úr hlaði en vor. Háskóli vor byrjar með 9 pró- fessorum, auk dócenta og aukakennara. Gera má ráð fyrir, að í honum verði í vetur um eða yfir 40 stúdentar. Getsakir Berlins. Eftir þvf sem Þjóðólfi segist frá 18. þ. m. hefur prófessor Knud Berlin rit- að grein í Nationaltidende 27. júlí í sumar um stofnun háskólans á íslandi. Skanimar hann þar alt og alla, svo að kalla, sem við það mál hafa komið. Eftir þýðingu þessarar greinar, sem í Þjóðólfijstendur, farast honum svo orð um afstöðu mína í Háskólamálinu á síðasta þingi: „Hér brá svo undarlega við, að einmitt einn af þeim mönnum, sem ákafast allra hafði barist fyrir stofnun þjóðlegs, íslenzks háskóla, og það heldur fyr en sfðar, landsskjala- vörður dr. Jón Þorkelsson, reyndi á elleftu stundu að bregða fæti fyrir þá fyrirætlun, að háskólinn yrði stofnaður nú í sumar. Og skýring sú, sem frá öllum hliðum er gefin á atferli hans, er ekki síður sjerkennileg, en hún er sú, að hann hafi óskað vígslu háskól- ans skotið á frest vegna þess, að hann væri þeirrar skoðunar, að embættin við heimspekisdeildina — en hann er, að sögn, umsækjandi um eitt af þeim — mundi ekki verða skipuð á sem heppilegastan hátt af þeim ráðherra, sem nú er; en hins vegar gæti hann gert sjer betri vonir, ef einhver flokks- bróðir hans yrði ráðherra eftir kosn- ingar þær, sem fram eiga að fara nú f haust". Þó að það mætti æra óstöðugan, að eltast við alt, sem um mann kynni að vera sagt, og þótt mjer í rauninni megi standa á sama, hvað herra pró- fessor Knud Berlin — einmitt og eink- um hann — segir um mig, þykir mjer þó rjettara, annara hluta vegna, að geta þess, að fyrir þessum samsetningi hans liggur ekkert annað til grundvallar en það, hvernig hann og sögumenn hans virðast mundu hafa hugsað sjálfir, ef þeir hefðu verið í mínum sporum á síðasta þingi. Það, sem jeg hafði á móti því, að veitt væri fje til þess, að háskólinn væri stofnaður i ár, var það, að mjer þótti málið ekki undirbúið nægilega, og það ekki vera nein háskólastofnun, þó að nokkrum embættismönnum væri veittar launaviðbætur. Afstaða mín í málinu er skýrð allvíða við umræð- urnar í þingtíðindunum, meðal annars B. II, 622—627. Jeg hef aldrei, leynt eða Ijóst, sagt neitt um það, að jeg tryði ekki nú- verandi ráðherra fyrir því, að veita embættin við háskólann svo, að eigin- hagsmunir mínir væru ekki fyrir borð bornir, — af þeirri einföldu ástæðu, að jeg ætlaði mjer aldrei að æskja embættis við háskólann, eins og jeg hef skýlaust lýst yfir á sfðasta þingi (Alþt. B. II, 49°) Jeg hef og ekki sótt um embætti við háskólann. Og svo get jeg bætt því við, að annar umsækjandinn um kennaraembættið í sögu íslands — sem flestum, er vit hafa á, mun þykja sjálfsagður í það—, maður fasttækur á lærdómum og eng- inn undirstöðulítill orðabelgur, hefur margboðist til að draga sig til baka frá því að sækja, ef jeg vildi sækja um þá stöðu, en jeg jafnan tekið þvert fyrir, að taka það í mál. Svo fjarri hefur þetta verið mínu skapi. Staða sú, er jeg hef, er mjer miklu skap- feldari. Af því, sem nú hefur verið talið, vona jeg að flestum skiljist, á hve góðum rökum eru bygðar eigin-hags- muna getsakir Beriins — og annara, ef nokkrir eru — til mín. Sú ósvinna gat legið eins nærri fyrir Berlín — úr því hann þurfti endi- lega að gera mönnum getsakir — að skýra ákafa sumra manna, er þeg- ar hafa sótt um stöðu við háskólann, fyrir því, að koma haskólanum á nú þegar, á þá leið, að nú sæti sú stjórn að völdum, sem lfkleg væri til að veita þeim sjálfum og vinum þeirra embætti, sem óvíst væri um, að yrði, ef málið væri dregið og stjórnarbreyting yrði. Það er skiljanlegt, að svona getsök- um gæti verið kastað fram sem stork- un í kappsfullum umræðum á þingi. Hitt er ekki jafnskiljanlegt, að mað- ur taki sig upp með slíkar getsakir i blaðagrein, sem rituð á að vera í al- vöru. í grein Berlíns kemur mjer ekki annað við sjerstaklega en þetta, sem nefnt hefur verið. En öll er hún rit- uð af ruddaskap og ekki sjerlega hlýju „bróðurþeli" til íslendinga al- ment. Vitanlega tekur enginn mark á henni hjer á landi, svo að það er óþarfa fyrirhöfn fyrir herra Berlin, að vera að blanda sjer í mál íslands meira en hann þarf. Skjall hans um þá íslendinga, sem kynnu að hafa samsint honum í einhverjum óþarfa, eða skamm- ir frá honum um hina, hækka ekki eða lækka neinn mann hjer á landi. Orð Berlins eru hjer að engu höfð. í staðinn fyrir það að vera að hje- góma sig á því að leggja málsmet- andi menn á landi hjer á vog, væri honum án efa þarfara að gera sjer ljósara en honum nú er það, hvort mannvit hans og samviskusemi sje svo mikið, að hvorttveggja komist ekki fyrir í Danmörku, þó að honum þyki hún „þröng". Við þurfum ekki að sækja hann til þess að meta vora eigin menn. Við getum það sjálfir. Jón Þorkelsson. €nn nm „seniiherrann" frá Vogi. (Sbr. 48. tölubl. ísaf.). »Sök bítur sekanc, segir máltækið og sannast það á sviðskiftaráðanautinumc eða sendiherra vorum. — Hann sendir mjer svar í 48. tbl. Isaf. gegn grein minni f Þjóðólfi frá 1. júlí s. 1. og er svar þetta ekkert annað en fúkyrði og skammir, en sem raunar er eðlilegt, því vindbelgings- hátturinn, gortið og sjálfsálitið er svo mikið hjá manninum, að skynsamleg at- hugun og röksemdafærsla um málefni kemst ekki að, þegar minnst er á hann og starfsemi hans sem viðskiftaráðanauts. En fúkyrðin sanna ekkert, hvorki í þessu máli nje öðru. »Sendiherranum« ^kemur það auðsæi- lega illa að vita ekki, hver þessi »Iieima- sjórnarmaður« er, sem dirfist að gagn- rýna gjörðir hans, og er auðsætt, að það er maðurinn, en ekki málefnið, sem mestu varðar fyrir hann. Manninum ætti þó að geta skilist, að í raun og veru skiftir það engu, hvort sá maður heitir Pjetur eða Páll, sem skrifar um hann sem viðskifta- ráðanaut, því aðalatriðið er auðvitað, að farið sje með satt og rjett mál, og að jeg í áminstri grein minni í Þjóðólfi hafi gert það, það sannar svar Vog-Bjarna í »ísa- foldc áþreifanlega. Annars ætti »sendiherranum« að skilj- ast það, að hann, sero maður í opinberri stöðu, starfandi fyrir landsfie, og 1 þarfir almennings, hlýtur að verða fyrir ýmsum dóm«m, og óhugsandi er annað, en að maður, sem jafn-illa er valinn í stöðuna og búinn er að gera jafn-mikla skömm af sjer, eins og hann, verði fyrir opin- berum aðfinnslum fyr eða slðan. Það eru fæst atriði í grein minni, sem maðurinn reynir að hrekja. Því að segja,. að þetta og þetta sje lýgi, sannar ekki neitt. Hann vill ekki kannast við, að hafa notað ummæli þau, er jeg hafði eftir hon- um í sambandi við vantraustsyfirlýsingu á fyrv. ráðherra B. J. En það vill svo til, að á sama stendnr, hvort ummælin hafa fallið eins og jeg held fram, eða eins og hann vill láta heita, að þau hafi fallið, þvf aðalatriðið er ekki það,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.