Þjóðólfur - 04.11.1911, Page 2
IÖ2
ÞJOÐOLFUR.
er elsta og þjóAKuimasta
blað landsins.
Ritstjóri og áb3rrgðarmaður:
Arni Pálsson
sag’nfræðing'nr.
Afgreiðslu og innheimtumaður:
Sigurður Jónsson
bóksali.
Lindargötu 1 B.
Pósthólf 146. Talsimi 209. Reykjavíb.
Auglýsingar sendast afgreiðsln-
manni eða í prentsraiðjnna.
flokknum takist betur að sverta
hvor annan og níða einstaka menn
óverðskuldað, ef svo býður við að
horía og ætla má að með því fá-
ist nokkur atkvæði lítilsigldra eða
spiltra manna.
En þótt það virðist hafa litla
þýðingu, að rökræða mál, skal
þó leitast við að gera athuga
semdir við tillögur skattamála-
nefndarinnar; það er ekkert lítil-
virki, hvorki meirr nje minna en
17 lagafrumvörp, þar með talið
frumvarp um prests- og kirkju-
gjöld, sem orðið er að lögum, og
ýmsar smærri lagabreytingar, sem
standa i sambandi við sjálfskatta-
lögin.
Eins og við mátti búast, sjer
nefndin marga agnúa á hinum
gildandi skattalögum, enda er slíkt
síst að furða, svo margt, sem breytst
hefur í högum manna og atvinnu-
vegum síðan skattarnir voru lög-
leiddir, einkum síðustu árin.
Eftirfarandi sköttum finnur hún
helst til foráttu:
1. Abúðarskattinum, að hann
komi órjettlátlega niður vegna þess,
að dýrleiki jarðanna, sem skattur-
inn er miðaður við, samsvari ekki
gæðum þeirra.
2. Lausafjárskaltinum, meðal
annars það, að hann sje bygður á
framtali gjaldenda, sem reynist
stundum miður áreiðanlegt.
3. Húsaskattur nái ekki tilgangi
sínum sem eignaskattur, því veð-
skuldir misjafnlega tilkomnar sjeu
frádregnar og lóðir, sem húsunum
fylgi, sjeu skattfríar.
4. Tekjuskattur af eign nái að-
eins til fárra eígnartekna, eftir þvl
sem lögunum sje framfglgt. En
tekjuskattur af atvinnu hafi ekki
vaxið eins og við mætti búast eftir
vaxandi framförum og bendi það
til þess, að ekki komi öll kurl til
grafar.
Nefndin treystist ekki til að bæta
úr þessum göllum, svo vel fari, á
annan hátt en að afnema þessa
skatta og setja aðra nýja í þeirra
stað.
Nefndin gengur út frá því, að
taka beri meiri hluta af tekjum
landsjóðs sem aðflutningsgjald eins
og undanfarin ár. En auk þess
telur hún sjálfsagt, að hækka nokk-
uð hina beinu skatta frá því, sem
sem nú er. Við fyrirkomulag þess-
ara beinu skatta virðist hún aðal-
lega leggja áherslu á það tvent: að
skattarnir aukist af sjálfu sjer við
batnandi efnahag, vaxandi fram-
farir og verðhækkun eigna, og að
þeir nái til allra eigna og tekna,
smárra og stórra.
Nefndin virðist hafa haft þessar
nefndu meginreglur helst til ríkt í
huga, en aftur á móti gleymt að
taka nægilegt tillit til þeirra ann-
marka, sem hún telur á núverandi
sköttum, er fyr voru nefndir, því
skattar þeir, sem hún leggur til
að sjeu lögleiddir, verða háðir
sumum hinum sömu annmörkum
og eldri skattarnir, og það jafnvel
í miklu ríkari mœli.
Fyrsta frumvarp nefndarinnar
hljóðar um fasteignaskait. Þessi
skattur er ákveðinn 2 af þúsundi
hverju, er skatteignin nemur að
virðingarverði — skattfrí er fasteign,
sem ekki nemur 100 kr. virði.
Fasteignaskatturinu hvílir á öllum
jarðeignum, húsum, lóðum i kaup-
stöðum, ítöknm og hlunnindum,
nema húsum, lóðum, ítökum og
hlunnindum, sem eru þjóðeign eða
til almennings þarfa.
Þessi skattur hefur þann stóra
kost, að auðvelt er að ná honum,
því eigi verður slíkri eign smeygt
undan skatti. Menn skyldu nú
ætla, að nefndin ljeti sjer nægja að
skatta fasteignir þessar einu sinni,
en svo er þó eigi, því i næsta
frumvarpi gerir hún ráð fyrir, að
af fasteigninni greiðist annar jafn-
hár skattur, sem sje eignaskattur.
Af fasteignum þeim, sem að ofan
eru taldar, verður því að greiða
tvöfalt hœrri skatt en af nokkurri
annari eign. — Þetta er býsna rtiik-
ill mismunur, sem vafasamt er, að
eigi vel við hjer á landi, ogímörg-
um tilfellum kemur ósanngjarn-
lega niður. — En hverja ástæðu
færir svo nefndin fyrir þessu ? Á
síðu 46, 6. gr., þar sem hún hreyf-
ir þessu atriði, segist hún haga
þessu þannig af ásettu ráði einmitt
í þvi skyni, að gera hæfilegan mun
eftir ástæðum. í þessu felast eng-
in rök fyrir þessum mikla mis-
mun, sem hún gerlr á fasteign og
annari eign. Aðalrökin virðast þar
á móti eiga að felast í athugasemd-
unum á síðu 36. Þar stendur:
»Frá aldaöðli hefur faáteignaskatt-
nrinn verið talinn alveg sjálfsagð-
ur og á ýmsum tímum hefur því
verið haldið fram, að hann |einn
ætti að koma í staðinn fyrir alla
aðra skatta. En hvað sem þeirri
kenningu líður, verður því ekki
mótmælt, að fasteignaskatturinn
hefur ýmsa yfirburði fram yfir
flestar aðrar skattaálögur. Frá
sjónarmiði þjóðfjelagsins er einn af
aðalkostunum sá, að hann hvílir
á hinni trygguslu og verðmœtnstu
eign, og þar af leiðandi veitir viss-
ar og fastar tekjur, en er ekki nein-
um misbrestum eða vanhölduni
háður. Gagnvart einstökum gjald-
þegnum er fasteignaskatturinn einn-
ig sanngjarn, að því leyti, sem
ganga má að því vísu, að gjaldþol
sje þar, sem góð eign er fyrira.*).
Þó fasteignaskatturinn verði tal-
inn sjálfsagður og eðlilegnr, er þó
*) Undirstrykað af höf.
ómögulegt að skrifa undir þær öfgar,
sem felast í þessum orðum, eða
að telja fasteignina svo óskeikulan
og i fylsta máta rjettlátan skatt-
stofn í samanburði við aðrar eign-
ir, eins og nefndin gerir, — að það
gefi ástæðu til að gera hana tví-
gilda á móti annari eign.
Jarðeignirnar, sem eru hvað trygg-
astar, ná ekki undir þessa lýsíngu.
Afurðir þeirra eru háðar bæði ár-
ferði, verslun, kaupgjaldi o. fl., svo
það er afar-misbrestasamt hvað
þær gefa af sjer til ábúenda. Og
þá eru ekki húseignirnar betri, það
er svo langt frá, að þær skapi ætíð
gjaldþol, að þær oft og einatt eru
eigendum þung byrði, er baka
þeim stór útgjöld. Mörg dæmi
slíks má finna til sveitanna, því
fátt mun frekar hafa eyðilagt efna-
hag og gjaldþol ýmsra bænda en
húsabætur.
Á sumum jörðum hafa ibúðar-
hús verið bygð, sem virt hafa verið
á þúsundir króna, en þegar kom-
ið hefur til þess að selja jarðirnar
eða byggja, haía þær ekki gengið
út með hærra verði eða eftirgjaldi
en þó þær væru með ódýrum bæ,
og stundum ekki eins hátt, því þess
eru dæmi, að draga hefur orðið frá
afgjaldinu fyrir viðhaldi á húsum
að einhverjum hlut. — Þetta er
líka kunnugt í bönkunum, því ekki
eru húsin metin að neinu þegar
lánað er út á jarðir til langs tíma.
Getur verið að hús i kaupstöðum
sjeu yfirleitt trygg eign, en þó er
mjer nær að halda, að sumum
Reykvíkingum þyki bagi að hús-
eignum sinum, einkum síðustu
árin. — Það eru auðvitað oft mikil
hlunnindi að því að leggja fje í
að eignast fasteign, t. d. jörð, en
það er líka oft mikill örðugleiki
og áhætta, sem fylgir því að gera
það fje arðbært, sem í henni ligg-
ur, til þess þarf bæði bústofn að
auki og vinnukraft. — Þetta þykir
svo örðugt á síðari árum, síðan
kaupgjald hækkaði og vinnukraft-
ur minkaði í sveitum, að ýmsir,
sem fje hafa haft undir höndum,
hafa mjög hikað við að festa sig
við búskap, heldur kosið að ávaxta
það á annan hátt. Meira að segja
margir leiguliðar hafa hikað við
að kaupa ábýlisjarðir sínar, því
við það að binda svo mikið fje
fast i jarðeigninni, urðu þeir oft að
taka mjög nærri sjer og hleypa sjer
í skuldir, sem litill hústofn gat ekki
borið. —Þetta hefur búnaðarmála-
nefndinni siðustu verið Ijóst, þess
vegna útvegað leiguliðum vildar-
kjör til áb^'liskaupa, og hefur þann-
ig hlynt að sjálfsábúðinni, og um
leið að búnaðinum í heild sinni.
En að leggja á fasteignir tvöfalt
hærri skatt en aðrar eignir, stefnir
í gagnstæða ált, það getur leitt til
þess, að færri en áður leggi út í
að gerast bændur, eignast jarðir og
bæta þær, einkum ef þingið tæki
upp á því, að tvöfalda þennan
skatt eða margfalda með fjárlaga-
ákvæði, frá því sem hjer er ákveð-
ið, eins og þingið á að fá heimild
til eftir 7. gr. — Það virðast því
engin gild rök lil þess að leggja
tvöfalt hærri skatt á fasteignir en
ýmsar aðrar eignir. Innstæður i
bönkum og sjóðum gefa eins háar
tekjur og sama upphæð i jörð,
sem er leigð.
Það eitt að eignin heitir fast-
eign eykur ekkert skattgildi henn-
ar, heldur verður það að leggjast
til grundvallar hve miklum arði
hún svarar. En að því leyti standa
fasteignirnar ekki framar öðrum
arðberandi eignum, og virðist þvi
eigi ástæða til að gera þennan
mun á skattagildi þeirra.
Gert er ráð fyrir því í 1. gr., að
eigandi fasteignar greiði skattinn.
— En geti aftur krafist hans af
leigjanda eða leiguliða. — Sá rjetti
skattgreiðandi er því leigjandi eða
leiguliði. — Þó þetta fyrirkomulag
sje nauðsynlegt viðvikjandi húsum
í kaupstöðum virðist það ekki eiga
við um jarðir í sveit. — Hvað þær
snertir væri brota minst, að skatt-
urinn væri beint heimtaöur af
leiguliða, eins og núverandi ábúð-
arskattur, því hitt er bara þýðing-
arlaus krókaleið, sem getur orðið
til óþæginda, ef eigandi á heima á
öðru landshorni, og það kemur að
öðru leyti i sama stað niður þegar
leiguliði hvort sem er verður að
greiða skattinn úr sinum vasa.
Næsta frumvarp fjallar um tekju-
og eignaskatt.
Tekjuskattur skal greiðast aföll-
um tekjum, er nema fullum 300
kr. eftir lögákveðinn frádrátt, bæði
af fasteign, lausafje og atvinnu og
nær til allra atvinnugreina, er hann
Va0/0 upp að þúsundi, l®/o af öðru
þúsundi o. s. frv. þannig að skatt-
urinn verður V20/0 tyrir hvert þús-
und, sem viðbætist upp að 6°/o.
Það sjest eigi á lögunum hvort
felja beri með kaupi daglauna-
manns eða vinnufólks fæði þess,
en sje það eigi er lágmarkið alt
of hátt, því með því móti kemst
fjöldi daglauna- og lausafólks, sem
máske hefur beztu ástæður undan
skatti, máske mikið betri ástæður
en búandi fjölskyldumaður, sem
hefur yfir 300 kr. afgangs fram
yfir tilkostnað við atvinnurekstur-
inn, en hefur tæplega fæði afgangs
f)rrir fjölskyldu sína.
Gert er fyrir frádrætti fyrir skyldu-
ómögumog mælir öll sanngirni með
því að fþsturbörn sjeu þar með
talin. Enda mun allviða hingað
til hafa verið tekið jafn mikið til-
lit til þeirra og annara ómaga við
niðurjöfnun sveitarútsvara, þrátt
fyrir ákvæði gildandi laga.
En nú kemur til álita hvernig
ganga muniað fá skattstofninn rjett
ákveðinn hjá gjaldendunum?
Nefndin þykist sjá að ekki komi
öll kurl til grafar í gildandi skatti
af atvinnu, hann nær þó ekki til
landbúnaðar og sjávarútvegs. Dett-
ur henni þó ekki i hug að eitthvað
kunni að ganga úr greipum skatt-
heimtumanna þegar farið er að
heimta skattinn eftir þessum lög-
um, sem eiga að ná til allra at-
vinnuvega? Þó ekki sje gert ráð
fyrir viljandi undandrætti, þá sýn-
ist ekki líklegt að hægt verði að fá
full glöggar upplýsingar hjá öllum
gjaldendum um tekjurnar. Menn