Þjóðólfur - 16.12.1911, Page 1

Þjóðólfur - 16.12.1911, Page 1
Þ JOÐOLFUR. 63. árg. Reykjavík, laugardaginn 16. Des. 1911 M 49. Skúli Magnússon landfógeti, 12 des. 1711 — 12. des. 1911. Vjer sjáum þig í sögu þinnar ljóma sem soninn besta’, er land vort átti þá, og tvennar aldir orð þín til vor hljóma, sem eggjan þínum snörpu sennum frá. Vjer finnum streyma styrk frá þínum boga, hans stál í gegnum aldaskvaldrið hvín, og sál þín hrein, sem Helda öll í loga, í hverri vorri framsókn síðan skín. Þú göfga, sanna, djarfa mikilmenni, þin minning kveikir loga enn í dag, og enn oss finst þín augu jafnan brenni gegn öllu því, er níðir lands vors hag. Þú studdir þá, sem hrjáðir voru’ og hraktir, þú hnektir þeim, er áttu tje og völd. Þitt fræga nafn sem fáni enn þá blaktir og fangamark þitt prýðir Islands skjöld. Og það er íslenskt eðli, sem þar drotnar, með Egils skap og framsýn gamla Njáls; það lægir ei, er löðursjórinn brotnar, og leitar yls til fornra sagna báls. Og þótt þig megi ætíð fremstan fmna, á fleiri góða drengi minning skín. Og á þann konung vel er vert að minna, sem virti, Skúli, djörfu ráðin þín. Já, Skúli sæll. Það er með hlýju hjarta að heiðrum vér þinn tveggja alda dag. Vjer vonum nú á íramtíð, fagra, bjarta, og finnum mikla bót á vorum hag. Þitt æfistarf oss aldrei framar glejmiist, það á í vorum sálum djúpa rót, og nafnið þitt í mætri minning geymist, á meðan Viðey klýfur öldurót. G. M. Eldci er nú annað en pýða frumheitin og taka síðan einliver íslensk forskeyti í Tug'amálið. Jeg fjekk brjef i gærkveldi um háttatima og bið »Þjóðólf« að loTa fleirum að sjá það: »Kæri vinur! Mjer er sagt að kennarar í barnaskól- um sjeu nú að stritast við að troða tugakerfinu inn í börnin og gangi hörmu- lega. Er ekki að furða, þótt erfitt veiti að kenna börnum þennan nýja fróðleik á grisku og latínn. En þvi i ósköpun- um má líka ekki keuna þeim þetta eins og annað á íslensku. »íslenskan er orða frjósöm móðir; ekki er þörf að sníkja, bræður góðir!« segir Bólu-Hjálmar. Honum varð aldrei orðaskortur, karlinum þeim. Jeg veit að vísu, að það verður rugl- ingur úr því, að liafa islensk sjernefni á hverri stærð i þessu tugakerfi. En mjer hefur dottið einfalt ráð í hug: stað þeirra grísku og lalnesku, sem ekk- ert barnið skilur og allri alþýðn manna er óþarft að kunna. Frumstærðirnar meter, gram og liter mætti kalla stiku, met og mœli, cins og lagt hefur verið til. í staðinn fyrir deka-, hekto og kilo mætti hafa tug-, há- og stór-, en tí-, lág- og smá- í staðinn fyrir deci-, centi- og milli-. Pá yrði útkoman þessi: smástika (millimeter) lágstika (centimeter) tístika (decimeter) stika (meter) tugstika (dekameter) hástíka (hektometer) stórstika (kilometet). smámet (milligram) lágmet (centigram) tímet (decigram) met (gram) tugmet (dekegram) hámet (hektogram) stórmet (kilogram) o. s. frv. Væri ekki einhver munur fyrir íslensk börn að læra þetta svona. Allur þorri landsmanna lærir aldrei annað mál en íslensku. En eí menn vilja fara að ryðja inn í móðurmálið útlendum orðum, til hægð- arauka fyrir þá, sem læra önnur mál — á því er einlægt klifað — þá er ekki einu um vandara en öðru. Hvers vegna er þá verið að kenna börnunum »faðir vor« á islensku — því ekki á latínu líka, svo að þau kannist við það, ef þau koma í kaþólslca kirkju. Það er ilt til þess að vita, að menta- menn landsins, alþingi og stjórn, skuli gangast fyrir þvi, að spilla móðurmál- inu, í stað þess að fegra það og bæta. Grískan er horfin úr mentaskólanum og bráðum fer latínan lika, en islensku- kenslan verður aukin, sem betur fer. En svo á að fara að troða grísku og latínu í saklaus börnin um land alt. Er það ekki grátbroslegt? Jeg hripa þjer þessar hugsanir minar af því .... — og svo e|-tu fræðslumála- stjórinn okkar. Pinn einlægur G. Björnssoim. Landlæknirinn er flestum næm- ari á fagurt og hreint íslenskt mál. Brjefið lýsir gremjunni yfir því, að mentamenn landsins, alþingi og stjórn skuli »gangast fyrir því að spilla móðurmálinu í stað þess að fegra það og bæta«. Það er nú einmitt ógæfan, að þessum góðu mönnum getur ekki komið saman um það, hvað sje spilling á móðurmálinu okkar. Sumir kalla það engin lýti og enga spilling þó að tekin séu upp út- lend orð, ef ekki er að öðru leyti brotið í bág við íslenzk mállög og venjur; aðrir telja hvert útlent orð að minsta kosti óprýði á málinu Yjer þoldum ekki »telegraf«, »tele-. fón« og »telegram«, og eru þetta þó óneitanlega handhæg orð, og allra þjóða kvikindi eru þau. Rit- sími, talsími og símskeyti ruddu sjer á augabragði til rúms af því að í þeim orðum er íslenskt blóð. Einhver takmörk verða að vera fyrir þvi, hve miklu má hrúga inn í málið af útlendum orðum. Aldrei ætti að gera það að óþörfu. Meiri þörf á að hreinsa eitthvað til en að bæta við óþverrann. H/F Völundur auglýsir í gær til sölu: Buffet, Servanta, kontrakildar hurðir, Gerikti, Kilstöð og ýmsar aðrar tegundir af listum, o. s. frv. Er ekki prýði að öðru eins og þessu í íslenskri tungu? En svona er talað og skrifað. Ekki er eld- húsmálið betra. Og alt mætti segja á íslensku. Vilja ekki þeir kennarar, sem kann að ganga erfiðlega að kenna börnunum tugakerfið á latínu og grísku, reyna að kenna það með )essum íslensku heitum, sem land- æknirinn leggur til að notuð verði? iJeynslan sker úr því, hvort þau ’estast, Ef þau gera það, eru þau góð. Jón Pórarinsson. Millilandaferöirnar. Það kvað, eftir því sem sjeð verð- ur af blöðunum, ekkert verða af hinni fyrirhuguðu skipsbygging, sem ákveðið var í sumar að hið Sam- einaða gufuskipafjelag vildi byggja til íslandsferða. Þegar frjettin um skipsbygginguna kom glöddust menn mjög alment yfir henni og vonuðust til að fá bæði þægilegri, hagkvæmari og ódýrari ferðir, en menn hafa haft að venjast. Ekki ódýrari vegna þess, að fargjaldið í sjálfu sjer með skip- um þeim, er vjer nú höfum, sje svo hátt, heldur vegna tímalengdar þeirr- ar, er þau taka á ferðum sínum, og um leið mundi það gera ferðalagið þægilegra, því þægindi þau, er skip þau bjóða farþegum — skip þau er vjer nú höfum — eru mjög af skorn- um skamti, þegar tekið er tillit til hinnar miklu vegalengdar og hins langa tíma, sem ferðin með þeim tekur til Khafnar. Nú sjer maður aftur á hinum dönsku og íslensku blöðum, að sú von, sem frjettin um nýja skips- byggingu til ferða hingað vakti, er orðin tálvon, og ekkert eigi að verða af henni, og hefur mjer sýnst á dönskum blöðum að þau vilji — og þá náttúrlega hið Sam. gufuskipa- fjel. — gefa sem ástæðu það, að hið íslenska stjórnarráð ekki hafl viljað gefa fjelaginu leyfi til að hækka fargjaldið upp úr því sem nú er. Þetta virðist nokkuð einkennileg á- stæða og einkennilegt, að vilja skella skuldinni á hið íslenska stjórnarráð, sem vitanlega hafði enga heimild til að leyfa eða banna slíkt, og það engu síðnr einkennileg fljótfærni aí fjelaginu, að fara að ákveða skips- byggingu áður en það var búið að fá fullvissu um, hvort það fengi leyfi til fargjaldshækkunar, þegar það reið á svo miklu fyrir það. Það hefur verið sagt við mig — af Dana — að þetta væri mjög leið- inlegt fyrir okkur, að hin íslenska stjórn ekki hefði viljað leyfa þessa fargjaldshækkun, því þetta skip hefði átt að verða til þess, að auka út- lendan ferðamannastraum til lands- ins. sem landið hefði svo óendan- lega gott af, því þeir færðu peninga til landsins. Þetta er mikil spurning hversu mikla þj'ðingu slíkt hefur í peningalegu tilliti fyrir landið, að minsta kosti á meðan mögulegleikar ferðalags eru eins örðugir innanlands eins og þeir enn eru, og þó að ferða- menn komi hjer upp með skipum til að sigla með þeim hringinn í kringum landið, þá cr það meira til hagsmuna fyxir skip þau, er þeir sigla með, heldur en landið sjálft, því þeir skilja ekki eftir þá peninga í landinu, sem nokkru nemur fyrir landsmenn, því sú verslun, sem þeir gera í slíkum hringferðum, er ekki margra peninga virði. Á hinn bóg- inn þeir, sem yfir land ferðast, skilja eftir talsverða peninga, en hvort þeir

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.