Þjóðólfur - 16.12.1911, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 16.12.1911, Qupperneq 2
190 peningar eru þess virði, sem þjóðin kostar til, til að taka á móti þeim, það er að minni hyggju óvíst. Mest- ur ferðamannastraumur er um hey- skapartímann, og verða menn oftast að taka fólk frá vinnu tilþessaðstanda þeim fyrir beina, og þá tímatöf er ekki hægt að meta til peninga. Af hendi hinnar íslensku stjórnar er því miður ekkert gert til þess að auka ferðalög yfir landið, með því að ljetta undir roeð ferðalögunum og gera þau að verslun fyrir þjóð- ina, sem mætti á margvíslegan hátt, eins og gert er i öðrum löndum, sem svipað hagar til með samgöng- ur — járnbrautir vanta — og mundi mega koma hjer á ferðamannastraum og fá menn til að dvelja hjer að vetrinum til, engu síður en að sumr- inu, og er veturinn máske meira aðlaðandi heldur enn nokkurn tíma sumarið. Á hvern hátt slíkt mætti gera, er of langt mál að fara út í hjer, og sleppi jeg því, en sný mjer að fargjaldslækkuninni. Fargjöld þau, er vjer nú höfum að borga, eru óneitanlega lág, en þó verður oss alt ferðalag feikilega dýrt, svo dýrt, að það er hvergi eins dýrt að ferðast eins og hjer, og kemur það til af því, hvað öll ferðalög ganga afskaplega seint. Er það bæði því að kenna, hvað skipin eru sein- fara, en þó ekki eins og því, hve öll stjórn og tilhögun á öllum sam- göngum er í óreglu og molum. Væri fyrirkomulagið með ferðir betra, sem vel mætti gera án þess að fjölga skipum fram yfir það, sem vjer nú höfum, þó ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu, að fargjald fengist hækkað, og ferðalagið að verða ódýr- ara. Auðvitað hafa ekki þau skip, sem vjer nú höfum, þau skilyrði að bjóða, að slík hækkun mætli muna miklu, en eitt ætti sjerstaklega að breytast, og það er hlutfall fargjalds miðað við vegalengd, því það nær engri átt, hvorki með fargjald nje farmgjald og er hjer sjerstaklega miðað til millilanda fars og farms. Við erum látnir borga Kaupm.h.- farmgjald og fargjald t. d. til Leith, og álit jeg slíkt sje í hæsta máta ósæmilegt, ósæmilegt bæði gagnvart okkur sjálfum og eins á móti hinni bresku þjóð, sem verið er með þvi móti að bola frá frjálsum viðskifta- samböndum, eins og okkur frá henni. Ætti hinn breski konsúll hjer að gera hinni bresku stjórn bendingu um, hvaða ójafnaður í því felst gagnvart henni, því það erum bæði við og hún, sem eigum að njóta þess, að vjer liggjum nær hvor ann- ari, heldur en þjóðin suður við Eyrarsund, og er þó langt frá mjer, að vilja nokkuð spilla fyrir viðskift- um við hana, en þau viðskifti eru þannig best, að þau |sje á hvoruga hlið þvinguð, en í þessu óréttlæti felst óbeinlínis, ef ekki beinlínis, þvingun. Jeg fyrir mitt leyti vildi leggja það til, að fargjaldshækkun sú, er hið Sameinaða hefur farið fram á, yrði veitt, en hún ætti að vera bundin því skilyrði, að hlutfallið milli vega- lengdar þeirrar, sem er af náttúr- unni sett milli Íslands-Skotlands annarsvegar og Íslands-Kaupmanna- hafnar hins vegar, kæmi rjettlátlegar fram í fargjöldum og farmgjöldum en liingað til, og mundi þá láta nærri, að ef 115 kr. fargjald yrði leyft til Khafnar, að 65 kr. far- gjald væri hlutfallslega hæfilegt tii i \ ÞJOÐOLFUR. Kærkomnar Jólagjafir: Mundi ekki einhver þessara bóka vera kærkomingjöf á jólunum? Kristján Jónsson: Ljóönnseli ól). 4,00, ib. 5,50. Sig. Júl. Jóhannesson: lívistir (kvæði og sögur) ib. 4,00, ób. 3,00. Gestur Pálsson: Skáldrit ib. 3,00 örfá eintök efiir). Matth. Jochumsson: L.jóömeeli I.—'V. ib. 15,00 (einstök bindi 3,00). Steingr. Thorsleinsson: LjóÖmseli ib. 4,50. Vallaee: Ben Hur ib. 4,00. Ágúst Bjarnason: 3Vítján<la öldin ib. 4,00. Sigfús Einarsson: -A-lþýöuLsöng-bóli: 1,25 (alveg ný bók). Steph. G. Síephanssou: Andvökur I.—II. ib. 11,00. Jón Jónsson: Skúli Magnússon landíógeti ib, 5,00,ób. 4,00 Björnsson: -A. guðs vegum ib. 4,50. Múller: Alíri aöfeaö 1,75. Bændaförin lt>10 1,50. Sálmabók á 2,50, 3,50, 4,50 og 7,00. Formálabókin nýja ób. 4,00, ib. 5,50 og 6,00 o. 11. o. fl. o. fl. Gefid bœkur í jólagfafir. Kaupið þær ávalt í Munið hinn mikla afslátt í .A.nstu.rstrseti 1. handa hverjum sem kaupir. Veggalmanök Góð bók er besta jólagjöf! K bókaverslun Sig:. Jónssonar fæst meðal annars: Sögur herlæknisins I—VI. Minningar feðra vorra I.—II. a Þúsund og eiu nótt I.-rII. F'anney I.—V. Friðþjófssaga eftir E. Teguer. Úrvals Æfintýri, og mesta úrval af öðrum sögu-, ljóða- og barnabókum. Hringið upp talsíma 200. Leith. En jafnframt ætti að gera fje- laginu að skyldu að setja sig í sam- band við járnbrautarfjelög í Eng- landi og á meginlandinu, þannig, að farþegar gætu valið um, hvora leið- ina þeir færu frá Leith, yfir Leith eða áfram með skipinu, á áfram- haldandi farseðil. Það álíta allar stjórnir skyldu sína, að sjá einstak- lingum þjóðarinnar fyrir sem fljót- ustum, hagkvæmustum og ódýrust- um ferðalögum, — hingað til hefir verið lítið hugsað um slíkt, hvað okkur íslendinga álirærir, þess vegna gengur alt okkar ferðalag svo afar- seint. P. Stefánsson, frá Pverá. Hvað er að frétta? Edvard Grey utanríkisráðherra Englendinga hjelt rjett fyrir mánaðamótin, ræðu í breska þinginu, þar sem hann skýrði frá Marokkómálinu og gangi þess. Kom þar fram að þjóðverjar höfðu um nokk- urn tíma í sumar farið algjörlega á bak við Englendinga í samningum sínum. Hafði breski flotinn þó verið viðbúinn að stríð hæfist á hverju augnabliki. Nú er öll ófriðarhætta út af því máli úr sögunni bara að eitt- hvert deiluefni komi þá ekki í þess stað. Því að með því einu móti kveð- ast Englendingar viija halda samúð við Þjóðverja að það ekki skaði sam- band þeirra við Frakka og Rússa. Kínabyltingin er sögð í sama þófinu. Þó kvað líkur benda til að foringi lýðveldis- manna verði að ganga að samning- urh, með því að stjórnarherinn hafi mátt betur upp á síðkastið og náð Wutschang á sitt vald. Lundstjórnin á Einnlandi kvað vera að útbúa frumvarp um það, að gera rússnesku að opinberri ríkistungu á Finnlandi. Loftskeytasambandi er sagt að Svíar ætli að koma á hjá sjer til almennrar notkunar í stað ritsíma. »Botnía« kom frá útlöndum og austurlandi g. þ. m. Hingað komu Ól. Johnsen og Pjetur Ólafsson frá útlöndum, og að austað Sig. Hjörleifsson, Jón í Múla, síra Magnús frá Vallanesi, Sigurður bóndi frá Brhnnesi, Hrólfur kaupmað- ur Johansen, Jóhann Hanson vjela- smiður, Sigurður Baldvinsson sýslu- skrifari, Þór. B. Þórarinsson með fjöl- skyldu, alfarinn hingað, 150 sjómenn o. fl. »Sterling« kom 13. þ. m„ 2 dögum á undan áætlun. Á skipínu voru Baldur Sveins- son og Magnús Jónrson cand. theol. frá Ameríku. Páll Jónsson frá Brunnhúsum hvarf í Viðey á mánudag. Halda menn, að hann hafi fallið út af bryggju og druknað. Eiríknr Briem hefur fengið prófessorsnafnbót og Jensen vjelameistari á „Botnfu" er orðinn riddari af Dannebrog. Balkanríkin kvað vera í einhverjum samnings- tilbúning um varnar- eða vopna-sam- band og gefa Tyrkir Kríteyingum góðar vonir um sjálfstjórn ef Grikkir hagi sjer rjettilega í þessu sambandi. I Nýjar I Kvöldvökur IFást í bókaverslun Sig. Jónssonar J jjarvern minni, á ferð til útlanda þangað til um miðjan næsta mánuð, gegnir yfirrjett- armálaflutnigsmaður Kr. Linnet störf- um mínum. Hann verður að hitta á skrifstofu minni kl. n—2 og 4—7- Reykjavík 12. des. 1911. Eggcrt Claessen. Þjóðólfur er elsta og þjóðkuiinasta I»Iað lamlsins. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Páisson sng’nfræðingrur. Afgreiðslu og innheimtumaður: Sigurðup Jónsson bóksali. Llndargötu 1 B. Pósthólf 146. Talsimi 209. Reykjavík. Auglýsingar sendast afgreiðslu- manni eða í prentsmiðjuna. Tóbaksbúðin „VlKINGDR", Laug aveg 5. Vjer höfum stærst úrval! Vjer seljuin ódýrast: Vindla, Vindlinga, Munntóbak, Neftóbak, Reyktóbak. Munið, að lang-bestu tó- bakskaupin gerast á Lau^aveg 5. Carl fárusson. Prentsraiöjan Gulenberg.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.