Þjóðólfur


Þjóðólfur - 13.07.1917, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 13.07.1917, Qupperneq 2
Þjoðolfur 50 fá strax í október 90 þús. kr. upp í andvirði gæranna, þó ekki feng- ist flutningsleyfi fyr en í desemi ber. Margir seldu ódýrar en Sf. Eg samgleðst því einlæglega, tf Sf, Sl. fær svo alvitra framkv.n., að hún viti allar verðbreytingar og dutiunga ófriðarþjóðanna fyrirfram. Geti þvi altaf dregið söluna nógu lengi, og aldrei um of. Þó hægar sé að styðja en reisa, verður þetta kannske ekki alveg vandalaust, svo öllum líki. Hitt er minni vandi, að sjá á eftir, hvað betur máttti gera. Frh. ------------------ Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands fyrir árið 1917, var haldinn að Þjórsár> túni, mánudaginn 18. júní s. á. Formaður Guðm. Þorbjarnarson, Stórá-Hofi, sotti fundinn og var fundarstjóri, skrifari var síra Ól. V. Briem að Stóra-Núpi. Fulltrúar mættu frá 17 Búnað> arfélögum. Auk þess mætti stjórnin öll og sýslufulltrúar úr Rangárvallasýslu og Árnessýslu. Ennfremur æfifélagar: Ingi- mundur Jónsson að Hala og Árni Tómasson að Stóra-Hrauni. Þetta var tekið fyrir á fundin- um. 1. Formaður las upp reikning yfir tekjur og gjöld félagsins árið 1916, ásamt athugasemdi um endurskoðenda. Formað- ur svaraði þeim fulinægjandi. Var reikningurinn sfðan sam- þyktur í einu hljóði. Lesin eignaskýrsla, og tald- ist skuldlaus eign kr. 2222.00. 2. Las formaður upp skýrslu yfir störí og framkvæmdir sam- bandsins síðastl. ár. Enm fremur skýrði hann frá, að þrír æfifélagar hefðu gengið í félagið síðastl. ár. Ennfrem ur 2 sýslufélög Vestur Skafta- fellssýslu og Rangárvallasýsla, og að Framfarafélag Land- mannahrjpps hefði tekið aftur úrsögn sína úr sambandinu. 3. Formaður las upp fjárhags- áætlun fyrir næsta ár, og var hún samþykt. 4. Formaður las einnig starf> ræksluáætlun fyrir næsta ár; þar var þetta lagt til: a. Jarðabóta- og leiðbeinga- starfsemi haldið áfram eins og að undanförnu. Samþ. b. jarðyrkjunámsskeiði hald- ið áfram eins og. að und- anförnu, alt að 6 vikna tíma, og ákveður stjórnin síðan á hvaða stað, eftir því sem umsóknir liggja fyrir og aðrar kringum1 stæður mæla með. Verk- þyggjandi borgi 25—30 kr. fyrir almenna dagsláttu og leggi til kennara og nemendum ókeypis uppi- hald. Samþ. c. Ráðnir séu menn sem fari um sambandssvæðið með hesta og áhöld og plægi og herfi hjá búnaðaríélög- um óg einstökum mönnum og gjaldi verkþyggjandi auk fæðis, 40—50 kr. fyr ' ir alunná dagsláttu. Samþ. d. Verðlaunum fyrir áburðarx ^ hirðingu haldið áfram eins og að undanförnu. Samþ. e. Veittur* styrkur fátækum leiguliðum til að byggja safnforir og haughús. Sþ. f. Að sambandið sæki um . kr. 5000.00 með það fyrir augum, að keypr.ur verði mótorplógur, og starfrækt- ur jafnframt venjulegri starfrækslu. Samþ. g. Að skora á Búnaðarþingið að það beit.i sér fyrir þvi, að búnaðarfélögum út um landið verði veittur styrk- ur framvegis ekki mifini en við næst síðasta fjár- hagstímabil. Og að fján veitingin sé bundin því skil- yrði, að jafnmikið fé komi annarSstaðar að til jarða- bótastarfsemi innan hvers búnaðarfélags, Fyrri liður tillögunnar samþyktur, en síðari liðurinn feldur. h. Fundurinn skorar á Bún- aðarþingið að beita sór fyn ir því, að alþingi veiti fram vegis til landbúnaðarins ekki minni styrk, en veitt- ur hefir verið til búnaðar- félaganná á undanförnum fjárhagstímabilum, með þeirri breytingu, að hér eftir verði hann veittur búnaðarsamböndunum til útbýtingar. Samböndin út> býti svo styrknum eftir ákvörðun aðalfundar. Feld. 5. Fundinum barst kveðja frá fyrv. form., Ágúst Helgasyni, með , þeim ummælum, áð hann væri forfallaður frá að mæta. Svöruðu fundarmenn þeirri kveðju með því að standa upp. 6. Allmikið var rætt uín fram- ræzlu á landi senj tekið er ræktunar, svo og á kálgörð- um. En frestað var að taka ákvörðun í því efni. 7. Formaður skýrði frá aðgei'ð- um sámbandsins viðvíkjandi viðskiftafundi. Yar samþ. að gjalda alt að 10 kr. kostnað sem af því leiddi. 8. Minst var á verðlaun fyrir góða fjárhirðingu, samkv. síð- ustu aðalfundargjörð 11. En fundurinn sá sér ekki fært að gera neitt i því efni. 9. Samþ. að halda viðskiftafund á næsta ári í þeirri von, að betra skipulag verðí á slíkum fundum, þegar menn komást á lag ifieð þá. Vigfús Bórg- ateinsson gaf til þess ,5 kr. Kosnir til að koma því í framkvæmd: Guðm. Erlendsson, Skipholti, Gestur Einarsson, Hæli, Óskar Thorarensen,Móeiðarhv., Guðjón .Tónsson, Túngu. 10. Kosning stjórnar: Formaður endurkosinn: Guðmundur forbjarnarson. Meðstjprnendur: Magnús Finnbogason og Gest- ur Einársson. Báðir enduri kosnir. Varamenn endurkosnir: Lárus Helgason, Dagur Bryn- jólfssón, 01. V. Briem. Endurskoðendur endurk.: Gunnlaugur Borsteinsson, Kiðjabergi, Magnús Jónsson, Klausturhólum. Fundi slitið. Guðm. Þorbjarnarson, ÓI. V. Briem. ----—------------ Alþingi var sett 2. þ. m. Friðrik Friðriks> son prédikaði. Forsetar söífiU og í vetur: Krist. Daníelss. í sam. þingi, Ólafur Briem í n. deild og Guðm. Björnsson í e. d. Stjórnarfrumvörp voru lögð íyr> ir þingið. Auk fjárlaga og fjár- aukalaga má nefna frv. um fyrir- hleðslu fyrir Markarfljót og frv. um einkasölu á steinolíu. Annars voru stjórharfrumvörpin mjög veiga- lítil og ómerkileg. Myndi Alþingi vissulega vinna illa fyrir mat sín> um, ef ekki væri annað gert en afgreiða þau. Merkilegt var það, að Flóaáveit- an var ekki lögð fyrir þingið sem stjórnarfrumvarp, enda þótt það mál sýndist vera hið eina, sem þingmönnum kom saman um 1915. Er það fyrirtæki og þannig vaxið, að það, a, m. k. fyrst um sinn, getur unnist án þess að leita þurfi til erlends markaðar á nokkrum hlut, og tæplega gerandi ráð fyrir að vinnulaun lækki, þótt óíriður* urinn hætti. Dráttur á málum er hins vegar stór hættulegur og ósæmilegur. Vonandi verður Flóa-áveitan engu að siður samþykt á þinginu, því að eins og sjálfsagt var, hafa þingmenn Árnessýslu lagt hana jyrir þingið. Annars hefir þingið lítið sem ekkert gert, annað en að vísa mál- um til nefnda. Þingmannafrum-r Vörp eru þegar komin nokkur, svo og þingsálýktunaitillögur. Hinar helztu þoirra er tillaga um skipun nefndar til íhugunar siálfstæðisx málum landsins, fiutt í n. d. af 10 þingmönnum úr öllum flokk- um. Má gera ráð fyrir, að sú nefnd láti eitthvað það frá sór fara, er tíðindum muni sæta. • Annars er þess ekki að vænta, að þingið enn sé farið að hafast nokkuð sérstakt að. Það er ekki fyr en um og eftir miðjan þennan mánuð, að nefndir fara að skila frá sór málum og þau fara að komast, til umræðu. Mun mega vænta þess, að þingmenn hafi margt „á samvizkunni11 eins og að undanförnu, og serstaklega mætti það merkilegt heita, ef eng- um þeirra dytti í hug, að koma fram með nokkrar umbótatillögru á mentamálum landsins. Því væri þó ekki vanþörf á. cŒráíiir. $ Samsöiig helt söngfólagið 17. júní sjðastliðinn sunnudag (8. þ. m-) á þrem stöðum austaiifjalls, Kotströnd, Þjórsá og Eyrarbakka. Var samsöngurihn, eins og að lík- indum ræðúr, langbez’t sóktur á Eýrarbakka, og' sögðu menn það einum romi, e.t þar voru staddir, að af honum hefðu þeir haft hina meStu skemtun. Á söngskránni voru bæði innlend og útlend lóg og öll sungin af mestu list, enda hefir félagið ágæta söngkrafta. 17. juní ætti aD gera oss þá ánægju að heimsækja oss oftar, í því væri mikil hressing. r»úmiðaiþing var nýlega hald- ið I Reýkjavilc.' Eru helztu ’ t.íð- indin þaðan, að fofmaður Búnað- arfólagsins, sk Guðmundur Helga- son, baðst lausnar, en í hans stað var kosinn formaður Eggert Briem frá Viðey. Er hann ungur mað- ur ög dugandi, og verður vonandi áhugasamur um framfaramál land- búnaðarins., Kæruleysi er það, er bifreiðastjórar aka ofan á húsdýr manna. Slikt er, að minsta kosti, í allflestum atvikum algerlegá þarflamf. Þó hundar oft og tiðum þvælist. fyrir bifreiðum, má, ef menn hafa vjlja og meði aumkun ineð dýrinu, altaf komast hjá þvi að þgð verði þvi aðr slysi, að undanteknum örfáum atvikum. Slíkt slys vildi hér þó til síðastl, sunnudag. 3 eða 4 bifreiðar komu hér akandi eftir, vegjnurn, miklu hraðar en leyfiíégt ætti að vera að aka eftir þröngiim þorpsgötum; hvolpur, séih eg átti, skaust að einni bifreiðinni, þájr tii, eftir skamman þvæling, að bifreiðan stjórinn ók yfir haiín, skreiddist hvoípurinn ir\eð kvölum af vegin- um inn í næsta hús, og dó þar eftir svo sem fjórðungs stundar dauðastríðs kvalir. Ekki 'veit eg, hvort lagahegning liggur við slíku, ef sannaðist að af kæruleysi. væri, en hitt veit eg, að siðferðisleg ’skylda a.llra sam, vizkusamra og heiðvirðrá manhá býður, að afsaka siíkt við eigend- ur dýrsins, eða ’að minsta kosti, reýna að stytta* kvalir þéss, og á annan hátt láta því f té þá hjálp sem unt er. - Likléga er þó eng- inn nú á tímum sá andlegur þurfa- lingur, að hann ekki viti, að dýr- in ha.fi tilfinningu og jafn náttúru- legan rétt á lífinu og við menn- irnir. Mer var mikið tjón að hvolp- inum og kona mín saknaði hans I

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.