Þjóðólfur


Þjóðólfur - 30.04.1918, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 30.04.1918, Qupperneq 2
22 ÞJÓÐÓLFUR an árangur af atarfi íslendinga sjálfra, þá er það gieðilegur vott- ur þess, að þeir eru a. m. k. að sumu leyti framar heldur en for- feður þeirra, sem ekki létu neitt slíkt eftir sig liggja. Því er eins farið um þjóð og einstakan mann. Yið mundum engan mann telja meiri mann fyrir það, þó að hon- um áskotnaðist nokkur þúsund krónur af tilviljun án hans til- verknaðar, slíkt væri engi framför á honum og manngildi hans eigi meira fyrir það; meira að segja eru þess mörg dæmi, að slík höpp hafa orðið hefndargjöf, gert manninn minni, dregið úr honum dug og þrótt til sjálf- bjargar, og jafnvel komið honum á vonarvöl; því að „margan hefir auður apað“. Tið erum ekki í vafa um að telja hinn auðinn happasælli og betri til frambúðar, að eiga vit og ráðdeild, vilja og þrek til að sjá bæði sér og öðr- um íarborða, þó að byrjað sé með tómar hendur og í harðbakka slái. Þessu er eins háttað um þjóðir. Sagan sýnir þess mörg dæmi, að þjóðarauðlegð, sem margar kyn- slóðir hafa hjálpast að að draga saman, hefir að lokum orðið niðj- unum hefndargjöf, hún heflr dreg- ið dug úr þeim, þjóðin lagzt í ómensku, afturför og hnignun, og tortíming orðið örlög hennar að lyktum. Mér dettur oft í hug það, sem einn gamall og góður bóndi sagði, og rennur til rifja, hve það var fávíslegt: „Eg get nú rólegur gefið frá mér“, sagði hann, „því að nú á eg orðið jarðarskika handa hverju barni eftir mig“. Eg hygg, að allir fari nær um, hvaða trygg- ing í því hafi verið fyrir velgengni barnanna hans. Til samanburðar má aftur taka viðkvæði úr þjóð- söng fornþjóðar einnar. Þar sungu fyrSt gamlir menn þessi orð: Vér vorum einu sinni vaskir menn. Þá kváðu miðaJdra menn: Vér er- um ennþá vaskir menn, reyni hver sem vill. En síðast kváðu ung- lingarnir: Vér sJmlum verða vask■ ari menn. Þetta var hernaðarþjóð, og hugsaði ekki um annað en hreysti og harðfengi. Við hugs- um nú um annað og fleira, en viðkvæði þetta er samt sem áður til fyrirmyndar. Unga kynslóðin á ekki að gera sig ánægða með að ganga í spor feðra sinna og mæðra, heldur að stíga feti framar. Og hverjir góðir foreldrar óska, að börnin sín verði sér fremri, og gera alt til þess, sem í þeirra valdi - stendur. Eg þarf vonandi ekki að taka það fram, að þegar eg segi „fremri“, þá meina eg ekki í fordild og fínlæti, heldur í þekkingu, dáð og dugnaði og öðr- um mannkostum. Þetta þarf að standa ijóst fytir eldri kynslóðinni, og þetta þarf að innræta þeirri yngri. Undir því, hverníg þetta tekst, er kominn framtíðarhagur þjóðarinnar og barna, hennar. Hvað getur þá eldri kynslóðin, sem nú ræður Iögum og lofum í landi hér, gert til þess, að næsta kynslóð, börnin, sem nú eru að alast upp, taki henni fram að viti, dug og mannkostum? Hvað geta foreldrar gert til þess, að börnin þeirra verði þeim fremri, komist lengra en þau sjálf í þessum efn- um? Tvent er það, sem gerir hvern mann það, sem hann er á full- orðins árunum og ræður mestu um örlög hans. Það er af annari hálf- unni meðfætt eðli hans og sköpu- lag, upplagið, hæfileikarnir, alt sem honum er lánað, en af hinni hálf- unni uppeldið, uppeldið, sem hann fær hjá öðrum í bernskunni, og uppeldið, sem hann sjálfur veitir sér, þegar hann kemur til vits og ára. Hvernig upplag barnanna er og hæfileikar frá skaparans hendi, það er vitanlega ekki á mannanna valdi, en uppeldi í bernzku er það að miklu leyti, og hvernig mað- urinn svo venur og uppelur sjálf- an sig, þegar hann er kominn til vits og ára, það er að vísu á sjálfs hans valdi, en fer þó vafa- laust oftast nær mjög mikið eftir því, hvernig grundvöllur hefir ver- ið lagður í uppvexti hans. En mjög hefir hina mestu spekinga greint á um það, hvort meira muni mega sín, upplagið eða uppeldið. Þó eru flestir sammála um, að hjá öllum þorra manna muni upp- eldi mega sín meira en upplagið; svo að slæmt uppeldi geti eyði- lagt bezta upplag og hæfileika, og aftur á móti geti gott uppeldi gert furðanlega mikið úr lélegu upplagi og litlum hæfileikum. En að upp- eldið sé hið mesta vandaverk, um það ber öllum saman. Það sem því foreldrar og eldri kynslóðin yfir höfuð getur gert við börnin og komandi kynslóð, til þess að gera þau sér fremri, að sem mestum og beztum mönnum, er í þessu innifalið, að vanda uppeldið af fremsta megni. Með öllum siðuð- um þjóðum er það nú talin heilög skylda þjóðfélágsins, að hjálpa for- eldrunum og heimilunum í þessu efni. Eru til þess reistir skólar handa öllum almenningi. Tím- arnir heimta sífelt meiri þekkingu, og fæstir foreldrar eru færir um að veita börnum sínum hana, a. m. k. ekki meiri en þau hafa sjálf, og svo er það hagur þjóðfélagsins, eins og foreldranna, að úr börn- unum verði sem mestir menn og beztir. Það er á síðustu árum orðið kapphlaup í þessu efni meðal mentaþjóðanna, Um miðja 19. öld sagði þýzkur maður: „Sú þjóð, sem á bezta skólana, er fremsta þjóðin. Sé hún það ekki í dag, þá verður hún það á morgun". Enginn taldi þá þýzku þjóðina fremsta. Frakkar voru herþjóð meiri og Englendingar iðnaðarþjóð og verzlunarþjóð meiri. Nokkrum árum síðar sigruðu Þjóðverjar Frakka gersamlega á */* ári. Þá sagði æðsti herforingi Þjóðverja: „Þenna sigur hafa skólarnir okk- ar unnið“. Og enginn efar það nú, að skólunum þeirra sé að þakka frammistaðan þeirra í styrj- öldinni miklu, sem allir undrast nú á tímum, þar sem helzt lítur út fyrir, að þeir ætli að ganga sigrandi af hólmi eftir baráttu við meira en hálfan heiminn. Eng- lendingar hafa miklu miður sint skólum sínum, og létu menn miklu lengur sjálfráða um uppfræðslu barna sinna heldur en Þjóðverjar. En eftirtektarvert kann ykkur að þykja það, að í aprílmánuði í fyrra fór enska stjórnin fram á 70 mil- jóna króna fjárveitingu á þinginu til launahækkunar barnakennara landsins og fylgdu ummæli á þessa leið: „Nýliðarnir, sem teknir hafa verið í her og á flotann, hafa sýnt, hve ómetanlegt gagn er í ment- uninni. Hinir siðferðislegu yfir- burðir, sem við miklumst af með réttu, eru mest að þakka barna- skólum vorum og kennurum þeirra. Þeir eiga gott skilið af þjóðinni. Hingað til hefir þeim verið laun- að svo illa, að hæfir menn hafa löngum orðið nauðugir viljugir að hætta starfi á bezta reki". Skrít- in dýrtíðarráðstöfun hefði þetta þótt hérna. Það fyrsta sem grip- ið var til að spaia hjá okkur í fyrra, voru útgjöldin til skólanna, einkum alþýðuskólanna. Englend- ingar virðast vera komnir á aðra skoðun. Þið segið ef til vill: Yið eigum ekki í stríði! Jú, víst eigum við í stríði. Ekki við menn, en við náttúruna, við óblíðu lofts og láðs og lagar. Og í samkepni við aðr- ar þjóðir verðum við að taka þátt, hvort sem við viljum eða ekki. Þýzku börnin læra ekki í skólun- um að drepa menn, en þau læra þar að hlýða og stjórna og vinna saman, elska land sitt og þjóð og vera reiðubúin til að leggja með hugprýði alt sitt í sölurnar fyrir sameiginlega heill og góðan mál- stað. Ykkur finst kanske ekki heldur málstaðurinn góður og þýzka þjóðin ekki eftirbreytnisverð. Um það fer tvennum skoðunum. En þar til er því að svara: Það kemur undir því, hvað og hvernig er kent í skólunum, hvað börn- unum er þar innrætt. Hernaðar- andinn þýzki er ekki eftirbreytn- isverður, en hugprýðin þeirra og samheldnin er það, og þeir hafa fyrst og skýrast sagt og sýnt heim- inum, hvað alþýðumentun megnar. Þar megum við lítilmagnarnir hafa þá til fyrirmyndar, þó að við vilj- um ekki mannsblóð sjá. Eða mun smáþjóð, eins og við, mega við þvi að kasta frá sér þeirri verj- unni, sem stórveldunum hefir orð- ið drjúgust til sigurs? Menningunni okkar fornu er það að þakka, að þeir útlendingar, sem þekkja okkur, kannast við, að við séum sérstök þjóð. Menning okkar nú á tímum verður að færa þeim heim sanninn um það, að við eigum enn skilið að lifa okk- ar sérstaka þjóðlífi, vera sjálfstæð þjóð. Við getum ekki borið fyrir okkur fjölmennið. Þjóðmenning okkar er eina vörnin, lífsskilyrði íslenzku þjóðarinnar. Til þess að halda henni uppi verða allir að leggjast á eitt og duga hver sem má. Vitanlega stöndum við að ýmsu leyti ver að vígi en aðrar þjóðir. Það er rétt að kannast við það. En sú viðurkenning á að vera okkur brýni og eggjun, en ekki æðruorð og uppgjafar. Það var einu sinni íslendingur staddur að kirkju í Noregi með höfðingja sínum og 3—4 liðsmönn- um norskum. Þeir voru allir vopn- lausir. Þeir vissu ekki fyrri til, en vopnuð óvinasveit var rétt komin að þeim óvörum, og var þá ekki nein von griða höfðingja þeirra. Liðsmenn hans æðruðust allir, þar sem þeir voru allir vopn- lausir. Þá mælti íslendingurinn þessi orð: „Hér erum vér þá, og fylgjum því betur jarli, að engin eru vopnin"! Vopnleysið var hon- um einungis hvöt til þess að duga því betur. Enda lét hann ekki lenda við orðin tóin. Hann barg jarlinum og félögum sínum öllum, en lét sjálfur lífið. Hvað mér dettur oft í hug þessi íslendingur, þegar verið er að fjasa um, hversu við séum fáir, fátækir og smáir, Og hvað eg vildi óska, að allir hugsuðu þá eins og hann. Þvf ver sem við stöndum að vígi, því betur verðum við að duga. Því færri sem við erum, því meiru þarf hver einstakur að orka; því fátækari sem við erum, því betur þurfum við að halda til haga, því sem okkur er lánað; því smærri sem þjóðin er, því stærri þurfa börnin hennar að vera að mann- gildi og kostum. Annars er líf og velferð litlu þjóðarinnar í veði. Eg hygg, að upplagið í íslend- ingum, hæfileikar til líkams og sálar, séu enn þá eins og bezt ger- ist með öðrum þjóðum. En þá kemur til hins atriðisins: Hvernig er uppeldið? Hvernig hlúð að hæfi- leikunum? Hvað gert til þess að þeir dafni sem bezt? Hvar stönd- um við í því efni í samanburði við aðrar þjóðir? Ef litið er á, hvað gert er í því efni af hálfu þjóðfélagsins, þá stöndum við þar langt að baki allra mentaþjóða. Þær leggja börnunum til kenslu í skólum frá því að þau eru 6—7 ára til 14 ára, og sumar lengur. Foreldrar eru skyldir að láta börn sín rækja skólana allan þann tíma, og kenslutíminn á hverju ári er venjulega um 10 mánuði. Kenslu- tíminn á dag er 2—5 st. Skól- arnir taka að sér alla fræðsluna, að kalla má. Og þar sem bezt er, t. d. í Þýzkalandi og á Norð- urlöndum, er ekkert til sparað að gera skólana sem bezt úr garði, og menta kennarana sem allra bezt. Svona getum við ekki hlynt að fræðslu hvers barns hér á landi! Það væri mögulegt í kaupstöðum og sjóþorpum, þar sem þéttbýlið er nóg, svo að börnin geta gengið í skólana heiman frá sér daglega, en í strjálbýlum sveitum er þess enginn kostur. Hér hefir samt sem áður verið lögboðin nýlega fræðslu- skylda, nokkurs konar ófuJlkomin skólaskylda, en þá þorði löggjafinn ekki að heimta meira handa sveita- börnunum pn 8 vikna kenslu á ári í 4 ár, fyrir utan það, sem heimilin sjálf eiga að kenna þeim, en kaupstaðabörn fá þrefalt meiri tíma og þar yfir. Þessari litlu skólaskyldu þykir nú sumum ofaukið, finst að hún ætti engin að vera. Bezt að láta

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.