Árrit Prestaskólans - 01.01.1850, Blaðsíða 1
I boðsbrjefi okkar bjetiuii við því, að árrit preslaskólans
skyldi koma út undireins og búið væri að prenta alþíngistíð-
indin, og höfðum við fengið loforð Stiftsyfirvraidanna fyrir þessu.
En alþíngistíðindin urðu lengri en inenn böfðu búist við og
prentun þeirra var ekki lokið fyrren seint á útmánuðuui í vet-
ur rjett undir það að póstskipið sigidi; var þá og jafnskjótt
tekið til að prenta árritið og það með þvílíkum hraða, að við
fengum ekki nægan tima til að gánga svo frá rjettrituninni, að
hún yrði alstaðar í ritinu sjáifri sjer að öliu Ieyti samkvæm,
jafnvel þó við hinsvegar höldum, að ósamsfemma þessi hvorki
verði til stórkostlegra líta, nje rjettum skilníngi á bókinni til
fyrirstöðu. jþessum drætti á prentun alþíngistíðindanna er það
að kenna, að árritið birtist ekki fyrren nú og meðfram þvi,
að við eptir brjeílegum og inunnleguin tilinælum margra höfum
haft ritið miklu ieitgra en i fyrstu var ráð fyrir gjört, og þar-
aðauk orðið að bíða með prentun nafnaskráarinnar þángaðtil
búið væri að skila boðsbrjefunum aptur. Afþví að árritið í þetta
sinn er 14 arkir á stærð, kostar það 72 sk. með inrifestíngu,
og er þá hver örk á 5 sk., og því ódírari en við hjetum
í boðsbrjefinu. Án fleiri inngángsorða, felnm við árritið góð-
vild lesendanna og biðjum þá að dæma vægðarsamlega um
missmíði þau, er á því kunna að vera og hafa sanngjarnlegt
tillit til erviðleika þeirra, sem fyrirtæki okkar í mörgum grein-
uin er undirorpið, en öllu framar að lesa ritgjörðirnar með um-
hugsun og eptirtekt, því að þá eruin við góðrar vonar um, að
lesendurnir hafi þau not af þeim, sein við höfum til ætlast, þó
stefna sumra þeírra sje ný og lítt þekkt hjá okkur og blærinn
á þeim vísindalegur.
Reykjavik 28. dag maí mán. 1850.
Útgefendurnir.