Ingólfur - 07.09.1853, Qupperneq 4

Ingólfur - 07.09.1853, Qupperneq 4
60 vera mjög matsár niaður, eða þá 'virðingarskorti fyrir þinginu og gestunum yfir liöfuð. 2......þú hefðir að vísu fegurra skinið 1 augum þjóðarinnar, herandi hennar nafn, en allt fyrir það ertu ekki fyrirlilandi, þótt þú nú nefnist Ingólfur. Nafn það er ætíð heiðarlegt, og eptir því sem mig minnir til, þá hefur þú ekki blettað það með neinum mótþróa gegn þjóðinni, eða fylgismálum hennar; það eru þessar grða- hnipringar inilli ykkar blaðamannanna sjálfra, sem eru að vísu slæmar, en sem þú neyddist til að svara, úr því þú varst kominn út í það; og yfir höfuð hefur mjer fundizt, að þú ómögulega gætir farið varlegar sem stjórn- arblaðs ritari, enn þú gjört hefur; og það er víst, að hefðir þú aldrei verið þjóðólfur, þá værir þú kallaður góður Ingólfur. Svona lít jeg á þetta mál, góði vin! en vist hefði það verið betra fyrir þig og firimarks- sælla að minnsta kosti í bráð, meðan þú ert að kenna oss að þekkja áttirnar í uppheiinsloptinu, að þú hefðir haldið við þjóðólf hjerna niðrundir gufuhvolfinu, og ekki snert Ingólf. því þó þú í raun ög veru eigir þakkir skilið fyrir það, að þú vilt nú koina fram sem gætinn blaðritari stjórnarinnar, er veitir þjóðblaðinu bæði fjör og líf, þá eru þeir enn svo fáir sein skinja það; enjeg hef þá von, að eins og þú með þjóðólfi kcnndir mönn- um að lita upp fyrir sig í gufuhvolfið, eins kennir þú þeim með Ingólfi að sjá einhverja birtu í blessuðu upp- heimsloptinu. Aðsent. Vjer skulum gæta sannsýní, og vjer skulum gæta • skynseminnar! „Gamlir menn og gráir“ eru siður enn ekki gagnslausir; vjer megum ekki án þeirra vera; þeir eru salt jarðar, bezta cign í þjóðlífinu. Jeg veit, að það cr gaman að hlaupa í gönur með skáldagrillum, og prjedika lýðnum -öf landinu því, þar sem steiktir dilkar ganga uin gólf með hníf og gaffal í hryggnum; en er það þá ekki líka ómissandi, að innan um sjeu einhverjir með viti, sem segi, að nú sje af sú tíðin, er steiktar gæsir fljúgi upp í munn á mönnum? því álítur þú ekki, að gönuhlaupin gagni þjóðlílinu áiíka og fruntahlaupin? '_____________ S* Amerikumaðurinn og Englendingurinn. þ)ó að Englendingurinn megi vel stæra sig bæði heima á ættjörðu sinni og alstaðar á ineginlandi Norð- urálfunnar, þá verður hann þó í Sambandsríkjunum í Testurheimi, þar sem reynslan hefur þegar kennt mönn- uui að trúa aldrei Englendingi of vel, að þola einatt biturt háð, eins og hann svo opt heima hjá sjer helur haft í frammi við veslíngs Irlendinga. þiannig liefur atburður sá,sem hjersegirfrá, gefið dagblöðum Vesturheimsmanna tilefni til að færa heldur að keppiuautum þeirra í verzl- un, handiðnum og siglingmn. Amerikuinaður og Englendingur komust einu sinni í hár saman, og lauk svo að Amerikumaðurinn skoraði Engleridinginn á hólm, og vildi að hólmgangan væri Iialdin í myrkri. þ>á er Englendingurinn hafði sæzt á það, tóku þeir sína pistóluna livor, og voru svo báðir lokaðir inni í lierbergi einu, þar sem ekki sást nokkur skíina. Englendingurinn átti fyrst að skjóta, og hleypti þegar af pístólunni, en hilti ekki mótstöðumann sinn. Nú liar þá Amerikuinanninum að skjóta; en þá vakn- aði mannleg tilfinning I brjósti hans, og þar eð hann jafnvel ekki vildi skemina veggina í herberginu, hjelt hann pistólunni upp i reikjarstöpulinn og hleypti þar af lienni; en lionuni varð heldur enn ekki hverft við, þegar Englendingurinn fjell þaðan niður fyrir fætur honum; hafði liann þá smogið upp í stöpulinn, og þannig með hugleysi síuu ollað sjálfur dauða sínum. Skrifstofa B ngólfs. þiegar Ingólfur Arnarson nam lijer land, var hann á sífelduin flutningi úr einum slað i annan 3 fyrstu árin, unz liann festi bústað við Arnarhól. Jetta ætlar líka að koina fram á nafna hans, þvi nú er s k r i f- stofa Ingólfs flntt úr Austurgðtu bæjarins í bisk- upsstofuna gömlu, Geirs góða Vídalíns. IIús þetta steudur næst prentsmiðjunni allra liúsa, gagnvart brunn- stólpanum og örskammt frá hinni þjóðkiinnu skrifstofu þijóðólfs gamla. fietta hús þarf varla frekar að auð- kenna. Hingað verð jeg þá að biðja aila að snúa leið sinni, sem eitthvað vilja skipta við útgefara Ingólfs. Auglýsing. Með þessari auglýsingu, sem birt mun verða bæði á Reykjavíkur bæjarþingi og í hinum konunglega íslenzka landsyfirrjetti, kveð eg hjer með alla þá, sein skuldir þykjast eiga að heimta í þrotabúi guilsmiðs Jóns Bernharðssonar hjer úr bænum, til þess innan 12 vikna að lýsa skuldakröfum slnum og sauna þær fyrir mjerj sem hlutaðeiganda skiptaráðanda. Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík 2d. ágúst 1853. V. Finsen Hefði guð minn góður þurft að kalla saman ráð- gjafaþing til að skapa heiminn, þá trú mjcr til hann hefði ekki lokið sköpunarverkinu á 6 dögum. En guð sagði: „verði ljós!“ og það varð Ijós. þegar mikið liggur við, fer opt dável á því að einn ráði. Prestaköll. Óveitt: Oddi á Rangárvöllum^metinn 121 rbd. Kálf- hagi í Flóa, 11 rbd. 4 mörk 12 sk.; Laufás í þíngeyjar- sýsiu, 62 rbd. 5 mörk 2 sk. l’rentaður í prentsmiðju íslands, hjá E. þorðarsyni.

x

Ingólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/79

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.