Íslendingur - 12.04.1861, Blaðsíða 4
12
ekki björgulegir. f>ar var að áliðnu sumri allt gras nið-
ur bœlt af snjó, sem nýiega var upp leystur. Dabirhjeldu
sumir að væri inni í jöklinum, og úr honum rynni Náms-
kvísl norður í Tungnaá. En sjeu útilegumenn í þeim
dal, þá væri mjög þröngt um þá, og einnig hlytu spor að
finnast eptir þá, eða einhver vegsummerki kring um jök-
ulinn. Mig minnir og, að jeg hafi heyrt, að einhverjir síðan
hafi skyggnzt eptir um dalinn og ekkert markvert fundið.
5. Eyvindarkofa, sunnanvertíEyvindarveri, þekkir
hver maður, sem ferðazt hefur Sprengisand. Stúdent
Hjálmar þorsteinsson skrifaði 1838 lýsingu yfir Sprengi-
sandsveg, og lýsir Eyvindarkofum; og eptir þeirri lýsingu
vegarins fór jeg Sprengisandsveg árið 1841, eins og lesa
má í Skírni 1843, í skýrslum, bls. XXIII. f»að er auð-
vitað, að þessir Eyvindarkofar eru engin stöðug útilegu-
mannabyggð, þótt þessi eini maður með konu sinni dveldi
þar um tíma. Jeg tjaldaði og áði eina nótt við Eyvind-
arkofa, því þar er ágætt gras, og skoðaði jeg kofana.
f>eir eru líkir þvi, sem hreppstjóri Stefán í Sviðholti hef-
ur lýst þeim í »íslendingi«; þó held jeg, að veggirnir
sjeu varla meðalmanni í öxl að utanverðu. Kofarnir virt-
ust mjer líkastir skothúsi, er skyttur hafa til að veiðató-
ur við. f>eir eru tilsýndar eins og stór gráleit mosaþúfa,
og varla finna menn þá, nema þeir viti, að þeir eiga að
vera þar. Einn kofinn minnir mig að væri niður dottinn.
f>að er og skiljanlegt, að svo lítilfjörlegt hús eigi geti
þolað tímans ævarandi nögun. f>etta er hjer um hálfa
þingmannaleið norðaustur frá Sóleyjarhöfðavaði á jþjórsá,
en hjer um V4 þingmannaleiðar frá Tómásarhaga, sem á
uppdrættinum stendur heldur norðarlega, því hann á að
standa undir Iitlu felli undir miðjum Tungnafellsjökli; en
þetta litla fell vantar á uppdráttinn.
6. Stórasjó, norðast í Fiskivötnum, skammt frá
Skaptárjökli sunnanverðum, hef jeg heyrt einhverja tala
um að verið gæti að útilegumenn byggju við. f>angað
lief jeg eigi komið. En ólíklegt þykir mjer, að útilegu-
menn búi þar. Fiskivötn þessi eru annars nokkurn veg-
inn kunnug. Norðustu vötnin heita, eptir því sem merk-
isbóndinn Björn sálugi þorvaldsson í Stóradal sagði mjer:
Stórisjór næst jöklinum, Litlisjór fyrir sunnan hann, þá
Stórafossvatn, Litlafossvatn og Grœnavatn. f>ar útsuður
undan eru kofar eða skálar eptir veiöimenn úr byggð.
f>ví næst kemur Tjaldvatn, Skálavatn, Langavatn, Eskivatn'
og Kvíslarvatn. f>essi vötn standa á uppdrættinum, og
sum með nafni. Ilafi nú byggðarmenn stundað veiði í
23
og reið nú þá leið með þeim; enerá heiðina kom, kvað
hann þann böggunum stal mundu ei ríða almanna-veg,
yrðu þeir því dreift að ríða, en er leiti bar af, hleypti
Jón frá þeim og Ijetti ei fyrri, en hann náði lest sinni;
fór Jón norður og heim til sín.
3. Shólasveinar gista að Jóm.
f>að er sagt, að Jón fœri byggðum vestur í Laxárdal
hinn fremri; segja sumir hann búið hafa á Skyttudal um
liríð; hafði þá Ilúnaþing Bjarni sýslumaður Halldórsson
á f>ingeyrum, en óljóst er, hve lengi Jón bjó þar, en það-
an fiutti hann að líálfárdal í Gönguskörðitm, og liafði þá
svikizt um að gjalda Bjarna þinggjöld; hugði sýslumaður
því að lögsœkja hann fyrir óskil þau. J>á voru á vist með
sýslumanni Bjarni Júnsson og Sigþrúðar blindu Jónsdótt-
ur prests á Staðastað vestur; var Bjarni sá borinn að
Álptavatni í Staðarsveit, og Markús Pálsson lögrjettumanns
á Broddanesi, Markússonar, Pálssonar, og námu þeir í
skóla á Hólum og urðu síðan prestar. f>að var einn vetur,
að þeir gengu báðir úr skólanuin heim vestur til þingeyra
fyrir jólin, sein venja, var til, en er þeir gengu norður
vötnum þessum, held jeg þeim megi kunnugt vera, hvort
nokkur útilegumanna-byggð sje við Stórasjó eða ekki, því
eigi er nema svo sem hálf þingmannaleið norður undir
jökulinn frá hinum umgetnu veiðimannaskálum, og innan
þess sviðs liggur Stórisjór.
7. Vatnajökul hef jeg heyrt einhverja nefna, sem
í gæti verið útilegumannabyggð. Ef nokkurstaðar á land-
inu er nœgileg víðátta fyrir útilegumannabyggð, þá er það
þar, En sje ekki stingandi strá í Ódáðahrauni, og það
liggur fyrir ofan allan grasvöxt, þá liggur þó Vatnajökull
en hærra. Ilann ætti þá að vera eins og kvíar; en það
má jeg fullyrða, að hvorki norðan til, vestan til nje sunn-
an til er hlið eða dyr á honum. En hvort nokkurt hlið
er á honum að austanverðu, munu Hornfirðingar og Lóns-
menn bezt vita. Upp að honum að austanverðu liggja
Lambatungur; þar er og nefndur Sauðhamarstindur. f>essi
nöfn sýnast mjer benda til, að þar sje afrjettarlaud Horn-
firðinga og Lónsmanna; og mættu þeír þá vita, ef þar
væri nokkurt lilið á jöklinum. En sje nú ekkert hlið á
lionum, þá hlyti snjór smásaman að fylla kvíarnar, svo ef
þar væru útilegumenn, þá verður jökullinn sí og æ að
hækka undir þeim, og hvar eiga þeir þá að fá torf til að
þekja með hús sín? hvar hafa skepnur til að lifaá? hvar
gras handa þeim skepnum? og hvarhey á vetrum? Hvað
útheimtist nú til, að stöðug útilegumannabyggð sje til og
geti við haldizt i landinu? Útilegumenn þurfa:
1., fœði, annaðhvort af kúm, kindum, fuglum eða fiskum;
þá veiðarfœri, heyskapar-amboð, matreiðslu-áhöld og
eldivið.
2., hey og gras handa skepnum sínum, og það ekki mjög
langt í burtu.
3., klæði, af uli, Ijerepti eða skinnum; einnig rúmföt;
verkfœri til að vinna þetta; einnig skóleöur og nálar.
4., húsaskjól, og allt hvaö þar til heyrir.
5., hlýindi og hita af eldi, þá eldivið.
6., hesta til aðfiutninga.
7., tímgun, ef ættkvíslin skal við haldast og ekki deyjaút.
8., læknishjálp og hjúkrun í sjúkdómum.
9., kaupskap við útlendar þjóðir.
Ef byggðarmenn hafa fullt í fangi, að halda sjer við,
þá munu eigi útilegumenn eiga hœgra með það, þegar
þeir ofan á allt annað verða að ganga huldu höfði, og
ekkert má finnast af því, sem þeir þurfatil viðurværis eða
nauðsynja sinna. Ekki má finnast svo mikið sem tað eða
spor eptir neinar lifandi skepnur, enn síður skepnurnar
24
aptur í skólann þrettánda dag jóla, og ætluðu að ganga
Litla-Vatnskarð norður á Víðidal og norður Molduxaskarð
tilHóla skemmstu leið, kom á þá logndrífa, svo þeir villtust
og vissu aldrei, hvar þeir fóru; fœrð var ill á fjöllunum
og fannalög mikil. Bjarni var all-knár maður og varð
lionum töf að Markúsi, og kom svo, að nauðulega fjekk
hann dragnað á eptir Bjarna; vildi það þá til, að Bjarna
sýndist missmíði nokkurt í einum stað á snjónum, skaraði
til með staf sínum, og fann, að hurð var undir yfir snjó-
göngum fram af fjárhúsdyrum; fór hann þar inn og ljet
Markús inn koma í garðann; var þar hlýtt, því fje var í
húsinu; við það gekk Bjarni út aptur og sýndist ljós
glampa í glugga skammtfrá sjer, gekk þangað, fann glugg-
ann og guðaði á hann; honum var gegnt inni; Bjarni
spyr, livað bœr sá hjeti, og liver fyrir ætti að ráða. Sá
svarar, er inni var: »Litlu skiptir þig það, ef þú fær að
vera og hefur þörf beinleika«; leið og ei langt um, áður
maður kom út, hvatlegur í bragði og knálegur; bauð hann
Bjarna gistingu, en þá Bjarni spurði hann að nafni, Ijezt
hann heita sem ílestir; gat Bjarni þá um Markús; leiddi