Íslendingur - 31.07.1862, Side 1

Íslendingur - 31.07.1862, Side 1
ÞRIÐJA ÁR. 31. jfilí. M 8, Innlendar írjettir. Gnfuskipið Arcturus kom hingað til Reykjavíkur laugardaginn 26. þ. m. mcð ýmsa vöru til kaupmanna vorra, eins og vant er, og á því komu margir ferðamenn, bæði landar vorir og útlendir menn. Meðal þeirra sem komu teljum vjer þessa: Frú Arnesen hjeðan úr Reykjavik og fröken Elinborgu Magnu- sen frá Skarði á Skarðsströnd; dr. Dasent og Mr. Camp- bell, er báðir komu hingað í fyrra; Lord Newry, Mr. Clifí'orð, einn af parlamentsmönnum Stórbretalands; Mr Bryson, Mr. Mitchel, Mr. Griolet de Geer, hann mun vera frakkneskur; tvo aðra útlendinga höfum vjer heyrt nefnda, en vitum eigi nöfn á þeim. Enn fremur: As- björn Jacobsen, gullsmiðsmeistari, bróðir Sveinbjarnar kaupmanns og búandi maður í Kaupmannahöfn; Lega- tionsráð dr. Grímur Thomsen, kand. juris Magnús Magn- ússon Stephensen frá Vatnsdal, kand. juris Sigurður Ei- riksson Sverrisen, kand. medic. Magnús Pjetursson Step- hensen frá Ólafsvöllum á Skeiðum og kand. philologiae Ölafur llannesson Jchnsen úr Reykjavík. þessir 4 land- ar hafa allir í júnímán. þ. á. leyst embættispróf af hendi í Iíaupmannahöfn. Flestir af ferðamönnum þessum ætla, eius og vant er, að ferðast til og frá út um landið, og er það að vísu ekki lítið gleðiefni, hve inargir göfugir og góðir menn koma nú á ári hverju til að kynna sjer hjer land vort og lýð, enda vitum vjer fyrir víst, að landar vorir kunna að meta það sem vert er, og sýna hinum útlendu ferðamönnum allan veg og sóma. Margir þeirra gefa út ferðabækur sínar bjeðan, þegar þeir koma heim til sín, og þá er þess getið, sem gjört er; en satt er bezt að segja, að ílestir þeirra bera oss vel söguna. — Um eldgosið getum vjer því miður lítið frætt les- endur vora að sinni. Vjer höfum talað við menn, sem nýkomnir eru austan úr Múlasýslum, bæði sunnan um land yfir Skaptafellsýslu og norðan um land yfir þingeyj- ar- og Eyjafjarðarsýslur, og hvorugir hafa getað annað sagt, en að eldur væri uppi inni í óbyggðum, og vart hefur orðið. við öskuryk, einkurn í Skaptafells- og Rang- árvallasýslu og úti í Vestmannaeyjum. INorður í land liefur að likindum síður lagt öskuna, því að vindur hefur því nær allt af verið á norðan, og fyrir því lagt bæði reyk og ösku suður á loptið. Ein fregnin sagði, að eld- ur væri uppi á tveim stöðum, og mundi annar vera í Dyngjufjöllum hinum syðri, en annar í Trölladyngju; hvorttveggja er í Ódáðahrauni. Er það að vísu heppilegt^ úr því eldur er uppi á annað borð, að hann er sem lengst frá manna byggðum. — Veðuráttin hefur um langan tíma verið mjög þur og köld, með þokurn og svækjum nyrðra, en hjer syðra er opt og tíðum sólskin þó vindurinn sje kaldur. Til fjalia er sagt að frost sje á hverri nóttu. Allstaðar er gras- brestur í mesta lagi, og út lítur fyrir að heyskapur verði rýr um allt land; komi nú votviðrakafli þegar á líður sum- arið, þá er skepnufellir vís. Vorharðindi og skepnufellir er sagður úr Múlasýslum, einkum úr Vopnafirði. Vart hefur orðið við hafís fyrir þingeyjarsýslu, en víst munu lítil brögð að honum. Iljer eru um þessar inundir mörg skip í Reykjavík, bæði Frakkar á tveimur herskipum; Norðmenn tveir með viðarfarma; enskir hrossakaupmenn víst á tveim skipum; enskt listiskip með ferðamenn; gufuskipið, sem áður er nefnt, og nokkur kaupför. það er sagt, að um þessar mundir verði fluttir utan, bæði á gufuskipinu og á hinum skipurmm sumum, allt að 400 hesta; sje nú hver hestur til jafnaðar seldur fyrir 10 spesíur, þá verður andvirði þeirra, sem inn í landið berst, 4000 spesíur, og kemur það sjer vel á þessum árum, þegar annar vöruafli er held- ur í ininna lagi eptir hörðu árin. J>ó verður því eigi neit- að, að miklu meiri vara keinur nú í sumar til kaupstaða en tvö undanfarin ár, en ga:ta má þess á hinn bóginn, að skuldir hafa aukizt mjög mikið árið sem leið, eins og við er að búast, því lengur sem harðindin standa; svo að þegar öllu er á botninn hvolft, er víða í sveitum ástandið lítið betra í ár en í fyrra. — íslendingar hafa aldrei getað mælt sig við aðrar þjóðir í ríkidæmi, og þeir munu seint geta það, eru og margar orsakir til þess; þar á móti hafa þeir fyllilega staðið ýmsum þjóðum jafnfætis i andlegri mentun, þetta votta sögurnar, lög þau, er þeir settu sjer sjálfir í fyrnd- inni, og );mislegt fleira. f>að hefði nú verið hið eðlileg- asta, að þjóð vor hefði haldið áfram að ganga í þessa stefnuna, og reynt til að ná sem mestum andlegum þroska, því bæði var þessi stefnan hægri og eðlilegri fyrir liana, og líka er í raun réttri enginn ríkdómurinn meiri eður fegri, en að sála mannsins sje prýdd andlegum auðæfum guðsótta, vizku, kurteysi, og allskonar mentun; hið ann- að, er meðþarf til lífsins viðurværis og yndis kemur þá og af sjálfu sjer, og meira þurfa menn ekki af verald- legum auðæfum. En það er hörmung til þess að vita, að það virðist sem þjóð vor sje nú farin að breyta mjög stefnu sinni í þessu; menntunin sýnist nú almennt litils metin hjer á landi, en að geta nælt og nurlað einhverju saman, meðan maður lifir, það þykir mörgum nú hið mesta ágæti; þessi hugsunarháttur er mjög Ijótur í sjálfu sjer, og verður hverri þjóð að illu einu og sú þjóð, sem ekki stundar eptir andlegum þroska, verður aldrei bær að ráða sjálfri sjer, því hún hefir ekki vit á, að efla með sjer hið góða, sanna og fagra. |>að er því skylda hvers manns, sem vill þjóð vorri vel, að niðurbrjóta slíkan hugs- unar hátt, að því leyti honum er unnt, og hvetja þjóðina að afla sjer þekkingar og mentunar, ogeinkum ættu þeir, sem settir eru til að hafa yfirumsjón yfir mentuninni hjer á landi, aðlátasjer þettavera hugfast; þeir ættu að stunda af alefli, að foreldrar ljetu efnilega sonu sína í skólan til að læra, og það því heldur, sem þetta ersú eina menta- stofnunin, sem hjer á landi nú er, og ágjætlega setin að kennurum, svo í annan tíma eigi mun betur lmfa verið, og sem ekki að eins láta sjer annt um það, að lærisveinar sínir efiist í þekkingu heldur og góðum siðum. Yjer fáum því eigi skilið, hvernig á því stendur, ef satt er, að / 57

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.