Íslendingur - 31.07.1862, Síða 2

Íslendingur - 31.07.1862, Síða 2
58 stiptsyfirvöldin nú bafi ekki veitt tvær ölmusur við skólan, heldur látið þær vera óveittar, nema ef þau hafa ætlað sjer að bíða til hauslsins nieð að veita þær, og það hlvtur að vera svo, ef þá kynúu einhverjir nýir að ba'tast við í skólan, sem á þeim þyrftu að halda, en sem yrði útilok- aðir frá að geta fengið þær nú í vetur, væru allar ölmus- urnar veittar nú þegar, því að nota ekki í þessum tíðum fje það, sem stjórnin hefir veitt og ákveðið mentuninni hjer á landi til frama, væri óheyrilegt og syndsamlegt að voru áliti. é og je. II1. i-hljóðið í ljeli (og s. frv.) er eins undir komið ogj-hljóðið í hljóp (og s. frv.): skýring á þessu held jeg muni koma í það band, sem næst er von á, af »Annaler for nordisk 01dkyndighed«. Enn þangað til »þvf náir«, vísa jeg til Itasks í formálanum við »01d- nordisk Læsdbog«, sem er prentaður 1832, og mun vera seinastur af því, sem hann hefur ritað um íslen/.ku. í þessum formála getur Rask þess, að elztu fornrit hafl tómt e, enn sleppi j, og segir síðan: »þó má varla þar »af ráða, að þetta j hafi vantað (at det — þ. e. Jefor- »slaget — ikke har fundet sted); því hin fornu þjóðversku »mál (Frankisk og andre oldtydske Sprog) hafa j fyrir »framan a þar sem líkt er ástatt,, t. a. m. rjat, á nor- »rænu rjeð, reð; tjaz á norrænu Ijet, let; einnig finnst í »forndönsku fjal eða fjœl fyrir hið íslenzka fjell, fell; og »í fornsænsku fjol, hjoJt., á ísl. hjelt, helt, eins og fjal, »hjalt, á forna þjóðversku (Frankisk)«. Og þetta er nú maðurinn, sem fyrstur setti »bakfallið« yfir e: hann var ekki sterkari á svellinu en þetta — í þessu máli. (Enda var ekki við að búast, að hann stæði fastara í því, sem ekki var rjettara). Nú að sinni bæti jeg því einu við, að í hinni fornu þjóðversku finnst ekki einungis riat eða rjet (á ísl. rjeð), liaz eða Ijaz (á ísl. Ijet), jkd eða fjal (á ísl. fjell), hialt eða hjalt (á ísl. hjelt); sömuleiðis: hiaz eða lijaz (á ísl. hjet), bliant eða bljant, (á ísl. bljett, blandaði), fiald eða jjald (á ísl. fjelt, faldaði); heldur einnig riet eða rjet (á ísl. rjeð), liez eða Ijez (á ísl. Ijet), fiel eða fjcl (á ísl. fjell), hielt eða hjelt (á ísl. hjelt), hiez eða hjez (á ísl. hjet. Kauproaniiahiifn, 10. júlí 18S2. Konráð Gúlason. — Viðvíkjandi þyí, sem sagt er í íslendingi, 3. ári nr. 7, að »sumir« af sálmurn mínum, »muni ekki vera frum- kveðnir« leyfi jeg mjer að geta þess, að kvöldsálmurinn á bls. 29. »N'h horfinn dags er ljúfur ljómi« er áður prentaður í »Islenskri Sálmasaungs- og Messubók með nótum eptir Pjetur Guðjónsson Kh. 1861« bls. 131 nr. 110, og er sú þýðing mín, er þar stendur, gjörð eptir danskri útleggingu af hinum þýzka sálmi Páls Gerhards, en í »Yikusálmakverinu« hef jeg stytt mína fyrri þýðingu og breytt nokkru. Um síðari kvöldsálminn, bls. 31. er það að segja, að jeg að eins hef haft nokkra hliðsjón af hinum forna útlagða grallarasálmi »Christe I þú klári dag- ur ert«, en honum er lijer svo breytt, að hann má ná- lega frumkveðinn heita. Allir hinir sálmarnir eru mitt eigið verk, án þess jeg hafi haft hinn minnsta stuðn- ing af annar sálmum. Reykjavík 22. júií iss2. Guðmundur G. Sigurðsson. 1) I. grein er í Islendiugi IH, 39. líýtt tímarit. Eptir tilmælum landa vorra, herra alþingismanns Gísla Brynjúlfssonar og herra kand. Eirílcs Jónssonar, látum vjer prenta bjcr eptirfylgjandi boðsbrjrf þeirra, um nýtt tímarit, sem þeir ætla að gefa út, í þeirri von, að landar vorir bregðist vel við og skrifi sig fyrir því. þeir, sem búa í nánd við Reykjavík, geta í því efni snúið sjer til eins okkar útgefendanna, Páls Melsteðs í Reykjavík, en hinir sem 1'jær eru, annaðhvort til höfunda boðsbrjefs- ins, eða einhvers er þar í nánd hefur boðsbrjef þeirra í höndum. »Sá tími er nú liðinn, sem betur fer, að Islendingar í Höfn þuríi að vera að vekja landsmcnn heima með blöð- um eða tímaritum útgefnum í Danmörku. Á íslandi sjálfu eru nú sem stendur þrjú blöð, að vjer vonum í bezta gengi, og heldur líklegt að þess konar rilum fjölgi þar en fækki hjeðan af. þelta er því allt í því horfi sem það þarf að vera. En, eins og Sighvatur skáld sagði við Ólaf konung, þegar liann þóttist ei vilja láta kveða lofkvæði um sig með heiðnum orðatiltækjum, að eitt skáld mætti þó kon- ungurinn eiga — eins segjum vjer nú, að eitt tímarit mega íslendingar þó alltjend eiga hættulaust í Danmörk. Og með því vjer nú ei vitum hvort »Ný Fjelagsrit« muni koma út framvegis eða eigi, þá hefir oss komið til hugar að beitast fvrir útgáfu nýs tímarits á íslenzku hjer í Ilöfn, ef landar vorir heima vilja að eins styrkja oss til þessa fyrirtækis með því að kaupa ritið. Og enda hvort sem »Ný Fjelagsrit« koma út eða eigi, munum vjer halda út í þetta mál, ef kaupendur fást, því tilhögunin á riti voru mun að minnsta kosti verða önnur en á »Fjelagsritunum«, og einkum að því, að vjer höfum áformað að láta það koma út optar en einu sinni á ári, og ef til vill á liverj- um mánuði. Rit þetta hefur oss dottið í hug að kalla »Suðra«, og er í því nafni að nokkru leyti falin stefna þess, því einn aðaltilgangurinn á einmitt að vera, að færa mönnum á íslandi frjettir og fróðleik sunnan að; og verður það ei varið, að menn eru í því tilliti á margan hátt betur settir hjer suður frá en fyrir norðan lslands haf. Ritgjörðum um stjórnarmálefni Islands og önnur þau þjóðmál, er mestu varða land og lýð, munum vjer og veita hæfilegt rúm í »Suðra«, og eins dómum um íslenzk ritog bók- mentir bæði að fornu og nýju, og þykir oss svo óþarft að fara fleirum orðum um stefnu eða tilgang tímaritsins á þessum stað. Af »Suðra« mun koma út 12 arkir á ári og kosta 1 ríkisdal. Ef nægir kaupendur fást munu fyrstu arkirnar koma út í vetur, og veröa sendar til allra hafna á Islandi með fyrstu vorskipum næsta ár. Biðjum vjer nú góða menn að vera oss nú liðsinnandi og safna áskrifendum bæði fljótt og vel og senda oss svo þau boðsbrjef, sem unnt er, þegar í haust. Kaupmannahui'n, 10. júlí 1862. Eiríkur Jónsson. Gísli Brynjúlfsson^. Hafísinn við JTtúlasýslnr (sbr. ísl. I. nr. 17; II. nr. 4, 5, 15). Eins og lesendur vorir muna, hefur dr. Hjaltalín í 1. ári ísl. nr. 17 sett fram nokkrar spurningar um hafís- inn hjer við land,og tveir mennta- og fróðleiksvinir, ann- ar að vestan, hinn að norðan, hafa sýnt oss og málefn- inu þá velvild, að svara spurningum þessum, og eru rit- gjörðir þeirra prcntaðar í blaði voru. Nú hefur hinn þriðji, herra J. Sigfússon á Iíetilsstöðum í Múlasýslu góð-

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.